Þjóðviljinn - 27.04.1990, Qupperneq 26

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Qupperneq 26
 Álafoss og Epal, Faxafeni 7, sýning á Listalínu Guðrúnar Gunnarsdóttur. Værðarvoðir hannaðar fyrir Álafoss. Til 17.5. Egllsbúð, Neskaupstað, Ása Ólafs- dóttir opnar sýningu á myndvefnaði og „collage" lau kl. 16. Opin su, 1 .maí og 5, kl. 15-19 og 6.5. 15-22. FÍM-salurlnn, Sigríður Candi, mál- verkasýning. Til 6.5. 14-18 daglega. Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu- múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og olíumyndir, keramikverk og módel- skartgripir, opið lau 10-14. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Bragi Hannesson, olíumyndir. Opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14- 18. Stendur til l.maí. Gallerí Graf, Logafold 28, verk Ástu Guðrúnar Eyvindardóttur. Lau 14-18 e/ eftir samkomulagi. Gallerí Skólavörðustíg 4a, Hannes Lárusson, tróverk. Opið 14-18 til 3.5. Gerðuberg, öm Þorsteinsson og Thor Vilhjálmsson, Spor í spori. Til 31.5. Mlnjasafn Rafmagnsveltunnar, húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su 14-16. Norrsna húslð, kjallari, Ragnheiður Jónsdóttir, teikningar. Til 29.4.14-19 daglega, ath síð. sýn.helgi. Anddyri: Sýning um ævi og störf þýska vís- indamannsins Alfred Wegener, opin dagl. til 3.5. Kjarvalsstaðlr, 11-18 daglega, austursalur: Sigurður örlygsson, málverk, til 6.5. Vestursalur, verk í eigu Búnaðarbankans, sýn.opn. lau. Til 6.5. Listasafn Elnars Jónssonar opið helgar 13.30-16, höggmyndagarður- inn alla daga 11-17. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Kjartan Ól- afsson, myndir á pappír. Opið 10-18 virka daga, 14-18 helgar. Til 9.5. Llstasafn Slgurjóns, járnmyndir Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa borist undanfarin ár. Lau og su 14-17, þri 20-22. Næst síð.sýn. helgi. Hafnarborg, Hf, Gunnar Ásgeir Hjaltason, sýnir myndverk unnin f pastel og akrýl, vatnslitamyndir, teikningar, grafík og ýmsa smíðis- gripi. Opið 14-19 alla daga nema þri. Til 6.5 Listasafn fslands, verk í eigu safnsins, opn. á sýn. Olli Lyytikáinen lau. Opið alla daga nema mán. kl. 12-18, aðg. ókeypis. Hótel Llnd, veitingasalur, Anna Gunnlaugsdóttir, málverk. Til 27.5. Safn Ásgríms Jónssonar, Berg- staðastræti 74, eldgosa- og flótta- myndir Ásgríms. Til 17.6. þri, fi, lau og su 13:30-16. Safnahúslð Sauðakróki, Gunnþór- unn Sveinsdóttir frá Mælifelli (1885- 1970). Opið virka daga 15-19, um helgar 14-19. Til 29.4. Sjómlnjasafn íslands, Vesturgötu 8 Hf. Opið helgar 14-18, eða e/ eftir samkomulagi. Þjóðmlnjasafnlð, opið þri, fi, lau og su 11-16. LEIKLISTIN Hugleikur, Yndisferðir, skrautleikur á Galdraloftinu, Hafnarstræti 9. i kvöld, lau og 8 sýn má, kl.20:30, ath. aðeins 10 sýn. íslenska lelkhúsið, Skeifunni 3c, Hjartatromþet, í kvöld og su kl. 20:30, allra síðasta sýn. íslenska óperan, Carmina Burana og Pagliacci au kl. 20. aukasýning, allra síð. sinn. Kaþarsis leiksmiðjan, Skeifunni 3c, Sumardagur e/Mrozek, lau kl. 21. Flugleiöir til Japans Svo virðist sem hugmyndir Flugleiðamanna um flug til Jap- ans verði að veruleika á næsta ári. Fyrirtækið IPS, sem er um- boðsaðili Flugleiða í Japan, hefur nú auglýst í stærsta ferðamálat- ímariti Japans að áætlað sé að hefja flug á milli íslands og Jap- ans í apríl 1991. Gífurleg aukning hefur verið í utanlandsferðum Japana á allra síðustu árum. Árið í fyrra fóru tæpar tíu miljónir Japana í utan- landsferð. Aðeins lítill hluti þeirra var í viðskiptaerindum. Þannig sýna kannanir að rúmlega níu af hverjum tíu brúðhjónum fara í brúðkaupsferð til útlanda. Þrátt fyrir mikla aukningu í flugflota Japana og fjölda er- lendra flugfélaga, sem fljúga til Japans, er varla að þau hafi undan aukningunni. Allar flug- vélar eru troðfullar af farþegum. Flugleiðir vonast til að hagnast á þessu ástandi. Umboðsaðilar þeirra í Japan segja lítinn vanda að fylla vélar félagsins með jap- önskum ferðamönnum á leið til Evrópu. Búast má við stórfelldri aukningu japanskra ferðamanna á íslandi um leið og beint flug hefst. Á undanförnum árum hafa fimm hundruð til þúsund Japanir lagt leið sína til landsins árlega þrátt fyrir litla sem enga land- kynningu í Japan. Væntanlega fjölgar þeim upp í mörg þúsund ef af fluginu verður. Áætlað er að fyrsta árið verði einungis um Ieiguflug að ræða yfir sumarmánuðina, eitt til tvö flug í viku með viðkomu í Ancor- ich í Alaska til að taka eldsneyti. Flugleyfið er bundið því skilyrði að Flugleiðir fljúgi ekki bara til Narita-flugvallar við Tokyo, sem er fullbókaður, heldur einnig til Sapporo, Sendai, Nagoya og fleiri borga í Japana. Kowata framkvæmdastjóri IPS segir alls ekki verra að fljúga til annarra borga en Tokyo. Þetta séu miljónaborgir á borð við Kaupmannahöfn eða Osló. Það sé bæði dýrt og tímafrekt fyrir íbúa í þeim að ferðast til Tokyo til að komast úr landi. Þeir séu því fúsir til að fljúga með litlu flugfé- lagi eins og Flugleiðum ef þeir komast ódýrar og fljótar til Evr- ópu með því móti. Jafnvel þótt Flugleiðir hafi enn ekki tekið endanlega ákvörðun um flugið til Japans er ólíklegt að fyrirtækið hætti við það nú þegar það hefur verið auglýst. Kowata segist ekki í nokkrum vafa um að áætlun Flugleiða um Japansflug standist og ljóst er að fyrirtækið yrði fyrir verulegum álitshnekki ef ekkert yrði úr því. Kowataer svo bjartsýnn að hann telur jafnvel að Flugleiðir komi til með að hefja reglulegt áætlunarflug í hverri viku árið 1992. IPS, sem auk Flugleiða er um- boðsaðili fyrir eitt taiwanskt flugfélag og annað frá Guam, vinnur nú ötullega að markaðs- öflun fyrir Rugleiðir í Japan. Fyr- irtækið hefur nú þegar selt mörg hundruð flugmiða milli Evrópu og íslands í sumar fýrir Japana sem vilja bæta íslandsheimsókn við Evrópuferð sína. IPS hefur líka gefið út 20 síðna bækling með upplýsingum um ísland sem dreift hefur verið til japanskra ferðaskrifstofa. Enn sem komið er hafa íslensk- ar ferðaskrifstofur lítið gert til að undirbúa fyrirsjáanlega fjölgun japanskra ferðamanna með út- gáfu bæklinga eða annars kynn- ingarefnis um ísland á japönsku. Hótel Saga hefur gengið einna lengst með því að láta gera leiðbeiningavísi um hótelið á jap- önsku sem hafður verður í her- bergjum japanskra gesta. Byggt m.a. á upplýsingum sem blaðamaður Þjóðviljans fékk hjá IPS, umboðsaðila Flugleiða, þeg- ar hann heimsótti skrifstofu IPS í Tokyo fyrr í þessum mánuði. Ragnar Baldursson Lelkfélag Akureyrar, Fátækt fólk, I kvöld, lau og þrí kl. 20:30. Leikfélag Hafnarfjarðar, Hrói Höttur, lau og su kl.14. Lelkfélag Kópavogs, Félagsheim. Kópav. Virgill litli. (s. 41985). Lelkfélag Mosfellssveitar, Hlé- garði, Þið munið hann Jörund e/ Jónas Árnason, sýnt út apr. Leikfélag Reykjavíkur, Borgarleik- húsið, Hótel Þingvellir lau kl. 20. Is- lenski dansflokkurinn, Vorvindar fö og su kl. 20. Ath. síð. sýn. Litla sviðið, Sigrún Ástrós, í kvöld, lau og su kl.20. Leikhús frú Emilíu-Óperusmiðjan, Skeifunni 3c, Systir Angelika e/ Puccini, frumsýning I kvöld kl. 20 og 22, önnur sýn má kl. 21. Lltii leikklúbburinn Isafirði, frum- sýnir Sönginn frá Mylai e/Jökul Jak- obsson í Alþýðuhúsinu lau. Þjóðleikhúsið, Endurbygging, í Há- skólabió, í kvöld kl. 20:30. næstsíð. sýn. Stefnumót í Iðnó lau kl. 20:30. næstsíð. sýn. Örlelkhúslð, Logskerinn, Vertshúsið Hvammstanga fö. hád. Blönduósi fö. kvöld, Skagaströnd lau. Hrísey su hád. Ólafsfirði su kvöld. Akureyri 1 .maí, um kvöldið í Dalvík. TONLISTIN Duus-hús Heiti potturinn, su kl. 21:30, Kvartett Friðriks Theódórs- sonar. Callfornla E.A.R. Unit, bandaríska kammersveitin, heldur tónleika á Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20.30, sjá nán. umfjöllun í blaðinu. Hafnarborg, tónleikar á vegum Hafnarborgar og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, kvartett Carls Möller leikur jasstónlist á þri kl. 15.30. Að- g.ókeypis. fslenska óperan, Tónmennta- skólinn, tónleikar yngri nem, lau kl.14. Norræna húslð, tónleikar. Matts Er- ikson, fiðluleikari, og Carl Otto Er- asmie, píanóleikari, leika verk eftir norræn tónskáld. Lau kl.16. Langholtskirkja, Árnesingakórinn og samkór Selfoss halda tónleika lau kl. 17. Bústaðakirkja, Tónlistarskólinn i Reykjavík með tónleika, Sigurdríf Jónatansdóttir, messósópran, Hlíf Káradóttir, sópran, Unnur Vilhelms- dóttir, píanó. Frumflutn. á verkum e/ Gunnar Kristinsson, Hilmar Sverris- son og Úlfar Haraldsson. Hljómsveit skólans leikur. Má kl. 20:30. Aðg. ókeypis. Mosfellskórinn heldur tónleika í Fél- agsbíói í Keflavik ásamt léttsveit Tón- listarskóla Keflavíkur, eins. Bjarni Arason og Þorvaldur Halldórsson, einl. Kristjana Helgadóttir. I kvöld kl. 21. Selkórinn Seltjarnarnesi heldur sína 22 vor- tónleika 1 .maí í Seltjarnarnes- kirkju kl. 17. Fjölbr. dagskrá, m.a. frumflutningur hérl. á verki Hallgríms Helgasonar Siglir dýra súðin mín, stjórnandi er Friðrik G. Þorleifsson. Tónmenntaskóli Reykjavíkur, tvennir vortónleikar, í kvöld kl. 20:30 að Rauðagerði 27, léttsveitin leikur og lau kl. 14 í Isl. óperunni, eldri nem. í einleik og samleik, auk kammertón- listar. Aðg ókeypis. Tónlistarfélagið, tónleikum Eddu Moser aflýst. Tónl. áttu að vera í ísl. óerunni lau.kl.16:30. Aðg.miðar endurgr. á sölustað. HITT OG ÞETTA Félag eldrl borgara Kópavogi, sumarfagnaður í kvöld kl. 20 í efri sal Félagsheimilisins, kórsöngur, gam- anmál og dans, mætið stundvíslega. Félag eldrl borgara: Göngu-Hrólfar, hittast á morgun lau kl.11 við Nóatún 17, opið hús Goðheimum Sigtúni 3 su kl.14, frjálst spil og tafl, dansað frá k!.20. Hana-nú í Kópavogi á morgun lau kl. 10, lagt af stað frá Digranesvegi 12, molakaffi. Kvæðamannafélagið Iðunn vill minna á fundinn að Hallveigarstöð- um á morgun lau kl.20. Fjölbreytt dagskrá og góðar veitingar. Þess er vænst að sem flestir félagar mæti á þennan síðasta fund skv. boðaðri vetrardagskrá. MÍR-bíósalurlnn við Vatnstíg 10, Uppstigning e/Larissu Shepitko su kl. 16, fræg sov. verðlaunamynd. Ensk- ur skýr.texti, aðg.ókeypis. MÍR-félagið með opið hús að Vatns- tíg 10, l.maí kl.14, te, kaffi, gos og hlaðborð, kvikmyndasýn. og basar auk happadrættis. Tónlistarnámskeið the California E.A.R. Unit Bandarísku kammer- sveitarinnar, fyrir börn og leikmenn í Tónskóla Sigursveins, Breiðholti, lau kl. 10-12, allir velkomnir, ókeypis. Öldungamót í blakl, íþróttahúsinu Digransesi í Kópavogi 28-30 nk, keppendur um 400 í 36 liðum víða að af landinu, hefst kl.9 árdegis. MINNING Asgeir Einarsson fv. aðalféhirðir Fœddur 19. ágúst 1916 - Dáinn 18. apríl 1990 *• 3—0V/K- tíL\o)*»»,y < ■x’i'j -ic® 3-d -j a-vu-f íöhb* SDtífCcí0X7’-®3Z F »Mf»«MtTíri63«MC»KIŒnfc tATA 10 »«lí«»tWWHU,193!*4^.oe7S7 »0*r. Þessi auglýsing um þjónustu Flugleiða og fyrirhugað Japansflug birtist 16. apríl í útbreiddasta ferðamálatímariti Japana sem dreift ertil allra japanskra ferðaskrifstofa og annarra aðila sem starfa að ferðaþjón- ustu. Góður vinur minn og sam- starfsmaður í áratugi er fallinn frá. Ásgeir fæddist í Reykjavík 10. ág. 1916. Foreldrar hans voru Einar Hróbjartsson deildarstjóri Póststofunnar í Reykjavík f. 1885, Ólafssonar bónda að Hús- um í Holtahreppi f. 1836 og konu hans Ingibjargar Magnúsdóttur f. 1845. kona Einars móðir Ásgeirs var Ágústa Stefanfa Sveinbjörns- dóttirf. 1887, Stefánssonar smiðs í Hafnarfirði f. 1863 og konu hans Ástríðar Guðmundsd. f. 1865. Ásgeir var næstelstur átta svstkina, en þau eru Ingibjörg, Ásta, Sveinbjörn, Agnes (dó í bernsku), Haukur (dó í bernsku), Sigurður og Hróbjart- ur. Sonur Ásgeirs er Birgir Þór f. 1939, bóndi á Fossvöllum í Jökul- dal, kona Birgis er Ragnheiður Ragnarsdóttir f. 1943. Þeirra börn eru Anna Gunnur f. 1970 og Ásgeir f. 1981, en áður átti Ragn- heiður dótturina Aðalheiði. Ásgeir hóf ungur að árum störf hjá Póststofunni í Reykjavík, 9. maí 1931. Ekki er mér kunnugt um að nokkur annar póstmaður hafi átt lengri starfsferil að baki. Ásgeir var skipaður póstaf- greiðslumaður 1. júlí 1937, og fulltrúi 1948, hann gegndi hinum ýmsu fulltrúastörfum allt til árs- ins 1977 að hann var skipaður að- alféhirðir Póststofunnar í Reykjavík og gegndi hann því starfi til 1985 er hann lét af störf- um vegna aidurs, að hætti opin- berra starfsmanna. Framan- greindar upptalningar lýsa best hversu framúrskarandi og fjöl- hæfur starfsmaður Ásgeir var. Hann lauk samvinnuskólaprófi sem þótti góð menntun, þá var hann einstaklega mikill mála- maður, og voru þeir ófáir starfs- menn sem leituðu til hans með ýmis bréf og skjöl sem þurfti hjálpar við að þýða yfir á ís- lensku, þá nefni ég sérstaklega frönsku, en hann var mikill frönskumaður og franskan al- þjóðlegt póstmál. Á árum áður var starfandi póstafgreiðslumaður á strand- ferðaskipinu Esju og var Ásgeir sá er síðast gegndi því starfi 1939. Það væri vert að minnast þessara starfa póstmanna þegar saga póstmála á íslandi verður skráð. Þau ár sem ég starfaði að fé- lagsmálum póstmanna, leitaði ég oft ráða hjá Ásgeiri varðandi úr- lausn ýmissa mála, bæði á inn- lendum og erlendum vettvangi. Fyrir þau ráð mun ég ætíð vera honum þakklátur. Asgeir var mikill tónlistarunnandi og spilaði á píanó, og kunni góð skil á gömlu meisturunum. Það var haft á orði hvað Ásgeir var góður og sanngjarn yfirmað- ur og ljúfur í viðmóti við þá sem minna máttu sín. Ég sem þessar línur rita kynntist vel drenglyndi og ljúf- mennsku Ásgeirs, hann var vinur vina sinna, hlýr í viðmóti en þó ekki allra viðmælandi, því var hann talinn fremur hlédrægur og seintekinn maður. Syni hans og fjölskyldu, systkinum Ásgeirs og öðrum ætt- mönnum sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi minningu vinar míns. Reynir Armannsson 26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. apríl

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.