Þjóðviljinn - 13.02.1990, Síða 11
Bækur
„Mikið um dýrðir
og settur sýslufundur“
Sýslunefndarsaga Skagfirðinga
Sýslufunda rboö.
Adalfundur sýslunefndar Skagafjarðarsýslu verdur
haldinn á Saudárkróki /4% 9
og hefst kl. 12 á hádegi.
Pelta tilkynnist yður hjer með.
Skri/sto/u Skaga/jarðarsýslu ýk/. osir_
Til
sýslunefndarmanns — hrepps.
4. Eina skagfirzka sýslufundarboðið, scm prcnlað var, svo kunnugl sí.
Þegar hiUa tók undir það, að
sýslunefnd Skagfirðinga hætti
störfum varð að ráði að fela
Kristmundi Bjarnasyni, fræði-
manni á Sjávarborg, að rita sögu
nefndarinnar frá upphafi til loka.
Ljóst var, að þetta yrði mikið rit-
verk og var ákveðið að það kæmi
út í tveimur bindum. Kom fyrra
bindið út fyrir tveimur árum. Var
þar fjallað, mjög ítarlega, um
störf sýslunefndarinnar, allt frá
fyrsta fundi hennar árið 1874 og
fram um 1930.
Nú hefur síöara bindið komið
út. Er þar fram haldið þar sem frá
var horfið og sagan rakin allt til
loka, en sýslunefndin hélt sinn
síðasta fund 14. des. 1988 og
hafði þá starfað í 114 ár.
Efni bókarinnar skiptist í níu
meginkafla, sem hver um sig
skiptist svo í undirkafla um ein-
stök mál. Nefnast þeir: fundar-
sköp og verkahringur sýslunefnd-
ar, Búshagir, Heilbrigðiskerfið,
Samgöngur, Gamanrúnir og hát-
íðahöld, Rafvæðing, Pættir úr
sögu Varmahlíðar, Húsmæðra-
skóli, söfn og tónmenntir og
Dreifar en þar er fjallað um
Drangeyjarmál, húsakost og
byggingaframkvæmdir, manna-
minni og svo eru Lokaorð. í
bókarauka er svo sýslumanna- og
sýslunefndarmannatal, - en þeir
voru 163, - og myndir af þeim
flestum. Fjölmargar myndir aðr-
ar eru í bókinni. Loks eru svo
heimildaskrár, ljósmyndaskrár
og nafnaskrár fyrir bæði bindin.
Kveðskap, ýmissar gerðar, er svo
stráð hér og þar um bókina og er
hann hið gómsætasta krydd.
Hafa bæði sýslunefndarmenn og
aðrir lagt þar hönd að verki, og
þá ekki hvað síst sá snjalli hag-
yrðingur, Stefán Vagnsson, sem
var ritari sýslunefndarinnar um
langt skeið. Alls er þetta síðara
bindi 438 bls. og prentað í Prent-
verki Odds Björnssonar. Er frá-
gangur allur hinn vandaðasti svo
sem venja er þar á bæ.
Eins og af framansögðu má sjá
er víða komið við, enda hlaut
sýslunefndin að láta til sín taka
flest eða öll þau mál, sem til fram-
fara horfðu í héraðinu. Stundum
urðu harðar deilur með mönnum
og fjarri því að allir væru alltaf á
einu máli en grunnt var þá líka á
gamanseminni, eins og vísna-
gerðin vottar.
Ætla mætti að svona rit væri
ekki sérlega skemmtilegt aflestr-
ar og einhverjum hafði sjálfsagt
tekist að gera það þunglamalegt.
En ekki Kristmundi. Bókin er
stórfróðleg. En höfundi hefur
einnig hér, sem ætíð áður í verk-
um sínum, tekist að gæða frá-
sögnina þeim lit og því lífi að hún
verður hreinasti skemmtilestur.
Kristmundur Bjarnason býr yfir
öllum bestu kostum fræðimanns-
ins. Hann er ákaflega natinn og
vandvirkur, óþreytandi í hei-
mildaleit sinni og fundvís á þær,
mál hans er í senn þróttmikið og
lifandi, hann hefur auga á hverj-
um fingri. Með Sýslufundarsögu
sinni hefur hann enn, með eftir-
tektarverðum hætti, aukið drjúg-
um við afrekaskrá sína á sviði
fræðimennskunnar og var hún þó
ærin orðin.
- mhg
LESENDABRÉF
Reykingar vega þungt
Leiðir til að hindra krabbameinsmyndun
% af krabbameinsdauðsföllum í
Bandaríkjunum og Stóra-Bretlandi sem vitað er að hægt er aö hindra
Forðast tóbaksreyk 30
Forðast alkóhól 3
Forðast offitu 2
Regluleg leit að aö leghálskrabba og kynfæraþrifnaður 1
Foröast óhóflega notkun hormóna og röntgens Foröast óhóflega sólargeislun Foröast krabbameinsvalda ( < 1 <1
a) iðnaði <1
b) fæðu, vatni, borgarlofti <1
Eftir Richard Peto: The preventability of cancer I Cancer - Prevention, Oxford University Press 1985. - Risks and
Vegna greinarinnar „Skaphöfn
skiptir sköpum - Rannsóknir
benda til að skaphöfn ráði meiru
en reykingar um hvort fólk fær
krabhamein" í Þjóðviljanum 10.
febrúar vill undirritaður koma
eftirfarandi á framfæri:
Þegar birtar eru fréttir sem
brjota í bága við viðurteknar hug-
myndir á lesandi góðs dagblaðs
kröfu á að blaðið/blaðamaðurinn
birti jafnframt bakgrunnsgögn
um hvernig fyrri hugmyndum um
þessi mál sé háttað. Þetta á við
grein Þjóðviljans 10 febrúar um
samband krabbameins og
reykinga „Skaphöfn skiptir
sköpum - Rannsóknir benda til
þess að skaphöfn ráði meiru en
reykingar um hvort fólk fær
krabbamein“. Þekkingar á þessu
sviði hefur verið aflað með
rannsóknavinnu og reynslu á síð-
ustu 40 árum. Rannsóknir þær
sem Þjóðviljinn vitnar óbeint til
eru hluti af þessari
rannsóknavinnu. Almennur les-
andi hefur þó engin tök á að ná í
frumgreinarnar enda er ekki sagt
frá því hvar þær hafi birst.
í bókinni „Cancer - Risks and
Prevention" er meðal annars fjal-
lað um samband reykinga og
krabbamein og litið á málið í
heiid. Er þar birt taflan að neðan
sem sýnir það sem er vitað með
vissu um möguleika okkar núna
til að hindra krabbameinsmynd-
un. Taflan sýnir hve stóran hund-
raðshluta krabbameina unnt væri
að hindra ef tekið væri alveg fyrir
viðkomandi orsakaþátt. Það er
mjög athyglivert hvað þátturinn
reykingar einn sér vegur þungt og
hve aðrir þættir en reykingar
vega lítið.
Þorsteinn Blöndal, læknir
þjómfiuiNN
fyrir 50 árum
Vér ákærum brezk-ílenzku við-
skiptanef ndina —fyrir að hrifsa til
sín vald, sem ríkisstjórninni einni
tilheyrir, með hótunum erlends
ríkis—fyrir að stof na hlutleysi
landsins og öryggi skipa vorra í
hættu með nýju Kópa-
vogssamþykktinni, sem hún hef-
ur kúgað alla innflytjendur og út-
flytjendur að skrifa undir. Vér
skorum á ríkisstjórnina að gera
í DAG
13.febrúar
þriðjudagur. 44. dagurársins.
Sólarupprás í Reykjavíkkl. 9.30-
sólarlag kl. 17.55.
nú þegarráðstafanirtil aðtryggja
öryggi íslenzkra sjómanna svo
sem framast er unnt.
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna
2. febr.-8. febr. 1990 er í Árbæjarapó-
teki ogLaugarnesapóteki.
Fyrrnefnda apótekiö er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Siðarnef nda apótekiö er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliöa hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur sími 4 12 00
sími 1 84 55
Hafnarfj sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
Seltj.nes sími 1 11 00
Hafnarfj sími 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöö Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráöleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eöa ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildineropin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stööinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
.1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspftalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feöratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin viö
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadelld:
. heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17
DAGBÓK
daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinn:alladaga 15-16og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. SjúkrahúsAkraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyöarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opiö
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðfn. Ráögjöf í sálfræöilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félaglð Álandi 13. Opið virka daga frá
kl.8-17. Síminner 688620.
Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestur-
götu3.Opiðþriðjudagakl.20-22, í
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,'
sími 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýslngar um eyðni. Sfmi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin 78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma fólags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
"23. Símsvari á öðrum timum. Siminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími
21260allavirkadaga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoö Orators, félags laga-
nema, er veitt i síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
' fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aöstandendur þeirra. Hringið í sima 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
9. febr. 1990
kl. 9.15.
Sala
Bandarikjadollar.............. 60.16000
Sterlingspund.............. 101.79100
Kanadadollar.................. 50,27800
Dönsk króna.................... 9.33070
Norskkróna..................... 9.31850
Sænsk króna.................... 9.84620
Finnsktmark................... 15.25940
Franskurfranki................ 10.60090
Belgískur franki............... 1.72130
Svissneskurfranki............. 40.40160
Hollensktgyllini.............. 31.95330
Vesturþýsktmark............... 36.04880
Itölsklíra..................... 0.04844
Austurrískur sch............... 5.11560
Portúg. Escudo................. 0.40760
Spánskurpeseti................. 0.55530
Japansktyen.................... 0.41504
Irsktpund..................... 95.54900
KROSSGÁTA
Lárótt: 1 kvendýr4
mann6tæki7lélegt9
góð12félagar14spil
15brún 16lokaði 19
vegur20fugl21
ófrægja
Lóðrótt:2þjóta3sig-
aði 4 berji 5 vex 7smáir
8þjáð10hjálþ11fiski-
Skip13tangi17fas18
hreinn
Lausn á siðustu
krossgátu
Lárétt: 1 dögg4gust6
eir7bisi9ösla12kraft
14fær15alt16æsktu
19sukk20árin21 tolla
Lóðrótt:2öri3geir4
gröf5sæl7bifast8
skrækt 10 staura 11 aft-
ann13akk17sko18
tál
Þrl&judagur 13. febrúar 1990 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11