Þjóðviljinn - 07.04.1990, Blaðsíða 12
Jóhanna Þórdórsdóttir
nemi í Versló
Vinna og læra, ég verö að nota
tímann til að læra undir próf.
Halldór Pálsson
ellilífeyrisþegi
Ekki neitt, bara sitja heima. Ég fer
yfirleitt aldrei neitt.
Halldóra Hrólfsdóttir
nemi
Bara borða páskaegg og fara á
skíði upp í Bláfjöll.
Orri Vésteinsson
sagnfræðingur
Vinna.spurningin er bara hvort
ég fái pening til að vinna það sem
mig langar.
—SPURNINGIN—
Hvað ætlarðu að gera í
páskafríinu?
Guðmundur Guðmunds-
son
matreiðslumaður
Vinna og fara á árshátið starfs-
manna á Naustinu.
i'
íS(S»n^I*
Nú fara nýir tímar f hönd.
Meö húsbréfum geturðu notiö þess áhyggjulaus aö vera ekki lengur leiksoppur veöurs og vinda
og misviðra á Islenskum peningamarkaöi.
Húsbréf eru ríkistryggð skuldabréf, gefin út af Byggingarsjóði rfkisins til seljanda fasteignar
í skiptum fyrir skuldabréf sem er gefið út af kaupanda fasteignarinnar.
Landsbréf eru nýtt, traust og framsækiö veröbréfafyrirtæki.
Samkvæmt sérstökum samningi viö Húsnæðisstofnun eru Landsbréf miöstöð allra viðskipta meö
húsbréf. Þetta greinir Landsbréf frá öllum öðrum veröbréfafyrirtækjum.
Leggöu leiö þína til Landsbréfa.
Húsbréf eru besta leiðin - yfir höfuö.
LANDSBRÉF
Landsbankinn stendur meó okkur
SuÓurlandsbraut 24 • Slmi 91-606080
og öll útibú Landsbanka íslands
Upplýsingasími um verð húsbréfa er 91 -606081