Þjóðviljinn - 09.12.1989, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Kvikmyndagerð
Margfaldir möguleikar
íslenskir kvikmynda- ogsjónvarpsmennfá aðgang að 400 miljóna
króna sjóði með aðeins 1 % framlagi
Svavar Gestsson óskar Markúsi Erni Antonssyni og Hans Kristjáni Árnasyni til hamingju eftir undirritun samninqsins.
Mynd: Jim Smart.
Igær var undirritaður samning-
ur um stofnun norræns
kvikmynda- og sjónvarpssjóðs
sem talinn er brjóta blað í nor-
rænni kvikmynda- og sjónvarps-
gerð. Af íslands hálfu eiga Kvik-
myndasjóður Islands, Ríkisút-
varpið og Islenska sjónvarpsfé-
lagið hf. aðild að sjóðnum sem
mun hafa rösklega 400 miljónir til
ráðstöfunar ár hvert.
Framlög til sjóðsins skiptast að
jöfnu á milli norrænu ráðherra-
nefndarinnar, kvikmyndastofn-
ana og sjónvarpsstöðva á Norð-
urlöndum og miðast hlutur samn-
ingsaðila í hverju landi við sömu
reglu og gildir um framlög til
norræns samstarfs. fslensku sjón-
varpssöðvarnar greiða samanlagt
1% af framlagi norrænna sjón-
varpsstöðva, eða 750 þúsund
krónur hvor, og Kvikmyndasjóð-
ur íslands greiðir 1% af framlagi
norrænna kvikmyndastofnana,
eða 1,5 miljónir króna.
Fimm manna sjálfstæð sjóðs-
stjórn tekur ákvarðanir um út-
hlutanir úr sjóðnum. Ólafur
Ragnarsson bókaútgefandi og
fyrrum sjónvarpsmaður situr í
stjórninni af íslands hálfu, en
varamaður hans er Kristín Jó-
hannesdóttir kvikmyndaleik-
stjóri. Framleiðendur kvik-
mynda eða sjónvarpsefnis geta
sótt um framlög úr sjóðnum og er
enginn áskilnaður um að fleiri en
ein þjóð þurfi að standa að við-
komandi verki. Úthlutun fer fyrst
og fremst eftir listrænu mati og
hvort verkið sé vel fallið til dreif-
ingar á Norðurlöndum. Pá er
einnig lögð áhersla á að veita
styrki til barna- og unglingaefnis.
Svavar Gestsson, formaður
norrænu ráðherranefndarinnar,
sagði samninginn vera sérlega
kærkominn fyrir íslenska kvik-
myndagerð nú þegar ráðstöfun-
arfé Kvikmyndasjóðs íslands er
bundið við óbreytta krónutölu.
„Þá finnst mér ánægjulegt að
sjónvarpsstöðvarnar skuli standa
sameiginlega í að efla bæði ís-
lenska og norræna kvikmynda-
og sjónvapsmyndagerð,“ sagði
Svavar.
Sjóðurinn mun taka til starfa
um áramótin og verður fyrsta út-
hlutun væntanlega snemma á
nýja árinu. _þóm
Jólasveinamir mæta
Jólasveinarnir koma af fjöllum nú um helgina, reyndar aðeins fyrr en
lög gera ráð fyrir þar sem fyrsti sveinninn á ekki að mæta fyrr en á
þriðjudag. Þeir vilja samt ekki missa af því þegar kveikt verður á
jólatrénu á Austurvelli á sunnudag kl. 16.00 og troða þar uppi á þaki
Nýja kökuhússins. Athöfnin hefst kl. 15.30 með leik Lúðrasveitar
Reykjavíkur. Síðan mun sendiherra Noregs á íslandi afhenda tréð
sem Osló gefur Reykvíkingum og mun borgarstjóri veita trénu viðtöku
fyrir hönd borgarbúa. Athöfninni lýkur með söng Dómkórsins.
Búseta
Hallar á
lands-
byggðina
Alvarlegar horfur í búset-
uþróun á þessum áratug
Aárunum 1980-1988 fjölgaði
þjóðinni um 22.503 íbúa en
þar af fjölgaði á landsbyggðinni
utan höfuðborgarsvæðisins um
aðeins 2.263 íbúa eða um 10.06%
af heildar íbúafjölgun í landinu.
Fjölgun á höfuðborgarsvæðinu er
því um 89,94% allrar þjóðar-
aukningar á þessum árum.
Þetta kemur fram í samantekt
Fjórðungssamband Norðlend-
inga um búsetuþróunina á þessu
tímabili. Á sama tíma hefur íbú-
um fækkað á Vestfjörðum, Vest-
urlandi og á Norðurlandi vestra
um alls 529. Á Vestfjörðum er
fækkunin mest eða tæp 0,5% að
meðaltali á árunum 1980-1988.
Á Suðurnesjum er hins vegar
meðalaukningin 1,5% á ári. En
samanlögð íbúaaukning á Norð-
urlandi eystra, Austurlandi og
Suðurlandi er 0,77% á ári. Petta
þýðir að meðal aukning á Suður-
nesjum á þessu tímabili er tvöfalt
meiri en annars staðar á lands-
byggðinni þar sem íbúafjölgun er
um að ræða á annað borð.
Fækkun íbúa á Norðurlandi
vestra er aðeins 0,1% en fjölgun
íbúa á Norðurlandi eystra er að
meðaltali 0,18%, á Áusturlandi
0,30% og á Suðurlandi 0,29%.
Fjórðungssambandið telur þessa
búsetuþróun mjög alvarlega og
þá sérstaklega sé það haft í huga
að á Norðurlandi eystra er stærsti
byggðakjarni landsins fyrir utan
Faxaflóasvæðið. „ru
Tónlistarvika
Laugameskiiiqa
Tónlistarvika verður haldin í
Laugarneskirkju dagana 10.-17.
desember í tilefni að fertugsaf-
mæli kirkjunnar. Kór Laugar-
neskirkju hefur tónleikahaldið á
morgun kl. 17, en því lýkur með
hátíðarmessu á sunnudaginn eftir
viku. í frétt frá kirkjunni segir að
miklar endurbætur hafi verið
gerðar á henni undanfarin tvö ár,
hún sé orðinn sem ný og meðal
annars sé hljómburður orðin
miklum mun betri en áður var.
Biskup Íslands, herra Ólafur
Skúlason opnar tónlistarvikuna
með ávarpi fyrir tónleika kórsins
á sunnudaginn. Á efnisskránni
eru gömul jólalög, sem sænski
kórstjórinn Anders Öhrwall hef-
ur útsett og tekið saman undir
nafninu Gaudete. Auk þess
flytur hann Missa brevis eftir
Mozart ásamt einsöngvurunum
Sigríði Gröndal, Dúfu Einars-
dóttur, Guðmundi Þ. Gíslasyni
ogHalldóri Vilhelmssyni. Undir-
leik annast hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveit íslands ásamt
fertug
Þresti Eiríkssyni organleikara en
stjórnandi Ann Toril Lindstad,
organleikari kirkjunnar.
Ann Toril verður með hádeg-
istónleika í kirkjunni alla virka
daga vikunnar og hefjast þeir kl.
12. Hún nam orgelleik og kirkju-
tóniist í Osló og Amsterdam og
hefur verið organleikari Laugar-
neskirkju undanfarin 4 ár. Á há-
degistónleikunum flytur Ann
Toril verk eftir ýmsa höfunda,
svo sem Bach, Brahms, Buxtehu-
de og Beethoven. Kyrrðarstund,
altarisganga og fyrirbænir verða í
kirkjunni um hádegi á fimmtudag
auk tónleikanna og boðið upp á
súpu og brauð í safnaðarheimil-
inu á eftir.
Kvöldlokk á jólaföstu heita
tónleikar Blásarakvintetts
Reykjavíkur, sem verða í kirkj-
unni á þriðjudagskvöldið. Kvint-
ettinn leikur verk eftir Mozart,
Beethoven og Haydn og hefjast
tónleikarnir kl. 20:30.
Mótettukór Hallgrímskirkju
heldur tónleika á fimmtudags-
kvöldið og flytur þá meðal annars
mótettur eftir J.S. Bach og Ecc-
ard, jólalög og sálma meðal ann-
ars í útsetningu Róberts Abra-
hams Ottóssonar. Tónleikarnir
hefjast kl. 20:30-
Loks verður Ann Toril með
tónleika á laugardaginn kl. 17 og
flytur þá þrjá þætti úr orgelsin-
fóníu eftir Widor, auk verka eftir
Franck og Reger. Tónlistarvik-
unni lýkur með messum á sunnu-
dag; Barnakór Laugarnesskólans
syngur við barnamessu kl. 11, og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
kór kirkjunnar við hátíðarmessu
kl. 14.
Aðgangur að hádegistón-
leikum er ókeypis, miðar að
síðdegis- og kvöldtónleikum eru
seldir við innganginn. LG
Einleikarapróf á víólu
Hanna Margrét Sverrisdóttir víóluleikari heldur einleikstónleika í
sal Tónlistarskóla Reykjavíkur næstkomandi þriðjudagskvöld kl.
20:30.
Tónleikarnir eru burtfararpróf Hönnu Margrétar frá skólanum og
leikur hún Svítu nr. III eftir J.S. Bach, Suite Hébraique eftir Ernest
Bloch, Cadenzu eftir Áskel Másson og Sónötu í f-moll eftir Brahms.
Undirleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari og aðgangur
ókeypis. LG
Laugardagur 9. desember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
HELGARRÚNTURINN
BÚÐARÁPIÐ fer nú að verða allsráðandi í lífi fjölskyldunnar á laugar-
dögum enda neyslugleðin mikla í nánd. í dag verða verslanir opnar til
kl. 18 og þetta hafa tónleikahaldarar greinilega í huga því allir þeir átta
tónleikar sem okkur er kunnugt um að halda eigi um helgina verða á
morgun, sunnudag. Sinfónían ríður á vaðið, aukin Kársneskórnum, og
flytur Hnotubrjótinn eftir Tsjækofskí í Háskólabíói kl. 14. Klukkan 17
hefst tónlistarvika Laugarneskirkju með því að kirkjukórinn flytur
Missa brevis eftir Mozart ofl. auk þess sem Ann Toril Lindstad leikur
Bach á orgelið. Á sama tíma hefjast tónleikar yngri nemendaTónskóla
Sigursveins í Norræna, en hálftíma síðar vígir Ragnar Björnsson nýtt
orgel sem skóli hans, Nýi tónlistarskólinn við Ármúla, hefur fengið og
það er alíslenskt. Kl. 20.30 verða tónleikar nemenda íTónlistarskóla
Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum og á sama tíma hefjast jólatónleikar
Fílharmóníunnar í Kristskirkju. Síðast en ekki síst verður Kristján
Magnússon og hljómsveit hans í Heita pottinum í Duus-húsi kl. hálf-
tíu—
GALLERÍIN eru mörg hver með jólaupphengi á veggjum sínum og
gjarnan er reynt að trekkja með menningarlegum uppákomum, söng
eða upplestri. í Gerðubergi sýnir Tolli hins vegar silkiþrykk ogí
Norræna húsinu er Jóhanna Boga með grafík niðri og sæfarar ársins
sýna myndir úr bókinni Kjölfar Kríunnar í anddyrinu. í Þjóðminja-
safninu eru enn norræn jól og í tengslum við það sýnir Jón E. Guð-
mundsson brúðuleikhús í Bogasalnum. í Hlaðvarpanum sýnir Heidi
Kristiansen myndteppi og á Holiday Inn er sýning á grafíkverkum 11
listamanna. Loks ber að geta forvitnilegustu sýningarinnar en hún er
undir berum himni og því aðeins opin í 3-4 tíma meðan bjart er. Hún
heitir Englahúsið og er haldin að Seltjörn við Grindavíkurafleggjar-
ann. Þar sýna þrjár stúlkur í MHÍ grafíkverk...
LEIKHÚSIN eru að loka fyrir jól, það er síðasta sýningarheigi. í
Borgarleikhúsinu verður Ljósvíkingurinn á báðum sviðum í kvöld og
því litla annað kvöld, í Þjóðleikhúsinu sýna þeir Lítið fjölskyldufyrir-
tæki í kvöld og annað k völd, Ó vitar verða sýndir á morgun kl. 14 og kl.
15 verðaleikararmeðjólagleðiíLeikhúskjallaranum. IKópavogieru
Blúndur og blásýra á dagskrá sunnudagskvöld, en norður á Akureyri
frumsýnir leikhópurinn Saga Fúsa froskagleypi í Dynheimum í
kvöld...
JÓLABÆKURNAR liggj a víða á glámbekk og í hádeginu í dag les
Guðbergur Bergsson upp í Listasafninu... ha, er hann ekki með neina
jólabók? Það eru hins vegar Birgir Sigurðsson, Eyvindur Eiríksson,
Ragnheiður Ófeigsdóttir og Þorsteinn frá Hamri sem lesa upp úr þeim í
FÍM-galleríinu kl. 14. Ogsjálfsagtverðarithöfundarákreikihérog
þar í verslunum landsins...
MARGSKONAR jólatilstand er viðhaft þessa dagana. Á Austurvelli
verður kveikt á jólatrénu kl. 16 á morgun, sunnudag. Þar tekur Dóm-
kórinn lagið og á eftir koma jólasveinar fram á þaki Nýja kökuhússins.
í Hlégarði halda Mosfellingar jólavöku annað kvöld kl. 20.30og í
Hátúni 12 verður markaður til fjáröflunar fyrir fatlaða kl. 14-18 í dag...
OG SVO verður heil umferð í handboltanum, og margt fleira...