Þjóðviljinn - 07.11.1990, Page 2

Þjóðviljinn - 07.11.1990, Page 2
FRETTIR Blönduvirldun Deilt um skurð við Blöndu fl eila hefur komið upp á milli ** eigenda jarðarinnar Guð- laugsstaða og Landsvirkjunar um bætur vegna frárennslis- skurðar við Blönduvirkjun. Heimilisfólk á Guðlaugsstöðum vill að Landsvirkjun greiði efn- isgjald fyrir það efni sem tekið er við gerð skurðarins, sem samkvæmt heimildum Þjóðvilj- Bvlgian Lausn ísjónmáli? „Ég get ekki annað en verið bjartsýnn á að samningar takist á milli okkar og Útvegsmannafé- lags Vestljarða eins og staðan er. Tilboð okkar tii þeirra er að olíu- verðsviðmiðuninni verði breytt um 20 dollara," sagði Reynir Traustason formaður Skip- stjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar um kvöldmatarleyt- ið í gær. Samningaviðræður hófust í gær á Isafirði milli Bylgjunnar og Utvegsmannafélags Vestfjarða á grundvelli tilboðs sem samþykkt var á félagsfundi Bylgjunnar í fyrrakvöld. A þeim fundi kom fram eindreginn vilji fundarmanna að allt yrði gert til að reyna að koma í veg fyrir að boðað verkfall Bylgjunnar kæmi til ffamkvæmda þann 20. nóvember næstkomandi. Samningafundinum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. -grh ans er mun hærra en Vegagerð- in greiðir fyrir besta efni. Helgi Bjamason verkffæðing- ur hjá Landsvirkjun sagði Þjóð- viljanum, að fyrirtækið gæti alls ekki fallist á þessa kröfu, þar sem hún ætti sér ekkert fordæmi, en gæti skapað það í samningum við aðra í ffamtiðinni. Viðræður standa nú yflr á milli aðila og var siðast fundað í gær. Samkvæmt heimldum Þjóðviljans vill fólkið á Guðlaugsstöðum fá tífalt hærra viðmiðunargjald en Vegagerðin greiðir fyrir besta efni, en Helgi sagði efnið úr ffárennslisskurðin- um vera uppsprengt efni og mjög gróft malarefhi. Að sögn Helga er ekki búist við að samningaviðræður Lands- virkjunar og Guðlaugsstaðafólks dragist lengur en í tvær til þijár vikur. Aðilar væm sammála um að vísa deilunni í mat ef samning- ar næðust ekki, eins og heimild er fyrir. Landsvirkjun hefur þegar gert samninga við Guðlaugs- staðafólk um inntakslón sem ligg- ur að hluta til á Guðlaugsstaðal- andi, að sögn Helga. Einnig hefði verið samið yfirtöku á sk. Gils- vatni ofan við lónið, um veitu- skurð um landið og háspennulín- ur. Helgi sagði Landsvirkjun telja að með því að hauga efnið úr skurðinum væri fyrirtækið að skapa Guðlaugsstaðafólki verð- mæti sem það gæti selt hveijum sem væri, fyrir utan sjálfsagðar bætur fyrir landmissi og tjón sem ffamkvæmdimar kynnu að valda. -hmp Happdrætti Þióðvilians Upp með budduna Dregið verður í happdrœtti Þjóðviljans í dag. Undirtektir óvenju góðar. Veglegir vinningar í boði ndirtektir hafa verið óvenjugóðar og það er aug- ljóst að áskrifendur Þjóðviljans vilja blaðinu vel. Töluverður hópur fólks hefur meira að segja hringt hingað á Þjóðvilj- ann og beðið um fleiri miða,“ sögðu þær Kristín Pétursdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Guð- rún Geirsdóttir, starfsmenn skrifstofu Þjóðviljans, þegar rætt var við þær í gær um happdrætti Þjóðviljans. „En betur má ef duga skal og allir upp með budduna,“ bættu þær svo við. I dag verður dregið í happ- drættinu og að venju eru veglegir vinningar i boði, samtals að upp- Alþingi Dregið verður í happdrætti Þjóðviljans í dag og því er skorað á alla vel- unnara blaðsins að láta ekki sitt eftir liggja f stuðningi þeirra við blaðiö. Veglegir vinningar eru í boði og þvl er til margs að vinna, sögðu þær stöllur f.v. Kristín Pétursdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Guðrún Geirs- dóttir. Mynd: Jim Smart. Stasiá p yrirspurn til utanríkisráð- herra um upplýsingar um tengsl öryggislögreglu Austur- Þýskalands, Stasi, við íslenska aðila var lögð fram á Alþingi i gær. Geir H. Haarde, Sjfl., lagði fyrirspumina fram og spyr hvort utanríkisráðherra hyggist fara þess á leit við þýsk stjómvöld að þau veiti upplýsingar úr eða Tónlistardagar Dómkirkjunnar Tónlistardagar Dómkirkjunn- ar hefjast í dag og lýkur nk. sunnudag, 11. nóvember, en þess- ir tónlistardagar em orðnir að ár- vissum viðburði. Efnisskrá tón- listardaganna er tileinkuð menn- ingarborginni Leipzig, en Dóm- kórinn fór í velheppnaða tón- leikaferð til Austur-Evrópu sum- arið 1989 og heimsótti þá m.a. Leipzig. Flutt verða verk eftir ís- lensk og erlend tónskáld sem ölj hafa lært eða starfað í borginni. I kvöld kl. 20.30 syngur Dómkór- inn undir stjóm Marteins H. Frið- rikssonar dómorganista og Ort- hulf Pmnner leikur á orgel. A laugardag kl. 17 heldur Marteinn H. Friðriksson orgeltónleika kl. 17. Hápunktur tónlistardaganna hefst svo með messu kl. 11. Prest- ur er sr. Jakob Ágúst Hjálmars- son, sr. Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari, Dómkórinn syngur undir stjóm Marteins H. Friðrikssonar, en forsöngvarar verða Elín Sigurvinsdóttir og .Halldór Vilhelmsson. Kl. 17 verða svo tónleíkar þar sem Si- egfried Thiele rektor tónlistarhá- Islandi? heimili aðgang að skjalasafni Stasi til þess að leiða í ljós hvort hún hafl verið í tengslum við ís- lenska aðila. Geir sagði í samtali við Þjóð- viljann að hann vissi ekki til þess að Stasi hefði verið í tengslum við íslenska aðila og væri fyrirspum- in lögð fram án gmns um slíkt -gpm hæð kr. 1.510 þúsund. Fyrsti og annar vinningur em Copam 386 SX tölvur ásamt Seikosa prentara frá Aco, hvor um sig að upphæð 210 þúsund krónur. Þá em ferða- vinningar að eigin vali frá Ferða- vali, Nordmende vídeóupptöku- vélar frá Radíóbúðinni, heimilis- tæki að eigin vali frá Smith & Norland, Panasonic vídeótæki frá Japis, Örbylgju- og grillofnar frá Einari Farestveit, grafikmyndir að eigin vali frá Gallerí Borg og bókaúttektir frá Máli og menn- ingu. Dómkórinn syngur (Leipzig. skólans í Leipzig, stjómar frnrn- flutningi eigin verks. Signý Sæ- mundsdóttir syngur einsöng, Bryndís Halla Gylfadóttir leikur einleik á selló, Hörður Áskelsson leikur á orgel og Dómkórinn syngur. Sýning í Bókasafni Kópavogs Halldór Jónsson sýnir um þessar mundir olíumálverk, vatnslitamyndir, ljósmyndir, skúlptúra o.fl. í Bókasafni Kópa- vogs. Alls em á sýningunni 21 verk. Halldór fæddist á Svanshól árið 1913, en ólst upp í Asparvík. Hann hefur fengist við myndlist frá þrítugsaldri. Myndimar á sýn- ingunni em frá ýmsum tímum, sú elsta frá 1940 og sú nýjasta frá 1989. Sýningin er opin á sama tíma og safnið, mánudaga til fostudaga kl. 10 til 21 og laugar- daga frá kl. 11 til 14. Sýningunni lýkur 15. nóvember. Miðaverðið í ár er það sama og í fyrra, eða 300 krónur. „Við vonumst til að fólk snúi bökum saman og leggi hönd á plóginn. Þetta er ekki stór upphæð fyrir hvem og einn, en safnast þegar saman kemur. Þá má ekki gleyma því að vinningamir era mjög veglegir. Þeir velunnarar blaðsins, sem sfyðja það í barátt- unni með því að taka þátt í þess- um leik, geta því átt von á góðum glaðningi," sögðu þær stöllur að lokum. -Sáf Þrefalt afmæli Skólahald í Vík í Mýrdal og nágrenni á þrefalt afmæli um þessar mundir. Eitt hundrað ár em liðin síðan bamafræðsla hófst á þessum slóðum, níutíu ár síðan kennsla hófst í Vík og áttatíu ár síðan fyrsta skólahúsið í Vík var tekið í notkun. Þessara tímamóta minnast nemendur og kennarar í Vikurskóla nk. sunnudag, 11. nóvember, með hátíðardagskrá og sýningu í skólanum og af- mæliskaffi í Leikskálum. Fyrrum nemendur og starfsfólk skólans auk annarra velunnara em vel- komnir. Háskólabókasafnið sýnir í tilefni af 50 ára afmæli Há- skólabókasafnsins hefur verið efnt til sýningar í anddyri aðal- byggingar Háskólans. Greint er á veggspjöldum frá starfsemi safnsins, sögu þess og þróun, bæði í máli og myndum. Sýndar em bókagjafir sem safninu hafa borist á afmælisárinu og ýmis gömul og merk rit úr eigu safhs- ins. Sýningin stendur til 15. nóv- ember. FFSÍ Boltinn hjá útvegs- mönn- u m Forystumenn Far- manna- ogjiski- mannasambandsins kynntu afstöðu sína til deilunnar á fundi með forsætisráðherra í gær „Við sögðum forsætisráð- herra að Iöggjafinn gæti ekki komið inn í þetta mál og teljum að það sé ekki inní myndinni af hálfu stjórnvalda að leysa deil- una með lögum,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson formaður Far- manna- og fiskimannasam- bands íslands. Forystumenn þess áttu fund með Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra í gær þar sem ráðherranum vora kynntir mála- vextir í deilu yfirmanna á fiski- skipum við útvegsmenn. Á fundinum lýsti forsætisráð- herra yfir því, að hann hefði áhyggjur af stöðu mála í ljósi þess að yfirmenn hefðu fellt nýgerðan samning í allsheijaratkvæða- greiðslu. Guðjón A. Kristjánsson segir að stjóm Farmanna- og fiski- mannasambandsins sjái ekki neina ástæðu til að óska sérstak- lega eftir sáttafundi með útvegs- mönnum, þar sem samningurinn hefur verið felldur, og þvi hljóti boltinn að vera hjá útvegsmönn- um. Engu að síður er stjóm FFSÍ tilbúin til viðræðna við útvegs- menn strax og þeir biðja um sátta- fund til lausnar deilunni. Guðjón A. Kristjánsson for- maður FFSI segir að útvegsmenn leysi ekki þessa deilu með hör- kunni einni saman. „Við erum til- búnir til að vera í fríi fram yfir áramót ef því er að skipta,“ segir Guðjon A. - grh Kristileg útvarpsstöð í dag hefjast aftur útsendingar hjá kristilegu útvarpsstöðinni Alfa. Sent er út á fm 102,9. Hvatt til samvinnu heilbrigðisstétta Á haustfundi Heilsuhringsins, sem haldinn var sl. laugardag, var samþykkt ályktun þar sem hvatt er eindregið til samvinnu milli starfsmanna heilbrigðisstéttanna og hinna sem vinna með náttúr- unni á „óhefðbundinn hátt“ að því að efla heilsuhyggju og vellíðan landsmanna, einkum hvað varðar forvamir. Fundurinn lagði áherslu á að maðurinn beri ábyrgð á eigin heilbrigði. Þá leggur fundurinn áherslu á frelsi einstaklinga að velja sér stefnu í heilbrigðismálum. Að lokum seg- ir í ályktuninni að þegar meta skal hvaða atriði séu líkleg til að bæta heilsufar íslensku þjóðarinnar mest á komandi ámm ætti að leggja höfuðáherslu á rétta nær- ingu, næga hreyfingu og sálrænt jafnvægi. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.