Þjóðviljinn - 21.09.1990, Qupperneq 24

Þjóðviljinn - 21.09.1990, Qupperneq 24
Föstudagur 21. september 1990 177. tölublað 55. árgangur Heilsugæsla Smáfiskar afhreistra psoriasis-sjúklinga Þrjár tyrkneskar fisktegundir taka að sér með- höndlun á húðsjúkdómnum psoriasis Psoriasis-sjúklingurinn hefur komið sér fyrir (heita pottinum innan um torfur af kjötætufiskum. Þijár óþekktar fisktegundir þyrpast að sýktum hlutum húð- arinnar. Sagan hljómar allfurðulega, en margt bendir til þess að bót fá- ist á psoriasis með umgengni við tyrkneska fiska. Þessi undralækning sem hefur vakið mikla furðu í heimi læknavís- indanna gerist í tyrknesku fjall- lendi um 500 km fyrir austan höfuðborgina Ankara. Psoriasis-sjúklingamir vippa sér einfaldlega niður í eitthvert fjögurra heitavatnskerjanna á staðnum í miðja torfu af kjötætu- fiskum. Þetta em 3 tegundir, sem vom áður óþekktar, en kallast í bili „nartaramir", „stungumar" og „sleikjumar“. Heildarheitið er „læknisfiskar“. Læknisfiskamir taka við þeg- ar aðrar tilraunir hafa reynst ár- angurslausar. Sjúklingamir baða sig klukkustundum saman dag hvem í heitu pottunum. Nartaramir bíta í þá hluta húðarinnar sem flagna og bólgna. Þá koma stungumar til skjalanna, mýkja húðina og vekja sjúklingn- um blóð. Loks mæta sleikjumar og munnvatn þeirra virðist stöðva blæðingamar. Læknisfiskamir ráðast ein- göngu á húð sem er haldin psori- asis. Heilbrigða hluta hömndsins snerta þeir aldrei. Tveir enskir læknar, David og Janet Warwick ffá Bristol hafa fylgst með fyrirbærinu og lýstu því í hinu virta læknariti The Lancet. Þeir hafa enga skýringu á því hvers vegna afhreistmn og lækningar fiskanna heppnast. Enn er lítið vitað um þá. Og þótt menn kunni að hafa sínar efasemdir um hollustu þess að umgangast kvik- indin, - til dæmis vegna þess möguleika að þeir beri smit, hrif- ust læknamir af trú fólks á þau. Fjölmargir hafa lagt á sig mörghundmð km ferðalag til þessa einangraða staðar uppi í fjöllum til þess að varpa sér fyrir fiskana. Og að sögn ensku lækn- anna hefúr árangurinn verið já- kvæður og sannfærandi. ÓHT tók saman úr Illustreret Videnskab L'ORÉAL NU ER HANN TVOFALDUR UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 ■■■■■

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.