Þjóðviljinn - 13.02.1990, Qupperneq 1
Þriðjudagur 13. febrúar 1990 30. tölublað 55. árgangur.
Mannréttindasigur
Mandela laus án skilyrða
Vopnuð baráttagegn hvítu minnihlutastjórninni í Suður-Afríku heldur
áfram svo fremi sem hún afléttir ekki kynþáttakúgun
Gífurleg fagnaðarlæti brutust
út víðsvegar í Suður-Afríku í
gær þegar Nelson Mandela leið-
togi Afriska þjóðarráðsins var
látinn laus á sunnudag eftir nær
þriggja áratuga fangelsisvist.
Mandela heilsaði tugum þúsunda
stuðningsmanna sinna í nafni
friðar, lýðræðis og frelsis. Hann
lagði samt áherslu á mikilvægi
þess að halda baráttunni áfram
gegn minnihlutastjórn hvítra
manna í Suður-Afríku.
Hann sagði að ákvörðun Afr-
íska þjóðarráðsins frá árinu 1960
um að grípa til vopna hefði verið
gerð í varnarskyni. Orsakir
þeirrar ákvörðunar væru enn
óbreyttar og því yrði vopnaðri
baráttu haldið áfram. Meirihluti
Suður-Afríkumanna af öllum lit-
arhætti gerði sér nú grein fyrir því
að aðskilnaðarstefnan hefði enga
framtíð. Miljónir manna ættu sér
hvorki heimili né atvinnu.
Mandela lýsti yfir fullum
stuðningi við núverandi stefnu
Afríska þjóðarráðsins sem hefur
höfuðbækistöðvar í Zambíu.
Hann sagðist ætla að fara þangað
við fyrsta tækifæri til að ræða við
félaga sína um baráttuaðferðir.
Frelsun Mandela hefur hvar-
vetna verið fagnað. Þjóðarleið-
togar út um allan heim hafa látið í
ljós von um að hún sé merki um
að stjórnvöld í Suður-Afríku af-
nemi öll lög sem kveða á um kyn-
þáttamisrétti í landinu.
Mandela hvetur þjóðir heims
að aflétta ekki viðskiptaþvingun-
um gegn Suður-Afríku svo lengi
sem aðskilnaðarstefnan er við
lýði. Þjóðarleiðtogar hafa tekið
undir þetta alls staðar nema í
Bretlandi þar sem Margrét
Thatcher forsætisráðherra Breta
lét í ljós þá skoðun að nú ætti að
afnema viðskiptabann á Suður-
Afríku úr því að Mandela væri
laus úr fangelsi.
Fjöldi forystumanna Afríska
þjóðarráðsins er enn í fangelsi og
lögregla hefur rétt til að halda
mönnum föngnum án dómsúr-
skurðar í skjóli neyðarlaga. Afr-
íska þjóðarráðið setur það sem
skilyrði fyrir samningaviðræðum
við stjórnvöld að neyðarlögum
verði aflétt og mörg þúsund and-
stæðingum aðskilnaðarstefnunn-
ar sleppt úr fangelsi.
Mandela sagðist í gær bjart-
sýnn á að suður-afríska stjórnin
myndi ganga að skilyrðum Afr-
íska þjóðarráðsins og samninga-
viðræður hefðust innan skamms
tíma.
Reuter/rb
Sjá síðu 6
Dagsbrún
Samþykktir
með semingi
Alls voru 216 með en
179 á móti. Auðir og
ógildir atkvœðaseðlar
vorulO. Guðmundur
J.: Samningarnar
ganga ekki upp nema
að allir sitji við sama
borð
Nýgerðir kjarasamningar aðila
vinnumarkaðarins voru sam-
þykktir á almennum félagsfundi
verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar í gær með 216 atkvæðum gegn
179. Auðir seðlar voru 8 og ógild-
ir 2.
Á fundinum sem haldinn var í
Bíóborginni áður Austurbæjar-
bíó, sagði formaður félagsins
Guðmundur J. Guðmundsson að
þessir kjarasamningar gengju
ekki upp nema allir sætu við sama
borð og það þýddi ekki fyrir
neina aðra hópa að semja um
meira. „Kastljósinu verður beint
að þeim sem reyna að komast
fram úr,“ sagði formaðurinn.
Guðmundur sagði ennfremur að
samningurinn fæli ekki í sér mikl-
ar kauphækkanir á samningstím-
anum en á móti væri verðbólgan
keyrð niður, vextir lækkaðir og
verð á landbúnaðarvörum yrði
óbreytt.
Töluvert bar á óánægju á fund-
inum með samningana og af þeim
9 sem til máls tóku á fundinum
voru aðeins tveir sem mæitu með
honum. Hinir fundu honunm allt
til foráttu og sögðu forystu félags-
ins og verkalýðshreyfingarinnar
almennt vera að reka „enn einn
nagla í líkkistu verkalýðsins“
með því að skrifa undir þá og mæ-
last til þess að þeir yrðu samþyk-
ktir í verkalýðsfélögunum. Til ár-
éttingar máli sínu spurðu þeir
hinir sömu forystumenn félagsins
hvernig þeim dytti það í hug að
hægt væri að lifa á rúmlega 40
þúsund króna mánaðarlaunum
og varð fátt um svör.
-grh
Á fjölmennum fundi verkamannafélagsins Dagsbrúnar í Bíóborginni í gær voru nýgerðir kjarasamningar samþykktir. Töluvert bar á óánægju
með samningana á fundinum og margir sem áttu erfitt með kyngja þvi að þurfa áfram að framfleyta sér á rúmlega 40 þúsund króna mánaðar
launum. Mynd: Jim Smart.
A Iþýð ubandalagið
Miðstjóm maikar stefnuna
Samþykktar ályktanir um markmið íkosningabaráttunni, alþjóðamál og
erlend samskipti jlokksins fyrr og nú
Miðstjórnarfundur Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi um
helgina beindi ákveðnum tilmæl-
um til flokksfélaga um allt land
vegna komandi sveitarstjórnar-
kosninga. Samþykkt var að
leggja áherslu á málefni leikskóla,
grunnskóla og umhverfismál.
Flutt voru fjögur framsöguerindi
um sveitarstjórnarmál og fjallað
um undirbúning kosninganna 26.
maí nk.
Miðstjórnin fjallaði ítarlega
um aiþjóðamál og erlend sam-
skipti Álþýðubandalagsins, fyrr
og síðar. I ályktun fundarins er
harðstjórn kommúnistaflokka
Austur-Evrópu fordæmd, hvatt
til opinnar og hreinskilinnar um-
ræðu um þessi málefni og bent á
að tengsl Alþýðubandalagsins
við valdaflokka þessara landa
hafa ævinlega verið lítil og engin
sl. 15 ár.
Vegna bókunar eins fundar-
manna voru greidd atkvæði um
það hvort fulltrúar ABR væru
réttkjörnir. Kjör þeirra var sam-
þykkt með 37 atkv. gegn einu.
Talsverður ágreiningur varð í
umræðum bæði um innanfél-
agsmál og alþjóðamál. Fulltrúar
Birtingar lögðu fram tvær álykt-
unartillögur, um sveitarstjórn-
amál og alþjóðamál, sem hart var
deilt um. Ragnar Arnalds lagði
fram greinargerð um þróunina í
A-Evrópu og afstöðu Alþýðu-
bandalagsins. Starfshópar fund-
arins mótuðu síðan úr þeim og
breytingatillögum ályktanir sem
flestar voru samþykktar sam-
hljóða. Samhliða umræðum um
þessi málefni urðu snörp
skoðanaskipti milli ýmissa full-
trúa Birtingar og félagsmanna í
ABR, um stefnumið, áherslur og
málflutning. Fram kom að
sumum fulltrúum af landsbyggð-
inni þótti deilur Reykvíkinga af
ýmsu tilefni taka um of tíma og
athygli fundarins. í almennum
umræðum og umræðum um
sveitarstjórnarmál voru alls
haldnar 44 ræður tvo fyrstu daga
miðstjórnarfundarins.
Samstaða náðist um nær öll
mál fundarins að síðustu, og spár
sumra um að félagsmenn í Birt-
ingu leggðu svo mikið undir í til-
löguflutningi sínum, að varðaði
brottför úr flokknum, ef ekki
yrðu samþykktar, reyndust
markleysa ein.
Ályktanir fundarins eru birtar
á bls. 5.
ÓHT