Þjóðviljinn - 07.11.1990, Qupperneq 10
TÖLVUR
Framtíðin
Með tölvuskjáinn í bað
I framtíðinni hætta dagblöðin að koma inn um lúguna og koma
beint á skjáinn
Það hefur verið sagt að við sé-
um á fullri ferð inní upplýs-
ingaöldina. í því tilliti eru það
tölvurnar sem skapa þá öld. Nú
er hægt að geyma gífurlegar
upplýsingar á tölvutæku formi
og senda um allan heim á ör-
skotsstund. Sífellt fleiri tengjast
gagnabönkum og á framtíðar-
heimilinu verður fjölskyldan
tengd umheiminum í gegnum
tölvuskjáinn.
Þunnt skjáblaö
Ein líkleg stórbreytingin er að
dagblöðin verði send heim til
áskrifenda beint á tölvuskjáinn.
Forsendur þessa eru að hannaðir
verði þunnir tölvuskjáir, svona
tveir til fimm sentimetrar á þykkt.
Þetta er tæknilegt vandamál sem
verður leyst. Þá verður hægt að
hafa á heimilinu skjá sem er ekki
mjög frábrugðinn dagbiaði í lag-
inu. Skjá sem má taka með sér
inní stofu og lesa blaðið í hæg-
indastólnum. Nú, eins má taka
blaðið með sér inná baðherbergið
sem hentar þeim sem aldrei lesa
blöðin annarsstaðar.
Nú þegar eru útlitshönnuðir
dagblaða famir að velta fyrir sér
hvemig textinn komi til með að
líta út á hinum nýja tölvuskjá.
Flestir skjáir sem við þekkjum í
dag em ekki þess eðlis að neyt-
endur gætu hugsað sér að rýna í
þá langtímum saman. Einnig
þetta er vandamál sem er leysan-
legt.
Beintíæö
En möguleikar þunns skjás og
beintengingar heimilisins við
dagblaðið em óendanlegir. í
fyrsta lagi þá er vandamál dag-
blaða í dag samkeppni við ljós-
vakamiðla sem birta fréttimar
samdægurs. Með nýja kerfinu
sem hefur verið kynnt hér að ofan
þá kæmu fréttimar til neytandans
um leið og búið væri að skrifa
fréttina, þ.e. samdægurs. í öðm
lagi geta allar fréttir birst, líka
þær sem stundum lenda í msla-
tunnunni vegna plássleysis í blað-
inu. í þriðja lagi er hægt að bæta
fréttina strax og eitthvað nýtt
kemur uppá í stað þess að gera
það daginn eftir. Einnig gætu les-
endur gerst áskrifendur að
ákveðnu efni. Þannig gætu hinir
listhneigðu gerst áskrifendur að
öllu menningarefni, eða bara ein-
beitt sér að leiklist t.d eða mynd-
list.
Áþekkt yfirbragö
Það er ekki tryggt að yfir-
bragð ffétta breytist mikið. Þann-
ig er ííklegt að fréttastjórar skjá-
blaðs ffamtiðarinnar vilji áffam
hafa vald til að ráða stærð fyrir-
sagna og uppsetningu efnis.
Þannig mun ffamtiðarblaðið ekki
verða einn samfelldur texti heldur
er efninu komið á ffamfæri á ein-
hvem grafiskan hátt, ef til vill
ekki ólíkt því sem við þekkjum í
dag; því þrátt fyrir alla nútíma-
tæknina emm við stundum nokk-
uð ihaldssöm.
Þannig yrði í framtíðinni lika
hægt að taka upp stríðsletrið þætti
mönnum þörf á. En líka yrði hægt
að aðvara lesendann ef einhver
stórffétt væri á leiðinni. Eða bara
ef það væri að skella á óveður.
Eins gæti fólk sem væri áskrif-
andi að svona blaði beðið um itar-
efni ýmis konar og þannig aflað
sér ffekari upplýsinga um mál
sem það hefur sérstakan áhuga á.
Líkara Ijósvaka-
miölunum
Því mun dagblað ffamtíðar-
innar sífellt líkjast ljósvakamiðl-
unum. Samkvæmt könnunum,
t.d. í Bandaríkjunum, fækkar
bæði blöðum og þeim sem lesa
blöð. Því var það að þegar banda-
ríska dagblaðið USA Today byij-
aði starfsemi sína, fyrir fáum ár-
um, hannaði blaðið sölukassana
einsog þeir væru sjónvarp. Líkt
og hjá flestum bandaríksum dag-
blöðum fer stærsti hluti sölu
blaðsins í gegnum kassana. Með
hinum stuttu fréttum blaðins er
líka reynt að líkja eftir sjónvarp-
inu- Hið nýja skjáblað gengur enn
lengra í að likjast sjónvarpinu þó
það komi alls ekki í staðinn fyrir
það. Velgegni bandarisku ffétta-
sjónvarpsstöðvarinnar Cable
News Network (CNN) sannar að
almenningur hefur meiri áhuga á
fféttum en fækkun blaða og
blaðalesenda gefur til kynna. En
CNN sjónvarpar eingöngu frétt-
um 24 tima sólarhringsins. Af
þessu má ráða að almenningur
hefur ekki misst áhugann á frétt-
um heldur vill stór hluti fólks fá
fféttimar framreiddar á annan
hátt. Hið nýja skjáblað ffamtíðar-
innar kemur til móts við þær kröf-
ur.
-gpm
Tölvuvæðing prentiðnaðarins á
sér orðið langa sögu. Verður fram-
tlðardagblaðið þunnur skjár sem
hægt er að bera með sér um allt
hús? Gerist það má jafnvcel lesa
skjáblaðið f þessari stellingu.
ARCHE tölvueigendur hafa eitt sem engir aðrir
töivueigendur hafa - tveggja ára gæðaábyrgð.
í dag er ARCHE eini framleiðandinn í Bandaríkjun-
'um sem býður tveggja ára ábyrgð á öllu sem ber
merki ARCHE Technologies.
ARCHE eigendur geta státað sig af fyrsta flokks
„Made in the USA“ gæðastimpli. Og stimpil þennan
fá aðeins þeir framleiðendur sem mæta ströngustu
kröfum um gæði og endingu.
ARCHE TRIUMPH 286 PLUS
□ 1Mb minni (0 bið)
□ 1,2Mb disklinga drif
□ 2 parallel og 2 serial port
□ Stýrikort fyrir harðan disk
□ MS-Dos 3.3, GW Basic
□ 10 ls lykils lyklaborð
VERÐ KRÓNUR: 97.975.
*******
mSTUW:IUm:l
ARCHE RIVAL 386-SX
□ 1Mb minni (0 bið) □ Stýrikort fyrir harðan disk
□ 1,2Mb disklinga drif □ MS-Dos 3.3, OW Basic
□ 2 parallel og 2 serial port □ lOls lykils lyklaborð
10SÍÐA —ÞJÓÐVILJINN