Þjóðviljinn - 23.02.1990, Side 21

Þjóðviljinn - 23.02.1990, Side 21
HELGARPISTILL ÁRNI BERGMANN Tvær þjóðir í þessu landi Ung stúlka fór að vinna í fyrra- sumar í eldhúsi sjúkrahúss og hún varð undrandi. Hún var hissa á því, hve lágt kaupið var og á sam- starfskonum sínum, hve stritið var runnið þeim í merg og bein, vonlaust og þrúgandi. Pessi stúlka var svosem ekki úr neinni lúxusfjölskyldu. Foreldrar henn- ar með tekjur innan við meðallag en vel sett að því leyti, að þau voru skuldlaus. Hvað sem því líð- ur: umhverfið með menntaskóla- göngu og léttri unglingavinnu var svo verndað að stúlkan var þarna í eldhúsinu að kynnast annarri þjóð í landinu. Angist og skelfing Frásögn stúlkunnar skaust upp í hugann á dögunum þegar ég var að lesa frásögn af ræðu sem Guð- mundur Joð hafði haldið: Þar var hann að tala um ólikan lífsstíl eldri Dagsbrúnarmanna og hinna yngri og það hve grátt lánskjör og minnkandi atvinna leikur báða hópa. Ekki síst ungt fólk sem hef- ur keyrt sig hart áfram en „býr nú margt við angist og skelfingu“. Og í framhaldi af þessu varð mér hugsað til þess, að ekki heyrum við oft í þessum Dagsbrúnar- mönnum, kannski einu sinni á ári þegar fréttamenn fylgjast með at- kvæðagreiðslu um samninga hjá þeim, og kannski heyrum við enn sjaldnar í Sóknarkonunum á spít- alanum sem fyrr voru nefndar. Það fer reyndar svo lítið fyrir þeim sem lægst hafa laun á svo- kölluðum opinberum vettvangi (í fjölmiðlum) að menn komast til- tölulega auðveldlega frá því að láta sem það fólk sé ekki til. Æ, segja menn í lesendabréfum DV eða annarsstaðar: það eru engir á þessum lágu töxtum, þetta er bara svindl. Eruð þiö ekki hress! í fjölmiðlum eru þeir sem sigra. Þeir sem vinna fegurðar- samkeppni, happdrætti, fótbolta- leik, þeir sem fá stóru úthlutun- ina úr kvikmyndasjóði, menning- arverðlaun, vinna söngvakeppni, þeir sem sölsa undir sig sjón- varpsstöð, hoppa upp í for- stjórastól eða þingsæti. Eða þeir sem hrekjast kannski úr hæsta- rétti til þess eins að fá betra djobb í útlöndum. Þeir sem eru eldh- ressir, þeir sem smeygja sér úr hverri klípu, þeir sem telja svo sjálfsagt að þeir séu á fyrsta farr- ými hvert sem haldið er að þeir leiða aldrei hugann að því hvort önnur farrými séu til. Þar að auki sjást þeir stundum í fjölmiðlum sem eru sérfróðir í vandamálum sem herja ekki síst á þá sem verst eru settir, og þeir koma og ræða málin mjög sett- lega og einatt með þungu og skriffinnskulegu orðfæri. En ef talað er við þá sjálfa sem skugga- megin standa eru þeir einatt nafnlausir - sumpart vegna þess að talað er um viðkvæm mál, en sumpart vegna þess að fólk á erf- itt með að sætta sig við að hafa orðið undir í lífskjarakapphlaup- inu. Sigrar uppanna og sjálfum- gleði þeirra hefur eyðilagt stolt hins fátæka. Hann þegir. Stéttaskipting í DV Ritstjóri DV, Ellert B. Schram, var að fjalla um þessa samfélag." Þetta er náttúrlega rangt. En við getum j átað það, að um skeið höfðum við minni ástæður til að hafa áhyggjur af stéttaskiptingu en margir aðrir. Hér er átt við þá uppsveiflu sem hófst nokkru eftir stríð og fór þá saman bæði vaxandi þjóðarauður og mikill „félagslegur hreyfan- leiki“: menn af allskonar upp- runa voru „á uppleið" í krafti menntunar og þess að svo ótal- margt var ógert í samfélaginu, svo ótalmargt sem þurfti að byrja á. Nýja stétta- skiptingin En hitt ber svo mörgum mönnum og ólíkum saman um: að við lifum núna vaxandi mun á efnuðum og snauðum, á þeim sem eiga heiminn og þeim sem eiga hann ekki. Við erum svosem ekki ein á báti: höfum reyndar ekki orðið fyrir jafn róttækum aðskilnaði ríkra og fátækra og orðið hefur í Bretlandi á dögum Margrétar Thatcher og á Reag- anstfma í Bandaríkjunum. En þróunin á sér stað, svo mikið er víst. Ekki svo að skilja að auðvelt sé að benda á tiltekna hópa í samfé- laginu og segja: þarna eru þeir ríku. Fleira bjargar mönnum yfir í verndað umhverfi en stóreignir eða mannaforráð - heppileg menntun skiptir máli, öryggi í starfi, einnig það hvenær menn leystu sín húsnæðismál. En þegar á heildina er litið má segja sem svo, að við séum að kynnast „nýrri stéttaskiptingu“ eins og aðrar þær þjóðir sem ríkar telj- ast. Þessi skipting gerir allmikinn greinarmun á þeim sem fara vel eða illa út úr tæknibyltingunni, þeirri byltingu sem m.a. leikur grátt margar hefðbundnar atvinnugreinar og byggðir þeim tengdar en lyftir undir tölvufólk og verðbréfasala. Annarsvegar standa þeir sem eru í sæmilega öruggum og vel launuðum störf- um (skiptir ekki höfuðmáli hvort þeir heita atvinnurekendur, verktakar eða launamenn), hins- vegar eru þeir sem búa við sí- fellda óvissu í ótryggum og lítt launuðum störfum. Hjá okkur ís- lendingum bætast svo við aðrir þættir sem miklu ráða um hlut- skipti manna: t.d. hvernig menn fara út úr borgríkisþróuninni (eru þeir fæddir í plássum sem tilver- ugrundvelli er undan kippt?) eða þá hvernig menn fara út úr húsn- æðislánum. Þessi nýja stéttaskipting, sem svo mætti kalla, er á því mótunar- skeiði að menn eru ekki farnir að gefa henni mikinn gaum. Og eiga reyndar erfitt með það, svo mjög sem hinir sigursælu á uppleiðinni eru frekir til fjörsins í allri um- ræðu og öllum myndatökum. Einnig vegna þess, að eitt helsta einkenni þjóðfélaga og þjóðfé- lagshópa er að afneita óþægi- legum staðreyndum eins lengi og hægt er og miklu lengur. Og er þá aftur komið að þeirri firringu sem fyrir svosem tveim áratugum var á hvers manns vör og Ellert B. Schram kemur orðum að með svofelldum hæti: „Við erum að verða viðskila hvert við annað. Vitum ekki hvert af annars kjörum, og, það sem verra er, okkur koma þau ekki við.“ Víst koma þau okkur við - en við viljum ekki viðurkenna að svo sé. Ekki í bili að minnsta kosti. hluti í helgargrein um daginn. Margt gott við þá grein: hún var, í skemmstu máli sagt, um það að það væru tvær þjóðir í landinu og vaxandi bil á milli þeirra. Undarlegt reyndar: nú er sá tími, að eitilharðir róttæklingar frá því um 1968, sem varla máttu kókauglýsingu sjá óbölvandi, hvað þá annan kapítalisma, þeir hugsa margir hverjir vart um ann- að nú um stundir en frjálsan við- gang markaðslögmálanna sem muni allan vanda leysa. Og hafa furðu lítinn áhuga á því ranglæti sem þessi sömu markaðslögmál hljóta að framleiða jafnt og þétt. Og á þessum sama tíma ber fyrir augu grein eftir fyrrum þingmann Sjálfstæðisflokksins, Ellert B. Schram, sem hefur fengið hugljómun og skrifar svipað og ungur róttæklingur, sem nýbúinn er að uppgötva fyrir sig stéttabar- áttuna og firringuna: „Hér er að verða stéttaskipting, óhugnanleg og óbrúanleg stéttaskipting. Annars vegar yfirstéttin, hins- vegar láglaunahópurinn," segir Ellert framarlega í sinni grein. Hann hefur og lært á róttæklinga- hugmyndir um afsiðun innræí- ingar og afþreyingar. Hér áður fyrr, segir ritstjóri DV, gáfu menn sig að stéttabaráttu „þreyttir úr erfiðisvinnu, soltnir af matarskorti, hvattir áfram af hugsjóninni einni. En þá var heldur ekkert sjónvarp sem mat- aði þjóðina á heimskunni og mettaði hana á afþreyingunni. Þá voru menn soltnir í menningu og þjóðmál og réttindabaráttu“. Allt hafði þá annan róm, segir Ellert, rétt eins og hann væri „gamall kreppukommi“ og þykir ekki fínt. Og hnykkir á: „Fólkið hefur verið tamið til hlýðni, það hefur glatað trúnni á mátt ein- staklingsins til áhrifa... Hvað á lítill eyrarkarl að vera að ybba gogg þegar höfðingj arnir og fy rir- mennirnir hafa sagt sitt síðasta orð?“ Rökrétt afleiðing Maður gæti haldið að Ellert B. Schram stykki upp úr ritstjórastól sínum í næstu andrá, tvíhenti rauða fánann og marséraði þessu næst út á götu, syngjandi við raust: Fram allir verkamenn, og fjöldinn snauði. Hann gerir það náttúrlega ekki, enda ætlaðist víst enginn til þess. Hann talar um að það sé „mikið metnaðarleysi" hjá þjóð- inni að lifa tvöföldu lífi með þess- um hætti - m.ö.o. sætta sig við stéttaskiptinguna. Metnaðarleysi er reyndar rangnefni: hér er um að ræða fyrst og síðast rökrétt framhald af þeirri sérgóðu frekju sem neysluþjóðfélag okkar hefur tekið í helgra kvenna tölu. Á þeirri forsendu að allt sé ómark, sem rekur áfram samfélag, annað en gróðavonin, félagslegt réttlæti sé markleysa og gott ef ekki skað- legt kjaftæði. Stéttlaust þjóðfélag? Ellert Schram hefur líka, eins og margir aðrir þegar þeim blöskrar eitthvað í samtíðinni, til- hneiginu til að fegra fortíðina. Hann segir í grein sinni: „Lengi vel gátum við gumað af því, ís- lendingar, að vera stéttlaust Föstudagur 23. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.