Þjóðviljinn - 09.11.1990, Qupperneq 6
Elín Elíasdóttir
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. nóvember1990
Fclagsmenn Vcrzlunarmannafélags
Reykjavíkur eru hvattir til aö fjölmenna á
fundinn og taka þátt í ákvörðuna'rtöku um
þetta þýðingarmikla mál.
AÐ UTAN
Ramatrúarmenn ryðjast gegnum varðhring lögreglu kringum Babúr-
smosku - hvorugur deiluaðila er líklegur til málamiðlunar.
Rama í brennidepli
Babúrsmoska, sem fslamskur
herkonungur byggði á rústum
Ramahofs á fæðingarstað kapp-
ans/guðsins.
Rajiv Gandhi var hér milli
tveggja elda og tvísteig að því
skapi, bannaði að moskan yrði
rifm, leyfði að hof yrði byggt við
hlið hennar, bannaði síðan einnig
það. Hann hafði það eitt upp úr
því að fæla ffá sér báða aðila.
Múslímar hlupu unnvörpum frá
flokki hans yfir til flokkabanda-
lags undir forustu Vishwanath
Pratap Singh, sem fyrir bragðið
varð sigurvegari kosninganna og
myndaði stjóm þá sem nýsprung-
in er á sama máli, og heittrúar-
hindúar flykktust ffá flokki Gand-
his til Bharatiya Janata, flokks er
hefur sem mark og mið að hefja
hindúasið til sem mestrar dýrðar.
í fyrra var byijað að grafa fyr-
ir homsteini Ramahofs á hinum
umeilda stað í Ayodhya, en síðan
hætt við það, að boði Gandhis.
Indverskur embættismaður benti
fyrir fáum dögum fféttamönnum
á holuna og sagði spámannlega:
„Gryfjan sú ama hefúr þegar
gleypt tvær stjómir og er þó enn
tóm. Við skulum sjá til hver í
hana steypist næst.“
Á aruiað ár hefiir deilan um fæðingarstað þessa siðavanda kappa og guðs verið
mesta hitamál indverskra stjómmála og orðið tveimur ríkisstjómum að falli
Indland er fremur meginland
en „land“ í evrópskum skiln-
ingi orðsins. Eðlilegt er því
að bera þetta 850 miljóna
manna ríki saman við Evrópu
eins og hún leggur sig, eða
Arabalönd, fremur en einstök
ríki í þessum heimshlutum
eins og Þýskaland eða Eg-
yptaland.
í þeim heimshluta, sem Ind-
land er, geta mál sem frá sjónar-
hólum annarra heimshluta séð
ættu ef til vill ekki að verða ýkja
umfangsmikil, orðið meginatriði.
Og í augum þorra Indverja er
deilan út af fæðingarstað Rama í
Ayodhya öllu alvarlegra mál en
Persaflóadeilan. Hinir helgu stað-
ir í Ayodhya eru ekki síður mikið
tilfinningamál fyrir Indveija en
Musterisfell í Jerúsalem er í aug-
um gyðinga og múslíma.
Upphaflega
maöur
Deilan út af fæðingarstað
Rama, eins þeirra guða sem mest
eru tilbeðnir með hindúum, sem
eru um 83 af hundraði ibúa lands-
ins, hefur á eins árs tímabili orðið
tveimur indverskum ríkisstjóm-
um að falli. Áreiðanlega efastþeir
fjölmörgu hindúar, sem á Rama
trúa öðrum guðum ffemur, ekki
um að goðið hafi búið þeim
stjómum makleg örlög vegna
þess að þær hafí brugðist helgum
málstað. Og hver er þá Rama?
Sennilegt er að hann hafi upp-
haflega verið maður, og er slíkur
uppruni guða ekki einsdæmi.
Sagnir herma að hann hafi fæðst
konungshjónum í Ayodhya, borg
sem frá fomu fari hefur verið helg
með hindúum og er í Uttar Pra-
desh, fjölmennasta fylki landsins
sem nær yfir vesturhluta Ganges-
sléttu. í Ayodhya búa nú um
50.000 manns, flestir hindúar, og
þar em um 3000 hof, eitt á hveija
16-17 borgarbúa, og aðalfram-
leiðsla staðarins em sætindi sem
borin em goðum að fóm.
Einhveijir fræðimenn hafa
giskað á að Rama, sem algengt er
að menn kalli Ram sér til hægri
verka, hafi verið uppi á áttundu
eða sjöundu öld f.Kr. og hafi þá
Rama (fyrir framan hann Advani,
leiðtogi Bharatiya Janata) - þeim
sem á hann trúa finnst tfmi til
kominn að hann endurheimti fæð-
ingarstaö sinn, nú þegar hindúar
eftir langa mæðu ráða aftur rikjum
f Indlandi.
verið fursti yfir stærra eða minna
svæði umhverfis Ayodhya. Þótt
ekki verði af heimildum séð að
sérlega mikið hafi farið fyrir hon-
um innanum aðra þáverandi ind-
verska stórhöfðingja, sem hafa
verið fjölmargir, hafi smámsaman
spunnist um hann sagnir og hann
í þeim orðið dáð og goðumlík
hetja.
í sögnum er bilið á milli guða
og kappa ekki alltaf breitt, og
ekki leið á mjög löngu áður en
farið var að trúa því að Rama
hefði verið einn af avatörum Vis-
hnu, guðs þess er öllu heldur við,
samkvæmt opinberri guðfræði
hindúasiðar. Avatar þýðir Hinn
niðurstigni. Vishnu er sá af
hindúaguðum, sem hvað mest
gerir að því að stíga niður til
þessa heims og birtist þá í ýmsum
gervum. Af avatörum hans eru
tveir þýðingarmestir, Krishna og
Rama, en einnig er því trúað að
Búddha hafi verið Vishnu niður-
stiginn. Auk Vishnu og hins
margbrotna goðs Shiva og konu
hans, sem nefnd er m.a. Kali og
Durga, eru Krishna og Rama nú
mikilvægustu goð í hindúatrú og
hefur svo verið lengi.
Heimsþekktur hefur Rama
orðið af sagnljóðabálkinum
Ramayana, ortum á sanskrít, ef til
Bygging
hjúkrunarheimilis
vill einhvemtíma kringum upphaf
vors tímatals, en talsvert greinir
ffæðimenn á um það. A 14. öld
voru kvæðin ort upp og aftur á 17.
öld og þeim þá um leið snúið á
hindí, sem nú er það af indversk-
um tungumálum sem flestir tala.
Gerði það skáld að nafhi Tulsi
Das (1532-1623). Ramacaritman-
as, kvæðin um Rama eins og
Tulsi Das gekk frá þeim, náðu
óhemju vinsældum. Bhagavadg-
ita, ljóðin þar sem Krishna opin-
berar visku sína, hafa verið kölluð
Hávamál Indíalanda. Ramacarit-
manas hafa verið kölluð biblía
hindímælandi þjóða.
Það var fyrst á þessum öldum,
er áðumefndar endurútgáfur og
þýðingar urðu til, sem Rama varð
guð að fullu. Á þeim öldum réðu
íslamskir valdhafar mestu í Ind-
landi, fyrst soldánamir af Delhi
og síðan stórmógúlamir. Sá fyrsti
þeirra síðamefndu var Babúr, sem
sagður er hafa árið 1528 brotið
hof helgað Rama í Ayodhya og
byggt á rústum þess mosku sem
enn stendur.
Baráttan gegn
Ravana
Á valdatíð mógúlanna, sem
oft léku hindúíska þegna sína hart
og reyndu að þvinga þá til að taka
íslam, varð Rama tákn andófs
hindúa gegn þessum harðráðu og
hötuðu valdhöfúm. Hann var að
mörgu Ieyti vel til þess fallinn. í
kvæðunum samsvarar hann hug-
myndum hindúa um hvemig
hraustir menn og góðir drengir
eigi að vera - kappar sem ótrauð-
ir berjast gegn því illa, þrautgóðir
á raunastund, hollir goðum og
brahmínum, hlýðnir fúrstum,
dyggir fjölskyldufeður, synir,
bræður. Aðalandstæðingur Rama
í Ramayana er hinn illi jötunn Ra-
vana, sem rænir Situ konu hans,
sem fyrir sitt leyti er fyrirmynd
kvenna eins og ætlast er til að þær
séu samkvæmt hindúasið, holl
eiginmanni sínum, hlýðin og skír-
líf.
Því er trúað að Vishnu stígi
niður heiminum til bjargar, þegar
tortíming vofir yfir honum af
hálfu illra afla eyðingar. Undir
stjóm múgúlanna, afkomenda
Babúrs sem hóf feril þeirra á Ind-
landi með því að brjóta hof Rama
á sjálfum fæðingarstað hans, sáu
hindúar heimi sínum ógnað. Þeir
hafa þá átt auðvelt með að sjá
svip með Babúr og eftirmönnum
hans og Ravana jötni.
Teikning af fyrirhuguðu Ramahofi
( Ayodhya - heittrúarhindúar vilja
að það rfsi á rústum Babúr-
smosku.
vissum heimildum. Þeir eru arfúr
mógúlatímans og ekki ýkja hress-
ir yfir að hafa yfir sér valdhafa af
trú hindúa, sem forfeður þeirra
undirokuðu. Með hliðsjón af
þeirri fortíð hafa heittrúaðir og
þjóðemissinnaðir hindúar hom í
síðu múslíma. Það er því ekki
nema eðlilegt að Rama, tákn við-
náms hindúa gegn múslímum, sé í
brennidepli átakanna milli þess-
ara gerólíku trúarbragða.
Fyrir almennu þingkosning-
amar, sem fram fóm í nóv. í fyrra,
varð deilan um fæðingarstað
Rama heitasta baráttumálið.
Heittrúarhindúar kröfðust
þess að Babúrsmoska yrði rifin
og Ramahof reist í staðinn. Músl-
ímar tóku það ekki í mál og ekki
heldur málamiðlunartillögu um
að moskan fengi
að standa, en hof
yrði reist þar rétt
hjá. Þáverandi
forsætisráðherra
Dagur
Þorlelfsson
Félagsfundur:
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hcldur
almennan félagsfund að Hótel Sögu, Súlna-
sal, sunnudaginn 11. nóvember n.k. kl. 15:(K).
Fundarefni:
1. Kynnt skipulagsskrá fyrir umönnunar- og
hjúkrunarheimilið Eir.
2. Tekin ákvörðun um þátttöku Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur í byggingu
hj úkrunarheim ilis.
Framsögumenn:
Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
Séra Sigurður H. Guðmundsson, for-
maður stjórnar Skjóls.
Fundarstjóri:
Elín Elíasdóttir, varaformaður V.R.
Síðasta orð
Mahatma Gandhi
Sterkust er trúin á Rama á
Gangessléttu, hinu foma kjama-
svæði hindúasiðar, þar sem hindí
er talað, en átrúnaðurinn á þennan
siðavanda guð er og mikill um
mestan hluta Norður-Indlands,
ekki síst í Gujarat, fylki vestan til.
Þaðan var Mahatma Gandhi ætt-
aður. Síðustu orð hans, þegar
hann féll helsærður fyrir skotum
ofstækisfulls hindúa 1948 voru:
„Eh! Ram!“
Um það bil frá 1200 til 1700
réðu múslímar mestu í Indlandi,
frá því á síðari hluta 18. aldar til
miðrar 20. aldar Bretar. I hinu nú-
verandi indverska ríki, sem stofn-
að var fyrir 43 árum, em hindúar,
þorri landsmanna, mestu ráðandi.
En múslímar em þar fjölmennur
minnihluti, um 11 af hundraði
eða um 100 miljónir, samkvæmt