Þjóðviljinn - 13.02.1990, Blaðsíða 5
Miðstjórnarfundur AB
Breytingar á alþjóðavettvangi og erlend
samskipti Alþýðubandalagsins
Miðstjórn Alþýðubandalagsins fagnar af heilum huga
falli einræðisstjórna Austur-Evrópu og þeirri þróun í átt til
lýðræðis og frelsis sem víðast er hafin. Þau stórtíðindi
berast nú frá Sovétríkjunum, að kommúnistaflokkurinn
þar eystra muni afsala sér stjórnarskrárbundnu forystu-
hlutverki og að komið verði á laggirnar fjölflokkakerfi.
Jafnframt því að fagna hinum heimssögulegu atburðum er
lögð áhersla á, að aldrei verði aftur snúið til hinnar ómann-
eskjulegu harðstjómar kommúnistaflokka þessara landa,
sem haldið hafa stórum hluta mannkyns í fjötrum. Sýnt er,
að einræðiskerfi verður ekki viðhaldið nema með harð-
stjórn sem byggist á valdbeytingu og gegndarlausri fyrir-
litningu á mannlegum verðmætum, eins og blóðbaðið á
Torgi hins himneska friðar á síðasta ári sýndi glöggt. t>au
viðbrögð, sem kínverskir valdhafar sýndu, verða að
skoðast sem fjörbrot einangraðrar valdastéttar og vonandi
er þess ekki langt að bíða að Kínverjar og aðrar undirokað-
ar þjóðir öðlist frelsi.
Alþýðubandalagið fagnaði breyttu stjórnarfari í Tékkó-
slóvakíu 1968 og vonaðist til að það yrði upphaf langþráðra
umskipta í Austur-Evrópu. Sú von brást með innrás fimm
ríkja Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu, þegar
lýðræðisþróunin var barin niður með hervaldi.
Á þessum tíma var Alþýðubandalaginu breytt í form-
legan stjórnmálaflokk. Flokkurinn lagði strax meginá-
herslu á varðveislu lýðræðis og þingræðis, sbr. fyrstu grein
flokkslaga. í margendurteknum stefnuyfirlýsingum hefur
flokkurinn fordæmt það stjórnarfar, sem fótum treður
lýðræði og mannréttindi í nafni sósíalisma.
Þá var ákveðið, að flokkurinn gæti átt samskipti við
sósíalíska flokka í öðrum löndum, hvort sem þeir kölluðu
sig sósíaldemókrata, sósíalista, jafnaðarmenn eða komm-
únista. En þó var strax gerð sú undantekning, að flokkur-
inn vildi engin samskipti eiga við valdaflokka þeirra ríkja
sem stóðu að innrásinni í Tékkóslóvakíu.
Innrásin var fyrst og fremst hnefahögg í andlit sósíalista
um allan heim og með þessari afstöðu vildu Alþýðu-
bandalagsmenn draga það sem skýrast fram, að án lýð-
RagnarArnalds AddaBára Hrafn Jökulsson
Sigfúsdóttir
ræðis og virðingar fyrir mannréttindum gæti aldrei orðið
um raunverulegan sósíalisma að ræða.
í samræmi við þessa stefnu átti Alþýðubandalagið
flokksleg samskipti við fjölmarga sósíalíska flokka á fyrstu
árunum eftir að það varð formlegur flokkur 1968, enda var
þá öðrum þræði verið að kynna flokkinn og stöðu hans í
íslenskum stjórnmálum. Tíðust voru samskiptin við flokka
á Norðurlöndum, t.d. Verkamannaflokkinn í Noregi og
Sósíalíska vinstriflokkinn þar í landi, Sósíalíska alþýðufl-
okkinn í Danmörku, Vinstriflokkinn - kommúnistana í
Svíþjóð og Lýðræðisbandalagið í Finnlandi, en einnig voru
talsverð samskipti við breska Verkamannaflokkinn,
franska og ítalska sósíalista og kommúnista, svo og við
kommúnistaflokka í Rúmeníu og Júgóslavíu, sem báðir
uppfylltu það skilyrði, að þeir áttu engan þátt í innrásinni í
Tékkóslóvakíu og fordæmdu hana harðlega.
Upp úr 1975 dró ört úr þessum samskiptum og seinustu
fimmtán árin hafa flokksleg samskipti við stjórnmála-
flokka í öðrum löndum lítt náð út fyrir Norðurlönd og fyrst
og fremst snúist um samstarf vinstrisósíalista í Norðurland-
aráði. Alþýðubandalagið hefur síðan 1976 ekki haft nein
samskipti við kommúnistaflokka Austur-Evrópu og óskar
ekki eftir samskiptum við slíka flokka.
Þessi samskipti við erlenda flokka hafa að sjálfsögðu
aldrei falið í sér nokkra viðurkenningu á stefnu eða störf-
um annarra flokka, enda tilgangurinn með þeim sá einn að
kynna Alþýðubandalagið og fylgjast með stjórnmálaþróun
í öðrum löndum fyrir utan samstarfið í Norðurlandaráði.
Á landsfundi Alþýðubandalagsins í nóvember s.l. var
ályktun gerð um erlend samskipti flokksins. Þar var hvatt
til góðra samskipta við „sósíalista og aðra jafnaðarmenn í
öðrum löndum. Skoðanaskipti sósíalista á Norðurlöndum
og öðrum löndum Evrópu eru sérstaklega þýðingarmikil á
næstu árum, m.a. vegna örrar þróunar í málefnum álfunn-
ar. Alþýðubandalagið mun því nýta þau tækifæri sem gef-
ast á næstunni er veita Alþýðubandalagsfólki kost á að
kynnast viðhorfum sósíalista sem víðast og skýra sjónarm-
ið íslendinga, jafnframt sem tækifæri fæst til gagnlegra
skoðanaskipta.“
Nú fara samskipti austurs og vesturs óðum batnandi en
að sama skapi fer stuðningur við vígbúnað og vopnakapph-
laup dvínandi. Áhrif þessarar þróunar á íslandi verða von-
andi þau, að æ fleiri geri sér ljóst, hversu fráleitt er fyrir
vopnlausa smáþjóð í Norðurhöfum að leyfa erlenda hers-
etu í landi sínu. Þannig geta breytt viðhorf í alþjóðamálum
átt eftir að auka samstöðu íslenskra vinstrimanna.
Nú skiptir mestu máli að ríki Austur-Evrópu nái valdi á
lýðræðislegum stjómarháttum án þess að verða óðaverð-
bólgu og efnahagslegri upplausn að bráð, sem gæti endað í
nýju einræði eða fasisma. Því er það brýn nauðsyn, að þessi
ríki fái sem víðast stuðning án pólitískra skilyrða til þess að
þau nái aftur efnahagslegu jafnvægi.
Miðstjórnin hvetur til þess, að fram fari hreinskilin og
opinská umræða meðal vinstrimanna um liðna tíð þar sem
dregnir verði lærdómar fyrir framtíðina af bæði jákvæðum
og neikvæðum þáttum í sögu vinstrihreyfingrinnar.
Alþýðubandalagið er lýðræðissinnaður flokkur jafnaðar-
manna og sósíalista, sem lítur á það sem mikilvægasta
verkefni sitt að stuðla að lýðræði og jafnrétti á öllum
sviðum þjóðfélagsins og vinna að samvinnu á vinstri væng
íslenskra stjórnmála.
Tillagan barst frá Ragnari Arnalds, Öddu Báru Sigfús-
dóttur og Hrafni Jökulssyni. Hún var samþykkt sam-
hljóða.
,Jafnframtþví aðfagna hinum heimssögu-
legu atburðum er lögð áhersla á, að alcLrei
verði aftursnúið til hinnar ómanneskjulegu
harðstjórnar kommúnistaflokka þessara
landa...“
,/Uþýðubandalagið hefursíðan 1976 ekki
haft nein samskipti við kommúnistaflokka
Austur-Evrópu og óskar ekki eftirsam-
skiptum við slíkaflokka... “
„Miðstjórnin hveturtilþess, aðframfari
hreinskilin og opinská umrœða meðal
vinstrimanna um liðna tíð þarsem dregnir
verði lœrdómar fyrir framtíðina... “
Umhverfismál
Miðstjórnarfundur Alþýðu-
bandalagsins haldinn í Kópavogi
í febrúar 1990 beinir því til félaga
sinna að leggja áherslu á um-
hverfismál í víðtækri merkingu
þess orðs í komandi kosningu.
Mikilvægi þessa málaflokks
nýtur vaxandi skilnings, og nægir
að minna á að loksins hyllir undir
stofnun sérstaks ráðuneytis um
umhverfismál, sem hefur verið
baráttumál Alþýðubandalagsins í
tvo áratugi. Þessu verður að
fylgja eftir, og sveitarstjómir eru
kjörinn vettvangur fyrir það
starf.
Tillöguna fluttu Jón Gunnar
Ottósson, Ármann Ægir
Magnússon og Margrét Frím-
annsdóttir. Hún var samþykkt
með þorra atkvæða gegn einu.
Sveitarstjórnar-
mál
Miðstjórn AB hvetur félags-
hyggjumenn til að bjóða fram í
öllum sveitarfélögum og hefja nú
þegar undirbúning að sveitar-
stj órnarkosningum.
Miðstjórn bendir á að nýlegar
breytingar á verkefna- og
kostnaðarskiptingu ríkis og
sveitarfélaga hafa í reynd litlu
breytt um veika stöðu margra
sveitarfélaga. Miðstjórnin hvetur
til stóraukinnar samvinnu og
sameiningar sveitarfélaga svo að
meiri möguleikar skapist til fjöl-
breyttari þjónustu og starfa um
land allt. Stórauknir fólks-
flutningar til Faxaflóasvæðisins
eru ekki aðeins áhyggjuefni í
þeim byggðum þar sem fólki
fækkar, heldur og á höfuðborgar-
svæðinu þar sem of ör íbúa-
fjölgun krefst stóraukinna út-
gjaída til skipulags-, umferðar-
og umhverfismála.
Miðstjórn harmar langvarandi
sundrungu og óeiningu meðal
félagshyggjumanna. Kraftar
þeirra hafa deilst víðar en skyldi
og sér þess því miður stað í ís-
lensku samfélagi.
Miðstjórn minnir á að við
sveitarstjórnarkosningar hefur
það ráðist af aðstæðum á hverj-
um stað og hverjum tíma hvort
flokksfélög hafa staðið að sérs-
töku framboði í nafni Alþýðu-
bandalagsins eða hvort flokksfé-
lagar hafa unnið með öðru félags-
hyggjufólki að framboðsmálum.
Sem fyrr telur miðstjórnin að
ákvörðun um þessi mál hljóti að
vera í höndum flokksfélaga á
hverjum stað.
Tillagæ barst frá starfshópi um
sveitarstjórnarmál og var sam-
þykkt með meginþorra atkvæða
gegn einu atkvæði.
Leikskólar -
grunnskólar
Miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins skorar á flokksmenn að
leggja áherslu á eflingu og upp-
byggingu leikskóla, sem eitt meg-
inmál í kosningabaráttunni fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í
vor. Ljóst er að sigur félagslegra
sjónarmiða getur ráðið úrslitum
um að unnt verði að ná því marki,
að öll börn geti notið þjónustu
leikskóla.
Einnig skorar miðstjórnin á
flokksmenn að leggja áherslu á
uppbyggingu grunnskólanna í
landinu þannig að einsetinn skóli
og lenging skóladags yngstu
barnanna verði forgangs-efni ís-
lenskra skólamála.
Þangað til að það
forgangsverkefni verður að veru-
leika verði séð fyrir öruggri vist-
un skólabarna, t.d. á skóladag-
heimilum.
Tillagan barst frá starfshópi
um sveitarstjómarmál og var
samþykkt samhljóða.
Tveir framsögumanna um sveitarstjórnarmál á miðstjórnarfundi AB:
Einar Már Sigurðsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austur-
landi og Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga, varaformað-
ur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mynd: Jim Smart.
Hjörleifur Guttormsson, alþingismaður og Össur Skarphéðinsson,
varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Mynd: Jim Smart.
Frelsun
Nelsons Mandela
Fundur í miðstjóm Alþýðu-
bandalagsins fagnar innilega
frelsun Nelsoins Mandela og
þeim árangri sem fórnir hans og
áratuga barátta fyrir
mannréttindum er nú að skila
sunnanverðri Afríku.
Samþykkt samhljóða.
Jarðgöng á
Vestfjörðum
Miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins fagnar áformum sam-
gönguráðherra um að hraða jarð-
gangnagerð á Vestfjörðum.
Mikil fólksfækkun í fjórðung-
num á undanförnum ámm, sem
m.a. birtast í því að íbúar þar em
nú færri en nokkm sinni fyrr á
þessar öld, krefst þeirra aðgerða
af hálfu stjómvalda, sem megna
að snúa vörn í sókn.
Það er við hæfi og engin tilvilj-
un að það skuli vera undir forystu
Alþýðubandalagsins sem í aug-
sýn em kröftugar aðgerðir í
byggðamálum með jarðganga-
gerð í þeim landshluta sem staðið
hefur höllum fæti um langt árabil.
Miðstjórn treystir því að þing-
flokkur Alþýðubandalagsins
vinni að því ásamt samgönguráð-
herra að jarðgangagerð á Vest-
fjörðum verði hraðað sem kostur
er.
Samþykkt samhljóða.
Vegna
heimsoknar Havels
Miðstjórn Alþýðubandalags-
ins fagnar og styður kröfu Havels
forseta Tékkóslóvakíu um brott-
för allra erlendra herja úr
löndum Evrópu.
í tilefni af komu Havels hingað
til lands ftrekar miðstjórn AB
kröfuna um brottför bandaríska
hersins og úrsögn úr NATO.
Flutningsmenn voru Páll Hall-
dórsson, Birna Þórðardóttir og
Hjörleifur Guttormsson. Til-
lagan var samþykkt samhljóða.
Þriðjudagur 13. febrúar 1990 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5