Þjóðviljinn - 27.04.1990, Page 12
HVER ER MUNUHNN?
Sjálfstæðismenn fara með völd í stærsta
sveitarfélagi landsins, en Alþýðubandalags-
menn og Alþýðuflokksmenn í Kópavogi og í
Hafnarfirði. Það er athyglisvert að athuga
hverjar hafa verið áherslur íhverju sveitarfé-
lagi fyrir sig undir stjórn ólfkra pólitískra afla.
Þjóðviljinn leitaði því til forráðamanna Kópa-
vogs og Hafnarfjarðar auk fulltrúa minnihlut-
ans í borgarstjórn Reykjavíkur, en þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná tali af Da-
víð Oddssyni, oddvita Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík í komandi kosningum.
Kópavogur
Félagshyggjan
viö völd
Valþór Hlöðversson: Höfum ekki lagt áherslu á að reisa
okkur minnisvarða úr steinsteypu, en þeir eru þá helst
íbúðir fyrir aldraða og félagslegar íbúðir. Höfum haldið
áfram að byggja upp félagslega þjónustu fyrir íbúa
bæjarins
Valþór Hlööversson: Það er gífurlegt fagnaðaref ni að við skyldum haf a
sigur í deilunni um Fossvogsdalinn. Hér ætlum við að koma upp
alhliða íþrótta- og útivistarsvæði. Mynd Kristinn.
Við höfum ekki lagt áherslu á
að reisa okkur minnisvarða úr
steinsteypu, heldur lagt meginá-
herslu á að halda áfram að
byggja upp félagslega þjónustu
við íbúa bæjarins. En minnis-
varðarnir eru svo sem til, íbúðir
fyrir aldraða, félagslegar íbúðir,
götur og annað, segir Valþór
Hlöðversson, efsti maður á G-
listanum í Kópavogi.
Alþýðubandalagið og Alþýð-'
uflokkurinn hafa farið með
meirihluta í bæjarstjórn Kópa-
vogs á þessu kjörtímabili, enda
hafa félagshyggjuflokkar reyndar
lengst af ráðið ferðinni í Kópa-
vogi.
„Imynd Kópavogs felst í því að
hann er félagsmálabær. Félags-
hyggjan hefur verið við völd hér
og þess sjást glögg merki. Þjón-
ustustigið er hér mun hærra en
víðast hvar annars staðar.“
uppgræðslu. Við höfum gert átak
í trjárækt.
Við höfum lagt gífurlegt fjár-
magn til holræsamála á kjörtím-
abilinu og ég er ófeiminn við að
segja að átak okkar í frágangi
holræsa sé mesta framlag
sveitarfélags til umhverfismála á
síðari árum. Við höfum lagt 300
miljónir króna í holræsamálin og
gerum ráð fyrir að koma þeim í
viðunandi horf á næstu fjórum til
sex árum.
Það má heldur ekki gleyma því
í umræðum um umhverfi og
snyrtingu bæjarins að við höfum
lagt götur fyrir 850 miljónir króna
á kjörtímabilinu og við Alþýðu-
bandalagsmenn leggjum áherslu
á að ljúka við frágang eldri gatna
á allra næstu árum.
Okkar aðaláhersla verður þó
auðvitað á félagslega sviðinu,"
segir Valþór.
Fjármálin
Minnihlutinn í Kópavogi hefur
gagnrýnt fjármálastjórn bæjarins
og skuldasöfnun harkalega, en
Valþór segir fráleitt að fjárhagur-
inn sé bágur.
„Nettóskuldir okkar nema 650
miljónum króna á meðan
heildartekjur okkar á ári nema
Meirihlutinn í Kópavogi hefur beitt sér sérstaklega í þjónustu við
aldraða og í umhverfismálum. Meðal annars hafa verið byggðar um
100 sérhannaðar þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Mynd Kristinn.
tveimur miljörðum. Ég bendi á
að við höfum lagt tvo og hálfan
miljarð króna í nýframkvæmdir á
kjörtímabilinu og það er ljóst að
meginhluti þess hefur verið
fjármagnaður af eigin fé, en ekki
með skuldum.
Samkvæmt tölum frá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga var
skuldasöfnun vegna fram-
Hafnarfjörður
Umskipti undir stjóm
vinstrimanna
Magnús Jón Árnason, formaður bæjarráðs: Hafnarfjörður ber þess
greinileg merki að vinstri menn eru við völd. Áherslan öll á félagslega þjónustu
Aldraðír í
forgangi
„Megináherslan á þessu kjör-
tímabili hefur verið á málefni
aldraðra og ég fullyrði að Kópa-
vogur sé fyrirmynd annarra hvað
snertir gæði og skipulag þjónustu
við aldraða.
Við höfum byggt 100 sérhann-
aðar þjónustuíbúðir fyrir aldraða
í fjölbýli og sérbýli.
Samfara átaki í þágu aldraðra
höfum við haldið áfram uppbygg-
ingu dagvistarþjónustunnar.
Auk þessa höfum við gefið um-
hverfismálum stóraukið vægi.
Það á meðal annars við um al-
menna snyrtingu bæjarins og
Hafnarfjörður ber þess greini-
leg merki að hér hafa vinstri
menn verið við völd síðast liðin
fjögur ár. Það hafa orðið umskipti
á bænum og ég leyfi mér að full-
yrða að þetta sé eitt glæsilegasta
kjörtímabij sem Hafnfirðingar
hafa átt. Áherslan hefur öll verið
á uppbyggingu félagslegrar þjón-
ustu, segir Magnús Jón Árnason,
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins og formaður bæjarraðs í
Hafnarfirði.
Alþýðubandalagið og Alþýð-
uflokkurinn tóku við meirihluta
árið 1986 eftir að Sjálfstæðis-
flokkur og óháðir höfðu farið með
stjórn í bænum.
„Meirihlutinn hefur staðið í
stórum og kostnaðarsömum
framkvæmdum á kjörtímabilinu,
fyrst og fremst í skólamálum,
dagvistarmálum og íþrótta- og
æskulýðsmálum. Auk þess höf-
um við eflt þjónustu við aldraða
verulega.
Við lukum við byggingu lista-
og menningarmiðstöðvarinnar
Hafnarborgar og höfum hafið
uppbyggingu listamiðstöðvarinn-
ar Straums.
Fyrsti áfangi Setbergsskóla er
kominn í gagnið og Hvaleyrar-
skóli tekur til starfa í haust. Að
auki höfum við byggt við tvo aðra
skóla og komið upp matarað-
stöðu fyrir nemendur í sjöunda,
áttunda og níunda bekk.
Við keyptum hús í miðbænum
og komum þar upp æskulýðsmið-
stöðinni Vitanum.
Við höfum tvöfaldað framboð
á leikskóla- og dagheimilispláss-
um á kjörtímabilinu og höfum
auk þess stutt foreldra til þess að
koma upp dagheimilinu Hraun-
koti.
í íþróttamálum ber íþróttahús-
ið í Kaplakrika hæst, en það var
tekið í notkun nýlega. Einnig hef-
ur verið byggt við íþróttahús
Hauka og þar hefur Gerpla feng-
ið aðstöðu. Svo kláruðum við
Sundlaug Suðurbæjar, sem íhald-
ið hafði verið að dunda við áður.
Auk þessa höfum við eflt þjón-
ustu við aldraða og keypt fyrir þá
þjónustuíbúðir. Félagsmála-
stofnun hefur verið efld stórlega.
Hér hefur því átt sér stað gífur-
leg uppbygging með áherslu á fé-
lagslega þjónustu.
Það er rétt að Sjálfstæðismenn
gagnrýna okkur fyrir að safna
skuldum. Þeir hafa hins vegar
alltaf reynt að yfirbjóða okkur
við afgreiðslu fjárhagsáætlana án
þess að geta bent á tekjur á móti.
Uppbygging kostar auðvitað sitt
en það er allt að því fyndið að
halda því fram að fjárhagur
Hafnarfjarðarbæjar sé slæmur,"
segir Magnús Jón Árnason.
-gg
12 SÍÐA-NÝTT HELGABBLAÐ Föstudagur 27. apríl