Þjóðviljinn - 23.02.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.02.1990, Qupperneq 3
Tónlist Tónar Ömólfs og Nigels Tónleikar í Listasafni Sigurjóns á laugardaginn Þeir spila klassísk verk í Listasafni Sigurjóns kl. 17:00 á laugardaginn: Örnólfur Kristjánsson, sem nam sellóleik í Kópavogi, Reykjavík og New York, og Bretinn Nigel Lillecrap, menntaður í píanóleik við Royal College of Music í London. Um helgina gefst Reykvíking- um kostur á að hlusta á fyrstu opinberu tónleika ungs selló- leikara, Örnólfs Kristjánssonar, sem flytur ásamt píanóleikaran- um Nigel Lillecrap verk eftir Bach, Brahms, Vivaldi og Fauré átónleikum í Listasafni Sigurjóns- í Laugarnesi á laugardaginn, 24. feb. og hefjast þeir kl. 17:00. - Pykir gott að flytja tónlist í Listasafni Sigurjóns, Ornólfur? - Já, og Gunnar Kvaran, gamli kennarinn minn hér í Tónlistar- skólanum í Reykjavík, mælti sér- staklega með því. - Hverjir hafa kennt þér aðrir? - 9 ára byrjaði ég hjá Páli Gröndal í Tónlistarskóla Kópa- vogs en síðan var ég í 6 ára fram- haldsnámi við Mannes College of Music í New York borg og lauk því 1988. Síðan hef ég kennt við Tónlistarskólann á Akureyri. - Hvernig finnst þér tónlistar- lífið fyrir norðan? - Ja, það hefur nú stundum verið sagt að Akureyringar séu latir að sækja tónleika, en annað hefur nú komið í ljós, td. á tón- leikum Kammerhljómsveitarinn- ar, sem við höfum nú komið á fót á Akureyri. Það eru 5 tónleikar á þessu starfsári, og ég get nefnt sem dæmi að fullt hús var hjá okkur á Vínartónleikum í Skem- munni 4. feb. sl, og ágæt aðsókn að Gershwin-tónleikum þar áður. 1. aprfl kemur Hafliði Hall- grímsson og stjórnar Kammer- sveitinni í frumflutningi á verki sem hann samdi sl. sumar. - En hvað œtlið þið Nigel að spila á morgun? - Við flytjum nokkur allvel þekkt og vinsæl verk, Bachsvítu f. einleiksselló nr. 1 í G-dúr, Són- ötu í B-dúr nr. 6 eftir Vivaldi, Elegie eftir Gabriel Fauré og Sónötu í E-moll eftir Brahms. - Semur þú sjálfur? - Það er hverfandi, en stund- aði það vitaskuld í náminu, þar sem tónsmíðar eru hliðargrein, ásamt bókmenntum, listasögu og fleiri atriðum. - Fœstu við eitthvað annað en kennslu og tónleikahald? - Ég hef dálítið aðstoðað vini mína við að leika og taka upp tónlist fyrir kvikmyndir og sjón- varpsþætti. Núna nota ég einmitt tækifærið hér í Reykjavík og tek upp tónlist fyrir heimildarmynd um kirkjur á íslandi. Ég hef gam- an af að fikta við þessa hluti. - Hvernig fannst þér að vera 6 ár í New York? - Erfitt á margan hátt, spenn- an er mikil og mannlífsöfgarnar. Ég bjó í hverfi sem einkenndist af fólki frá eyjunum í Karabíska hafinu og þýskum gyðingum. Þetta var skemmtileg blanda. Tónlistarlífið er fjölbreytt og kraftmikið og samkeppni mikil, þótt ekki séu nú mikil aðsókn að tónleikum nema þegar einhverj- ar stórstjörnur spila. Notarðu stálstrengi eða girnis- strengi í sellóið þitt? - Girnisstrengi nota nú varla aðrir en þeir sem spila barok- któniist núorðið. Ég er í stálinu, tónninn er þá rómantískari, meira brilliant eða hvernig sem á að lýsa því. Ókosturinn að sumra mati er sá að hljómurinn verður sterkur, til dæmis eiga hljóm- sveitir auðveldara með að kaff- æra söngvara nú en áður. - Hvernig er kynjaskiptingin milli nemenda á strokhljóðfærin núna? - Konurnar virðast vera að yf- irtaka strengina í æ ríkari mæli, ekki bara hérlendis, þetta er svona í New York líka. Af 16 ne- mendum mínum á selló á Akur- eyri eru 14 stúlkur. ÓHT Frá æfingu Skagaleikflokksins á Gosa, en frumsýning verður í kvöld. Mynd: gg Skagaleikflokkurinn Gosi í Bíóhöllinni Skagaleikflokkurinn frumsýnir leikritið Gosa í Bíóhöllinni í kvöld. Emil GunnarGuðmundsson leik- stýrir verkinu en 37 leikarar koma fram í sýningunni, þar á meðal fjölmörg börn og unglingar, sem mörg eru að koma fram í fyrsta sinn. Brynja Benediktsdóttur byggir leikritið á sögunni um Gosa eftir ítalska blaðamanninn Carlo Coll- odi. Þórarinn Eldjárn samdi söngtextana, en Sigurður Rúnar Jónsson tónlistina. Gosi hefur áður verið settur upp í Þjóðleik- húsinu og víðar. Æfingar Skagaleikflokksins á verkinu hafa staðið yfir síðan um miðjan janúar. Jón Eiríkur Jó- hannsson leikur spýtukarlinn Gosa, sem lendir í ýmsum ævint- ýrum áður en honum auðnast að verða að dreng af holdi og blóði. Guðmundur Claxton leikur Jóa samvisku, Anna Halldórsdóttir fer með hlutverk Huldu og Júlíus Þórarinsson leikur Láka. Mari- ella Thayer gerði leikmyndina. Gosi er fimmta barnaleikritið sem Skagaleikflokkurinn setur upp, en flokkurinn varð fimmtán ára síðast liðið haust. Önnur sýning leikritsins verð- ur á sunnudagskvöldið. -gg ORÐSENDING UM LEIÐRÉTTINGU Á VERÐBÓTUM Á SKYLDUSPARNAÐI Umboðsmenn og aðstandendur einstaklinga, sem búsettir eru erlendis eða sem látist hafa og söfnuðu skyldusparnaði á árunum 1957 til l.júlí 1989, eru hér með hvattir til að kanna í upplýsingasímum stofnunarinnar hvort greiðslur vegna leiðréttinga á verðbótum liggi þar fyrir. Allar leiðréttingar til peirra, sem áttu skráð heimilisfang hér á landi 1. desember 1989 s.l. hafa verið sendar út. Eftir standa töluvert af leiðréttingar- greiðslum til fólks, sem skráð er erlendis og sem látið er. í desember s.l. ákvað Húsnæðisstofnun ríkisins að greiða út leiðréttingar varðandi verðbætur á skyldusparnað. Hér var einungis um að ræða verðbætur sem reiknast áttu af verðbótum. Leiðréttingarnar vörðuðu tímabilið l.júní 1957 til 1. júl í 1980 og náðu aðeins til hluta þeirra sem áttu skyldusparnað umrætt tímabil. Upplýsingasímar eru 696946 og 696947 kl. 10-12 virka daga. CÍb HÖSNÆÐISSTOFNUN RfKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900 Jg held éggangi heim' Eftir einn -ei aki neinn yUMFERÐAR RÁÐ Frá kjörnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík Undirbúningur aö vali frambjóöenda Alþýöu- bandalagsins vegna komandi borgarstjórnar- kosninga er hafinn. Val þeirra fer fram meö almennri atkvæöagreiöslu félagsmanna ABR. Kjörnefnd hvetur félaga aö kynna sér eftirfarandi reglur: • Félagar hafa rétt til aö tilnefna einstaklinga, einn eöa fleiri, til þátttöku í forvali. • Tilnefna má félaga jafnt sem utanfélags- menn. • Þaö þarf 5 félaga á bak viö hverja tilnefningu og skriflegt samþykki þess sem tilnefndur er. • Skriflegum tilnefningum skal skila á skrifstofu félagsins. • Tilnefningarfrestur er til fimmtu- dagsins 1. mars kl. 19.00. Kjörnefnd hvetur félaga eindregið til að taka virkan þátt í þessu forvali og til- nefna þá einstaklinga sem þeir vilja sjá á listanum. Kjörnefnd Föstudagur 23. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.