Þjóðviljinn - 09.12.1989, Blaðsíða 1
Laugardagur 9. desember 1989 212. tölublað 54. órgangur.
Veðurguöirnir leika við ferfætlinga jafnt sem aðra íbúa landsins þessa dagana. Þrátt fyrir veðurblíðuna eru hestamenn samt að taka skepnumar á hús um þessar mundir7
Mynd Jim Smart.
GarÖabœr
Braskað með kaupleiguna
Sjálfstœðismenn íbœjarstjórn hafnaBúseta en stofna ístaðinn hlutafélagfyrirgœðingaflokksins til aðreisa kaupleigu-
íbúðir og hagnastá þeim. HilmarIngólfsson: Gceti farið svo að Garðabœr missi lánsloforðin þar sem lóðir vantar
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í Garðabæ hafa
ákveðið að stofna hlutafélag til
þess að braska með kaupleiguí-
búðir eftir að hafa synjað Búset-
afélaginu í bænum um að nýta
lánsloforð til bygginga 12
kaupleiguíbúða sem bæjarfé-
laginu hafði verið úthlutað.
„Þetta er óundirbúið rugl hjá
Sjálfstæðismönnum og illa að
þessu staðið,“ sagði Hilmar Ing-
ólfsson fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í bæjarstjórn.
í Garðabæ eru 4 íbúðir í verka-
mannabústöðum og er um ára-
tugur síðan þær voru reistar. Al-
þýðubandalagið hefur ítrekað
reynt að fá Sjálfstæðismenn til
þess að sækja um í byggingarsjóð
verkamanna en því ætíð verið vís-
að frá þar til í fyrra. Þá fékk
Garðabær úthlutað til bygginga 8
íbúða í verkamannabústaðakerf-
inu og til bygginga 12 íbúða í
kaupleigukerfinu.
Svo brösulega hefur tekist til
með þetta að engar lóðir eru til í
Garðabæ þannig að það stefnir í
það að Garðabær verði af þessum
úthlutunum en framkvæmdir
þurfa að hefjast fyrir áramót og
enn hefur engin lausn fundist á
því máli. Leitað hefur verið
samninga við verktaka sem eru
að reisa fjölbýlishús í bænum en
þær íbúðir eru það dýrar að óvíst
er að þær verði samþykktar af
Húsnæðisstofnun.
Fyrr á árinu sótti Búseti í Garð-
abæ um að fá að notfæra sér lof-
Búist er við að æðstaráð Eist-
lands fari á næstunni að dæmi
þess litháíska og löggildi fjöl-
flokkakerfi. Litháen varð í fyrra-
dag fyrst til þess sovétlýðvelda að
innleiða það kerfi. Var frumvarp-
ið um þetta samþykkt í nálega
einu hljóði í litháíska æðsta-
ráðinu. Frá Lettlandi er hermt að
lagt sé fast að æðstaráðinu þar að
samþykkja samskonar frumvarp
er það kemur saman fyrir áramót
Að margra áliti gengur ný-
nefnd samþykkt litháíska æðsta-
ráðsins í berhögg við stjórnarskrá
Sovétríkjanna, en í sjöttu grein
hennar stendur að kommúnista-
flokkurinn skuli hafa forustu í
stjórnmálum landsins. En vissir
róttækir forustumenn, þeirra á
meðal hinn kunni vísindamaður
og mannréttindafrömuður And-
rej Sakharov, vilja fella grein
þessa úr stjómarskránni og er
gert ráð fyrir að þeir veki máls á
því er sovéska þjóðfulltrúaþingið
kemur saman í annað sinn á
þriðjudag.
Margra mál er að löggilding
fjölflokkakerfis í Eistlandi og
Lettlandi verði aðeins formsatr-
iði, þar eð það sé þegar í gildi þar í
raun. Þar eru auk grasrótarhreyf-
inga, sem njóta fylgis mikils
þorra innfæddra landsmanna,
sprottnir upp stjórnmálaflokkar
af ýmsu tagi, jafnaðarmenn,
kristilegir demókratar, græningj-
ar o.fl. og ber ekki á öðru en að
þeir hafi fullt frelsi til að starfa,
þótt þeir hafi ekki fengið opin-
bera viðurkenningu sem stjórn-
málaflokkar. Byggðastjórna-
kosningar fara fram í Eistlandi og
Lettlandi á morgun.
Reuter/-dþ.
orðið til bygginga kaupleiguíbúð-
anna 12. Því höfnuðu Sjálfstæðis-
menn m.a. á þeirri forsendu að
flokkurinn væri andvígur þeirri
reglu Búseta að úthluta íbúðum
eftir röð, þannig að þeir fengju
fyrstir íbúðir sem fremstir eru í
röðinni. Sjálfstæðismenn vildu
að önnur sjónarmið réðu um út-
hlutunina.
23. nóvember leggja sjálfstæð-
ismenn svo fram á bæjarstjórnar-
fundi tillögu um stofnun hlutafé-
lags til að kaupa, byggja og reka
kaupleiguíbúðir. Tillaga þessi
hafði ekki verið í fundarboði.
Hlutafé félagsins á að vera ein
miljón króna og skiptast í 50
hluta, hver hlutur 20 þúsund
krónur. Hluthafaskráin á að
skoðast sem fullgild sönnun fyrir
eignarrétti að hlutum í félaginu
og á að greiða arð á hverjum
tíma.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
samþykktu þetta gegn atkvæðum
fulltrúa Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Framsóknar. Við
lögðum til að Búseti fengi að
byggja íbúðirnar og þannig vild-
um við tryggja það að fólkið fengi
að ráða hvernig að þessu yrði
staðið en Sjálfstæðismenn höfn-
uðu því. Það er augljóst að ein-
hverjir gæðingar Sjálfstæðis-
flokksins eiga að fá að ráðgast
með þessar íbúðir. Þegar Sjálf-
stæðismenn voru spurðir hverjir
yrðu hluthafar í félaginu fengust
engin svör. Reyndar var talað um
að einhverjir verktakar yrðu
hluthafar. Samkvæmt því eiga
verktakarnir að sjá um úthlutun á
þessum íbúðum þegar þar að
kemur því einsog stendur í
drögum að lögum félagsins þá á
félagið að ráðstafa íbúðunum,
sem það hefur fengið til úthlutun-
ar í Garðabæ," sagði Hilmar.
Því má svo bæta við að það er
samstaða um það í bæjarstjórn að
úthluta Búseta lóðum á næsta ári
fái félagið úthlutað frá Húsnæðis-
stjórn til bygginga kaupleigu-
ibúða.
-Sáf
Eistland og Lettland
Verður fjölflokkakerfi lögleitt?
Margir telja það komið á í raun. Löggilt íLitháen í fyrradag