Þjóðviljinn - 13.02.1990, Qupperneq 9
FRÉTTIR
Siglufjörður
Stórum áfanga náð
Nýlega voru afhentar 16 fullbúnar íbúðir ídvalarheimili aldraðra.
Fullgert verður rými fyrir 38 manns
Nýlega var stórum áfanga náð í
byggingu dvaiarheimils fyrir
aldraða í Siglufirði þegar fram-
kvæmdnefnd um byggingu húss-
ins afhenti bænum 16 fullbúnar
íbúðir sem kostuðu fullfrá-
Akureyri
Framsókn
raðar á lista
Framsóknarmenn á Akureyri
urðu fyrstir allra stjórnmálasam-
taka í landinu til að stilla upp
framboðslista fyrir bæjar- og
sveitarstjórnarkosningarnar í
vor. Fulltrúaráð framsóknarfé-
laganna á Akurcyri samþykkti á
fundi í fyrrakvöld tillögu uppstill-
ingarnefndar.
Sex efstu sætin skipa þau Ulf-
hildur Rögnvaldsdóttir bæjar-
fulltrúi, Þórarinn E. Sveinsson
mjólkursamlagsstjóri, Jakob
Björnsson fjármálastjóri, Kol-
brún Þormóðsdóttir leiðbein-
andi, Sigfríður Þorsteinsdóttir
tækniteiknari og Þorsteinn Sig-
urðsson vélaverkfræðingur. Sig-
urður Jóhannesson, núverandi
bæjarfulltrúi þeirra framsóknar-
manna, er hins vegar í neðsta sæti
listans.
Efnt var til skoðanakönnunar
meðal flokksbundinna framsókn-
armanna í janúar og voru niður-
stöður hennar hafðar til hliðsjón-
ar við röðun á listann.
-gb
—.........
gengnar um 33 miljónir króna.
Þar með hafa verið teknar í notk-
un íbúðir fyrir alls 29 manns en
fullgert mun húsið rúma samtals
38 manns.
Með þessum áfanga eru komn-
ar í gagnið 15 einstaklingsíbúðir
og 7 hjónaíbúðir. Eftir er að ljúka
við 3 hjónaíbúðir og eina ein-
staklingsíbúð á fyrstu hæð og
tvær einstaklingsíbúðir á jarðhæð
ásamt þjónusturými. Umsjón
með rekstri dvalarheimilisins
hefur stjórn sjúkrahúss Siglu-
fjarðar.
Að sögn Hauks Jónassonar
formanns bygginganefndar dval-
arheimilisins væri byggingin ekki
jafn langt komin ef ekki hefði
verið fyrir hendi mikill áhugi ým-
issa aðila í bænum sem og fé-
lagasamtaka sem hafa gefið
margar miljónir í byggingasjóð
hússins. Haukur sagði að skuídir
bæjarsjóðs hefðu ekki aukist við
þessar framkvæmdir en engu að
síður yrði að láta staðar numið í
bili við lokafrágang hússins út af
fjárskorti.
Haukur sagði jafnframt að
væntanlegir íbúar hússins væri
það fólk sem öll þjóðin á sínum
tíma hefði horft til við öflun
gjaldeyris þegar sfldarævintýrið
var og hét í Siglufirði. Miðað við
fólksfjölda jafngildir þetta fram-
tak því að Reykvíkingar hefðu
byggt hvorki meira né minna en
800 svona íbúðir.
Kvikmyndagerðarmenn
Afskraeming í slað þýðingar
„Það lcetur nœrri að þriðja hver mynd sem sýnd er á íslandi búi yfir alvarlegum
þýðingarvillum“
Stjórn Félags kvikmyndagerð- erlendum kvikmyndum og sjón-
armanna segir lög um íslenskun á varpsþáttum vera þverbrotin
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi
Skemmtikvöld
Alþýðubandalagsfélagar í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaða-
hreppi.
Óformlegt skemmtikvöld verður í Gaflinum föstudaginn 9. mars.
Nánar auglýst síðar.
Alþýðubandalagsfélögin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 14. feb. kl. 20:30 í
Þinghól.
Dagskrá:
11 Félagsgjöld.
2) Tillaga uppstillinganefndar um framboðslista.
3) Bæjarmálin.
4) Önnur mál.
Allir félagar eru hvattir til að mæta Stjórnin
Alþýðubandalagið Kópavogi
Opið hús
Opið hús. Rabbfundir alla laugardaga milli 10 og 12 á skrifstofunni
í Þinghóli, Hamraborg 11.
Verið velkomin. Stjórnin
Alþýðubandalagið Kópavogi
Skrifstofa félagsins
verður fyrst um sinn opin frá kl. 15-18.30 mánudaga-fimmtudaga.
Félagar eindregið hvattir til að koma á skrifstof una til að fá fréttir af
málefnum bæjarfólagsins og greiða fólagsgjöldin.
Sími41746. Stjórnin
daglega, jafnt í kvikmyndahúsum
sem í sjónvarpi og á myndbönd-
um.
Segir í ályktun frá stjórn félags-
ins að þrátt fyrir að íslenskur texti
sé settur á svo til allt myndefni
sem hér er á boðstólum sé það
alltof algengt að textinn sé í litlu
samræmi við frumtexta mynd-
anna. „Það lætur nærri að þriðja
hver mynd sem sýnd er á fslandi
búi yfir alverlegum þýðingarvill-
um en þegar verst lætur geta heilu
atriðin og stundum sjálft inntak
myndanna farið fyrir ofan garð
og neðan. Þegar svona stendur á
er ekki um þýðingu að ræða held-
ur afskræmingu eða fölsun,"
segir orðrétt í ályktuninni.
Síðan segir að það vanti í reglu-
gerð ákvæði um það hverjir skuli
ábyrgjast þýðingarnar og að því
miður veljist alltof oft til þess að-
ilar sem eru ekki starfi sínu vaxn-
ir. Þá segir að sumir dreifingarað-
ilar, svo sem RUV hafi reynt að
vanda til þýðinga og að það teljist
til undantekninga að óvandaðar
þýðingar komi þaðan.
Þá skorar stjórnin á mennta-
málaráðuneytið að endurskoða
reglugerðir sem þetta varðar til
þess að tryggja að þýðingar lendi
ekki í höndum fúskara. „Núver-
andi fyrirkomulag er ekki aðeins
Ieiðigjarnt fyrir fólkið í landinu
heldur líka hin mesta óvirðing við
erlenda kvikmyndahöfunda,"
segir í lok ályktunarinnar.
-Sáf
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu
nýleat baðborð og Chevrolet Malibu
’79. A sama stað óskast á leigu 3-4
herb. íbúð. Uppl. í síma 685762 og
688701, Anna og Jón.
Eldavél tll sölu
Til sölu er mjög góð Elecrtoluc Combi
eldavél með 4 hellum og klukku. Ofn-
inn er með blæstri og grilli. Uppl. í
síma681331 og 681310 kl. 9-5eðaá
kvöldin í síma 41262.
Vift erum að
safna í ferðasjóð
Vantar ykkur hjálp við eitthvað? Við
erum hópur verðandi stúdenta og
tökum að okkur margskonar verkefni
t.d. að þjóna til borðs í veislum, bera
út bæklinga, pakka hlutum, sölu-
mennsku og fleira. Við erum dugleg
og kát og erum að safna fyrir útskrift-
arferð. Uppl. gefur Ragnheiður í síma
675489 og Guðrún í síma 44853 eftir
kl. 17.00 Geymið auglýsinguna.
Vantar þokkaiega eldavél
Á sama stað er til sölu stór ísskápur
ódýrt. Uppl. í sima 22927.
Til sölu - óskast keypt
Skíði til sölu. Vel með farin 165 cm
löng með öryggisbindingum og stöf-
um. Einnig til sölu Atari 800 XL tölva
með diskettudrifi og skjá. Yfir 200 for-
rit fylgja. Á sama stað er óskað eftir
Trip-Trap stól. Uppl. í síma 76805
eftir kl. 17.00.
Til sölu
Bílstól, barnastóll og naggrisahljón.
Uppl. í síma 10896 eftir kl. 18.
Gólfteppi óskast
Óskum eftir að kaupa notað gólf-
teppi, helst einlitt. Vinsamlegast
hringið í síma 12635.
Óska eftir barnabílstói
Birna, sími 17731.
Fiðla óskast
Átt þú fiðlu 1/2 stærð (barnastærð)
sem þú vilt selja? Ef svo er vinsam-
legast hafðu samband í síma 91-
71858.
Til sölu
pelsjakki, leðurjakki, plussjakki, leð-
urkápa, 2 ullarkápur og prjónakjóll.
Upplýsingar í síma 36117.
Cortina ’79
óryðgaður og í góðu lagi. Vetrar- og
sumardekk fylgja. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 25373.
Rafmagnsþjónusta og
dyrasímaþjónusta
Þarftu að láta laga raflögnina eða
dyrasímann? Við höfum sérhæft okk-
ur í lagfæringum og breytingum á
gömlum raflögnum. Þú færð vandaða
vinnu á sanngjörnu verði. Við gerðum
kostnaðaráætlanir eða tilboð. Krisján
Sveinbjörnsson, rafvirkjameistari,
sími 44430.
Atvinna óskast
17 ára stúlka óskar eftir atvinnu.
Margt kemur til greina. Vinsamlegast
hafið samband við Sigrúnu í síma
675862.
Lftill ísskápur til sölu
Verðhugmynd kr. 7.000. Uppl. í síma
31149.
Til sölu
4 dekk á felgum undir Lödu Sport.
Lítið slitin. Verð kr. 15.000. Uppl. í
síma 17497.
Fataskápar fást gefins
Uppl. í síma 24456.
Vélsleði til sölu
Arctic Cat „wild cat” árgerð 1988,
106 hö, til sölu. Skipti á bíl möguleg.
Uppl. í síma 40580 eftir kl. 18.00.
Hægindastóll óskast
Vantar þægilegan hægindastól, með
hreyfanlegu baki, fyrir fullorðinn
mann. Sími 25825.
Samdrykkjan
eftir Platon
Óska eftir eintaki af bókinni Sam-
drykkjan eftir Platon. Stefán í síma
18186.
Verkamannafélagið
Hlíf
Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnef ndar og trúnaðarráðs Verkamann-
afélagsins Hlífar um stjórn og aðra trúnaðarmenn félags-
ins fyrir árið 1990 liggja frammi á skrifstofu Hlífar frá og
með þriðjudeginum 13. febrúar. Öðrum tillögum ber að
skila á skrifstofu Hlífar, Reykjavíkurvegi 64, fyrir kl. 16.00
föstudaginn 16. febrúar og er þá framboðsfrestur útrunn-
inn.
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlífar
Auglýsið í ■'Jinn'iiiiL'ii
Þjóðviljanum 0 6813 33
Allsherjaratkvæðagreiðsla
um nýjan kjarasamning
Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýjan kjara-
samning, sem gerður var 1. febrúar sl. verður
þriðjudag og miðvikudag 13. og 14. febrúar
1990.
Kjörfundur stendur frá kl. 09:00-21:00, báða
dagana á skrifstofu V.R. í Húsi verslunarinnar,
9. hæð, Kringlunni 7.
Félagsmenn V.R. eru hvattir til að taka þátt í
atkvæðagreiðslunni.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu V.R. í Húsi
verslunarinnar, sími 687100.
Kjörstjórn