Þjóðviljinn - 26.05.1990, Qupperneq 5
„G-listinn eina valið til vinstri“
var höfuðþema á kosninga- og menningarhátíð Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Meðal hátlðargesta: Árni Björnsson, Sigrún Jóhannesdóttir, Gunnar Guttormsson (Ijósm Kristinn).
Laugardagur 26. maí 1990 ÞJÓÐVILJINN - S(ÐA 5
'M.
G-listinn er ekki bara öruggt
val til vinstri, heldur eina valið til
vinstri, sagði Guðrún Ágústsdótt-
ir á fjölsóttri kosninga- og menn-
ingarhátíð Alþýðubandalagsins í
Reykjavík í Operunni í fyrra-
kvöld. Margt vinstri fólk hefur
komið til liðs við G-listann und-
anfarna daga, sagði hún einnig,
fólk sem var í vafa en velur nú til
vinstri og þetta fólk eykur á
bjartsýni mína um að hægt sé að
bjóða byrginn niðurstöðum ný-
legra skoðanakannana.
Mótvægið
nauðsyniega
Málflutningur þeirra sem
ávörp fluttu á hátíðinni var mjög
á þessa leið: Sækjum í okkur
veðrið til að tryggja Guðrúnu
Ágústsdóttur kjör til borgar-
stjórnar „ekki hennar vegna -
okkar vegna“ eins og Sigurjón
Pétursson, efsti maður G-listans,
sagði við upphaf fundarins.
Höfuðáherslur í málflutningi
þessari nauðsyn til stuðnings
voru þær, að andóf gegn íhaldi
þyrfti á sem sterkustu Alþýðu-
bandalagi að halda, aðrir væru
illa í stakk búnir til þeirra hluta.
Um þetta sagði Guðrún Ágústs-
dóttir á þessa leið:
Reykjavík er góð borg, þrátt
fyrir allt, vegna þess að hér býr
gott fólk, hugmyndaríkt og dug-
legt við einstaka landkosti. Ihald-
inu hefur ekki einu sinni tekist að
eyðilegja þessa borg. En þar hef-
ur líka verið öflug stjórnarand-
staða Alþýðubandalagsins í ára-
raðir með auga á hverjum fingri
og skýra stefnu jöfnuðar og rétt-
lætis. Meginpólarnir í borgar-
stjórn Reykjavíkur hafa verið Al-
þýðubandalagið og Sjálfstæðis-
flokkurinn og það er hætta á
jafnvægisleysi í Reykjavík ef
íhaldið hefur ekki lengur það
Það er líka spurt um það hvers konar ísland við viljum í framtíðinni, sagði Svavar Gestsson í fundarlok.
sterka mótvægi sem Alþýðu-
bandalagið hefur verið.
Grauturinn
kekkjótti
Sigurjón Pétursson sagði m.a.
að ýmsir af fyrri félögum geti
hugsað sér að kjósa Nýjan vett-
vang vegna þess að einstaklingar
sem áður störfuðu með okkur eru
þar í framboði. En, sagði hann,
„atkvæði greitt Nýjum vettvangi
er ekki krafa um neitt, vísar engu
veg. Nýr vettvangur er samsuðu-
grautur og kekkjóttur að auki og
það er engin leið að skammta
þann graut nema kekkirnir fylgi
með.“
Verkalýðs-
flokkurinn
Ræðumenn kusu sér misjafnar
áherslur og viðfangsefni. Sig-
þrúður Gunnarsdóttir fjallaði frá
sjónarhóli skólafólks um almenn-
ingssamgöngur í bænum og ávirð-
ingar þess kerfis. Birna Þórðar-
dóttir taldi það helst nýjabrum í
kosningabaráttunni, að fulltrúar
launafólks beri upp G-listann.
Guðrún Kr. Óladóttir, varafor-
maður Sóknar, sem skipar þriðja
sæti listans, rakti mjög skemmti-
lega leið sína inn í prófkjör hjá
Alþýðubandalaginu - á þeim for-
sendum að eftir allt saman er það
eini verkalýðsflokkurinn. Um
kosningarnar sjálfar sagði hún
m.a.:
„Fólk hefur tekið okkur vel.
„Við höfum fengið liðsauka
sem eykur bjartsýni rnína" -
Guðrún Ágústsdóttir i ræðustól.
En okkur er spáð hrakförum í
þessum kosningum. Ég efast um
það. Því er til tryggari skepna en
fúll Alþýðubandalagsmaður,
skilar hann sér ekki alltaf í kjör-
klefann? Allavega gerði ég það
alltaf og hef ég oft verið fúl!“
Vandamál
stórborgar
Að sjálfsögðu voru í ávörpum
sem flutt voru tíundaðar margar
syndir íhaldsins gagnvart börn-
um, unglingum foreldrum öldr-
uðum. Inn á þau þemu kom Ást-
ráður Haraldsson, fjórði maður á
G-listanum, m.a. með svofelld-
um hætti:
„Reykjavík er enn bara lítil
borg, en hún hefur fengið yfir-
bragð stórborgarinnar og hún er
búin að koma sér upp vandamál-
um stórborgarinnar. Á ótrúlega
fáum áratugum hefur íhaldinu
tekist að koma okkur upp flestum
verstu vandamálunum sem ein-
kenna stórborgina og þetta hefur
þeim tekist að gera þrátt fyrir
það, að Reykjavík er lítil borg.
Samt er borgin okkar rík. En við
höfum Iátið íhaldið kasta pening-
unum okkar á glæ. Þeim hefur
verið sóað í fordild og ósóma,
bruðl og subbuskap."
Um framtíðarsýn
Síðastur ræðumanna var Svav-
ar Gestsson menntamálaráð-
herra. Hann lagði áherslu á að
um leið og gengið væri til borgar-
stjórnarkosninga væri einnig ver-
ið að spyrja fólk að því, hvers
konar Island það vildi eiga sér í
framtíðinni, spyrja um sjálfstæði
og fullveldi, um þátttöku al-
mennings í ákvörðunum og fleira
mikilvægt sem krefðist alvarlegs
pólitísks starfs en ekki forpopp-
aðs auglýsingaksrums sem gerði
sig nú líklegt til að yfirtaka
stjórnmálin. Við róum gegn
straumi, sagði Svavar, en við gef-
umst ekki upp.
Svavar gat þess að hátíðin væri
stærsti fundur þessarar kosninga-
baráttu, haldinn innanhúss. Hús-
ið var fullsetið. Stjórnmálin voru
fleyguð margbreyttri dagskrá:
djasskvartett, flautuleikur Kol-
beins Bjarnasonar, einsöngur,
eftirhermur og pólitísk gaman-
mál þar sem félagar úr Hugleik
fluttu eigin texta um stefið: Tvær
konur úr Sjálfstæðiskvennafé-
laginu Hvöt ráða ráðum sínum.
Undirtektir voru góðar, 140 þús-
und krónur komu inn í kosninga-
sjóð. Að lokum sungu fundar-
menn Internationalinn. áb