Þjóðviljinn - 07.04.1990, Page 2

Þjóðviljinn - 07.04.1990, Page 2
FRÉTTIR Útsvarsklúðrið Sveitarstjómarmenn ævareiöir Gísli Gíslason bœjarstjóri áAkranesi: Ríkið tekur afokkurl5 miljónir án skýringa. Krefstþess að þeim verði skilað. Hefenga trú á upplýs- ingum frá ríkinu að er óhætt að segja að sveitarstjórnarmenn séu ævareiðir vegna þessa útsvars- kiúðurs. Ríkið hefur tekið 15 miljónir af okkur skýringalaust og segir að við skuldum alls 24 miljónir. En ég hef enga trú á þessum upplýsingum og á meðan þeir geta ekki sýnt fram á þetta krefst ég þess að þeir skili þessum 15 miljónum, sagði Gísli Gísla- son, bæjarstjóri á Akranesi, í samtali við Þjóðviljann. Sveitarstjórnarmenn eru nú smám saman að fá upplýsingar frá ríkinu um útsvarsklúðrið sem Þjóðviljinn sagði frá í síðustu viku. Vegna mistaka fengu sveitarfélögin á landsbyggðinni 200 miljónum of mikið í útsvar í fyrra, og hafa þegar fengið bak- reikninga frá ríkinu án fullnægjandi skýringa. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans þarf Akureyrarbær að endurgreiða um 50 miljónir, Keflavík rúmlega 20 miljónir og Vestmannaeyingar um 20 miljón- ir. Hjá minni sveitarfélögum eins og Ólafsvík og Stykkishólmi nemur upphæðin fjórum til fimm miljónum króna. Bæjarráð Akraness ályktaði um málið í vikunni og lýsti þar yfir sérstakri óánægju með mis- tök fjármálaráðuneytisins. Bæjarráð átelur vinnubrögð ráðuneytisins harðlega og krefst nákvæmra upplýsinga án tafar. Fyrr í vikunni sendi bæjarstjórinn Ólafi Ragnari Grímssyni bréf, þar sem hann krefst þess að ríkið skili þeim 15 miljónum sem ríkið hefur endurheimt. Ljóst er að fjárhagsáætlanir margra sveitarfélaga raskast verulega vegna þessara mistaka, en óánægja sveitarstjórnar- manna beinist ekki síst að því hve upplýsingar um málið berast seint og illa. Þegar Þjóðviljinn skýrði frá þessu í lok síðustu viku vissu sveitarstjórnarmenn yfir- leitt mjög lítið um málið. Reyndar þurftu fjármálaráð- herra og hans nánustu samstarfs- menn að lesa um málið í Þjóðvilj- anum. Málið hefur verið til umfjöll- unar í fjármálaráðuneytinu að undanförnu og að sögn Snorra Olsens skrifstofustjóra, stendur til að funda með fulltrúum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í næstu viku. Ákveðið hefur að reyna að ná samkomulagi við sveitarfélögin um að þau endur- greiði útsvarið á lengri tíma. -gg Höfn Krían til í slaginn Gísli Sverrir Árnason sagn- fræðingur skipar efsta sætið á framboðslista bæjarmálafélags- ins Kríunnar á Höfn í Hornafirði. Listinn var samþykktur á félags- fundi á fimmtudagskvöldið og var þar jafnframt ákveðið að sækja um listabókstafinn H fyrir fram- boðið. Aðeins tveir gömlu flokkanna bjóða fram á Höfn, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur, og hafa tvo bæjarfulltrúa hvor. Krían er stofnuð í beinu fram- haldi af framboði óháðra, H- listanum, sem vann þrjá bæjar- fulltrúa í síðustu kosningum. Ekki er búist við nema þremur framboðum í bænum. Svava Kristbjörg Guðmunds- dóttir bæjarfulltrúi skipar annað sæti listans og Stefán Ólafsson bæjarfulltrúi það þriðja. Síðan koma þau Björn Grétar Sveins- son, formaður Jökuls, Ragnhild- ur Jónsdóttir nemi, Guðjón Þor- björnsson framkvæmdastjóri og Hrönn Pálsdóttir, starfsmaður KASK. Uppstillingarnefnd gerði til- lögu að skipan listans að undan- genginni skoðanakönnun. -gg Kópavogur HM-höllin kynnt Opið hús hjá Granda. Grunnskólanemendur úr 23 skólum á höfuðborgarsvæðinu fjölmenntu í heimsókn í fiskvinnslu-og útgerðarfyrirtækið Granda hf. í gær og kynntu sér starfsemi fyrirtæksins. Vonandi hefur þessi heimsókn krakkanna veitt þeim nokkra innsýn í fiskvinnslu- störf og hversu þýðingarmikil þau eru. Mynd: Kristinn. Fundur Samstaða með nauðgara? Samstöðunefnd boðarfund til stuðnings „verkalýðs- og mannréttindafrömuðinumu Mark Curtis. Aðrar heimildir segja að hann sé réttilega dœmdur barnanauðgari Nýja skóla-,íþrótta- og menn- ingarmiðstöðin í Smárahvamms- landi í Kópavogsdal verður kynnt á opnum fundi í Félagsheimili Kópavogs á mánudagskvöldið klukkan 20.30. Þar verður gerð grein fyrir þeim möguleikum í skóla-, íþrótta- og menningarstarfi sem væntanlegt hús býður upp á og farið yfir fjárhagslega hlið máls- ins. -grh INýju Helgarblaði Þjóðviljans er að finna auglýsingu um fund sem haldinn verður á mánu- dagskvöldið til stuðnings málstað Marks nokkurs Curtis sem í auglýsingunni er nefndur „bandarískur verkalýðs- og mannréttindafrömuður“. I bók sem Þjóðviljanum barst fyrir skömmu er þessi sami Mark Curtis sagður vera refsifangi sem afplánar 25 ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma og reyna að nauðga 15 ára gamalli blökku- stúlku fyrir tveimur árum. Bókin sem hér um ræðir nefn- ist „The Mark Curtis Hoax“ og er eftir bandaríska blaðamanninn Martin McLaughlin. Hann rekur ítarlega gang málsins gegn Mark Curtis sem hófst í mars 1988. Þá var Curtis handtekinn í íbúð í borginni Des Moines í Iowa- fylki. Lögreglan hafði fengið upphringingu frá 11 ára gömlum dreng sem sagði að það væri mað- ur að nauðga 15 ára systur sinni. Lögreglan brá skjótt við og þegar hún mætti á staðinn var stúlkan, Demetria Morris, á leiðinni út en innifyrir var Curtis með buxurnar á hælunum. Demetria var hálf-. klædd og bar greinileg merki bar- smíða. Þegar mál Marks Curtis kom fyrir rétt bar lögfræðingur hans því við að Morris væri að ljúga sökum upp á Curtis, hún hefði lent í einhverri erfiðri lífsreynslu og sennilega ruglast. 12 manna kviðdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Curtis væri sekur og dómarinn dæmdi hann til 25 ára fangavistar. Nú vildi svo til að Curtis var virkur í verkalýðsmálum og fram- arlega í samtökum bandarískra trotskíista, Socialist Workers Party. Eftir dómsfellinguna var stofnuð samstöðunefnd með Curtis og safnaði hún miklu fé og undirskriftum til stuðnings Curtis sem nefndur var fórnarlamb lög- regluofbeldis. Var því haldið fram að yfirvöld hefðu logið upp nauðgunarsögunni til að koma höggi á Curtis og binda enda á pólitísk afskipti hans. Þetta væru með öðrum orðum pólitískar of- sóknir. Nú er þessi herferð komin til íslands. í bók sinni hrekur McLaughlin fullyrðingar samstöðunefndar- innar lið fyrir lið og leiðir fram fjölda vitna. Hann bendir ma. á að í réttarhöldunum hafi lögfræð- ingur Curtis aldrei haldið því fram að á hann væru bornar upp- lognar sakir eða að hann væri fórnarlamb pólitísks samsæris. Þvert á móti hafi hann staðfast- lega neitað því að svo væri. McLaughlin segir að það und- arlega í þessu máli sé sú ofur- áhersla sem Socialist Workers Party leggi á að hreinsa mannorð Curtis. I því skyni hefur verið leitað til fjölda þekktra verka- lýðsleiðtoga og stjórnmálamanna víðsvegar um heiminn og þeir beðnir að undirrita stuðningsyf- irlýsingu við Curtis. f bók McLaughlins er birt opið bréf frá föður fórnarlambsins til þeirra sem hafa undirritað yfirlýsinguna og einnig fjölmörg bréf frá fólki sem biður fjölskylduna afsökun- ar og dregur stuðning sinn við Curtis til baka. -ÞH Nýr vettvangur Guðrún rangfeðnið Ee tel mig taka þátt í þessu próf- kjöri sem einstaklingur. Ég hef hvorki verið í neinum stjórn- málasamtökum, ekki í Reykja- víkurfélaginu né öðrum, sagði Guðrún Jónsdóttir við ÞjóÖ- viliann í gær. I fréttatilkynningu frá Reykja- víkurfélaginu, sem Ásgeir Hann- es Eiríksson stofnaði ásamt nokkrum „nágrönnum sínum“ einsog hann orðaði það sjálfur, segir að frá félaginu taki þátt í prófkjöri Nýs vettvangs þau Guðrún Jónsdóttir arkitekt, Björn Einarsson fangahjálpari og Ásgeir Hannes Eiríksson. „Það komu ýmsir að máli við mig, bæði úr Reykjavíkur- félaginu og annarsstaðar að, og báðu mig að gefa kost á mér í prófkjörið. Ástæðan fyrir því að ég gaf kost á mér er að ég er hlynnt fólkinu sem stendur að Nýjum vettvangi og þeim sjónar- miðum sem þar koma fram,“ sagði Guðrún. -Sáf 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. apríl 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.