Þjóðviljinn - 09.12.1989, Qupperneq 7
Corazon
Aquino
Filippseyjaforseti
Cory f agnar sigri eftir þjóðarat-
kvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá
1987 - margir telja að uppreisnin nú
verði henni áfall, enda þótt hún sigri
sem fyrr.
Eindagpnn er
2Zdesember
vegna
söluskatts
í nóvember
A
1 1 ð gefnu tilefni er athygli vakin á því
að eindagi söluskatts
vegna nóvembermánaðar 1989
er miðvikudagurinn 27. desember 1989.
Forðist örtröð -gerið skil tímanlega
RSK
Hún hefur harðnað við hverja raun
RÍKISSKATTSTJÓRI
Corazon Aquino Filippseyja-
forseti virðist ætla að standast
sjöttu uppreisnina, sem ótryggir
hermenn gera gegn henni, en
ekki er það þó alveg víst. Og
flestra mál er að í þetta sinn gangi
hún ekki heil hildi frá.
Corazon er rúmlega hálfsex-
tug, fædd 1933. Hún er af hástétt-
arfjölskyldu á miðhluta Luzon,
helstu eyjarinnar. Hún giftist
Benigno Aquino, stjórnmála-
manni sem varð þingmaður í
öldungadeild og forkólfur and-
stæðinga Marcosar harðstjóra.
Castro óhress með
perestrojku
í ræðu í fyrradag gagnrýndi Fi-
del Castro, Kúbuforseti, breyt-
ingarnar undanfarið í Austur-
Evrópu og Sovétríkjunum harð-
legar en nokkru sinni fyrr. Kvað
hann ríki þessi hafa látið heillast
af kapítalisma og sagði að sú
uppstokkun í heimsmálum, sem
nú ætti sér stað, hlyti að koma illa
niður á þriðja heiminum, þar eð
Sovétríkin og Austur-Evrópuríki
virtust nú hafa látið af samstöðu
með honum.
Ekki lengur
félagar
Stjórn Vestur-Afríkuríkisins
Benín, sem áður hét Dahomey,
lét í gær það boð út ganga að
marxlenínismi væri ekki lengur
ríkishugsjón þarlendis og í sam-
ræmi við það skyldu landsmenn
hætta að ávarpa hver annan með
orðinu félagi. Tilskipun þessi
verður að lögum þegar í stað.
Marxlenínismi hefur talist vera
ríkishugsjón í Benín í um hálfan
annan áratug.
Hýdd af
prinsessum
Dómstóll í Lundúnum fann í
gær tvær prinsessur frá Kúvæt,
Fariu og Simiyu al-Sabah að
nafni, sekar um að hafa þráfald-
lega lamið Lexi Swami, ind-
verska vinnukonu sína, með
svipu árin 1980-83, er hún þjón-
aði þeim í íbúð þeirra í höfuðborg
Bretlands. Játuðu prinsessurnar
að hafa beitt svipunni á vinnu-
konuna, þó ekki eins oft og hún
héldi fram, og kváðu hana hafa
unnið til þess með leti. Swami
kvað þær aukheldur hafa hótað
að fara með hana til Kúvæt og
láta hengja hana þar, ef hún hætti
í vistinni hjá þeim.
Kohl viðurkennir
Oder-Neisselínu
Helmut Kohl, sambandskansl-
ari Vestur-Þýskalands, kvað í gær
hafa sagt í fyrsta sinn að hann
viðurkenndi afdráttarlaust Oder-
Neisselínuna sem landamæri Pól-
lands og Þýskalands. Á hann að
hafa komist svo að orði yfir há-
degisverði með öðrum Evrópu-
bandalagsleiðtogum í Strassbúrg.
Hingað til hefur Kohl færst
undan að gefa afdráttarlausa yfir-
lýsingu um þetta, enda á hann
yfir höfði sér fyrir það reiði flótta-
manna frá Slésíu, Austur-
Pommern, Danzig (nú Gdansk)
og Austur-Prússlandi, sem fjöl-
mennir eru í Vestur-Þýskalandi.
Þau eignuðust fimm börn, fjórar
dætur og son. Fram á miðjan
aldur var ævi hennar til þess að
gera tíðindalítil og ekki fóru þá
sögur af neinum sérstökum
áhuga hennar á stjórnmálum.
Maður hennar sagði eitt sinn:
„Hver sá sem tekur við af Marc-
osi verður orðinn álíka daunillur
og hrossaskítur eftir hálft ár og
lengur situr sá ekki að völdum.“
Hann átti við að erfiðleikar þeir,
sem sá ríkisleiðtogi fengi að glíma
við, yrðu svo gífurlegir að hann
fengi ekki við neitt ráðið og kæm-
ist ekki hj á að baka sér stórfelldar
óvinsældir, sama hvernig hann
færi að. Þetta hefði Aquino varla
sagt ef hvarflað hefði að honum
að það ætti fyrir konu hans að
liggja að lenda í því hlutverki.
Píslarvœttisdýrkun
Benigno Aquino var sem
kunnugt er myrtur, er hann sneri
heim úr útlegð í ágúst 1983, og
mun Marcos hafa ráðið honum
bana. Þar reyndist sá slæmi
skálkur hafa hlaupið á sig, því að
eins og stundum vill verða gerðist
Benigno honum drjúgum
skæðari andstæðingur látinn en
hann hafði verið lifandi. Píslar-
vættisdýrkunin á hinum myrta
senator dró ekkju hans í einni
svipan fram í sviðsljós lands- og
heimsmála og áður en varði var
hún orðin sameiningartákn
flestra þeirra, sem losna vildu við
harðstjórann, og þeir voru ófáir.
Sjálf er hún viljasterk og enginn
dugleysingi og mun henni ekki
hafa verið síður í hug að safna liði
til að hefna bóndans en gráta
hann.
Ofan á harðstjórn og spillingu
hjá Marcosi bættist óstjórn í efna-
hagsmálum, hluti hersins snerist
gegn honum og jafnvel Banda-
ríkjamenn, sem lengi höfðu stutt
hann dyggilega og tekið áníðslu
hans á mannréttindum og lýðræði
með stillingu, fóru að halda þetta
borgaði sig ekki fyrir þá lengur.
Steininn tók úr er Marcos reyndi
að tryggja sig í valdasessi með
kosningasvindli í ársbyrjun 1986.
Manilabúar snerust gegn honum
næstum sem einn maður, höfðu á
lofti blóm í stað vopna og hylltu
Cory, eins og alþýða kallar Cor-
azon. Herinn sá hvert vindurinn
blés og bandarískur þrýstingur
gerði sitt. í febr. 1986 varð Cory
forseti Filippseyja.
/ tísku
Það þótti undri líkast að kona,
og hún meira að segja í fyllsta
máta kvenleg, skyldi komast til
æðstu valda í þessu landi harð-
stjórnar, ofbeldis og karlrembu.
Samanburðurinn við villimann-
lega og spillta ruddann Marcos
var henni mjög í hag og píslar-
vættisdýrðin reyndist endingar-
góð. Þar að auki famaðist henni
landstjómin fremur vel framan
af. Lýðræði var innleitt og efna-
hagur ríkisins réttur við að
nokkm. Enda var Cory í háveg-
um höfð af næstum öllum, utan-
lands sem innan. Hún er ein af
þeim manneskjum sem náði því
að komast í tísku.
í febr. 1987 greiddi' mikill
meirihluti Filippseyinga atkvæði
með nýrri stjómarskrá, sem
tryggir Cory forsetavald til 1992,
lagalega séð. í þingkosningum
PROFILL
þremur mánuðum síðar fengu
fylgismenn hennar 22 af 24 sætum
í öldungadeild og yfir 160 af 200
sætum neðri deildar.
Hefðar upp
á jökultindi
En næðingssöm varð henni eigi
að síður vistin á hefðarinnar
jökultindi. Marcos hafði tryggt
vald sitt með kerfi gæðinga, ekki
síst í hernum, og hann hefur
aldrei verið Cory fyllilega trygg-
ur. I fimmtu hermannauppreisn-
inni gegn henni, sem gerð var í
ágúst 1987, særðist sonur hennar.
En hún hefur virst harðna við
hverja raun. Marcos lést í útlegð í
sept. s.l. og bannaði Cory að
hann yrði jarðsettur í föður-
landinu, þar eð hana grunaði að
hann kynni að reynast henni
hættulegri andstæðingur dauður
en lifandi, eins og maður hennar
Marcosi áður. Líkur em á að
vopnin hafi snúist í höndum
hennar í því máli, því að vegna
banns þessa er farið að bera á
píslarvættisdýrkun á hinum látna
einræðisherra. Stjórn hennar er
ólíkt mannúðlegri en hans var, en
helmingi um 60 miljóna þegna
hennar, sem búa við örbirgð, líð-
ur lítt eða ekki betur en áður.
Þeim finnst mörgum að ekki hafi
annað breyst en að ein yfirstéttar-
klíkan hafi tekið við af annarri.
Sjálf er Cory talin heiðarleg,
burtséð frá ættarklíkuskap sem
hún er ekki laus við frekar en
landar hennar yfirleitt. En spill-
ing er áfram mikil þarlendis.
Nú er líka aftur farið að síga á
ógæfuhliðina í efnahagsmálum,
verðbólga vex og atvinnuleysi
eykst. í stríðinu við kommúníska
sicæruliða, sem lengi hefur verið
fastur liður í filippínskum veru-
leika, gengur hvorki né rekur
fremur en fyrr. Hægrimenn segja
konuna á forsetastóli of lina gegn
kommúnistum og vinstrimenn
(og sumir hægrimanna einnig)
saka hana um undirlægjuhátt
gagnvart Bandaríkjunum. Af
öllu þessu hefur dregið úr vin-
sældum hennar.
Aquino er kaþólsk eins og
landar hennar flestir, trúkona
mikil að sögn og sækir styrk í
trúna. Þegar vamarmálaráðherra
hennar og aðalráðamaður hers-
ins ógnaði henni með uppreisn
síðla árs 1986 brá hún sér í
klaustur, grét frammi fyrir nunn-
unum og baðst fyrir. Síðan rak
hún ráðherrann og hættan leið
hjá. dþ.
Laurel sakaður um
uppreisnarmakk
Corazon Aquino Filippseyja-
forseti ávarpaði í gær fund um
100,000 stuðningsmanna sinna í
Manila og sakaði Salvador
Laurel varaforseta, Juan Ponce
Enrile fyrmm varnarmálaráð-
herra og stóriðnrekanda nokk-
urn, sem er frændi hennar, um að
vera í vitorði með hermönnum
þeim, sem gerðu uppreisn fyrir
viku. í Manila hefur uppreisnin
nú verið bæld niður, en um 400
uppreisnarmenn á smáeynni
Mactan í eyjaklasanum miðjum
neita enn að gefast upp.
Áhugamaðurum
stríðsmyndir
og rafeindir
Maður sá sem myrti 14 kven-
stúdenta í Montreal í Kanada á
miðvikudag og skaut sig að því
búnu var 25 ára gamall atvinnu-
laus Alsíringur, hét upphaflega
Gamil Gharbi en hafði tekið upp
nafnið Marc Lepine. Lögregla
segir hann hafa verið allvel
greindan, hafa átt í erfiðleikum
með að komast í náin kynni við
konur og mjög áhugasaman um
stríðskvikmyndir og rafeinda-
tækni. Hann hafði ekki gerst sék-
ur um glæpi áður og var ekki í
áfengi eða fíknilyfjum. í bréfi
sem á honum fannst sakaði hann
kvenréttindakonur um að hafa
spillt lífi sínu. Ekki þekkti hann
neinar stúlknanna sem hann
myrti.
IN nsrð til
Akureyror innon
10 sehúndna
Fáar aðrar samgönguleiðir slá
símanum við íhraða ogþœgindum. Þú
ert um 1 klst. að fljúga á milli
Reykjavíkur og Akureyrar ( í meðvindi).
Þú ert 5 klst. að aka sömu leið (á
löglegum hraða) og a.m.k. heilan dag
að sigla (í sléttum sjö).
Fyrir utan þetta er síminn ödýr leið og
þú verður ekki flugveikur, hílveikur eða
sjóveikur af því að tala í símann. Auk
þess er ódýrara að hringja eftir kl. 18 á
daginn og enn ódýrara eftir kl. 23 og
um helgar.
Langlínutaxtarnir eru tveir. Dœmi um
styttri langlínutaxta er Rcykjavík -
Keflavík og dœmi um lengri taxta er
Reykjavík — Akureyri*.
Reykjavík - Keflavík
- SÍÐA 7
Reykjavík - Akureyri
’ Hreytist samkvœmt njalclskrá
POSTUR OG SÍMI
Við sþörutn þér sþorin
GOTT FOLK/SlA