Þjóðviljinn - 13.02.1990, Blaðsíða 12
—SPURNINGIN—
Telurðu þörf á stofnun
sérstaks embættis um-
boðsmanns barna?
(Spurt í Álftamýrarskóla)
Jónas Þór Jónasson
Já það þyrfti að hafa slíkt emb-
ætti. Ég veit af málum sem börn
hefðu þurft á slíku að halda.
Hilmar Hauksson
Já mér finnst vera þörf á því og
hef heyrt af málum þar sem brot-
ið hefur verið á börnum.
Einar Pálsson
Mér finnst að ætti að stofna slíkt
embætti, tel það nauðsynlegt.
Berglind Erlingsdóttir
Já mér finnst það. Ég veit til þess
að brotið hefur verið á börnum.
Einar Guðmundsson
Já, mér finnst það og veit um til-
vik þar sem brotið hefur verið á
börnum.
þJÓÐVILIINN
SIMI 681333
SÍMFAX
681935
Þriðiudaqur 13. febrúar 1990. 30. tölublað 55. árgangur.
Atómstöðin á spænsku
Barátta við sjálfan mig
Aitor Yraola sendikennari: Lœrði mjög mikið áað þýða bókina.
Spœnskiforleggjarinnfékk loforð um styrkfrá íslandi við útgáfu
bókarinnar
Spánverjar og aðrar spænsku-
mælandi þjóðir eiga þess nú
kost að lesa Atómstöð Halldórs
Laxness á eigin tungu. Sá sem á
heiðurinn að því er Aitor Yraola,
sendikennari í spænsku við Há-
skóla íslands. Hann byrjaði að
þýða bókina fyrir þremur árum,
að eigin frumkvæði, og lauk verk-
inu síðastliðið sumar. Atómstöð-
in kom svo út fyrir réttum mánuði
hjá forlaginu Catedra.
„Það var mjög gaman að
þessu. Ég lærði mjög mikið og ég
er mjög þakklátur Halldóri Lax-
ness fyrir að hafa skrifað hana,“
sagði Aitor Yraola í samtali við
Þjóðviljann.
Atómstöðin var gefin út með
loforði um styrk frá íslenska
menntamálaráðuneytinu. Cate-
dra er þannig fyrsta spænska
bókaforlagið sem fær styrk héðan
til að gefa út þýðingu á íslenskri
bók. Aitor sagði að það hefði ver-
ið eina leiðin til að koma bókinni
út. Að öðrum kosti hefði enginn
bókaútgefandi viljað líta við
henni.
„íslenskar bókmenntir eru
mjög lítið þekktar á Spáni og selj-
ast einfaldlega ekki. Þetta er
mjög skiljanlegt því skandínavísk
tungumál eru ekki kennd á
Spáni,“ sagði Aitor.
Hann sagði að styrkveitingar af
þessu tagi væru mjög algengar í
Evrópubandalaginu, og t.d.
hefði skáldsaga Nóbelshafans
Cela, Paskval Dvarte og hyski
hans, verið gefin út á íslensku
með samskonar styrk frá Spáni.
Aitor finnst bókin eiga fullt er-
indi til Spánverja þar sem Banda-
ríkjamenn hafi haft herstöðvar á
Spáni frá því um 1950. „Þetta
kemur þeim því ekki spánskt fyrir
sjónir. í öðru lagi er þemað í
skáldsögunni, kona eða stelpa
sem kemur úr sveitinni til borgar-
innar, algengt þema í spænskum
bókmenntum.“
Aðspurður sagði Aitor að erf-
itt hefði verið að þýða Atómstöð-
ina. „Þetta var barátta við sjálfan
mig og það hefur nú tekist, vona
ég. Ég gerði þetta aðallega að
gamni mínu,“ sagði hann.
Þótt þýðingin sjálf hefði verið
erfið, sagði Aitor að enn erfiðara
hefði verið að sannfæra menn hér
á landi um að veita styrk til útgáf-
unnar. „Það er ekki til kerfi á
íslandi til að veita þýðendum
stuðning. Þýðendur t.d. í Frakk-
landi, Þýskalandi og á Spáni fá
mjög mikla aðstoð. En hér hefur
maður á tilfinningunni að maður
þurfí að betia, ekki til að fá styrk
handa mér, beinlínis, heldur
handa öðrum.“
Atómstöðin kom út í sjö þús-
und eintökum hjá spænska for-
Ieggjaranum. Hún er önnur bók
Laxness sem hefur verið þýdd af
frummálinu yfir á spænsku. Hin
bókin var Eldur í Kaupinhafn, og
það var einnig spænskur sendik-
ennari á íslandi sem þýddi hana,
fyrir tæpum þrjátíu árum. Aðrar
bækur eftir Laxness á spænsku
hafa ýmist verið þýddar úr þýsku
eða ensku. Aitor sagði að of
snemmt væri að segja til um við-
tökur bókarinnar. Hann sagðist
þó hafa heimsótt Halldór Lax-
ness og hefði hann orðið mjög
ánægður við tíðindin. En skyldi
Aitor ætla að láta hér við sitja,
eða ætlar hann að þýða aðra bók
eftir Laxness?
„Égveitþaðekki. Égætlabara ola, sendikennari og þýðandi
að hvfla mig núna, því þetta er Laxness á spænsku.
mjög slítandi,“ sagði Aitor Yra- -gb
Aitor Yraola, þýðandi Atómstöðvarinnar á spænsku: Erfitt verk en
skemmtilegt. Mynd: Jim Smart.
Handbolti
Káttí
Hölliimi
íslenska landsliðið í handbolta
vann sætan sigur á liði Rúmeníu í
fyrrakvöld, 24:20 og var það í
fýrsta skipti sem landinn vinnur
sigur á þessum fyrrum heims-
meisturum á fjölum Laugardals-
hallar.
í gærkvöld áttust svo liðin við á
ný og lauk þeirri viðureign með
sigri okkar manna, 23:20.
-grh
Mynd: Kristinn.