Þjóðviljinn - 22.03.1990, Blaðsíða 12
—SPURNINGIN-
Gætirðu hugsað þér að
taka fjöru í fóstur?
Inga Hildur Haraldsdóttir
leikari:
Þaö gæti bara orðið svo niður-
drepandi aðtakafjöru ífóstur. Allt
fullt af drullu og skít, því miöur.
David B. Haralds
ritstjóri:
Já, ég gæti alveg eins hugsað
mér að gera það til að stuðla að
hreinna umhverfi. Jafnframt væri
það óskandi að þetta yrði sam-
eiginlegt átak þjóðarinnar.
Sigurjón Róbertsson
nemi:
Það gæti ég vel hugsað mér til að
leggja minn skerf til að fjörur yrðu
hreinni en þær eru í dag.
Guðlín Gná Ingvarsdóttir
nemi:
Þetta er góð hugmynd og sjálf-
sagt frá minni hendi að leggja
eitthvað af mörkum til að hafa
fjörumar hreinar.
Viktor Gunnarsson
bakari:
Alveg eins. Mér finnst að fjörurn-
ar hér séu ekki nægjanlega
hreinar og því full ástæða til að
ráðast í átak sem þetta.
þjómnuiNN
Fimmtudagur 22. mars 1990. 55. tölublað 55. órgangur
SÍMI 681333
SÍMFAX
681935
25% verölækkun
frá áramótum á besta
lambakjötinu
/ einutti poka af lambakjöti
á lágmarksveröi er heilt læri,
6- 7 rif, frampartsbitar og
hálfur hryggur (í l.flokki)
eöa 12-14 kótilettur
(( úrvals flokki).
Einstakir bitar sem nytast
þér illa eru fjarlœgöir.
<
-
Æ
llllmm
Hann Runólfur er í sjöunda himni þessa dagana því lambakjöt á
lágmarksveröi hefur lækkað í verði um 25% frá áramótum. Hann hefur
sífellt komið fjölskyldunni á óvart með gómsætum og smellnum
lambakjötsréttum sem allir hafa hitt í mark. Hann hefur einfaldlega
keypt poka af lambakjöti á lágmarksverði og sparað
sér drjúgan skilding. (
Sex kílóa poki með kjöti úr úrvalsflokki
kostar 437 kr. kg eða 2.622 kr.
Sex kílóa poki með kjöti úr 1. flokki
kostar 417 kr. kg eða 2.502 kr.
í úrvalsflokki færðu hrygginn sneiddan
í kótilettur en í 1. flokki er hann heill.
I pokunum er eingöngu kjöt úr bestu gæðaflokkunum.
Það er snyrt og sneitt af kostgæfni og einstakir bitar
sem nýtast illa eru fjarlægðir. Þetta veit Runólfur
og þúsundir annarra íslendinga. Gerðu hagstæðustu matar-
innkaupin strax í dag og kauptu lambakjöt á lágmarksverði.
SAMSTARFSHOPUR
U M SÖLU LAM BAKJ ÖTS