Þjóðviljinn - 23.02.1990, Síða 9
Evrópskt formleysi
Sýning á verkum evrópskra formleysismálara verður opnuð á Kjarvalsstöðum á morgun
Evrópsk formleysismálverk
veröa næstu vikurnar til sýnis í
vestursal Kjarvalsstaða. Verkin
eru fengin að láni hjá safni Riis í
Noregi, en það mun vera eitt
mesta og fjölbreyttasta einka-
safnið þar í landi. Á sýningunni,
sem verður opnuð kl. 16 á morg-
un, eru verk eftir helstu Cobra
listamennina auk verka eftir
franska, spænska og ítalska
formleysismálara.
Cobra hreyfingin var hópur
norður evrópskra myndlistar-
manna, sem lögðu stund á form-
leysismálverkið, sem svo er nefnt
og er ein greinin á meiði ab-
straktmálverksins. Pað átti sitt
blómaskeið í hinum vestræna list-
heimi á árunum 1940-1960 og
skiptist í hópa eftir menningar-
svæðum, eða auk Cobra, Art In-
formel (óhefðbundna list) og
Tachisma í Frakklandi og Ab-
strakt expressionisma í Banda-
ríkjunum.
Formleysismálararnir töldu
vestræna listmenningu komna í
blindgötu og að eina leiðin til ný-
sköpunar væri að kasta hefð-
bundnum skilgreiningum og list-
hugmyndum fyrir róða. Fígúrur
og form yrðu að víkja því þau
gerðu ekki annað en hefta ný-
sköpun. Þar með varð óheft
ímyndunarafl að leiðandi hug-
myndafræði sem það eina sem
iosað gæti menn undan ríkjandi
hefðum. Leiðarinnar að því upp-
runalega í hverjum manni, því
sem væri handan ríkjandi menn-
ingar, var síðan meðal annars
leitað í gegnum málverk „frum-
stæðra" þjóða, barnalist, undir-
meðvitundina og kenningar súrr-
ealista.
Safn Inger og Andreas L. Riis
varð til á 25 árum. Þau lögðu frá
upphafi áherslu á að safna al-
Formleysismálverk hengd upp á Kjarvalsstöðum. Mynd: Kristinn.
þjóðlegri myndlist og þá sérstak-
lega verkum Iistamanna sem
tengdust Cobra hreyfingunni og
Parísarskólanum. Þau af verkun-
um úr safni þeirra, sem nú getur
að líta á Kjarvalsstöðum eru eftir
Pierre Alechinsky, Karel Appel,
Roger Bissiére, Corneille, Óiivi-
er Debré, Lucio Fontana, Sam
Francis, Egil Jacobsen, Asger
Jorn, Per Kirkeby, André Lands-
koy, Jean Messagier, Serge Po-
liakoff, Antonio Saura, Marie
Helena Vieira Da Silva, Fra-
ncisco Toledo og Jacob Weide-
mann. LG
Föstudagur 23. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SfÐA 9