Þjóðviljinn - 21.09.1990, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 21.09.1990, Qupperneq 8
Útgefandi: Otgáfufélag bjóðviljans Afgreiðsla: «68 1333 Framkvaemdas^óri: Hailur Páll Jónsson Auglýsingadeíid:« 681310 - 68 13 31 Ritstjórar. Arrú Bergmann, Olaiur H. Torfason Simfax: 68 19 35 Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Kartsson Verð: 150 krónur í lausasölu Fréttastjóri: Sigurður A. Friðþjófeson Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. ÚtJit: Þröstur Haraldsson Pnentun: Oddl hf. Auglýsíngastjóri: Steinar Harðarson Aðsetur: Siðumúla 37,108 Reykjavik Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Auðlindir og uppskera Haustjafndægur eru á sunnudaginn og leiða hugann að þeirri ummyndun náttúrunnar sem þessi árstími boðar og hefur í aldanna rás orðið jafnt stjömuspekingum, dulhyggjusinnum, rækt- unarfólki og vísindamönnum tilefni til að staldra við. Margt er það í umhverfinu sem auðvelt er að nema með skynfærum, líkt og norðansendingu Grænlandshæðarinnar þessa dagana, álftarung- amir eru að ná valdi á fluginu einna síðastir fugla, smávinir eins og margir þrastanna að kveðja landið, slagsmál hreintarfanna að hefjast vegna fengitímans og yfirborðslög sjávar að kólna og sökkva á ný. Bændur geta metið uppskeru og afrakstur sumarsins, sem að þessu sinni birtist meðal ann- ars í háum fallþunga dilka og miklum ávöxtum jarðar. Sú erekki endilega lengurtíðin, að slíktsé eintómt gleðiefni, á tímum framleiðslutakmark- ana og offramboðs matvæla. Hins vegar benda niðurstöður úr haustleiðangri Hafrannsókna- stofnunar til þess, sem margir hafa óttast, að ástand fiskstofnanna sé með lakasta móti. Hvorki verður vart loðnugöngu né verulegrar þorsk- seiðagegndar. Ekki er með öllu Ijóst, hvort vegur þyngra, áhrif kaldsjávarins eða sókn fiskveiðiflot- ans, en þeir slæmu fyrirboðar eru engu að síður staðreynd sem varðar þjóðartiag. Fiski- og haffræðingar hafa lengi gert sér grein fyrir því að samspil er milli breytinga á haf- straumum og fiskigengdar við landið og hvemig íslendingar gætu þurft að bregðast við því. Og menn eru kannski gleymnir á það, að á undan- fömum árum höfum við neyðst til að breyta veru- lega um áherslur í fiskveiðum okkar vegna slíkra umhverfisaðstæðna. Svend Aage-Malmberg haffræðingur, yfirdeildarstjóri á Hafrannsókna- stofnun, birti meðal annars í 10. hefti Hafrann- sókna árið 1977 hugleiðingu sína „Veðráttan og hafið“, þar sem hann spáir því, að íslendingar muni ekki til langframa geta hirt „blómann" einan úr hafinu, heldur verði að snúa sér að „skítfiski", sem sumir nefndu svo, og eru þó ekki ómerkari tegundir en t.d. loðna, karfi, spærlingur og kolmunni. En í þessari 13 ára gömlu grein snertir Svend-Aage einnig viðfangsefni, sem kann nú að færast nær okkur, fari svo að helstu nytja- stofnar okkar verði ekki sú auðlind sem við höf- um vanist. Þótt talað sé hástemmt um fiskimiðin sem matvælaforðabúr, er eggjahvíta úr sjó að- eins lítið brot af eggjahvítuneyslu mannkyns, því landbúnaðurinn sinnir hátt yfir 90% af fæðuþörf- um flestra þjóða. Möguleikamir á stöðugari og hagkvæmari nýtingu sjávarfangs felast í framtíð- inni í neðri þrepum fæðukeðjunnar, krabbadýrum og átu. Þótt slíkar veiðar hafi verið að nokkru stundaðar árum saman, eru þær dýrari í fram- kvæmd en hefðbundnar togveiðar. En á sama hátt og betri nýting fæðu til manneldis fæst úr komvörum heldur en af fóðurdýrum sem neyta þeirra, eru möguleikar sífjölgandi jarðarbúa til nægrar matvælaöflunar einmitt að hluta til fólgnir í svonefndum óæðri lífverum hafeins. Miðað við þær áherslubreytingar sem orðið hafa á nýtingu sjávarfangs hjá okkur (slendingum undanfama áratugi gæti verið að við þyrftum alvarlega að líta til þeirrar framtíðar sem Svend-Aage Malmberg og fleiri gerðu snemma grein fýrir. Otrúlegri hlutir hafa gerst. Þótt haustið sé nú að heflast samkvæmt við- miðunum alþjóðlegrar veðurfræði og stjömu- fræði og haustmánuður hefjist í næstu viku sam- kvæmt gamla, íslenska misseratalinu, var haust- ið ekki skilgreind árstíð í því. Á íslandi tekur vetur beint við af sumri í endaðan október. Árstíða- skiptin fýlgdu fomum búskaparháttum og veður- fari og voru í samræmi við þá hrynjandi náttúr- unnar sem okkar skilyrði bjóða. Og framtíð okkar felst í því að við skiljum tímanlega hvemig við getum hagnýtt þau best. Verða átuveiðar I sjón- um okkur verðmætari en álið á komandi öld? ÓHT 0-ALIT 8 SfÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. september 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.