Þjóðviljinn - 23.02.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.02.1990, Blaðsíða 2
Egsé Englakroppa og heyri Höfuðlausn Fyrirgefiö mér, elskurnar mínir, lesenda- píslirnar mínar, en ég er enn og aftur í gagnrýnisham heiftarlegum. Og eins og nærri má geta stafar þaö af því að ég var að horfa á einhvern ófögnuö í sjónvarpinu, ein- hverja Englakroppa eftir Friðrik Þór og Hrafn Gunnlaugsson, æ ég hélt ég yrði ekki eldri. Og af því ég er hreinskiptinn maöur þá verð ég aö segja mitt álit, ég læt ekki móðga þjóðina og skynsemina eins og ekkert sé. Þetta sagði ég líka við Pál frænda minn, enda þótt ég viti að hann er svo mikið filmu- frík og svo djarfur túlkari að hann getur eins og að drekka vatn lesið Fjallræðuna inn í einhverja bjánalega spólu með Gög og Gokka. Og hvað fannst þér að Englakroppum? spurðí Palli og horfði á mig með köldu yfir- burðarfasi sérfræðingsins. Bara allt, sagði ég. Eg trúði ekki á neitt i þessari mynd. Þessir englar á sjoppunni... Þú skilur hvorki táknmál né frumleika, sagði Filmu-Páll, frændi minn. Þarna slær saman vitundarsviðum og menningarsvið- um svo neistar af. Englarnir eru bæði hinir gömlu föllnu englar úr Himnaríki sem gerðu uppreisn gegn vilja Guðs og svo eru þeir unglingar mannlífsins sem fallnir eru i neyslugræðgi og spæna í sig franskar og ís og sjeik með þeim táknrænu afleiðingum að þeir geta ekki flogið. Hvað segir ekki skáldið: Fótur vor er fastur, þá fljúga vill önd. Svo var sumum englamorðingjunum refs- að og saklausri eiginkonu þess fyrsta líka en þriðji englamorðinginn slapp með auman rass, sagði ég. Mér finnst ekkert réttlæti i þessu. Annaðhvort eru englar refsienglar göq ekki Þú ert svo frumstæöur, Skaði minn, sagði Páll. Þú heldur að það sé eitthvert réttlæti í tilverunni og englunum. En þeir Frissi og Hrafn þeir vita náttúrlega að svo er ekki og því fer sem fer. Ég skal segja þér Palli, að mér finnst hvorki menningarlegt né markaðslegt rétt- læti í því að svona mynd verður til. Svona fálm út í loftiö, svona hrollvekja sem engan hryllir við, svona grín sem enginn hlær að, hvernig sem leikaragreyin geifla sig. Þú ert asni og algjör þjóðarsál, Skaði, sagði Palli. Þú skilur aldrei frumleikann. Heldurðu virkilega að það sé heiglum hent að búa til gamanmynd sem er ekki hlægileg og hrollvekju sem er ekki skelfileg? Nei, væni minn, það geta ekki nema afbragðs- menn, sem vita af sjálfum sér að lífið er hvorki fyndið né skelfilegt heldur heimsku- legt. „ , .. ,. Mér finnst Palli frændi, sagði eg, að þu talir bara eins og innsti koppur í búri hjá þessum filmuklíkum. Palli þagöi dálitla stund og var eitthvað drjúgur með sig. Svo sagði hann. Tja, ég get svosem sagt þér leyndarmál. Og hvað er þaö? spurði ég. Ég er að búa til kvikmyndahandrit fyrir hann Hrafn, sagði Palli. •y.. -'>-í 7: rZZZ Jæja, sagði ég. Og um hvað? Það er um Höfuðlausn Egils Skallagríms- sonar, sagði Palli. Það er náttúrlega módern- iserað svona eins og Djákninn á Myrká. Þeir Egill og Eiríkur blóööx eru nútímavíkingar. Þeir eru hlutabréfafantar hinir mestu. Þegar Egill hefur barist einn við átta sjoppueigend- ur og tvisvar við ellefu knæpuhaldara og inn- limað þá í Egils Öl hf, þá leggur hann til atlögu við Eirík og hefur af honum heila sjon- varpsstöð. En Eiríkur króar Egil inni með djöfullegum slóttugheitum svo hann má sig hvergi hræra: á morgunn falla allir víxlar og ekki hægt að ná í veð í Borgarlandi fyrr en eftir mánuð. Góð ráð dýr semsagt, sagði ég. Einmitt, sagði Palli. Og nú sest Egill niður og semur Höfuðlausn. Hann stefnir til sín öllum helstu filmurum og rokkurum og þeir sitja alla nóttina og búa til músík við sáttaljóð Egils til Eiríks sjónvarpskóngs og filma um leið. Og þegar illar svölur frá Sýn hf.hafa verið flæmdar burt og dagur rís, þá kemur Egill með Höfuðlausn sína, spánýja og ódauðlega vídeóspólu um Eirík og markaðs- afrek hans í Svíþjóð og víðar. Og er þetta viðlagið: Eiríkur er töff það er ekkert blöff. Hvort víltu niðurskorið fjárlagabjúga, dS I- kæsta skattaskötu súpu með erlendum skuldahölum... W eða loforðasalat GARÐINUM FUNDINN LÍFSHÁSKI Það er greinilegt að það hættu- legasta sem maður getur tekið sér fyrir hendur í dag er að lifa og hættan eykst með hverjum degi. Alþýðublaoið ÓLATIR MENN Til eru þeir sem iðka kynlíf langt út yfir mörk hjónabandsins og sambúðar með fólki af báðum kynjum á öllum aldri og jafnvel dýrum merkurinnar. DV STALÍN ER EKKI HÉR Ekkert alræðisvald til Krist- jáns Ragnarssonar Fyrírsögn í DV EKKISEGIÉG ÞAÐ NÚ KANNSKI Ólafur (Ragnar) frelsaði heim- DV tnn SANNLEIKURINN SIGRAR Ég hefi oft fengið mér súkku- laðitertu á „Tíu dropum“ og hún hefur alltaf verið brún og með súkkulaðikremi DV HVAÐSKYLDI BISKUP SEGJA? Að lokum ber þess að geta að Kristján Jónsson annaðist flug- þjálfun englanna. Morgunblaðið GAMANERAÐ GUÐSPJÖLLUNUM Ég lít því svo á að verið sé að innheimta skemmtanaskatt af kirkjusókn, sagði Gísli Jónasson sóknarprestur í Breiðholtsprest- akalli. DV RASSVASINN ER BETRI Bókhald er böl Auglýsing í Morgunblaðinu NÚMÁBUSH FARA AÐ VARA SIG Stærsta auglýsingastofa lands- ins, GBB-Auslýsingaþjónustan, skiptir formlega um nafn um næstu mánaðamót og mun eftir- leiðis heita Hvíta húsið. Morgunblaðið MÁTTUR HINS RIT- AÐA ORÐS En Gísli Björnsson bætti um betur og boraði á eyjuna gat með skrifum sínum. Morgunblaðið TVÖ SÖGULEG SLYS Þar er því haldið fram að sauðkindin hafi haldið lífinu í ís- lendingum gegnum aldirnar. Ætli sannleikurinn sé nú ekki frekar sá að þjóðin hafi haldið lífinu í sauðkindinni. Morgunblaðið 2 SlÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. febrúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.