Þjóðviljinn - 07.04.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.04.1990, Blaðsíða 1
f f f f 4 A' * f ff fffff fff f f f r f # r rffffffff f'f ffffffffffff f { < í f 1 J'ifii'. Laugardagur 7. apríl 1990. 68. tölublað 55. árgangur. Ég klóra þér ef þú klórar mér, “ sagði John Lennon í þekktu dægurlagi. Klárarnir á myndinni fara að dæmi hans og kljást af hjartans lyst. Mynd: Jim Smart Börn Homrekur í velferðinni Samtókin Barnaheill: Sinnuleysigagnvart börnum og málefnum þeirra fer vaxandi. Veldurþeim sem vinna að málefnum barna miklum áhyggjum. Sífelltfleiri börn þurfa aðstoðar við. Þörfá viðhorfsbreytingum til barna í þjóðfélaginu Eg veit um skólastjóra hér í borg sem er farinn að mæta mun fyrr í vinnuna á morgnana til þess eins að opna húsnæði skólans og gefa einum nemenda sinna að borða. Astæðan er sú að skóla- stjórinn var farinn að koma að þessum dreng sofandi á ristinni sem heitt loft frá loftræstikerfi skólans fer út um. Skýringin á komu drengsins í skólann svona snemma er að honum er ekið í skólann um klukkan 7 á morgn- ana eða á sama tíma og foreldrar hans þurfa að mæta í vinnuna, sagði Arthúr Morthens sér- kennslufulltrúi. Stór-Reykjavíkursvæöið er í auknum mæli að fá á sig einkenni erlendra stórborga með öllum \ þeim neikvæðu ummerkjum sem vþví fylgja og sífellt fleiri börn þúrfa aðstoðar við. Orsakanna er m.a\að leita í því að foreldrar hafa æ minni tíma til að sinna af- kvæmurií sínum, streita fer vax- andi, vinnydagurinn er langur, skilnaðartíðni hefur vaxið hraðar en í nágrannalöndum okkar sem og slysum á börnum. Allt þetta og fleira til hefur skapað fjölmörg vandamál fyrir íslensk börn og umhverfi þeirra sem er mikið áhyggjuefni þeirra sem vinna að málefnum barna. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem samtökin Barnaheill héldu í fyrradag, en samtökin voru stofnuð á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október í fyrra. Tilgangur samtakanna er að stuðla að bættum hag barna og fjölskyldna þeirra og hafa áhrif á viðhorf til barna í samfélaginu. Að sögn Arthúrs Morthens er engum blöðum um það að fletta að sinnuleysi gagnvart börnum hefur farið vaxandi í íslenska þjóðfélaginu sem kennir sig við velferð. Ekki bara hjá hinu opin- bera heldur og einnig er þáttur fjölmiðla ekkert til að hrópa húrra fyrir. Lítið sé um að tekið sé á málefnum barna í þeim nema því aðeins að eitthvað neikvætt komi uppá og lítið sem ekkert um fræðandi og uppbyggjandi efni fyrir þau. „Það sem þarf að koma til er viðhorfsbreyting gagnvart börn- um og málefnum þeirra í þjóðfé- lagi sem kennir sig við velferð. Það getur aldrei orðið nema því aðeins að almenningur taki þátt í því með okkur. Að þessu munum við vinna af alefli því ástandið er þegar orðið þannig að það er far- ið að valda okkur sem vinnum að málefnum barna verulegum áhyggjum,“ sagði Arthúr Mort- hens. í því skyni að leggja áherslu á starfsemi og tilgang samtakanna Barnaheillar verða á miðviku- daginn haldnir styrktartónleikar í Borgarleikhúsinu. Lands- frægir tónlistarmenn og rithöf- undar munu koma þar fram, samtökunum að kostnaðarlausu. Má þar nefna Bubba Morthens, Megas, Todmobil, rithöfundana Einar Má Guðmundsson og Þór- arin Eldjárn auk söngkvennanna Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Ingu Backman. Rúmum hálfum mánuði seinna eða föstudaginn 27. apríl gangast samtökin fyrir málþingi að Borg- artúni 6 undir yfirskriftinni: Börn á íslandi sem verður öllum opið. í bígerð er svo að halda tvö önnur málþing um málefni barna, seinna á árinu. I fjáröflunarskyni til styrktar starfsemi samtakanna Barna- heillar eru í þann veginn að koma út svokölluð heillaóskakort. Það er von forráðamanna samtak- anna að landsmenn styðji þau með því að kaupa þessi kort og sendi til rrú Vigdísar Finnboga- dóttur, forseta íslands, í tilefni af sextugsafmæli hennar sunnudag- inn 15. apríl næstkomandi. -grh Frakkland Enn í miðaldamyrkri „Mynduð þér ekki missa matarlistina efþérsœtuð á milli eineygðs manns og móngólíta?“ Jean-Paul Borg er opinber starfsmaður í borginni Avign- on í sunnanverðu Frakklandi. Hann hyggst stefna veitinga- manni nokkrum fyrir rétt og krefjast af honum skaðabóta fyrir að hafa beitt sig gerræðislegu misrétti á gildaskála hans. Borg hefur verið mikið fatlað- ur allar götur frá því lömunar- veiki herjaði á hann í bernsku. Fyrir nokkru ákváðu hann og nokkrir vinnufélaga hans að snæða hádegisverð á ofannefnd- um veitingastað en þegar hann hugðist halda inní skálann varn- aði eigandinn honum aðgöngu með þeim orðum að hér væri lok- að. Vinnufélagar Borgs vissu bet- ur en eigandinn tók engum for- tölum og sat við sinn keip. Borg kæmi ekki inn fyrir sínar dyr. Heilmikil umræða hefur orðið um þetta mál í Frakklandi og hafa frönsk dagblöð látið það til sín taka. Það sem einkum vekur undrun og hneykslan manna er hve forhertur veitingamaðurinn er í mannfyrirlitningu sinni. Þessi orð eru höfð eftir honum í viðtali við dagblaðið Liberation: „Mynduð þér ekki missa matar- lystina ef þér sætuð á milli ein- eygðs manns og móngólíta?“ Engan furðar kannski þótt Mic- hel Gillibert, ráðherra með mál- efni fatlaðs fólks á sinni könnu, andvarpi og segi lágum hljóðum: „Við ráfum enn um í miðaldam- yrkri.“ Reuter/ks

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.