Þjóðviljinn - 23.02.1990, Side 18
Linares:
Vond staða, 7 mínútur á 20 leiki
— en samt vann Kasparov
Garrí Kasparov komst í heimsfrctt-
irnar um daginn er sauð uppúr deilum
Armena og Azera. Hann slapp með
60 manna hóp Armena í flugvéi frá
Baku til Moskvu og útvegaði síðan
þessu fólki húsnæði í höfuðstaðnum
þó slíkur hörgull sé á húsaskjóli þar
að löngu skilið fólk þarf að hírast
undir sama þaki árum saman. Kasp-
arov var ekki að liggja á skoðunum
sínum frekar en fyrri daginn og í við-
tali sem sjónvarpað var um heim allan
kenndi hann Gorbatsjov um ástandið
og sagð hann ætti að víkja úr stóli.
Sennilega sást heimsmeistaranum
yfir meistaraleik Gorbatsjov um af-
nám einræðis kommúnista. Kasparov
er í dálítið erfiðri aðstöðu, hálfur
Armeni sem hefur verið búsettur í
Azerbadsjan alla ævi og þar er litið á
hann sem þjóðhetju.
í viðtali sem tekið var við hann um
þetta leyti gat meistarinn þess að
hann hefði um annað að hugsa en
skák og fyrstu tvær umferðirnar á
hinu öfluga moti í Linares á Spáni
benda einmitt til þess að Kasparov
hafi verið að hugsa um eitthvað allt
annað en skák. Hann komst í hann
krappan er hann mætti Boris Gelfand
í fyrstu umferð. Gelfand tefldi af
mikilli hörku gegn kóngsindversku
vörn heimsmeistarans og átti af-
bragðs færi. í tímahraki flugu menn-
irnir um borðið, fornir og gagnfórnir
en lokaniðurstaðan varð jafntefli.
Mótið í Linares í fyrra var frægt
áður en það hófst: Viktor Kortsnoj
var rétt ný kominn í bæinn er hann
frétti að gamli dómarinn frá Stalíns-
tímanum, Baturinski, ætti að vera
skákstjóri og þá var Viktor nóg boð-
ið, hann tók staf sinn og hatt og yfír-
gaf svæðið. Mótshaldarinn Renato
heldur mikið upp á sovéska skák-
menn, það sést á þátttakendalistan-
um: Kasparov, Ivantsjúk, Salov, Jus-
upov, Gelfand, Beijavskí, Spasskí,
Gulko, Portisch, Ljubojevic, Short
og Iliescas.
Kasparov stýrði hvítu mönnunum
gegn Nigel Short í 2. umferð. Eng-
lendingurinn hefur átt erfitt uppdrátt-
ar gegn Garrí á skákmótum undan-
farið en nú virtist ætla að verða
breyting. Heimsmeistarinn sólundaði
tíma sínum og átti fá svör við sóknará-
ætlun Shorts sem langhrókaði og hóf
sókn eftir h-línunni. Eftir 20 leiki átti
Garrí 7 mínútur eftir. Hann var peði
undir og staðan ekki til að hrópa
húrra fyrir. Mótshaldarinn Rentaro
hafði lagt fé til höfuðs Garrí: Pú færð
250 þús. peseta (um 125 þús. krónur)
ef þú vinnur hann, hvíslaði hann að
Short fyrir skákina. 7 mínútur er ekki
langur tími en galdraverkið fór af
stað; fyrst fórnaði heimsmeitarinn
manni og náði síðan að plata Short
upp úr skónum í endataflinu og tíma-
hraksbarningnum. Þegar tímamörku-
num var náð hristi sveittur og von-
svikinn Short höfuðið.
Linares, 2. umferð:
Garrí Kasparov - Nigel Short
1. c4-Rc6
2. Rc3-e5
3. g3-g6
4. Bg2-Bg7
5. d3-d6
6. e4-Be6
7. Rge2-Dd7
8. Rd5-Rce7
9. d4-c6
10. Re3-Bh3
11. 0-0-Bxg2
12. Kxg2-exd4
13. Rxd4-h5
14. a4-Rh6
15. Ha3-0-0-0
16. a5-h4
17. a6-b6
18. Rf3-hxg3
19. fxg3-f6
20. c5-dxc5
21. Db3-Kb8
22. Hdl-Dc8
23. Rc4-Hxdl
24. Dxdl-Rf7
25. Ild3-g5
26. Db3-De6
27. Be3-Rc8
a b c d e f g h
28. Rxb6-Dxb3
29. Rd7+-Kc7
30. Hxb3-Kxd7
21. Hb7+-Ke7
32. Bxc5-Bf8
Rd4+Ke5
34. Rxc6-Kxe4
35. Bxa7-Rfd6
36. Hc7-Rxa7
37. Hxa7-Rc4
38. Ha8-Bg7
39. Ha7-Re3+
40. Kgl-Hg8
41. He7+-Kd3
42. a7-Hc8
43. Kf2-Rdl+
44. Kf3-g4+-45
45. Kxg4-f5+
46. Kf3-Bxb2
47. Hd7+-Kc2
48. Hd8
- og Short gafst upp.
Fyrir þetta mót skrifaði Spasskí
upp á loforð þess efnis að hann myndi
ekki semja jafntefli í undir 40
leikjum. Hann samdi að vísu eftir 24
leiki gegn Ivantsjúk í 3. umferð en
hinar tvær skákirnar, tap fyrir Jusup-
ov og jafntefli við Ljubojavic voru
hart tefldar.
f 3. umfrð lagði Kasparov Portish
með svörtu. Ungverjann hefur senni-
lega dreymt um jafntefli alla nóttina
fyrir skákina en slíkir draumar koma í
veg fyrir að menn geti teflt til sigurs.
Kasparov fékk góða stöðu en 21. b4
hjálpar mikið til. Eftir hræðilegan 26.
leik er staða hvíts sennilega töpuð en
27. leikurinn er skáklegt sjálfsmorð:
3. umferð:
Lajos Portisch - Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. Rf3-g6
2. e4-Bg7
3. d4-d6
4. c4-Rf6
5. Rc3-Bg7
6. Be2-e5
7. 0-0-Rc6
8. Be3-Rg4
9. Bg5-f6
10. Bcl-f5
11. Bg5-Bf6
12. Bxf6-Rxf6
13. dxe5-dxe5
14. Dd8-Hxd8
15. Rd5-Rxe4
16. Rxc7-Hb8
17. Hfdl-Bd7
18. Bd3-Hbc8
19. Rd5-Rc5
20. Bfl-Be6
21. b4-Bxd5
22. cxd5-Rxb4
23. Rxe5-Re4
24. Rc4-Rc3
25. Hd2-Rbxd5
26. g3-Kg7
27. Kg2-Re3+
- og Portisch gafst upp.
Staðan að loknum þrem umferð-
um:
1.-3. Kasparov, Gelfand og Jusupov
2Vi v. 4. Ivantsjúk 2 v. 5. Illiescas lVi
v. 6. Salov 1 v. + betri biðskák gegn
Short. 7.-10. Beljavskí, Portisch,
Spasskí og Gulko 1 v. 11. Short Vi v. +
biðskák. 12 Ljubojevic Vi v.
Lausn á skákþraut:
f síðasta pistli birtist eftirfarandi
skakþraut:
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik:
Lausn: 1. Hh6-gxf5 (1. .. g5 2.
Hh2-gxf4 3. Hd2 mát;) 2. Dcl-Kd4 3.
Hxd6 mát.
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 2. leik.
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Vafasöm ákvörðun
Mál málanna í íslenskum bridge-
heimi þessa dagana, er hin umdeilda
ákvörðun stjórnar Bridgesambands-
ins, að færa undanúrslit Islandsmóts-
ins í sveitakeppni frá Reykjavík (eins-
og auglýst hafði verið í mótaskrá og'
víðar) til Akureyrar, dagana 22.-25.
mars. f þessum undanrásum munu 32
sveitir, hver sveit skipuð 6 spilurum,
spila alls 7 leiki í 4 riðlum á
jafnmörgum dögum. Af þessum tæp-
lega 200 spilara hópi munu um 150
manns koma af höfuðborgarsvæðinu,
en eins og flestir hugsandi menn sjá,
snýst þetta dæmi við ef mótið hefði
verið spilað f Reykjavík.
Nú er því þannig háttað, að sá er
þetta skrifar hefur líklega rekið einn
öflugasta áróður eftir mótahaldi í
dreifbýli, gegn um árin. Peir eru ekki
margir staðirnir þar sem undirritaður
hefur ekki á einhvern hátt komið við
sögu, til eflingar mótahaldi og með
beinni þátttöku. En vinnubrögð af
þessu tagi, að flytja þessa undanrás
nú til Akureyrar, öllum að óvörum,
án undangenginnar forvinnu af ein-
hverju tagi, er hreyfingunni ekki til
framdráttar. Minna má á að síðasta
stjórn sambandsins bauð þetta mót út
á sínum tíma (og er það vei) en þá leit
enginn við. Nú voru engin útboð,
heldur er skimað út um bakdyrnar og
sjá, skímu leggur af norðri. Við þang-
að. Og fjallið er haft í togi.
Það er ekki svo, að þessi hugmynd
sé eitthvað nýtt, sem núverandi stjórn
dregur fram úr erminni. Framkvæmd
sem þessi var rædd, svo að segja ár-
lega hér á árum áður. Reynt var að
spila í aðskildum riðlum, þrír í
Reykjavík og einn á Akureyri eða
Egilsstöðum. Það gafst ekki vel og
þótti mótið setja ofan við þá fram-
kvæmd. Þá var rætt um að fara með
allt mótið út á land (eins og nú). En
mönnum blöskraði kostnaðurinn. Og
þá voru aðeins 24 sveitir að keppa í
undanrásum, en ekki 32 eins og nú.
Og að auki, aðeins 5 umferðir, en
ekki 7 eins og nú. Hvað hefur gerst,
sem auðveldar þessa framkvæmd nú?
Ekki nokkur skapaður hlutur, nema
breytt hefur verið um menn í stjórn
sambandsins. Og kostnaðarhliðin.
Hefur einhver skoðað þetta dæmi í
fullri alvöru? Hefðu málin legið öðru
vísi við, ef tvær stighæstu sveitir
landsins (Verðbréfin og Flugleiðir)
væru ekki stikkfrí, að þessu sinni?
(Þær nýta sér réttinn frá fyrra ári, til
að komast beint í úrslit í ár.) Sóttu
Akureyringar um þetta mót að þessu
sinni? Og að lokum þetta: Ailir vita
að dreifbýlissveitir þær, sem sótt hafa
mót til Reykjavíkur undanfarin ár,
hafa að meira og minna leyti verið
styrktar til fararinnar. Þótt sá styrkur
hafi kannski verið meiri að nafninu til
og spilarar lagt á sig gríðarlega mikla
vínnu, til að geta verið með, ánægj-
unnar vegna í flestum tilvikum, dreg
ég í efa að sambandið sé að gera þess-
um sömu spilurum einhvern greiða
með því að láta mótið fara fram á
Akureyri. Spilarar frá Siglufirði eru
til að mynda óhressir með þessa
ákvörðun; eru þeir þó í næsta ná-
grenni, ef svo má segja. Og veðrið.
Hefur stjórn sambandsins tryggingu
fyrir því að rjómalogn verði þessa
daga? Er engin hætta á að hluti liðs
verði á Akureyri, hluti veðurtepptur í
Reykjavík og afgangurinn fastur uppi
á heiði? Laglegt það.
16 sveitir mættu til ieiks í íslands-
móti kvenna í sveitakeppni, en unda-
nrásir voru spilaðar um síðustu helgi.
4 efstu sveitir spila til úrslita nú um
helgina; sveit Rauða sófans, Erlu Sig-
urjóndóttur, Ólínu Kjartansdótturog
Guðrúnar Jóhannesdóttur.
Aðeins 7 sveitir mættu til leiks í
íslandsmóti yngri spilara, sem spilað
var á sama tíma. 4 efstu sveitirnar
urðu: Karl Ó. Garðarsson, Stilling
hf., Guðjón Bragason og Hótel
Höfn.
Sveitirnar í báðum flokkum spila
innbyrðis, allir v/alla 32 spilaleiki,
sem er nýtt fyrirkomulag (enn á ný) í
þessum fiokkum,
Spilamennska hefst kl. 13 á morg-
un (laugardag).
Konfektsigurvegarar hjá Skagfirð-
ingum sl. þriðjudag, urðu Murat Ser-
dar og Gylfi Ólafsson með 249 stig. í
öðru sæti urðu Magnús Þorkelsson og
Guðbrandur Guðjohnsen með 243
stig. Konfekttvímenningskeppni
verður framhaldið næstu þriðjudaga.
Allir velkomnir. Spilað er í Drangey
v/Síðumúla 35 2. hæð og hefst spila-
mennska kl. 19.30.
Eftir 4 umferðir af 7 í aðalsveita-
keppni B.R., er staða efstu sveita
þessi: Verðbréf íslandsbanka 88,
Tryggingamiðstöðin 78, Jón Þorvarð-
arson 76, Þröstur Ingimarsson 74,
Flugleiðir 71 og Ólafur Lárusson 69.
Enn bólar ekkert á meistarastiga-
skránni frá Bridgesambandinu, en
heyrst hefur að vinnslu sé að mestu
lokið. f nýju skránni (er hún kemur
út) mun koma í ljós að 25 spilarar
hafa hlotið 500 stig eða meir. Jón
Baldursson er enn stigahæstur, með
1257 stig. Næstur kemur Guðlaugur
R. Jóhannsson með 1114 stig og þá
Sigurður Sverrisson með 1110 stig.
Útspilsreglur í bridge skipta oft
höfuðmáli, er að vörninni kemur. Þú
og félagi þinn komið ykkur saman um
þær reglur og þær eru (eiga að vera)
jafnskýrar fyrir andstæðingunum:
Málið er bara að sagnhafi veit oft
minna um hvernig spilin skiptast,
heldur en andstæðingarnir. Og þá er
að spila upp á það:
S: ÁD3
H:G4
T: DG10973
L: K6
S: G105
H: K762
T: Á6
L: Á1032
Sagnir hafa gengið:
Norður Suður
1 tígull 1 hjarta
2 tíglar 2 grönd
3 grönd
Og félagi okkar í Vestur spilar út
laufafimmu. Sagnhafi stingur upp
kóng, sem við tökum á ás. Nú er tími
til að staldra við. Við spilum fjórða
hæsta (gieymdi ég að segja að sagn-
hafi lét fjarkann í?). Við vitum að
laufið skiptist 4-4 milli okkar, og þar
fáum við væntanlega 3 slagi og síðan
tígulás. Er einhver von að hnekkja
spilinu? Hvað ef félagi á háspil í
hjarta, segjum drottningu. Hvernig
framkvæmum við fimmta slag varnar-
innar? Ef við spilum hjarta inni á
laufaás, tekur sagnhafi einfaldlega á
ásinn og rekur út tígulásinn. Gerist
ekki það sama ef við spilum laufi?
Nei, ekki ef við spilum laufatíu. í
þeirri stöðu veit sagnhafi ekki hvernig
laufið liggur (það getur legið 5-3 frá
hans bæjardyrum) og mun því örugg-
lega láta tíuna okkar í friði. I þeirri
stöðu spilum við hjarta. Sagnhafi ger-
ir best í að láta lítið og félagi fær á
dömuna (vonandi). Og þá er komið
að félaga okkar. Vonandi er hann í
sama „klassa“ og við og man eftir af-
köstum Suðurs og spilar laufi, inni á
hjartadömunni. Ef ekki, er vörnin
jafngóð fyrir því, en alltaf má fá nýjan
félaga.
Tekið úr Vígreif vörn í þýðingu
Þórarins Guðmundssonar, bók
sem Jóhann Þórir gaf nýlega út.
Lítillega breytt og orðum aukið frá
undirrituðum.
BRIDGE-
18 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ
Ólafur
Lárusson
Föstudagur 23. febrúar 1990