Þjóðviljinn - 15.08.1990, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 15.08.1990, Qupperneq 6
ERLENDAR FRETTIR Sri Lanka Tamflar ráðast á þorp Tamflskir skæruiiðar sem skutu og hjuggu rúmlega 170 múslimi til dauða um helgina myrtu 17 til viðbótar í gær. Full- trúar hersins í Sri Lanka segja að 25 skæruliðar og fímm hermenn hafí látist í átökum víðsvegar um austurhluta eyjunnar auk hinna almennu borgara. Talið er að hinir Frelsandi Tígrar af Tamíl (FTT) standi að árásunum en þeir vilja stofna eigið ríki á norður- og austurh- luta Sri Lanka. Eftir síðustu árás- ir hafa 387 óbreyttir múslimir verið myrtir síðustu 13 daga. En Tígrarnir hafa neitað að hafa drepið óbreytta borgara. Ráðist var á nokkur þorp snemma í gær en öryggissveitir sri lanska hersins komu ekki nógu snemma á vettvang til að stöða drápin. Seint á mánudag réðust svo tveir Tígrar, að talið er, inn í mosku, drápu einn og særðu þrjá sem þar voru að biðjast fyrir. Þetta er þriðja moskan sem ráðist hefur verið á síðustu fjóra daga. Meira en 140 manns létu lífið og 100 særðust þegar skæru- liðar réðust inn í tvær moskur í þorpinu Kathankudy á föstudag og skutu á fólkið með vélbyssum. Yfirvöld sögðu að vegna aukinna árása á almenna borgara yrði öryggisgæsla aukin og lögð áhersla á að svæla Tígrana út af þeim svæðum sem þeir halda sig á. Leiðtogar múslima báðu hins- vegar ríkistjórnina um vopn til handa múslimum svo þeir gætu varið sig fyrst ríkið gæti ekki tryggt öryggi þeirra. Talið er að tamílarnir séu að reyna að flæma múslimi frá austurhluta Sri Lanka en múslim- ir styðja ekki viðleitni tamfla til að stofna eigið ríki. Múslimir eru 16 milljónir og teljast sjö prósent íbúa Sri Lanka. Reuter/gpm Líbería Flýja Monróvíu Líberíubúi flýr frá Monróvíu með pabba sinn í hjólbörum. Meira en 100 útlendingar komu til Freetown í Sierra Leone nágrannalandi Líberíu með bandarískum herþyrlum. Fólkið hafði yfirgefíð spænsku og þýsku sendiráðin í Monróvíu á sunnudag í lest 25 bíla og náði til hafnarborgarinnar Buchanan á mánudag og fór svo þaðan með þyrlum. Fólkið sagði að Samuel Doe forseti stæði nú fyrir ógnarstjórn á því litla landsvæði sem hann ræður yfir inn í miðri Monróvíu, Sýrland Annar látinn laus Svisslendingurinn Elio Erriqu- ez var á leið heim í gær eftir að palestínskir mannræningjar létu hann lausan. Erriquez og sam- starfsmanni hans Emanuel Christen var rænt fyrir 10 mán- uðum frá líbönsku hafnarborg- inni Sidon en þar settu þeir gervi- limi á fórnarlömb stríðsins í Beirút. Christen var látinn laus fyrir réttri viku. Erriquez var sagður við góða heilsu og í andlegu jafnvægi þrátt fyrir hremmingarnar. Hinn 24 ára gamli starfsmaður Rauða krossins sagðist vera mjög ánægður að vera laus en hann losnaði úr prísundinni seint á mánudag. Frétt birtist í dagblaði í Beirút í gær þess efnis að sami hópur og hélt Svisslendingunum tveimur myndi láta lausa fjóra Belga innan 24. tíma. Blaðið sagði að Belgarnir yrðu látnir lausir í skiptum fyrir skæruliða sem hald- ið er í Belgíu fyrir árás á börn gyðinga fyrir 10 árum. Heimildamenn innan belgísku stjórnarinnar segja að stjórnvöld hafi samþykkt að láta skærulið- ann, Nasser Said, lausan eftir samkomulag við byltingarráð Fatah, sem Abu Nidal leiðir, og líbýsk stjórnvöld. Þrettán Vesturlandabúum er haldið í gíslingu í Líbanon sem stendur af hópum hliðhollum íran. Þetta eru sex Bandaríkja- menn, þrír Bretar, tveir Vestur- Þjóðverjar, einn íri og ítali. Þeir sem létu Erriquez lausan sögðust gera það þar sem tryggt væri að kröfum þeirra yrði mætt, hverjar þær kröfur eru kom ekki fram. Formaður alþjóðanefndar Rauða krossins þakkaði, í Genf, Sýrlendingum, Líbýumönnum og Álgerbúum sem og Irönum, PLO og Líbönum fyrir aðstoð við að fá mennina látna lausa. Utanríkisráðherra Svisslend- inga sagði þó að stjórnin í Bern hefði ekki gefið neitt eftir til að fá gíslana lausa og að engin ríkis- stjórn hefði beðið um eitt eða neitt frá stjórninni í aðstoðar stað. Reuter/gpm höfuðborg Líberíu. Doe er nú einangraður af völdum tveggja hópa uppreisnarmanna. I gær drap svo annar upp- reisnarhópurinn leiðtoga hins, Yormie Johnson prins. Johnson vildi koma Doe frá völdum og sjá til þess að hinn uppreisnarforing- inn næði ekki völdum en hann heitir Charles Taylor. Hans menn segja að Johnson hafi verið drepinn þegar setið var fyrir hon- um norður af Monróvíu. Þetta hefur ekki fengist staðfest. Fulltrúi Taylors sagði að John- son hefði verið á flótta eftir að hafa misst marga menn í bar- dögum við her Does. Hann sagði að Taylor og hans menn gætu nú einbeitt sér að Doe og erlendum hermönnum sem væru á mála hjá honum. Hann sagði að Doe hefði fengið hermenn frá nágrannarík- inu Gíneu til liðs við sig en yfir- völd þar neita því staðfastlega. Gínea er í hópi Efnahags- bandalagsríkja Vestur-Afríku sem hafa hug á að senda friða- rgæslusveitir til Líberíu. Hin rík- in sem hyggst á að senda herlið til Líberíu til að stöðva borgarast- ríðið eru Ghana, Gambía, Níger- ía og Sierra Leone. Reuter/gpm Miljónamæringur rænir banka Margfaldur milljónamæringur ástralskur tapaði fyrir fjórum árum öllum eigum sínum. Með hníf að vopni reyndi hinn fimm- tugi Michael Mimmo að ræna 48.000 þús. ísl. kr. úr banka í Adelaide í maí s.l. Hann flýði eftir að hafa náð helmingnum af þeirri upphæð. Dómarinn í málinu sagði í gær að fólk ætti frekar að hafa samúð með Mimmo en ásaka hann. Mimmo hefur átt við sálræn vandamál að stríða síðan fyrir- tæki hans fór á hausinn en hann sakaði bankann um hið fjárhags- lega áfall. Hann fékk þriggja ára skilorðsbundinn dóm. Búlgaría í Nató Varnarmálaráðherra Búlgaríu hefur gefið í skyn að land hans hefði áhuga á að ganga í Nató. Búlgaría er í Varsjárbandalaginu en ráðherrann sagði að eðlileg samskipti austurs og vesturs ykju möguleikana á því að Búlgaría gengi í Nató. Ráðherrann, Dobri Dhurov, sagði einnig að afvopnunarvið- ræðurnar í Vín gæfu tóninn um hernaðarlega framtíð Búlgaríu. Yfirvöld í Búlgaríu styttu her- skyldu þar í landi á dögunum úr tveimur árum niður í 18 mánuði. Ríkir flýja með skútur sínar Um 500 ítalskir lögreglumenn fóru í 10.500 skútur og báta til að kanna hvort eigendumir hefðu talið faratækin fram á síðasta framtali. Þessi herfeð olli því að hundmð skútueigenda flúðu frá Ítalíu. Það kom engum á óvart að margir höfðu ekki talið eignirnar fram þar sem skattsvik tíðkast mjög á ítalu og skiptir þá ekki máli hvort ítalinn er ríkur eða fá- tækur. Það segir sig þó sjálft að það voru engir fátæklingar sem fengu þær 1.200 sektir sem lög- reglan færði skútueigendum. Fékk nýtt blóð Tveggja ára gömul stúlka sem var haldin hvítblæði fékk að fara heim í gær eftir að blóðskipti höfðu átt sér stað. Stúlkan sem á heima í Níkósíu á Kýpur er dóttir fólks sem fylgir Vottum Jehóva að málum. Foreldrar Stephanie Charal- ambous höfðu tekið hana úr breskum spítala til að ekki yrði skipt um blóð í henni. Dómari dæmdi þau svo óhæf til að sjá um barnið og hún var aftur sett inn á spítalann. Hún fékk að fara heim efir að yfirvöld töldust viss um að foreldrarnir hefðu samband við lækna ef eitthvað bjátaði á. Persaflói Alþjóðlegur her Mikillfjöldi herskipa og herliðs safnast nú saman við Persaflóa enþað getur reynst erfitt að samhœfa aðgerðirnar Eftir því sem fleiri og fleiri lönd ákveða að senda herlið eða herskip á Persafióasvæðið gerist sú spurning áleitnari hvernig öllu þessu liði verður stjórnað. Það er alkunna að erfítt er að þjóna tveimur herrum en hver ætlar að stjórna tugþjóða her sem stefnir til Saúdi-Arabíu og nágrennis? Bandaríkjamenn sendu sem fyrst herlið á svæðið eftir að Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi innrás írak í Kúvæt. En þetta eru ekki friðargæslusveitir S.Þ. og hafa nokkrar þjóðir í Ör- yggisráðinu gagnrýnt Banda- ríkjamenn og aðra sem sent hafa lið á svæðið. Sovétríkin telja t.d. S.Þ. vera rétta aðilann til að stjórna aðgerðum við Persaflóa gegn Saddam Hussein íraksfor- seta, en ekki einstök þjóðríki. Flest lönd eru samþykk því að heimurinn sýni styrk sinn með því að sem flestar þjóðir standi að vörnum nágrannaríkja íraks. Hinsvegar eru ekki allir sammála um hvernig eigi að bregðast við komi til stríðsátaka. Bandaríkin, Bretland og Ástralía hafa sagst myndu beita valdi til að tryggja viðskiptabann S.Þ. þar sem út- lagastjórn Kúvæt hafi beðið um það. Þetta þýðir í raun að hafn- bann sé á írak þó ríkin vilji ekki nefna það svo. Kanada, Frakkland og Sovét- ríkin sem nú senda skip á svæðið segjast hinsvegar einungis ætla að fylgjast með þróun mála. Perez de Cuellar aðalritari S.Þ. sagði að ekki væri hægt að líta á hafnbann sem aðgerð af hálfu S.Þ. Ítalía mun senda skip til Persaflóa en ekki taka þátt í hafnbanni. Af- staða Hollendinga er ekki ljós. En hvernig Evrópuríki munu bregðast við kemur betur í ljós eftir að Samband Vestur- Evrópuþjóða hefur fundað í næstu viku. í sambandinu eru níu þjóðir og unnu þessar þjóðir í samráði við Bandaríkjamenn við að veiða upp tundurdufl í Persa- flóa fyrir þremur árum. Bandaríkjamenn hafa heitið að verja Saúdi-Arabíu á landi og gæti herlið Bandaríkjamanna tal- ið 50.000 manns á næstu vikum. Herliðið er stutt af breska loft- hernum og herliði frá 12 arabísk- um löndum. Egyptar munu senda nokkur þúsund hermenn og eitthvað minna kemur frá Mar- okkó og Sýrlandi sem og 5.000 manns frá Pakistan sem er islam- ríki en ekki arabískt. Það er ljóst að gífurlegum erf- iðleikum verður bundið að stjórna þessu liði. Nægir að nefna tungumálaerfiðleika, mismun- andi tól og tæki, mismunandi Tyrkneskir bændur virða fyrir sér bandaríska orrustuþotu sem er á leið til Persaflóa. þjálfun mannanna og síðast en ekki síst hinn mikla menningar- mun sem er á hermönnum frá Vesturlöndum og arabalöndum. Alþjóðleg samvinna af þessu tagi hefur ekki gefið góða raun. T.d. höfðu Sameinuðu þjóðirnar 21.000 manna lið frá 29 löndum í Kongó 1960-64 án þess að koma á friði. Fréttaskýrendur segja að stjórnin í Washington hafi gert sér vonir um að leiða herdeildirn- ar með stuðningi Nató, araba- ríkjanna og með þegjandi sam- þykki Sovétríkjanna og takast betur upp en áður hefur gerst þar sem ein þjóð færi nú með forystu- hlutverkið. Reuter/gpm 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 15. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.