Þjóðviljinn - 02.12.1989, Qupperneq 11
VIÐHORF
Evrópulest á
röngu spori
Hjörleifur Guttormsson skrifar
Alvarleg tíðindi gerðust varð-
andi meðferð hagsmunamála fs-
lands gagnvart Evrópubanda-
laginu núívikunni. Alþýðuflokk-
urinn knúði fram í ríkisstjórn um-
boð til handa utanríkisráðherra
til að „taka þátt í undirbúnings-
og samningaviðræðum" EFTA
og Evrópubandalagsins „sem
byggðar verða á sameiginlegum
niðurstöðum könnunarviðræðna
þar með talið þeim fyrirvörum,
sem íslendingar hafa sett fram“.
Pessi afgreiðsla var samþykkt í
ríkisstjórn þrátt fyrir viðleitni
þingflokks Alþýðubandalagsins,
sem samþykkti sérstaka bókun
um málið fyrir umræddan fund
ríkisstjórnarinnar. Þótt þar hafi
að mínu mati ekki verið tekin
nógu skýr og ótvíræð afstaða, eru
þó í þessari bókun slegnir ýmsir
varnaglar, sem skipt gætu máli
við áframhaldandi málsmeðferð,
ef tillit væri til þeirra tekið af sam-
starfsaðilum.
Ég minni í þessu sambandi á
samhljóða samþykkt landsfundar
Alþýðubandalagsins um málefni
Evrópu og hagsmuni fslands,
sem birt var í Þjóðviljanum sl.
miðvikudag. Þar segir m.a.:
„Ekki er hægt að fallast á að á
næstu vikum verði knúin fram af-
staða um aðild íslands að form-
legum samningaviðræðum
EFTA við Evrópubandalagið um
myndun Evrópsks efnahagssvæð-
is. Nauðsynlegt er að frekari um-
ræður fari fram, áður en til slíkrar
ákvörðunar er gengið og að al-
menningi gefist kostur á að setja
sig inn í málavexti.
Landsfundurinn telur óhjá-
kvæmilegt, að farið verði vand-
lega yfir málið í heild og þá skýru
fyrirvara sem nauðsynlegt er að
fyrir liggi, áður en afstaða er
tekin til formlegra samningavið-
ræðna.“
Með vísan til ályktunarinnar
fól landsfundurinn þingflokki Al-
þýðubandalagsins að höfðu sam-
ráði við framkvæmdastjórn
flokksins að taka endanlega af-
stöðu til málsins á Alþingi og í
ríkisstjórn.
Þrátt fyrir þessar samþykktir á
vettvangi Alþýðubandalagsins
hefur það gerst nú að ríkisstjórn-
in tekur afstöðu tii samningavið-
ræðna EFTA-ríkja við Evrópu-
bandalagið og veitir utanríkisráð-
herra umboð til slíkra viðræðna.
Þetta er gert aðeins viku eftir að
Alþingi fær að sjá skýrslu ráð-
herrans um niðurstöður könnun-
arviðræðna og áður en Alþingi
hefur lokið umræðu um málið.
Hér er vissulega um dæmalaus
vinnubrögð að ræða, sem ég geri
ráð fyrir að gangi fram af mörg-
um.
Skýringarnar sem fram eru
bornar til réttlætingar eru þær
helstar, að stjórnarandstaðan
hafi verið að stríða ríkisstjórninni
í umræðum á Alþingi og að utan-
ríkisráðherra þyrfti að halda
áfram fundum í útlöndum og væri
ekki væntanlegur til landsins
nema rétt til að borða jólasteik-
ina.
Ef hér væri á ferðinni léttvægt
mál kynnu ýmsir að yppta öxlum
og láta sér fátt um finnast. En
þegar um er að ræða eitt mikils-
verðasta mál í sögu lýðveldisins,
mál sem varðar fjölþætta
hagsmuni íslands og réttarstöðu
landsins í samfélagi þjóða er ekki
hægt að taka svona málsmeðferð
með þegjandi þögninni.
Boðaðar viðræður EFTA-
ríkjanna og Evrópubandalagsins,
sem taka á afstöðu til 19. desemb-
er næstkomandi, snúast um það
fyrst og fremst, hvernig
ÉFTA-ríkin verði þátttakendur í
innri markaði Evrópubandalags-
ins, þar sem afnumin verði landa-
mæri fyrir fjármagn, fjármála-
þjónustu og önnur þjónustuvið-
skipti, tilfærslu vinnuafls og rétt
fyrir útlendinga til búsetu og til
að stofna fyrirtæki.
Þeir fáu fyrirvarar sem utan-
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
Oddgeir Pétursson
Grýtubakka 28
verður jarðsunginn frá Breiðholtskirkju þriðjudaginn
5. desember kl.13.30.
Anna Árnadóttir, börn og tengdabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og útför
Guðmundar Björnssonar
kennara
Akranesi
Pálína Þorsteinsdóttir
Ormar Þór Guðmundsson Kristín Valtýsdóttir
Gerður Birna Guðmundsdóttir Daniel Guðnason
Björn Þorsteinn Guðmundsson Þórunn Bragadóttir
Ásgeir Rafn Guðmundsson Fríða Ragnarsdóttir
Atli Freyr Guðmundsson Halina Bogadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
ríkisráðherra setti fram fyrir Is-
lands hönd í könnunarviðræðum
sl. sumar verða samningsatriði,
fyrst í hópi EFTA-ríkjanna inn-
byrðis og síðan við Evrópu-
bandalagið.
Krafa EFTA um fríverslun
með fisk, þ.e. afnám tolla á sjáv-
arafurðum og styrkja til sjávarút-
vegs, hefur fengið afar neikvæðar
undirtektir hjá talsmönnum EB,
sem vísa í því sambandi til sam-
„Villuljósin frá Ósló
og Brussel eru að leiða
íslenska ráðamenn á
hœttulegar brautir. Því
fyrrsem menn hœtta að
eltaþauþeim mun betra.
Éghef áhyggjur afþví, ef
Alþýðubandalagið held-
ur áfram að láta teyma sig
út í þá ófæru“
eiginlegrar fiskimálastefnu
bandalagsins.
Könnunarviðræðurnar leiddu
ekki til niðurstöðu um þær
breytingar sem talin er þörf á að
gerðar verði á EFTA til að það
geti orðið burðarás í Evrópsku
efnahagssvæði með EB. Það sem
rætt hefur verið um stefnir
augljóslega í yfirþjóðlegar á-
kvarðanir varðandi stofnanalega
tengsl, eftirlit og dómsvald. For-
sætisráðherra og ýmsir fleiri hafa
haft um það mörg orð að ekki
komi til greina neitt valdaafsal af
íslands hálfu. Samt heldur hann
ótrauður áfram sem fremsti
ábekingur á umboði utanríkis-
ráðherra.
Ég hef ekki séð nein frambæri-
leg rök fyrir því að það sé í þágu
íslenskra hagsmuna að gerast að-
ili að formlegum samningavið-
ræðum EFTA-ríkja um Evrópskt
efnahagssvæði. Slíkar sameigin-
legar viðræður um „fjórfrelsið“
svokallaða, þar sem EFTA-
ríkjunum er ætlað að tala einni
röddu fela hins vegar í sér
augljósar hættur fyrir íslenskt
samfélag.
Eins og landsfundur Alþýðu-
bandalagsins ályktaði um eru sjá-
varútvegsmál og viðskipti með
sjávarafurðir aðalatriði í sam-
skiptum íslendinga við Evrópu-
bandalagið. Ásviðisjávarútvegs-
mála eigum við aðeins takmark-
aða samleið með öðrum EFTA-
ríkjum, þar sem iðnaðarhags-
munir sitja í fyrirrúmi. Eðli máls-
ins samkvæmt hljóta samningar
um þessi efni því að vera við-
fangsefni í milliliðalausum við-
ræðum íslands og Evrópubandal-
agsins. Við þurfum að ná sem
fýrst fram endurskoðun á við-
skiptasamningnum frá 1972
ásamt bókun 6, ekki síst að því er
varðar tolla EB á saltfisk og fersk
fiskflök.
Villuljósin frá Ósló og Brússel
eru að leiða íslenska ráðamenn á
hættulegar brautir. Því fyrr sem
menn hætta að elta þau þeim mun
betra. Ég hef áhyggjur af því, ef
Alþýðubandalagið heldur áfram
að láta teyma sig út í þá ófæru.
Fyrr en varir getur verið um
seinan að snúa við.
Hjörleifur Guttormsson er þingmað-
ur Alþýðubandalagsins á Austurlandi
og fulltrúi flokksins í utanrikismála-
nefnd Alþingis.
I DAG
þJÓDVILIINN
FYRIR 50 ÁRUM
Tvær nýjar stjórnir í Finnlandi.
Sovétríkin viðurkenna nýju
stjórnina í Austur-Finnlandi.
Flelsinki-stjórnintelurenn mögu-
leikaásamkomulagi. Stúdentar
aflýstu öllum hátíðarhöldum 1.
desember vegna samúðar með
Finnum.
2. desember
Laugardagur. 336. dagurársins.
7. vika vetrar hefst. Sólarupprás í
Reykjavíkkl. 10.48-sólarlag kl.
15.46.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Laos og Sam-
einuðu arabísku furstadæ-
manna. Gunnar M. Magnúss rit-
höfundurfæddurárið 1898.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöa vikuna
1 .-7. des. er í Apóteki Austurbæjar og
Breiöholts Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). S iöarnef nda apótekiö er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur............sími 4 12 00
Seltj.nes............sími 1 84 55
Hafnarfj.............sími 5 11 66
Garöabær.............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavlk............sími 1 11 00
Kópavogur............sími 1 11 00
Seltj.nes............sími 1 11 00
Hafnarfj.............sími 5 11 00
Garðabær.............sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöö Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiönir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna simi
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt s.
656066, upplýsingár um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stööinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farslmi vaktlæknis 985-23221.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
. 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-T8,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. öldrunarlækningadeild Land-
spítalansHátúni 10B. Alladaga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstígopinalladaga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítalinn:alladaga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjólparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrirung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allan sólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf I sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagiðÁlaridi 13. Opið virkadagafrá
kl. 8-17. Síminner 688620. •
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, •
Sími 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin ’78. Svarað er I upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum timum. Siminn er
91-28539.
Bllanavakt rafmagns-oghitaveitu:s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími
21260allavirkadagakl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i síma91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
1. des. 1989
kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar.............. 62.69000
Sterlingspund................. 98.20100
Kanadadollar.................. 53.82300
Dönskkróna..................... 9.09210
Norsk króna.................... 9.22860
Sænsk króna.................... 9.84760
Finnskt mark................ 14.99400
Franskurfranki................ 10.31550
Belgískur franki............ 1.67730
Svissneskurfranki............. 39.37320
Hollensktgyllini.............. 31.24740
Vesturþýskt mark.............. 35.24780
Itölsklíra..................... 0.04778
Austurrískursch................ 5.00220
Portúg. Escudo................. 0.40470
Spánskurpeseti................. 0.54620
Japansktyen.................... 0.43717
Irsktpund..................... 92.99700
KROSSGÁTA
Lórétt: 1 virki 4 stubba
6málmur7skrafi9
æsa 12 gust 14 mánuð-
ur15barn 16hafna19
súrefni20grama21
hagur
Lóðrétt: 2 kúga 3 spjót
4kenjar5fjör7eflir8
dranga10styggur11
gæfan 13 vafi 17 tré 18
fataefni
Lausn á siðustu
krossgátu
Lárétt: 1 hróp4part6
Ijá 7 sína 9 löst 12 ötull
14 mók 15 dæl 16 klafi
19 örvi 20 anda 21 ang-
ra
Lóðrétt: 2 rói 3 plat 4
páll5rós7samtök8
nökkva 10 öldina 11
tálmar13una17lin18
far
Laugardagur 2. desember 1989 PJÓÐVILJINN - SÍÐA 11