Þjóðviljinn - 27.04.1990, Page 7
SIEMENS
Lítið inn til okkar og skoðiö vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
i.
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér meö eftir tilboðum í
smíöi stálhluta í undirstöður, stagfestur o.fl.
vegna byggingar 132 kV Blöndulínu í samræmi
viö útboðsgögn BLL-11.
Útboösgögn verða afhent frá og meö mánudeg-
inum 30. apríl 1990 á skrifstofu Landsvirkjunar
aö Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óaftur-
kræfu gjaldi aö upphæö kr. 2000,-.
Smíða skal úr ca 30 tonnum af stáli, sem Lands-
virkjun leggurtil. Hluta stálsins skal heitgalvan-
húða eftir smíöi.
Verklok eru 16. júlí og 15. ágúst n.k.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en
þriðjudaginn 15. maí 1990 kl. 14.00, en tilboðin
verða opnuð þar þann dag kl. 14.15 að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjavík 25. apríl 1990
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til háskólanáms í
ffljjm Portúgal og Tyrklandi
Portúgölsk stjórnvöld hafa tilkynnt aö þau bjóði fram í
löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu átta styrki til
háskólanáms í Portúgal háskólaárið 1990-91. Ekki er
vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni
koma í hlut íslendinga. Umsóknareyðublöð fást i
sendiráði Portúgala í Osló (Josefines gate 37, 0351
Oslo 3, Norge) og þangað ber að senda umsóknir
fyrir 1. júní n.k.
Ennfremur hafa tyrknesk stjórnvöld tilkynnt að þau
bjóði fram í sömu löndum fjóra styrki til háskólanáms í
Tyrklandi skólaárið 1990-91. Umsækjendur skulu
hafa gott vald á tyrknesku, frönsku eða ensku. Sendi-
ráð Tyrklands í Osló (Halvdan Svartes gate 5, 0268
Oslo 2, Norge) lætur í té umsóknareyðublöð og nán-
ari upplýsingar, en umsóknir þurfa að berast tyr-
kneskum stjórnvöldum fyrir 30. júní n.k.
Ofangreindir styrkir eru eingöngu ætlaðir til fram-
haldsnáms við háskóla.
Menntamálaráðuneytið
24. apríl 1990
AÐUTAN
Morðtilrœðið við kanslaraefni vestur-þýskra sósíaldemókrata dregur
fram mikilvœgi hansfyrir kosningabaráttu þeirra
Oskar Lafontaine leiðtogi
vestur-þýskra sósíaldemo-
krata var á góðum batavegi í gær
eftir bantilræði á kosningafundi í
fyrrakvöldi. Læknar segja góðar
horfur á að hann nái sér að fullu
en hann verður að taka sér hvild
frá stjórnmálabaráttunni á næstu
vikum. Félagar hans í forystu sós-
íaldemókrataflokksins segja að
Lafontaine sé enn kanslaraefni
flokksins fyrir kosningarnar i
Vestur-Þýskalandi í desember.
Tilræðið
Konan, sem reyndi að myrða
Lafontaine, heitir Adelheid
Streidel 42 ára gömul frá smá-
bænum Bad Neuenahr skammt
fyrir sunnan Bonn.
Öryggisverðir héldu að konan
væri aðdáandi sem ætlaði að færa
Lafontaine blóm vegna þess að
hún hélt á tveimur blómvöndum.
Hún hafði reynt að komast upp á
sviðið fyrr á fundinum en öryggis-
verðir komu þá í veg fyrir það. En
í lok fundarins bentu þeir henni
að koma.
Yfirvöld segja að eini mögu-
leikinn til að koma í veg fyrir til-
ræðið hefði verið ef konan hefði
ekki fengið að koma upp á sviðið
með blómin.
Þegar hún var komin í seiling-
arfjarlægð dró hún skyndilega
upp 20 cm langa sveðju og hjó til
Lafontaine með henni. Slagæðin
til höfuðs fór næstum því sundur
og Lafontaine hné til jarðar.
Læknir, sem var viðstaddur,
kom honum þegar í stað til að-
stoðar en ekki tókst að stöðva
blæðinguna fyrr en eftir um það
bil tíu mínútur að sögn vestur-
þýska sjónvarpsins. Litlu munaði
því að Lafontaine léti lífið þarna
á sviðinu.
Streidel var hin rólegasta eftir
tilræðið og svaraði spurningum
æstra lögreglumanna engu.
Reinhard Fischer háttsettur yfir-
maður í vestur-þýsku lögreglunni
sagði í gær að hún sýnda enga
iðrun vegna tilræðisins. Hún
hefði ákveðið um jólin að drepa
einhvern stjórnmálamann til að
komast í fjölmiðla.
Ríkissaksóknari lét í ljós efa-
semdir um að hún væri andlega
heilbrigð.
Kanslaraefni
jafnaðarmanna
Tilræðið við Oskar Lafontaine
dregur skýrt fram hvað hann er
orðinn mikilvægur fyrir vestur-
þýska sósíaldemókrata. Hann er
einn vinsælasti stjómmálamaður
Þýskalands ef ekki sá vinsælasti.
Sigurvonir sósíaldemókrata í
kosningunum í desember eru
fyrst og fremst bundnar við hann.
Niðurstöður flestra skoðana-
kannana benda til þess að meiri-
hluti Vestur-Þjóðverja vilji frek-
ar hafa Lafontaine sem kanslara
en Helmut Kohl leiðtoga kristi-
legra demókrata og núverandi
kanslara.
Kosningamar í desember eru
líkast til þær mikilvægustu sem
haldnar hafa verið í Vestur-
Þýskalandi frá stríðslokum. Sig-
urvegarinn í þeim kosningum
kemur til með að hafa umsjón
með endanlegri sameiningu
þýsku ríkjanna og hann hefur
góða möguleika á að verða fyrsti
kanslari sameinaðs Þýskalands.
Úrslit kosninganna koma líka til
með að hafa veruleg áhrif á fram-
tíðarmótun Evrópubandalagsins.
Oskar Lafontaine
Bæði kristilegir demókratar og
sósíaldemókratar leggja þess
vegna ofurkapp á að sigra í des-
emberkosningunum.
Enginn forystumaður sósíal-
demókrata er talinn nálgast að
hafa sigurlíkur á við Lafontaine.
Fréttin um tilræðið við hann kom
því sem reiðarslag fyrir leiðtoga
þeirra þegar ekki var ljóst hvort
hann myndi lifa af eða ná sér aft-
ur.
Forystumenn sósíaldemókrata
héldu skyndifund í gærmorgun til
að ræða hvernig þeir ættu að
bregðast við. Þeim létti óumræði-
lega þegar þær fréttir bárust að
Lafontaine væri á góðum bata-
vegi. Hann léki á alls oddi, gerði
að gamni sínu og spjallaði við
samstarfsmenn sína.
Eftir þessar ánægjulegu fréttir
gáfu sósfaldemókratar út yfirlýs-
ingu um að Lafontaine væri
áfram kanslaraefni flokksins fyrir
kosningarnar í desember.
Hann verður samt að hvíla sig
næstu daga og vikur og getur ekki
tekið meiri þátt í kosningabarátt-
unni fyrir fylkiskosningar í Norð-
ur-Rínarlöndum og Vestfalíu 13.
maí. Lafontaine hafði einmitt ný-
lokið við að halda ræðu á kosn-
ingafundi fyrir þær kosningar
þegar honum var sýnt banatil-
ræði.
Ferill
Lafontaine
Oskar Lafontaine er 46 ára
gamall. Hann fæddist 16. sept-
ember 1943 í kaþólskri verka-
mannafjölskyldu í bænum Saarl-
ouis í Saarlandi nálægt frönsku
landamærunum. Hann lagði
stund á eðlisfræði við háskóla í
Bonn og Saarbrucken.
Lafontaine gekk í sósíaldemó-
krataflokkinn árið 1966 og var
kosinn borgarfulltrúi í Saar-
brucken 1974. Tveimur árum síð-
ar varð hann borgarstjóri þar og
1977 varð hann æðsti forystu-
maður sósíaldemókrata í Saar-
landi.
Lafontaine vakti mikla athygli
á landsmælikvarða í fyrsta skipti
árið 1982 þegar hann lýsti yfir
andstöðu við að nýjum banda-
rískum kjarnorkuvopnum yrði
komið fyrir í Vestur-Þýskalandi.
Þetta var í andstöðu við yfirlýsta
stefnu sósíaldemókrata. Helmut
Schmidt kanslari þáverandi leið-
togi þeirra lagði einmitt mikla
áherslu á að fá kjarnorkuvopnin
til landsins.
Lafontaine aðhyllist náttúru-
verndar- og friðarsósíalisma.
Hann hefur lýst yfir efasemdum
um nauðsyn stöðugs hagvaxtar.
Margir fréttaskýrendur litu á
hann sem óraunsæjan hugsjóna-
mann. En eftir að sósíaldemókr-
atar náðu völdum undir forystu
hans í Saarlandi 1985 hefur hann
fylgt raunsærri stjórnarstefnu
sem hefur skilað miklum árangri.
Lafontaine átti stóran þátt í að
móta nýja stefnuskrá sósíal-
demókrata sem var samþykkti í
desember 1989. Þar er lögð ár-
hersla á endurskipuiagningu iðn-
aðarþjóðfélagsins með umhverf-
isvernd fyrir augum, jafnframt
því sem nauðsyn frjáls markaðar
er viðurkennd.
Sósíaldemókratar unnu stór-
sigur í kosningum í Saarlandi
undir forystu hans í janúar á
þessu ári og nokkru síðar var
hann tilnefndur sem kanslaraefni
flokksins í kosningunum í des-
ember næstkomandi.
Lafontaine er mikill talsmaður
sameinaðrar Evrópu en hann
hefur varað við áhrifum óðagots
við sameiningu þýsku ríkjanna.
Þannig hefur hann til dæmis beitt
sér fyrir því að dregið hefur verið
úr stuðningi við flóttamenn frá
Austur-Þýskalandi. Þess í stað
vill hann að Vestur-Þjóðverjar
styðji austur-þýskt atvinnulíf við
að aðlagast sameiningunni til að
koma í veg fyrir efnahagshrun í
Aust">--t>ýskalandi sem kæmi til
n. . aö bitna á lífskjörum al-
mennings bæði í Austur- og
Vestur-Þýskalandi til lengri tíma
litið.
Oskar Lafontaine
Föstudagur 27. april NÝTT HELGARBLAÐ - SIÐA 7