Þjóðviljinn - 11.09.1990, Blaðsíða 12
Laufey Halldórsdóttir
húsmóðir:
Nei, það á ekki að hafa það þar.
Steinunn Agnarsdóttir
nemandi:
Já, mér finnst að skjaldarmerkið
ætti að vera þar.
Ingunn Lára Hannesdóttir
hárgreiðslusveinn:
Já, alveg eins.
Magnea Bergmann
kaupkona:
Já, það finnst mér. Alveg absalútt.
■ SPURNINGIN ■
Finnst þér að setja eigi
skjaldarmerki lýðveldisins á
svalir Alþingishússins?
Þórhallur Amórsson
nemi:
Já, mér finnst það gott mál. Skjald-
armerkið á fullan rétt á að vera þar.
Jóhann Torfason leikur sér að línum
og litum ( átaki til fegrunar á Kola-
portsgeymslu. Myndir Kristinn.
Andrea Jóhanna Helgadóttir og
Bemhard Jónas Trauner mála stór-
borgarrappara, og beita penslunum
aföryggi.
Lifandi list
Kolaportið verður Litaport
Ungir myndlistarmenn máluðu burt gráma bílageymslunnar um helgina
veggskreytingunum, og stóð
maraþonmáiunin fram yfir
miðnætti.
Afraksturinn er 600 fermetra
veggmálverk eftir unga og efni-
lega listamenn, sem flestir eiga
það sameiginlegt að hafa útskrif-
ast úr Myndlista- og handíðar-
skóla Islands fyrir nokkrum
árum. Að sögn Tómasar Jónsson-
ar, eins þeirra sem að baki átakinu
stóðu, eru þetta myndlistarmenn
framtíðarinnar á Islandi.
Alls tóku tuttugu og fimm
listamenn þátt i þessu átaki til að
lífga upp á dimmuna í Kolaport-
inu, seljendum og kaupendum á
laugardagsmarkaði án efa til ó-
blandinnar ánægju. Hver og einn
málaði það sem honum kom til
hugar; má í portinu sjá geómetríu,
óhlutbundin verk og figúratíf,
skoplegar verur, blómahaf,
brauðrist, fljótandi mynstur,
rappara og kuldalega stórborg,
svo fátt eitt sé nefnt.
Að sögn Jens Ingólfssonar,
samstarfsmanns Tómasar, eru
þau sem að Markaðstorginu
standa mjög glöð og hamingju-
söm með útkomu átaksins, og
þakklát listamönnunum, og öllum
þeim mörgu sem gerðu það
mögulegt.
Langi menn að berja verk
hinna ungu listamanna augum er
tilvalið að bregða sér á markað í
Litaportinu næsta laugardag.
BE
Aðstandendur Markaðs-
torgsins í Kolaportinu
hóuðu saman ungum myndlist-
armönnum um helgina, og
þöktu þeir gráa veggi bfla-
geymslunnar öllum regnbogans
litum, hver eftir sínu höfði.
Hafist var handa eftir lokun
markaðsins á laugardag og
málað til tíu um kvöldið. Lista-
mennirnir mættu síðan á ný á
hvfldardaginn til að Ijúka
Gráir veggir bllageymslunnar veittu engum tveim listamönnum sama innblásturinn. Sumir kusu að mála sig út úr
grámyglunni með blómamynstri og skopmyndum. Emil Valgeirsson valdi sér blokkir og gula fólksvagnsbjöllu sem
myndefni.