Þjóðviljinn - 23.12.1989, Blaðsíða 10
Kertasníkir er meö gleraugu á þessari teikningu Heimis Freys Viöars-
sonar, 6 ára á Selfossi.
Guðnundur Hreiðarsson, 6 ára, sendi okkur
þenqani svein.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. desember 1989
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 1
Jólasveinar
Þeir sem urðu afgangs
Eins og um síðustu jól brugðum við á það ráð hér á Þjóðviljan-
um að auglýsa eftir myndum barna af jólasveinunum 13. Og við
urðum ekki fyrir vonbrigðum þótt við værum heldur seinir á
okkur. Eins og áður fengum við fleiri sveina senda en hægt var að
birta. Þess vegna birtum við hér myndir af þremur jólasveinum
sem komu of seint. Kannski koma fleiri seinna. Við þökkum
kærlega fyrir myndirnar og vonumst eftir sömu viðbrögðum um
næstu jól. Gleðilega hátíð.
Óli Páll, 5 ára, teiknaði þennan
káta jólasvein.
Tónlist
Sungið í gegnum rimla
Karmelsystur í Hafnarfirði hafa sungið 20 trúarlög inn á segulbands-
spólu. Afrakstur af heimsókn Jóhannesar Páls páfa
„Spyrðu ekki hverjum klukkan glymur hún glymur þér“, gæti Jóhannes
Kristjánsson eftirherma verið að hugsa til einhvers þingmannsins á
þingpöllum í gær. En þingmenn hafa margir birst í andlitinu á þessum
vinsæla skemmtikrafti.
hornsteinum þessarar efnahags-
stefnu. Hann hefði því trú á því
að á næstu dögum muni eflast
skilningur á því í þjóðfélaginu, að
íslendingar hefðu nú sögulegt
tækifæri til að halda inn á skeið
efnahagslegs stöðugleika líkt og
tíðkaðist í nágrannalöndunum,
þar sem verðbólga verði mæld
með eins stafs tölu, þar sem vöru-
skiptajöfnuður verði hagstæður
en ekki óhagstæður, þar sem
vextir hefðu lækkað og færu
lækkandi og héldust stöðugir á
lágu stigi og peninga og fjármál-
akerfi í heild væri í jafnvægi.
Fjármálaráðherra sagði mjög
mikilvægt að þessi markmið næð-
ust. Erfiðleikarnir sem glímt væri
við stöfuðu af minnkandi sjávar-
afla, lágu verði á sjávarafurðum
og fjárfestingaræði frá „dýrðar-
dögurn" hinnar hörðu frjáls-
hyggju, þegar ætt hefði verið út í
óskynsamlegar fjárfestingar á
fjölmörgum sviðum. Þessir erfið-
leikar settu mönnum auðvitað
þröngar skorður og fjárlagafrum-
varpið markaðist af þeim. Pað er
hins vegar ljóst að mati Ólafs
Ragnars að lækkun verðbólgu
væri mikilvægasata kjarabótin,
sérstaklega fyrir lágtekjufólkið í
landinu. Að þessu leyti væri fjár-
lagafrumvarpið því framlag til
kjarajöfnunar og fjölmörg atriði
önnur væri að finna í frumvarp-
inu sem stuðluðu að því sama,
eins og sérstök verðlækkun á al-
gengum innlendum matvælum
með upptöku virðisaukaskatts,
hlutfallsleg aukning barnabóta í
Það heyrir áreiðanlega til
undantekninga að tónlist á heila
segulbandsspólu sé tekin upp í
gegnum rimla. Sá háttur var þó
hafður á nú í haust þegar Karm-
elsystur í klaustrinu í Hafnarfirði
sungu 20 lög inn á spólu. Hún er
nú komin út undir heitinu Söngv-
ar Karmelsystra, Bæn fyrir Is-
landi.
Aðdragandi þessarar upptöku
var á þá leið að þegar Jóhannes
Páll páfi heimsótti Island sl. vor
fengu Karmeisystur, í fyrsta og
eina skiptið síðan þær fluttu inn í
klaustrið fyrir nokkrum árum, að
fara út á meðal fólks. Fengu þær
að hitta páfa sem auk þess að vera
trúarleiðtogi Karmelsystra er
einnig landi þeirra en þær eru frá
Póllandi eins og kunnugt er. Syst-
urnar færðu páfa messuklæði og
sungu fyrir hann sálma og vers.
Það má segja að þær hafi kom-
ið, séð og sigrað, því þegar ís-
lenskir kaþólikkar heyrðu syst-
urnar syngja urðu þeir svo hrifnir
að hugmyndin um að fá þennan
söng tekinn upp kviknaði fljót-
lega. Það var Gunnar Eyjólfsson
leikari sem tók af skarið og rak á
eftir því að af upptöku yrði. Hann
hafði samband við Böðvar Guð-
mundsson hljóðupptökumann og
fékk Þórunni Björnsdóttur kór-
stjóra Kársnesskórsins til að æfa
systurnar og stjórna söng þeirra í
upptökunni. Loks var fengin
strengjasveit til að annast undir-
leik en hún var skipuð Pólverjum
sem leika með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands.
„Þetta var mjög merkileg
reynsla,“ segir Þórunn um upp-
tökurnar sem fram fóru í
klaustrinu. „Við máttum ekki
fara inn fyrir rimlana, ég og upp-
tökumaðurinn, svo það þurfti að
stjórna öllu með bendingum. Og
svo var hvíslað allan tímann, frá
hádegi til kl. 22, en lögin voru öll
tekin upp á einum degi.“
Karmelsystur syngja í gegnum rimlana í klaustri sínu.
- Hvernig fannst þér þær
syngja?
„Frábærlega vel. Ég held að
það sé einsdæmi að^'finna hóp
með 21 söngvara þar sem söngur-
inn er eins jafn og góður og í þess-
um hópi. Og að sjálfsögðu vantar
ekki samæfinguna því þær syngja
saman frá morgni til kvölds í
Það ríkir svo mikil einlægni og
gleði í söngnum enda skín það í
gegn á spólunni. Þessi gleði kom
mér nokkuð á óvart. Ég hef síðan
farið tvívegis með Kársnesskór-
inn til að syngja í messum. f ann-
að skiptið var yngsta systirin að
vinna sitt fyrsta heit. Og í bæði
skiptin ríkti þessi gleði. Eg er nú
ekki kaþólsk en ég veit svei mér
ekki hvaða áhrif þetta andrúms-
loft hefði haft á mig þetta 16-17
ára stúlku,“ segir Þórunn og
brosir.
fyrsta og eina skiptið sem Karm-
elsystur fengu að fara út á meðal
fólks meðtóku þær blessun páfa
- og slógu í gegn með söng.
Mynd: Þóm.
klaustrinu. Innan um eru veru-
lega góðar söngkonur, til dæmis
var ein þeirra komin vel á veg
með að skapa sér sess sem
atvinnusöngkona við óperuhús í
Póllandi.
Lögin sem Karmelsystur
syngja eru íslensk, pólsk og frá
öðrum löndum og að sögn Þór-
unnar er skemmtilegur blær yfir
íslensku lögunum, dálítið slavn-
eskur. Að sjálfsögðu eru Maríu-
bænir og stef áberandi á spólunni
enda heitir klaustrið þeirra fullu
nafni: Karmel klaustur hinnar
heilögu meyjar hins flekklausa
getnaðar frá hinu ljósa fjalli og
hins heilaga Jósefs.
Öll vinna við upptökurnar og
gerð umslags er sjálfboðaliðsstarf
en ágóði af sölu spólunnar rennur
óskiptur til viðhalds klaustur-
byggingunni sem má muna fífil
sinn fegurri.
-ÞH
Hallinn sýndur
Ólafur Ragnar Grímsson: Fjárlögin einkennast aftilraunum til stöðugleika og jöfnuðar íþjóðfélaginu.
Hallinn verður 3,6 milljarðar á næsta ári
Síðasta verkefni þingmanna
fyrir jólaleyfi var að sam-
þykkja fjárlagfrumvarp ríkis-
stjórnarinnar sem lög frá Alþingi.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra segir þær breyting-
ar sem orðið hafa á frumvarpinu í
meðförum Alþingis, vera minni
en þær sýnist vera. Ríkisstjórnin
hefði sett sér það markmið að
hallinn á fjárlögunum yrði 3-3,5
milljarðar. Frumvarpið hefði
hins vegar verið afgreitt með að-
eins meiri halla eða 3,6
milljarðar. Ólafur sagði að í
frumvarpinu væri hallinn sýndur
og þannig staðfest að meiri pen-
ingar væru ekki til og þjóðfélagið
yrði að aðlaga sig þeirri stað-
reynd. Annað þýddi erlendar lán-
tökur sem væru víxill á börnin í
þjóðfélaginu.
Ólafur sagði þessa breytingu í
raun vera minni frá upprunalegu
frumvarpi en oft hefði verið áður
við afgreiðslu fjárlaga, eða sam-
tals 7-800 milljónir. Frumvarpið
hefði fengið mjög vandaða með-
ferð í þinginu vegna þess að hann
hefði beitt sér fyrir því að frum-
varp til fjáraukalaga yfirstand-
andi árs yrði lagt fram í fyrsta
skipti í 70 ár. Þess vegna hefði
Alþingi og fjárveitinganefnd get-
að unnið verk sitt betur, þar sem
menn gátu borið nákvæmlega
saman útgjaldaþróun þessa árs
og tillögur um útgjöld næsta árs.
„Þetta eru ný vinnubrögð í
ríkisfjármálum á íslandi. Fyrir-
rennarar mínir hafa ekki lagt
fram slík frumvörp fyrir yfir-
standandi ár, heldur gert það
nokkrum árum eftir að það er lið-
ið“, sagði Ólafur Ragnar. Ríkis-
stjórnin hefði talið að miðað við
ríkjandi efnahagsástand, sem
helgaðist af minni sjávarafla og
óhagstæðu verði á erlendum
mörkuðum ásamt möguleikanum
á minni loðnuafla og þar með
minni þjóðartekjum á næsta ári,
yrði að sýna mikið aðhald í ríkis-
útgjöldum og nauðsynlegt væri
að minnka þau á ýmsum sviðum.
Þetta sagði Ólafur Ragnar ekki
hafa verið létt verk. Þess vegna
hefði fjárlagasmíðin innan ríkis-
stjórnarinar í haust og síðar á Al-
þingi, verið erfiðari en oft áður.
Næsta ár yrði þriðja samdráttar-
árið í röð í þjóðartekjum. Slíkt
hefði ekki gerst fyrr í 30 ár og
fjárlagafrumvarpið hlyti að taka
mið af þessum staðreyndum.
„Hins vegar hefur ríkisstjórnin
smátt og smátt frá því hún tók
við, verið að leggja grundvöll að
nýjum stöðugleika í efna-
hagsmálum, stöðugleika sem ein-
kennist af jöfnuði gagnvart út-
löndum, stöðugu verðlagi, lækk-
andi vöxtum og jafnvægi í pen-
ingamálum", sagði ráðherrann.
Fjárlagafrumvarpið væri einn af
gegnum tekjuskattskerfið, styrk-
ing félagslegs íbúðakerfis ásamt
fleiru.
Ólafur Ragnar sagði fjárlaga-
frumvarpið vera samnefnara
jöfnunar á fjölmörgum sviðum
og hann teldi það því einkennast
annars vegar að því að vera veiga-
mikið framlag til stöðugleika í
efnahagsmálum og hins vegar
stefnu sem fæli í sér aukin jöfnuð
á meðal landsmanna, þrátt fyrir
erfiðleika í útflutningsatvinnu-
vegum og þjóðarbúskap íslend-
inga- -hmp
Þingmenn þurftu oft að setja hendur upp í loft við
atkvæðagreiðslu fjárlaga í gær, sem stóð yfir í um
3 klukkutíma. Myndir Kristinn.
Qí
Q
O
■*!
cn
Oá
Ð I
J O
HÁTÍÐ í ÚTVARPINU
Jóla- og áramótadagskrá Ríkisútvarpsins er rík af áhugaveröu og skemmtilegu
efni, á báöum rásum þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Tónlistarefni af
öllu tagi, kórtónleikar, skemmtiþættir, bókmenntir, leikrit og gestaþættir setja
umfram annaö svip á dagskrána. Útvarpið leggur áherslu á flutning á íslensku
efni, og á aðfangadagskvöld og jóladag verður eingöngu leikin tónlist með
íslensku tónlistarfólki. Hér eru nefnd fáein brot úr hátíðardagskránni.
J) Aðfangadagurkl. 13.00 áRásl
^Sl^HÁDEGISSTUND í ÚTVARPS-
HÚSINU. Ævar Kjartansson tekur á
móti gestum, hjónunum Sigríöi Ellu
Magnúsdóttur og Simon Vaughan, Ingv-
ari Jónassyni og Arnari Jónssyni.
éAðfangadagur kl. 19.00 á Rás 1
JÓLATÓNLEIKAR ÚTVARPS-
INS. Elísabet F. Eiríksdóttir syngur, Jón
Stefánsson leikur á orgel. Sigurður i.
Snorrason leikur einleik í Klarínettu-
kvintett Mozarts.
Aðfangadagur kl. 20.00 á Rás 1
' JÓLAVAKA ÚTVARPSINS. Jóla-
söngvar og kveöjur frá ýmsum löndum.
Friöarjól. Sigríöur Guömundsdóttir flyt-
ur friðarávarp kirkjunnar. „MARÍA,
MEYJAN SKÆRA". Ljóö og laust mál frá
fyrri öldum. Jón M. Samsonarson tók
saman.
1
&
Jóladagur kl. 08.20 á Rás 1.
ijrí MORGUNSTJARNAN. fslenskir
kórar flytja íslenska og erlenda jólatón-
list.
éJóladagur kl. 13.00 á Rás 1.
FJÖLSKYLDUJÓL. Meöal efnis.
Guörún Stephensen les úr „Fjall-
kirkjunni" eftir Gunnar Gunnarsson.
„Þegar húsálfarnir fóru í frí“, leikrit eftir
Karl Erik Johansen. Skólakór Garðabæjar
syngur og básúnukvartett leikur.
jjJjlJóladagur kl. 14.30 á Rás 1.
^^T.Ein SINN LIFÐI ÉG GUÐ-
ANNA SÆLD“. Dagskrá um þýska
skáldiö Friedrich Hölderlin sem Kristján
Arnason tók saman. Helgi Hálfdanarson
flytur óprentaðar Ijóöaþýðingar sínar.
Jóladagur og annar í jólum kl.
19.20 á Rás 2. SJÓMANNA-
JÓL. Gyöa Dröfn Tryggvadóttir ræöir
við unga og aldna sjómenn um jólin
heima og heiman.
Milli jóla og nýárs |jl. 09.03 og
_ kl. 20.00 á Rás 1. Litli barna-
tíminn „ÆVINTÝRIÁ JÓLANÓTT" eftir
Olgu Guörúnu Árnadóttur.
Annar I jólum kl. 22.50 á Rás 1
ÓRATÓRÍAN „SKÖPUNIN“ eftir
Joseph Haydn. Sinfóníuhljómsveit
íslands, Kór Langholtskirkju og ein-
söngvarar flytja undir stjórn Petris Sak-
ari.
Jtr
Annar í jólum kl. 14.00-16.00
L:.Ii á Rás 2. JÓL MEÐ BÍTLUNUM
OG ELVIS PRESLEY. Skúli Helgason
kynnir jólalög meö Bitlunum í hljóðrit-
unum frá BBC og Megas heldur upp á jól-
in með rokkkónginum Elvis Presley og
kynnir jólalög úr safni hans.
Annaríjólum kl. 20.20 á Rás 2
ÚTVARP UNGA FÓLKSINS.
Rætt viö tónlistarmann og íþróttamann
ársins sem hlustendur hafa valiö.
A 28. des. kl. 20.30 á Rás 1.
JÓLATÓNLEIKAR I HALL-
GRÍMSKIRKJU. Mótettukór Hallgríms-
kirkju, einsöngvarar og hljómsveit flytja
Jólaóratóríu eftir Camille Saint-Saéns og
enska jólasöngva í íslenskum þýöingum
undir stjórn Haröar Áskelssonar.
30. des. kl. 16.20 á Rás 1.
Jólaleikrit Útvarpsins: „SÓL-
NESS BYGGINGARMEISTARI" eftir
Henrik Ibsen. Árni Guðnason þýddi og
Jón Viðar Jónsson leikstýrir. Með aðal-
hlutverk fara Erlingur Gíslason og Guð-
rún S. Gísladóttir.
Gamlársdagur kl. 13.00-
17.00 á Rás 2. „NÚ ÁRIÐ ER
LIÐIÐ...“ Rás 2 býöur til hófs í turni
Útvarpshússins. Stuðmenn skemmta,
gestir líta inn og hlustendur velja mann
ársins.
Gamlárskvöld kl. 21.00 á Rás 1
„GÓÐRI GLAÐIR Á STUND“.
Gamanfundur í Útvarpssal meö Félagi
eldri borgara í umsjá Jónasar Jónasson-
ar.
Nýársnótt kl. 00.05 á Rás 1.
Cff/ „DRAGÐU ÞAÐ EKKI AÐ
SYNGJA...“ Nýársgleði Útvarpsins
hljóörituö á Húsavík og flutt af félögum
f Leikfélagi Húsavíkur. Leikþættir,
söngvar, revíusöngur, þjóösögur og
áramótaannáll.
■áTt
(j.'rj Nýársdagur kl. 13.30 á Rás 1.
/ ‘ i TÓNLISTARANNÁLL 1989.
Helstu tónlistarviðþurðir ársins rifjaöir
upp og leiknar hljóöritanir sem Útvarpið
hefur gert á árinu.
RIKISUTVARPIÐ
*
=>
<
o
o
7U
cn
*
o
o
aHHHH
>
✓O
o