Þjóðviljinn - 13.12.1989, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.12.1989, Blaðsíða 9
_________________FRETTIR_________________ Ályktun Landsfundar Alþýðubandalagsins Byggða- og sveitarstjómarmál Ný spennusaga eftir Duncan Kyle Hörpuútgáfan hefur sent frá sér nýja spennubók eftir Duncan Kyle, sem skrifaði bókina Árás að næturþeli, sem út kom fyrir síðustu jól. Þegar Lawrence Pilgrim, nýi bankastjórinn hjá Hillyard & Cleef í London, leitaði skýringa á fimmtíu þúsund punda árlegri greiðslu inn á óþekktan banka- reikning í Sviss, tóku undarlegir atburðir að gerast. Hótanir um gjaldþrot bankans og jafnvel líf- lát bankastjórans breyttu í engu ákvörðun hans um að upplýsa málið, hvað sem það kynni að kosta. Setið á svikráðum er 213 bls. Þýðandi er Hersteinn Pálsson. íslensk sakamálasaga Sekur flýr þó enginn elti, heitir ný spennusaga eftir Birgittu H. Halldórsdóttur, sem Skjaldborg gefur út. Birgitta H. Halldórsdóttir er bóndi að Syðri-Löngumýri í Austur-Húnavatnssýslu og send- ir nú frá sér sína sjöundu bók. Birgitta hefur vakið athygli fyrir skemmtilega meðferð á efni sem fáir íslenskir rithöfundar fást við, sakamálasögur, en hér er spurt um atburði sem mætti túlka sem slys eða morð. Henni hefur tekist að skapa spennandi sögu- þráð í íslensku umhverfi. Spennusaga af Böskum Sandkorn tímans heitir spennusaga eftir Sidney Sheldon sem Bókaforlag Odds Bjöms- sonar gefur út. Sandkorn tímans segir frá fjór- um nunnum sem skyndilega neyðast til að flýja vemdað um- hverfi klaustursins í miskunnar- lausan heim sem þær höfðu yfir- gefið. Án fyrirvara em þessar fjórar konur orðnar peð í grimmi- legri baráttu hreyfingar Baska og spánska hersins. WÓÐVIUINN - SÍÐA 9 Sú byggðaröskun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum er bein afleiðing rangrar stefnu fyrri ríkisstjórnar í efnahags- og at- vinnumálum. Trygg staða undir- stöðuatvinnuveganna er for- senda blómlegs mannlífs og bú- setu á landsbyggðinni. Landsfundurinn vekur athygli á að nauðsynlegt er að marka raunhæfa byggðastefnu til að koma í veg fyrir enn frekari fólks- flutninga af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Sú ó- heillaþróun hefur í för með sér ýmisleg félagsleg vandkvæði. Slíkir fólksflutningar kosta gífur- lega fjármuni í margskonar upp- byggingu á höfuðborgarsvæðinu og leiða til vannýtingar í fjárfest- ingu á landsbyggðinni. Leggja verður áherslu á að tak- markaður framleiðsluréttur í sjávarútvegi og landbúnaði verði bundinn byggðarlögunum með ákveðnum hætti. Til að ná raunhæfum árangri í byggðamálum er nauðsynlegt að stöðva fjármagnsflutningana af landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins og að aflafé lands- byggðarinnar nýtist henni sjálfri. Nauðsynlegt er að efla sjálfs- ákvörðunarrétt landsbyggðar- innar í öllum málum og draga úr því ákvörðunarvaldi er byggst hefur upp í höfuðborginni. Alþýðubandalagið leggur áherslu á að réttur til samfélags- legrar þjónustu er sá sami hvar sem er í landinu og óháður bú- setu. Til að ná þessu markmiði er nauðsynlegt að stórefla sveitarfé- lög á landsbyggðinni og samtök þeirra til að gegna því hlutverki að tryggja jafnan rétt á þessu sviði. Ný verkaskipting ríkis og sveitarfélaga og ný tekjustofna- lög eru skref í þá átt að jafna að- stöðu sveitarfélaganna. Tryggja verður að sá árangur sem þar náðist, m.a. í endurskipulagn- ingu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem nú er orðinn raunverulegur jöfnunarsjóður, verði ekki eyði- lagður. Nauðsyniegt er að ríkið standi að fullu við gert samkomu- lag um uppgjör á skuidum ríkis- ins við sveitarfélögin vegna sam- eiginlegra verkefna á undan- gengnum árum. Breytt verkaskipting og ný tekjustofnalög leiða til betri nýt- ingar fjármagns og aukins sam- starfs sveitarfélaga. Sú stað- reynd, ásamt sameiningu sveitarfélaga, stofnun héraðs- nefnda og byggðasamlaga, skapar nýjan grundvöll til upp- stokkunar og eflingar byggðar í landinu. Stjórnsýslan Samþykkt var að skipa vinnu- nefnd, sem hafi það hlutverk að fara yfir og útbúa tillögur til miðstjórnar um stefnu flokksins varðandi endurmótun stjómsýsl- unnar. Jafnframt skal nefndin vinna tillögur til miðstjórnar um hvern- ig jafna megi aðstöðumun fólks- ins í landinu, m.a. með tilliti til húshitunarkostnaðar, menntun- ar, heilbrigðisþjónustu, félags- þjónustu, samgangna, síma- kostnaðar o.fl. Þátta, sem áhrif hafa á búsetu og afkomu. Nefndin verði skipuð einum fulltrúa frá hverju kjördæmi og tilnefni landsfundarfulltrúar frá hverju kjördæmi sinn fulltrúa. Orsök þessarar tiillögu var að landsbyggðarfólk í röðum Al- þýðubandalagsins saknar þess mjög hvað lítið heyrist frá flokkn- um um þessi mál. Varpað var fram eftirfarandi spurningum: Hvað er byggðastefna? Hvern- ig er byggðastefna Alþýðubanda- lagsins? Hugtakið byggðastefna hefur nú á tímum í huga fólks tvennskonar merkingu: 1. Hugtakið er oft tengt óarð- bærum og oft óskynsamlegum framkvæmdum, sem ráðist er í á landsbyggðinni, hvaða tilgangi sem framkvæmdirnar þjóna. 2. Hugtakið er orðið föst klisja í stjórnmálayfirlýsingum flokkanna, sem segir eitthvað á þá leið að stefnt skuli að því að jafna aðstöðumun fólksins í landinu, án þess að lýsa því frekar hvemig það skuli gert, eða nauðsynlegt sé að standa við slíka yfirlýsingu. Landsbyggðarfólk er orðið þreytt á því að hugtakið byggða- stefna sé notað á þennan hátt. Stefna okkar flokks hefur ekki verið mikið frábrugðin stefnu annarra flokka hvað þessi mál varðar og forystumönnum Al- þýðubandalagsins hefur lítið orð- ið ágengt við að tryggja framgang hennar í verki. Við viljum því að gerð verði tilraun til að móta raunhæfa stefnu í þessum málum. Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á því aö eindagi launaskatts fyrir mánuðina sept- ember og október er 15. desember n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll- stjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í Þr'riti- Fjármálaráðuneytið MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ Styrkur til háskólanáms í Finnlandi Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islendingum til háskól- anáms eða rannsóknastarfa í Finnlandi námsárið 1990-91 Styrk- urinn er veittur til níu mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er 2.300 finnsk mörk á mánuði. Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 10. janúar 1990 Umsóknum fylgi staðfest afrlt prófskírteina ásamt meðmæl- um. Menntamálaráðuneytið 8. desember 1989 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Keflavík og Njarðvík Bókmenntakynning Hin árlega bókemnntakynning félagsins verður haldin sunnu- daginn 17. desember klukkan 15 í húsakynnum karlakórsins að Vesturbraut. Eftirtaldir höfundar munu kynna og lesa upp úr verk- um sínum: Svava Jakobsdóttir, Hrafn Jökulsson, Vigdís Gríms- dóttir og Lúðvík Jósepsson. Þá mun Steinar Guðmundsson leika á píanó og að venju verður boðiö uppá jólaglögg og piparkökur. Stjórnin. Alþýðubandalagið á Akranesi Félagsfundur Aiþýðubandalagið á Akranesi boðar til félagsfundar fimmtudaginn 14. desember klukkan 20,30 í Rein. Dagskrá: 1. Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarkosningamar. 2. Útgáfumál. 3. Önnur mál. Stjórnin Auglysið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.