Þjóðviljinn - 14.03.1990, Síða 2
FRÉTTIR
Tryggingastofnun
Lokað vegna óánægju með launin
Starfsmenn Tryggingastofnunar óánœgðir með launin. Afhenda Guðmundi Bjarnasyni mótmœli í dag
Starfsfólk Tryggingastofnunar
hyggst ganga á fund
heilbrigðis- og tryggingaráðherra
í dag til þess að mótmæla launa-
kjörum sínum og verður stofnun-
in lokuð á meðan. Óánægjan staf-
ar m.a. af því að starfsmenn sem
áður störfuðu hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur lækka í launum við
að flytjast yfir til Tryggingastofn-
unar. Þó eru þeir sem fyrir voru
hjá stofnuninni á enn lægri
launum en þeir sem komu frá
sjúkrasamlaginu.
„Það er mjög mikil óánægja
með launakjörin hjá stofnuninni
og við viljum fá leiðréttingu.
Fimmtíu þúsund krónur á mán-
uði eru engin laun og við vitum að
launin eru hærri hjá mörgum öðr-
um ríkisstofnunum,“ sagði starfs-
maður stofnunarinnar við Þjóð-
viljann í gær.
Þegar ný lög um verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga tóku
gildi um áramót, var Sjúkra-
samlag Reykjavíkur lagt niður.
Starfsfólkinu var sagt upp, en
boðin störf hjá Tryggingastofn-
un. Flestir gengu að því þrátt fyrir
að launakjörin væru ekki þau
sömu. Föst yfirvinna var meðal
annars lögð niður og eru dæmi
um að laun hafi lækkað verulega
við það.
Sumir starfsmannanna vilja nú
hætta og óska eftir að fá biðlaun,
en því hefur ríkisvaldið hafnað.
Starfsmennirnir telja að Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra hafi lofað biðlaunum og
vitna til ræðu sem ráðherrann
hélt á Alþingi í nóvember.
Guðmundur Björnsson, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær að fólk sem hefði sam-
þykkt þau launakjör sem voru í
boði gæti ekki komið nú og farið
fram á biðlaun.
„Hins vegar ákvað fjármála-
ráðherra að fólkið frá sjúkrasam-
laginu gæti haldið fyrri launum í
sex til tólf mánuði miðað við
þjónustualdur, en það nær ekki
til fastrar yfirvinnu. Hún tíðkast
ekki í Tryggingastofnun svo okk-
ur sé kunnugt,“ sagði Guðmund-
ur.
-gg
Fiskeldi
Fmmvarp
í hæthi
Smekkleysa
Þriggja daga Gemingaveisla
Priggja daga tóngerningadagskrá hefstmeð kynningusafnplötu Smekkleysu í Tunglinu annað
kvöld. Breskur klúbbur kemur til landsins íheilu lagi. Happy Mondays á laugardag íMH
Nokkrir meðlimir þeirra fjölmörgu hljómsveita sem Smekkleysa hefur gefið út og ætlar að gefa út á
næstunni, stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara við Reykjavíkurhöfn í gær. Mynd: Jim Smart.
Smekkleysa, Pakkhús postul-
anna og Listafélag MH standa
saman að þriggja daga tóngern-
ingum sem hefjast með kynningu
á safnplötu Smekkleysu í Tungl-
inu á fimmtudagskvöld. Platan
sem er sett saman af tónlist hljóm-
sveita sem Smekkleysa hefur gef-
ið út á undanförnum árum kemur
út á aljrjóðamarkaði þann 13.
apríl. I tengslum við tónleika
bresku hljómsveitarinar Happy
Mondays í Menntaskólanum við
Hamrahlíð á laugardagskvöld,
kemur herskari breskra blaða-
manna ásamt 100 manna hópi
sem hefur keypt sér pakkaferð á
þessa þriggja daga tónlistar- og
gerningarhátíð í Reykjavík.
Á fimmtudagskvöldinu koma
fram í aðalsal Tunglsins hljóm-
sveitirnar Risaeðlan, Ham,
Bless, Bootlegs og Langi Seli og
skuggarnir. I Bíókjallaranum
koma síðan fram hljómsveitirnar
Reptilicus, Daisy Hill Puppy
Farm og Most. Allar þessar
hljómsveitir ásamt Sykurmolun-
um verða á væntanlegri safn-
plötu, „World Domination Or
Death“. Að auki verður sýnd
mynd Óskars Jónassonar „Sér-
sveitin Laugarásvegi 25“, mynd-
bönd frá Smekkleysu og skáldin
Jóhamar og Sveinbjörn
Beinteinsson koma fram. Kynnir
verður Rósa Ingólfsdóttir.
Á föstudeginum má síðan
segja að breski klúbburinn „The
Brain Club“ leggi Tunglið undir
sig. Klúbburinn kemur hingað á
vegum Pakkhúss postulanna. Þá
koma fram breskir tónlistarmenn
ásamt aðstoðarliði; A Guy Call-
ed Gerald, sem fremur „House-
tónlist", Audio One og If?, en
einn meðlima If? er einmitt einn
eigenda „The Brain Club“. Tveir
breskir plötusnúðar snúa skífum í
Tunglinu á föstudag, þeir Gra-
eme Park frá „Hacienda-
klúbbnum“ í Manchester og
Glenn Gunner frá „Brain-
klúbbnum" í London.
Hápunktur þessarar þriggja
daga gerningaveislu verða síðan
tónleikar Happy Mondays í MH
á laugardagskvöldinu. Upphitun-
arhljómsveit verður Risaeðlan en
Smekkleysa gefur út fyrstu LP-
plötu hljómsveitarinnar á alþjóð-
avettvangi þann 23. aprfl. Platan
á að heita „Frægð og steingerv-
ingar“.
-hmp
Umræðum um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um ábyrgðardeild
fiskeldislána var framhaldið í
neðri deild Alþingis í gær. Friðrik
Sophusson Sjálfstæðisfl. kynnti
breytingartillögur meirihluta
fjárhags- og viðskiptanefndar og
sagði þær ekki fela í sér auknar
byrgðar á ríkissjóð. Ríkisstjórnin
hefði valið ríkisábyrgðarleiðina
og breytingartillögurnar miðuðu
að því að lagafæra útsetningu
stjórnarinnar. Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra
sagði breytingartillögurnar miða
að því að auka áhættu ríkissjóðs
vegna fiskeldisins og draga úr
ábyrgð bankakerfisins og sakaði
sjálfstæðismenn um pilsfalda-
kapitalisma.
Eins og kunnugt er stendur
stjórnarþingmaðurinn Guð-
mundur G. Þórarinsson að breyt-
ingartillögum meirihlutans.
Hann hefur sagt að tillögurnar
væru viss málamiðlun á frum-
varpi sem landbúnaðarráðherra
hefði haft í smíðum og gerði ráð
fyrir 75% sjálfskuldarábyrgð
ábyrgðardeildar og frumvarpi því
sem ríkisstjórnin hefur lagt fram.
í umræðunum í gær sögðu
Guðmundur G. og Stefán Val-
geirsson að frumvarp stjórnar-
innar óbreytt væri skref afturá-
bak fyrir hag fiskeldisins. Ólafur
Ragnar hefur ekki fallist á rök
meirihluta fjárhags- og viðskipt-
anefndar og hefur gefið í skyn að
hann dragi frekar frumvarpið til
baka en fallast á þær. Hann vilji
ekki standa að frumvarpi sem
menn meti sem skref afturábak.
Verði frumvarpið dregið til
baka er vafamál hvort frumvarp
lagt fram af fulltrúum meirihluta
nefndarinnar fái afgreiðslu á
þessu þingi, leggi þeir slíkt frum-
varp fram.
-hmp
Listakvöld SALÍ
Nemendur Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands, Leiklistarskóla
íslands, Tónlistarskóla Reykja-
víkur og Söngskóla Reykjavíkur
standa fyrir svokölluðu lista-
kvöldi SÁLÍ í Listasafni Sigurj-
óns Ólafssonar á fimmtudags-
kvöld. Þar kynna nemendur
skólanna hluta af þeim verkefn-
um sem þeir eru að vinna að þá
stundina og gefst borgurum tæki-
færi til að virða þau fyrir sér.
Markmið SALÍ er að stuðla að
samvinnu listaskólanema og
kynna þá út á við. Dagskráin
stendur yfir í um klukkutíma og
hefst kl. 20.30.
Allir velkomnir.
íslandsmót
í fimleikum
fslandsmót í fimleikum verður
haldið dagana 16. til 18. mars.
Mótið verður í Laugardalshöll og
hefst kl. 20 á föstudagskvöld. A
laugardag hefst keppnin kl. 13 og
kl. 12 á sunnudag. Mótshaldari er
Fimleikadeild Stjörnunnar.
Úr sýningarsalnum Austurstræti 3.
Gallerí Borg á þremur stöðum
Gallerí Borg hefur flutt starfsemi sína sem var uppi á lofti í Pennanum
Austurstræti 10. Opnaðir hafa verið tveir nýir sölustaðir og fer öll sala
á smærri myndum fram í sal á jarðhæð Austurstræti 3 og í Síðumúla 22
en þar hafa sameinast undir einu þaki Gallerí Borg og Listinn,
innrömmunarverkstæði sem var áður í Brautarholti. Auk mynda eftir
þekkta listamenn eru nú á boðstóluum úrval af keramikverkum og
módelskartgripum úr leir, gleri og silfri. Starfsemin í Pósthússtræti 9
verður áfram með sama sniði og verið hefur.
Perestrokja
og mannréttindi
Elena Lúkjanova lögfræðingur
frá Sovétríkjunum, sem hér er í
boði MÍR mun halda fyrirlestur á
vegum lagadeildar Háskóla ís-
lands og Lögfræðingafélags ís-
lands á morgun, fimmtudag, kl.
17.15 í stofu 201 í Lögbergi, húsi
Lagadeildar. Fyrirlesturinn nefn-
ist Perestrokja og mannréttindi.
Fyrirlesarinn er formaður félags
ungra sovéskra lögfræðinga og
starfar sem sérfræðingur hjá
aeðsta ráði Sovétríkjanna og hef-
ur tekið þátt í að semja frumvarp
til laga á sviði mannréttinda.
Fyrirlesturinn er fluttur á
rússnesku en túlkaður á ísiensku
og öllum opinn.
Ný ættfræði-
námskeið
Hjá Ættfræðiþjónustunni hefjast
bráðlega ættfræðinámskeið, þau
síðustu á þessum vetri. Þar er
veitt fræðsla um fljótvirkar og ör-
uggar leitaraðferðir, gefið yfirlit
um ættfræðiheimildir og
leiðbeint um gerð ættartölu og
niðjatals. Þátttakendur fá tæki-
færi til að þjálfast í verki við að
rekja eigin ættir og frændgarð
með afnotum af víðtæku gagna-
safni, m.a. kirkjubókum um land
allt, manntölum, ættartölu-
handritum og útgefnum bókum.
Leiðbeinandi er Jón Valur Jens-
son og er innritun hafin hjá Ætt-
fræðiþjónustunni, Sólvallagötu
32A í síma 27101.
Þekktur markaðs-
maður með
námstefnu
Jack Trout einn þekktasti mark-
aðsmaður heims heldur nám-
stefnu á Hótel Sögu um „Market-
ing Warfare", á fimmtudag.
Hann er hér í boði Stjórnunarfé-
lags íslands. Á námstefnunni
mun hann fjalla um áhersluatriði
sem koma fram í bókum hans og
A1 Ries og sýna með raunhæfum
og ítarlegum dæmum hvérnig
áherslur þeirra félaga geta um-
bylt markaðsmöguleikum fyrir-
tækja. Skráning á námstefnuna
fer fram hjá Stjórnunarfélagi ís-
lands í síma 621066 og er þátttak-
endafjöldi takmarkaður.
2 SÍÐA
ÞJÖÐVILJINN Mióvikudagur 14. mars 1990