Þjóðviljinn - 07.02.1990, Side 12

Þjóðviljinn - 07.02.1990, Side 12
Hrefna Júlíusdóttir afgreiðslustúlka Ég er ekki frá því og mér fyndist jákvætt ef starfsfólkið tæki þátt í hlutafjáraukningunni. En ég sé mikið eftir KRON, enda hef ég verið félagi í því síðan 1951. —SPURNINGIN— Ætlar þú að gerast hluthafi í Miklagarði hf.? (Spurt í Kaupstað í Mjódd) Guðrún Sveinsdóttir afgreiðslustúlka Það gæti komið til greina. Mér líst vel á að KRON verði aðili að Miklagarði hf. ef það getur rétt við rekstur verslananna. Berglind Erlendsdóttir afgreiðslustúlka Það gæti vel verið, en ég er bara ekkert farin að hugsa um það. Mér líst vel á breytinguna á fyrir- tækinu. Jóhanna Gissurardóttir afgreiðslustúlka Ég þarf að athuga þetta betur áður en ég tek ákvörðun um það. En mér líst mjög vel á breyting- arnar sem verið er að gera. Ellert Gunnsteinsson innkaupastjóri Ég ætla að hugsa málið. Breytingin á rekstrinum var það eina sem hægt var að gera af viti og ég vona að það verði til góðs að auka hlutaféð. þlÓÐVILIINN Miðvikudagur 7. febrúar 1990. 26. tölublað 55. árgangur Háskólabíó SÍMI 681333 SÍMFAX 681935 Allsherjar menningaimiðstöð Háskólabíó opið nœr allan sólarhringinn. Kennsla, ráðstefnur og fjölbreytt úrval kvikmynda Að vanda er Daniel Day-Lewis framúrskarandi góður í hlutverki Christy Brown í írsku myndinni My Left Foot, en Ruth McCabe leikur tilvonandi eiginkonu hans. Philippe Noiret, Salvatore Cascio og Jacques Perrin í Nuovo cinema Paradiso, sem verður væntanlega ein af bestu myndum ársins. Einsog kunnugt er var nýr sýn- ingarsalur opnaður í Háskóla- bíói fyrir skömmu og innan tíðar bætast tveir aðrir við. Þannig verður Háskólabíó langstærsta kvikmyndahús landsins, en húsið verður sem fyrr notað á margvís- legan hátt, td. til kennslu i Há- skóla íslands og fyrir ráðstefnur. Háskólabíó hefur hingað til liðið fyrir það að hafa aðeins einn sýningarsal en önnur kvikmynda- hús hafa öll fleiri sali. Því hefur verið nauðsynlegt að leita til ann- arra kvikmyndahúsa og hélt Há- skólabíó einmitt uppi fjölbreyttu úrvali kvikmynda í Regnbogan- um síðustu misseri. Því hafa kvik- myndaáhugamenn velt því fyrir sér hvort ekki megi búast við auknu úrvali kvikmynda með til- komu fleiri sýningarsala í Há- skólabíói. Friðbert Pálsson for- stjóri Háskólabíós svarar því og fleiru varðandi þessa miklu menningarmiðstöð. - Við höfum nú tvo sýningar- sali, en um aðra helgi opnum við þriðja salinn og þeir verða fjórir í lok mars. Það verður allur gangur á því í hvaða sal við hefjum sýn- ingar á kvikmyndum, það fer ein- faldlega eftir aðstæðum. Salur númer tvö, sem verður tilbúinn í lok mars og verður stærstur þess- ara nýju sala, er þegar bókaður verulega vegna Þjóðleikhússins en þar verða einnig bíósýningar. Kvikmyndasýningar verða reyndar samhliða leiksýningum og ráðstefnum sem bókaðar eru fram á sumar, nema hvað húsið verður algerlega lokað í eina viku vegna Norðurlandaráðsþings. Þess má geta að við höfum þegar bókað á annað hundrað daga undir ráðstefnur og júnímánuður er fullbókaður. Þannig verður bí- óið í notkun frá átta á morgnana til eitt á nóttunni og má gera ráð fyrir að það verði um 50-65% sem bíóhús. Af næstu kvikmyndum sem Háskólabíó sýnir nefndi Friðbert nýjustu mynd Eddie Murphy, Harlem Nights, þarsem hann leikur á móti Richard Pryor, en Murphy er einnig bæði leikstjóri og handritshöfundur. Last Exit to Brooklyn er mynd sem vakið hef- ur mikla athygli og er jafnframt umdeild. Myndin er þýsk- bandarísk í leikstjórn Uli Édel sem gerði Christiane F á sínum tíma og sami framleiðandi er einnig af báðum myndunum, Bernd Eichinger, en hann fram- leiddi síðar Söguna endalausu og Nafn rósarinnar. Þá ber að vekja sérstaka at- hygli á myndunum Henry V, Nu- ovo cinema Paradiso og My Left Foot. Sú fyrstnefnda er ný út- færsla á leikriti Shakespeares en sem kunnugt er kvikmyndaði Laurence Olivier leikritið árið 1944. Það er helsta von Breta á sviði klassískra verka, Kenneth Branagh, sem á heiðurinn af þessari stórgóðu mynd en hann skrifaði handritið, leikstýrði og lék vitaskuld titilhlutverkið. Nuo- vo cinema Paradiso er mynd sem allir ættu að sjá og verður líkast til ein af bestu myndum ársins hér á landi. Með henni hefur Giuseppe Tornatore skapað sér stórt nafn í kvikmyndaheiminum en aðal- hlutverkið leikur hinn geðþekki Philippe Noiret. Þá verður My Left Foot vonandi vinsæl en þar er Daniel Day-Lewis frábær í hlutverki manns í hjólastól. Hún er byggð á einstakri sögu Christy Brown og er frumraun leikstjór- ans Jim Sheridan á kvikmynda- sviðinu. - Við teljum þessar myndir mjög frambærilegar, en markmið okkar er að allir fái eitthvað við sitt hæfi. Ég get nefnt fleiri mynd- ir einsog sænsku sakamálamynd- ina Coq Rouge, Pet Semetary eftir spennusögu Stephens Kings, nýjustu mynd Woodys Allens, Crimes and Misdemeanors, og She Devil eftir sögu Fay Weldon. Síðan verða stóru amerísku myndirnar síðar í vor eða sumar og við tilkynnum það síðar, en það er von á The Fabulous Baker Boys, sem verður örugglega í bar- áttunni um óskarsverðlaunin, en hún er með Michelle Pfeiffer og bræðrunum Jeff og Beau Bri- dges. í stuttu máli munum við reyna að halda þeirri stefnu sem viðhöfð var í Regnboganum og bjóða uppá sem fjölbreyttast myndaval. Verður Háskólabíó þá ekki til- valið undir kvikmyndahátíðir? - Það fer auðvitað alveg eftir því hvaða' metnaður er lagður í slíkar hátíðir. Húsið býður uppá mikla möguleika en ég veit ekki nema það sé of stórt fyrir kvik- myndahátíðir. En ef vel tekst til með val á myndum held ég að það verði hægt að reka kvikmynda- hátíð betur fjárhagslega en hing- að til. Hvað varðar sérhæfðari hátíðir má nefna að það verður dönsk hátíð í vor og frönsk í haust en það hefur ekkert verið skipu- lagt frekar á því sviði. Þá verða aðrar forsendur fyrir því að sýna íslenskar kvikmyndir hér, því Háskólabíó hefur ekki verið mjög heppilegur kostur með að- eins einn sal. Hvert er álit þitt á úrvali í ís- lenskum kvikmyndahúsum? Það eru auðvitað margar myndir sem ekki koma hingað, en ég held að úrvalið mótist mjög af smekk almennings og við erum háðir því að velja þær myndir sem geta gengið í bíóum. Vissulega vill maður hafa áhrif á þennan smekk og okkur í Háskólabíói hefur tekist það. Við höfum breytt áhuga á dönskum kvik- myndum úr því að vera enginn í að vera allgóður. Nú eru danskar kvikmyndir vinsælastar á eftir myndum með ensku tali og er það einnig að þakka samvinnu við dönskukennara. Þannig getur skipt sköpum hvaða stemmningu maður nær í kringum myndir. -þóm BONBHH

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.