Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 5
Böm sem koma erlendis frá og réttur þeiira til sérstakrar aðstoðar í íslensku skólakerfi Á undanförnum árum hefur sá fjöldi barna á grunnskólaaldri sem kemur til Islands erlendis frá, farið vaxandi. Skipta má þessum börnum í 3 hópa. A) íslensk börn sem búa árum saman með foreldrum sínum er- lendis, meðan foreldrar, annað eða bæði, eru í námi eða vinnu. Mér vitanlega hefur ekki verið tekið saman hversu stóran hóp hér er um að ræða. í mörgum tilvikum þurfa þessi börn á aukinni íslenskukennslu að halda. B) Börn sem eiga erlent ríkis- fang. Flytjast hingað til lands með foreldrum, foreldri. Pað er oftar en ekki félagslega og tilfinn- ingalega erfitt fyrir þessi börn að vera rifin upp með rótum úr fyrra umhverfi, þó svo að erfiðleikar í íslensku bætist ekki ofan á, án þess að markviss íslenskukennsla komi til. C) Flóttamenn sem koma hing- að til lands fyrir tilstuðlan ríkis- stjórnar og Rauða krossins. Sem dæmi má nefna Víetnama sem hingað hafa flust. Þessari grein er ætlað að vekja máls á réttleysi tveggja fyrr- nefndu hópanna. Flóttamennirn- ír hafa fengið tiltölulega sæmi- lega þjónustu í skólakerfinu hér. Grunnskóla- lögin Ekki er að finna í grunnskóla- lögum neina grein er fjallar sér- staklega um rétt barna er koma erlendis frá, til sérstakrar kennslu við sitt hæfi eða aukinnar íslenskukennslu. í markmiðsgrein grunnskóla- laga, sem er stefnumarkandi, segir m.a.: „Skólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins.“ Ekki er hægt að skilja þessar tvær grundvallargreinar grunn- skólalaga á annan veg en þann, að þær eigi við öll börn í grunn- skólanum. Einnig börn sem koma erlendis frá, hvort heldur um sé að ræða íslensk börn, sem dvalið hafa langdvölum erlendis og þurfa aukna aðstoð í íslensku- kennslu í skóla, eða þau börn er- lend, sem setjast að hér á landi, mállaus á íslensku og þurfa sér- staka aðstoð í skólakerfinu. En er það svo í reynd? Svarið er því miður neikvætt í flestum tilvik- um. Mér vitanlega hefur fram til þessa ekki verið gert ráð fyrir Arthúr Morthens skrifar neinni fjárveitingu til íslensku- kennslu fyrir þennan hóp barna í íslenska grunnskólanum. Engin opinber stefnumörkun er til hvað varðar skólagöngu innflytjenda- barna, eða kallast það hugsan- lega stefnumörkun að segja „þetta reddast nú oftast, hver skóli - kennari - verður bara að bjarga því sem bjargað verður, þessir krakkar eru nú svo dug- legir.“ Hve stór hópur? Á undanförnum tveimur árum hafa komið nálægt eitthundrað börn inn í grunnskólana í Reykja- vík, sem eiga erlenda foreldra, annað eða bæði og eru í flestum tilvikum ótalandi eða illa talandi á íslenska tungu. Þessi börn þurfa að glíma við framandi umhverfi, erfitt mál og eiga litla möguleika til að tjá sig, sérstaklega hefur þetta reynst þriðja heims börnum og börnum frá Austur-Evrópu erfitt. Því miður hafa átt sér stað atvik í skólakerfinu gagnvart þessum börnum, sem eru okkur fslend- íngum til háborinnar skammar. Mér liggur við að segja, að hér séu framin mannréttindabrot gagnvart þessum hópi barna. Er ekki kominn tími til að íslensk stjórnvöld taki sig saman í andlit- inu og marki skýra stefnu í kennslumálum innflytjenda- barna? Er ekki rétt að veita þeim börnum úr þessum hóp, sem á þurfa að halda, markvissa aðstoð við að aðlaga sig í íslensku samfé- lagi? Er ekki rétt að veita öllum börnum sem koma erlendis frá og þurfa á íslenskukennslu að halda, a.m.k. þriggja mánaða námskeið í íslensku og síðan fái þau aukna íslenskukennslu eftir þörfum í sínum skóla? Það gengur ekki iengur að varpa ábyrgðinni yfir á einstaka kennara og skóla. fs- lensk stjórnvöld geta ekki lengur boðið upp á slíka framkomu í garð hinna smæstu í samfélagi þjóða. Arthur Morthcns er varaformaður í stjórn samtakanna Barnaheilla. ■ Bamaheill Kynna málefni barna MINNING Krístján Þórarinn Ingiberasson skipstjóri Þau harmatíðindi bárust okkur stjórnarmönnum í Farmanna- og fiskimannasambandi íslands að kvöldi þriðjudagsins 3. júlí s.l. að Kristján Þórarinn Ingibergsson hefði látist þá fyrr um kvöldið. Kristján fæddist í Keflavík 23. fe- brúar 1947. Foreldrar hans voru Ingiberg Þ. Halldórsson, vél- stjóri hjá Hval hf. og María Auðunsdóttir'. Kristján hlaut sjómennskuna í vöggugjöf og saltan sæ í æðarnar, eins og gjarnan gerist um margan sjómannssoninn. Það var öllum ljóst er til þekktu að það rann sjómannsblóð í æðum hans og við sjávarútveg var hans áhugi bund- inn, ásamt því að vilja af öllum mögulegum mætti byggja upp at- vinnulíf á Suðurnesjum. Við kynntumst þessu vel sem störfuð- um með honum innan stjórnar FFSÍ hin síðari ár. Kristján var á ýmsum fiski- skipum, fyrst sem háseti og síðar sem vélstjóri, enda ekki langt að sækja þá þekkingu. Hann starf- aði sem vélstjóri á Baldri KE-97 á árunum 1968-1970. Hann útskrif- aðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1971. Árið eftir er hann orðinn skipstjóri á ýmsum fiskiskipum. Hann var síðast skipstjóri á m/b Baldri KE-97. Kristján Ingibergsson, tók við formennsku í Vísi, félagi skip- stjórnarmanna á Suðurnesjum 8. janúar 1984. Fullyrða má að við andlát Kristjáns Ingibergssonar, fellur frá mikilhæfur stjórnandi og sérstakur drenglyndismaður. Þegar Vísir hélt upp á 40 ára af- mæli sitt í desember 1985, var okkur nokkrum forystumönnum FFSÍ, boðið til fagnaðarins sem hófst fyrst á heimili Kristjáns og eiginkonu hans Kristínar Guðna- dóttur. Þessar stundir eru okkar ógleymanlegar og við minnumst þessa með söknuði og trega þar sem við fáum ekki lengur notið þess að eiga slíkar stundir með þeim hjónum og félögum hans í Vísi. Einnig er skammt að minn- ast ánægjulegra stunda, þegar Fœddur 2 FFSÍ hélt formannaráðstefnu í Keflavík í boði Vísis í desember 1988. Kristjáni var mikið umhugað um hagsmuni félagsmanna og átti margoft tal við okkur sem í for- svari vorum hjá FFSÍ um þeirra málefni, sérstaklega ef gengið hafði verið á hlut þeirra. Hann bjó yfir sérstökum hæfileika tli að miðla málum og reyna að sætta stríðandi fylkingar. Slík náðar- gáfa lærist ekki á skólabekk, hún lærist með reynslunni og byggist á mannkærleikanum sem að baki býr. Kristján var með skemmtilegri mönnum að vera með í hverskyns félagsskap, enda naut hann hylli allra sem honum kynntust. Hann gat haldið þrumandi ræður með tilheyrandi fágætu orðskrúði og hikaði ekki við að setja markmið- ið hátt. Hann var einn fyrsti tals- maður þess markmiðs að stuðla að kaupum á stórri og öflugri björgunarþyrlu fyrir íslendinga. Hann lét þessa skoðun sína í ljós í skörulegri ræðu sem hann hélt á Öryggismálaráðstefnu sjómanna 1987. Helstu rökin sem hann byggði kröfu sína á, voru þau að þar sem tækniþróun og rekstur þyrla, væri orðinn svo fullkominn sem raun bæri vitni að unnt væri að vera með afísingarbúnað við þyrlurnar og þær væru orðnar svo stórar að þær gætu borið heila áhöfn stærri fiskiskipa, þá væri engin spurning um að slfk tæki þyrftum við íslendingar að eignast. Hann fylgdi þessu máli vel eftir æ síðan. í sama streng tóku nemendur Stýrimanna- skólans í Reykjavík og hafa hald- ið ótrauðir áfram söfnun til þessa átaks. Kristjáni var ljós sú staða sem upp gæti komið fyrir skip- stjóra skips á neyðarstundu að ákveða, hverjum skyldi auðnast að lifa eða bjargast og hverjir skyldu hljóta önnur örlög. Þess vegna var stór björgunarþyrla honum kappsmál. Hann fór heldur ekki dult með skoðanir sínar á stjórnun fisk- . febrúar 1947 - Dáinn veiða eins og það kerfi kom hon- um fyrir sjónir. Til merkis um það hve mikið traust þingheimur FFSÍ bar til hans s.l. haust, þá var hann kjörinn til forystu fyrir starfshópi er skyldi halda áfram mótun þeirra tillagna er FFSÍ vill láta sitja í fyrirrúmi sem fisk- verndunarsjónrmið og sem fisk- veiðar skuli stjórnast af. En stefnumótun þings FFSÍ var og er enn að fiskur skuli ekki seldur óveiddur í sjó. Enda eru nær allir sjómenn sammála um að það er ekki fiskverndun að selja fiskinn óveiddan hæstbjóðanda. Þar eru allt önnur sjónarmið sem liggja að baki og eiga því miður ekkert sameiginlegt með fiskverndun. Enginn var orðinn betur kunnug- ur þessum málum en einmitt Kristján Ingibergsson sem varð að sjá á bak aflamarki í annan landsfjórðung. Því er mikill söknuður í röðum sjómanna og yfirmanna innan FFSÍ sem að- hylltust þau skýru og einlægu rök fiskimannsins sem Kristján heitinn átti svo gott með að koma á framfæri. En við, sem vitum um mátt hins Almáttuga, vitum vel að Kristján hafði fengið hlutverk sem hann ætlaði sér að vinna. 3. júlí 1990 Hann mundi heldur ekki liggja á liði sínu ef hann ætti þess kost að leiða málefni sjávarútvegsins til betri vegar. En oft fer á annan veg en ætlað er og því miður er það svo að ýmis réttlætismál geta snúist í algert óréttlæti í höndum þeirra sem valdir eru til að vera í forsvari og stjórna í hinu opin- bera kerfi. Kristján var einn þeirra manna sem sýndi í verki, hve vel hann gat afborið slíkt mótlæti en jafnframt barist hetju- legri baráttu við það í kyrrþey og án þess að misnota aðstöðu sína. Kristján sat mörg undanfarin þing FFSÍ fyrir hönd Vísis og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir samtökin sem stjórnarmað- ur. Hann sat í núverandi skóla- nefnd Stýrimannaskólans í Reykjavík, átti sæti á síðasta Fiskiþingi sem fulltrúi FFSÍ og sat í stjórn Fiskifélagsins. Hann var fenginn til að kynna sér sér- staklega ýmis öryggismál sjó- manna í Amsterdam 1988 í sam- vinnu við Slysavarnafélag ís- lands, ásamt því að kynna sér ýmis markaðsmálefni sjávara- furða á alþjóðlegri ráðstefnu um sama leyti. Við sem störfuðum með Krist- jáni innan FFSÍ og sjáum nú á bak okkar ágæta félaga, erum að vonum þakklátir fyrir þær ánægj- ustundir og samvistir sem við átt- um með honum og félögum hans úr Vísi. Við færum eftirlifandi eiginkonu hans Kristínu Guðna- dóttur, börnunum, fjölskyldunni og félagsmönnum Vísis, innileg- ustu samúðarkveðjur með von um að minningin um góðan dreng lifi sem lengst. Við getum sannar- lega ályktað sem svo að hann hafi nú verið kallaður í flokk góðra félaga, þar sem bíða hans ný og mikilvæg viðfangsefni til úr- lausnar. llarald Holsvik, í stjórn FFSI I dag er til grafar borinn vinur minn Kristján Ingibergsson skip- stjóri og formaður Vísis félags skipstjórnarmanna á Suðurnesj- um. Sumar fregnir koma við mann sem hnífsstunga og á eftir fylgir níðþung þrúgandi tilfinn- ing, sem fyrst í stað kallar fram viðbrögð höfnunar. Maður hreinlega neitar innst inni að trúa þeirri harmafregn, sem sögð var. Þannig fór fyrir mér er ég heyrði andlátsfregn eins besta vinar míns Kristjáns Ingibergssonar og samstarfsmanns í stjórn Far- manna- og fiskimannasambands íslands síðastliðin ár. Ég var á sjó er mér barst þessi harmafregn, veröldin var fögur, logn og sólskin allt um kring, samt varð tóm og deyfð, sársauki og jafnvel heift, hversvegna hann í fullu fjöri og á besta aldri? Mað- ur með mikinn áhuga og athafna- þrá. Góður málsvari sjómanna- .stéttarinnar, enda valinn til for- ystu af stéttarbræðrum sínum á Suðurnesjum. Kristján var vinur vina sinna. Hann var sáttfús, jákvæður og lagði mjög oft gott til mála. Skemmtilegur félagi í góðra vina hópi. Það mætti fara mörgum fleiri orðum um drengskapar- manninn, félaga og vin. Störf hans og skoðanir í hagsmuna- og öryggismálum sjómannastéttar- innar. Það sem ég vil og get sett á blað er nú eingöngu það að ég sakna hans sárt. Kristján Þórarinn Ingibergs- son fæddist í Keflavík 23. febrúar 1947 og lést 3. júlí síðastliðinn. Fyrir hönd okkar samstarfs- manna hans í stjórn FFSÍ færi ég eftirlifandi eiginkonu hans Kristínu Guðnadóttur, börnum og fjölskyldum innilegar samúð- arkveðjur. Góður guð styrki þau í sorginni við fráfall ástkærs eigin- manns og föður. Félagsmönnum í Vísi félagi skipstjórnarmanna á Suðurnesjum færum við innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu vinar míns Kristjáns Ingibergssonar. Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri Laugardagur 14. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.