Þjóðviljinn - 23.02.1990, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 23.02.1990, Blaðsíða 22
1 Z 3 1 S (i? V 1 V 9 <? 52 )0 ii )Z 13 lv- /s~ )Z )5T )>* )0 JS- 52 IZ )8 /9 )S~ 20 XI 22 q? 10 23 II 21 ¥ 23 23' 20 21 J9 21 JS~ Zo S )S 23 V )1 2# 20 ? 29 II )0 23 23' 28 £ 52 12 30 52 21 28 10 /9 )£ 2<j /5 k\ W~ 22 10 31 12 ifi 52 3' )3 )& f 21 2/ )Z V )Z AS' 11 /r 23 )S 52 \ 3 0 22 )S 52 20 2*7 2) k> W~ 20 3o )1 )S 23 £ V /9 )2 $ 11 IS 52 9 /6' 23 52 23 52 3 /s* 2/ )2 y 2iT 28 52 23 28 )0 22 Jé> 11 v 21 )S )0 52 w~ 22 )S V 3" 30 22 21 1S 21 21 52 29 2£ br 52 )°) 2o 52 W~ ÍT H 11 )S 23 W~ 2T~ /9 21 23 22 /0 )1 5 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRST KROSSGÁTA NR. 84 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu á Akureyri. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 37, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 84“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 21 £ (c 28 23 1 )2 )3 22 Lausnarorð á krossgátu nr. 81 var ísafjörður. Dregið var úr réttum lausnum, og upp kom nafn Jóhannesar Geirs Gíslasonar í Skáleyjum. Hann fær senda skáldsöguna Ráð við illum öndum eftir færeyska skáldið William Heinesen í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Mál og menning gaf út 1983. Verðlaunin fyrir krossgátu nr. 84 eru skáldsagan Og sagði ekki eitt einasta orð eftir þýska skáld- sagnahöfundinn Heinrich Böll í þýðingu Böðvars Guðmunds- sonar skálds. Mál og menning gaf út 1983. FJÖLSKYLDAN SIGTRYGGUR JÓNSSON MATUR ÓLAFUR GÍSLASON Fiskisúpa af fingrum fram Fiskisúpa er einn af þessum réttum sem hægt er að gera úr því hráefni sem er við höndina hverju sinni, bara að það sé ferskt. Flestar tegundir fisks henta í súpu, en sumar eru betri en aðrar: karfi, steinbítur, lúða og silungur til dæmis. Ef við ætl- um okkur að gera fiskisúpu er best að blanda saman nokkrum tegundum en hafa lítið af hverri. Þegar ég geri fiskisúpu er ég vanur að gera hana í tvennu lagi. Annars vegar geri ég grænmetis- súpu, sem ég læt malla lengi og mauksjóða við hægan eld. Síðan elda ég fiskinn í potti eða iokaðri pönnu og blanda öllu varlega saman í lokin. Gott er að gera grænmetissoð- ið úr selleríi, lauk, gulrótum og niðursoðnum tómötum. Fyrst læt ég svolitla olíu í pottinn, þá nokk- ur söxuð hvítlauksrif, rauðan pip- ar eða papriku og síðan set ég fínsaxað grænmetið og tómatana út í. Þetta má krydda með teningi af fiskikrafti og kannski svolitlu af basilíku eða estragon og síðan sjóða við hægan eld í klukku- stund eða svo. Ef þarf má bæta svolitlu vatni út í. Þegar þessi súpa er búin að malla í hálftíma eða meira má fara að huga að fiskinum. Roð- flett karfaflök og roðflettir þver- skornir steinbítsbitar eða lúðu- bitar ásamt með smávegis af þverskornum smásilungi eru fyr- irtaks hráefni. Einnig má nota ýs- ubita, laxsporð, smokkfisk eða annað sem til fellur. Ef sérstak- lega á að vanda til má einnig nota humarhala skorna eftir endi- löngu eða jafnvel hörpufisk, en það er ekki nauðsynlegt. Á pönnuna setjum við fyrst sólblómaolíu og síðan nokkur söxuð hvítlauksrif og papriku. Síðan er fiskurinn settur á pönn- una, saltaður með hafsalti eða muldum teningi af fiskkrafti og kryddaður með estragon og ör- fáum anísfræjum. Fiskurinn er látinn malla þannig á lokaðri pönnu í 10-15 mínútur. Ef vill má setja hálfan til einn pela af rjóma út á fiskinn og kannski dálitla skvettu af hvítvíni. Þegar hann hefur rétt náð að soðna með þess- um hætti er innihaldi pönnunnar varlega hellt út í grænmetissúp- una. Vel má strá örlitlu af ferskri steinselju út á réttinn, sem er þá tilbúinn til að bera á borðið. Með svona súpu þarf helst að drekka glas af góðu þurru hvítvíni. Kynferðisafbrot Undanfarna daga hefur mikil umræða um kynferðisafbrot farið fram í fjölmiðlum hér á landi. Einkum hefur hún átt sér stað á útvarpsstöðvunum og hefur þar á stundum einkennst af heift og hatri og leit út á tímabili fyrir að þjóðin væri að fara í móðursýk- iskast. Orsökin er vitanlega enn eitt kynferðisafbrot Steingríms Njálssonar gagnvart ungum dreng. Umræðan hefur hins veg- ar snúist um hann sem persónu, aðgerðir hans og þau viðbrögð, sem fólk hefur viljað að yfirvöld sýndu eða hefur viljað sýna hon- um sjálft. Þessi eini einstaklingur hefur þannig orðið persónugerv- ingurfyriröll ljót kynferðisafbrot sem hér eru framin og fólk hefur fengið útrás fyrir reiði, sem meira eða minna er dulin dags daglega. Ég get ekki sagt um hversu mörg kynferðisafbrot eru framin hér á landi á ári, enda hefur það ekki verið rannsakað að neinu gagni. Hitt er staðreynd að þau eru það algeng að við getum spurt okkur hvort þau séu nokkur í viku eða jafnvel daglega, Kyn- ferðisafbrot eru framin á konum og börnum fyrst og fremst, en auk þess á dýrum. Þeir sem fremja þau eru fyrst og fremst fullorðnir karlmenn, þó hitt sé til að konur fremji slík afbrot og þá fyrst og fremst á börnum. Þá má spyrja sig hvort það verði ekki að teljast stórt afbrot konu gagnvart barni að vita um kynferðisafbrot manns gagnvart því, en neita að styðja það og jafnvel krefjast þagnar af því. Langalgengast er að kynferðisafbrot séu framin í heimahúsum, oftast heima hjá fórnarlambinu eða heima hjá af- brotamanninum, þ.e. þau gerast innan landamæra þess sem við köllum friðhelgi fjölskyldunnar. Og þar er þeim haldið sem ieyndarmálum í alltof mörgum tilvikum. Kynferðisafbrot er hægt að fremja í kyrrþey af mörgum ástæðum. Þar ber þó hæst í fyrsta lagi það að þau eru framin í heimahúsum og tengjast kynlífi, en það má ekki tala um á íslandi. f öðru lagi eru þau langoftast framin þannig að ekkert vitni er að atburðinum og sönnun því erf- ið og í þriðja lagi að engar við- eigandi ráðstafanir er hægt að gera hér á landi gagnvart kyn- ferðisafbrotamönnum. í lang- flestum tilvikum er um síbrota- menn að ræða og hvers vegna að kalla yfir sig og fjölskyldu sína alla þá umræðu, sem smjattað er á í öllum kaffiboðum og á vinnu- stöðum, ef hægt er að búast við að brotamaðurinn snúi til baka til fyrri iðju eftir örstuttan tíma og ekkert hefur breyst nema að um- ræðan um kynlíf innan fjölskyld- unnar hefur komist í hámæli? Ég tel að umræða um kynferð- isafbrot sé af hinu góða, ef við getum haft hana á þeim grund- velli að hún leiði til úrbóta á þess- um sviðum. Hún hefur hins vegar engar breytingar í för með sér ef við ætlum einungis að hengja einn mann með henni. Aðrir hans líkar eru og koma til með að verða valdir að sams konar bro- tum nú og í framtíðinni. Við græðum ekkert á því að friða eigið samviskubit gagnvart því að gera ekkert raunhæft í málunum með því að ráðast gegn kynferðis- afbroti. Það hefur verið kallað á íslensku að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofaní. Hversu mörgum börnum eigum við að fórna til þess að geta „vanað“ einn og einn mann, eftir að hann hefur eyðilagt líf og fjölda ein- staklinga og aðrir halda því áfram, vegna þess að enginn þor- ir að koma upp um þá af ótta við eigið skinn? Við þurfum sem sagt að opna umræðuna um kynlíf, þannig að dularhjúpurinn hverfi og þar með sektarkenndin, sem ætíð fylgir því að verða fórnarlamb kyn- ferðisafbrotamanns. Við þurfum að bæta rannsóknaraðferðir þannig að sönnunarbyrðin komi ekki í veg fyrir að kynferðisafbrot verði kærð og við þurfum að koma upp meðferðarstofnun fyrir kynferðisafbrotamenn, þannig að við getum verið viss um að þeir fái viðeigandi meðferð. Slík stofnun gæti sem best tengst meðferðarstofnun fyrir afbrota- menn, sem búið er að tala um í mörg ár án þess að nokkuð hafi verið gert í þeim málum. Þá væri ekki úr vegi að muna smástund eftir fórnarlömbunum og koma upp úrræðum fyrir þau, þanig að þau séu ekki sett út á kaldan klakann á meðan afbrota- maðurinn fær alla athyglina og ókeypis meðferð á vegum hins opinbera. Ábyrgðin er hér eins og svo oft hjá okkur öllum, sem þetta land byggjum. Það er á okkar ábyrgð að vinna fyrir- byggjandi starf, svo fórnarlömb- um kynferðisafbrotamanna fækki. 22 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. febrúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.