Þjóðviljinn - 09.11.1990, Page 14

Þjóðviljinn - 09.11.1990, Page 14
\ \ i \ Frjálsar (þróttir og almenn llkamsuppbygging er snar þáttur ( skólalþróttunum ( dag, auk æfinga á áhöldum, knattþrauta og leikja. Það er ekki annað að sjá en að þessi nemandi stökkvi léttilega yfir rána, enda vel yfir henni. Myndir: Kristinn. Skólaíþróttir Sterkari stúlkur - fimari drengir í íþróttatíma með ijórtán ára nemendum í níunda bekk í Álfta- mýrarskóla. Strákar og stelpur saman; sjáandi, blind og sjónskert „Inntak kennslunnar hefur lít- ið breyst í gegnum tíðina, þó svo að áherslumar séu aðrar. Mark- mið hennar er að þjálfa einstak- linginn; auka þor hans og kraft þannig að hann verði betur undir- búinn en ella til að takast á við líf- ið þegar skólagöngu lýkur,“ segir Þórhallur Runólfsson, íþrótta- kennari í Álftamýrarskóla. Fyrir skömmu leit blaðamað- ur og ljósmyndari Þjóðviljans inn í íþróttatíma í Álftamýraraskóla hjá fjórtán ára nemendum í ní- unda bekk. Þar voru saman i tíma bæði strákar og stelpur og heftir svo verið undanfarin ár. Ennfremur voru í tímanum krakkar úr deild blindra og sjónskertra. Að mati Þórhalls hefur þetta fyrirkomulag reynst mjög vel, bæði fyrir nem- endur og kennara. Þar fyrir utan eykur þetta lífsreynslu krakk- anna, tillitssemi og umgengni þeirra sin í milli. Þegar svona blandaður hópur, um 40 krakkar, em saman í íþróttatíma er það ekki á færi eins kennara að sjá um kennsluna og því eru tveir kennarar í hveijum íþróttatíma. Með Þórhalli kennir Margrét Hallgrimsdóttir en til samans hafa þau næstum því hálfrar aldar reynslu sem íþrótta- kennarar. Þórhailur er að byija að kenna sinn tuttugasta og fjórða vetur og Margrét þann tuttugasta. „Mér fmnst nú strákamir skemmtilegri en stelpumar, auk þess sem blöndun sem þessi í tíma gerir það að verkum að stelpumar verða sterkari og strák- amir fimari," segir Margrét Hall- grimsdóttir íþróttakennari. Þórhallur segir að stærsta stund í lífi íþróttakennarans sé ekki endilega þegar hann sér að meðal nemendanna er upprenn- andi afreksmaður í iþróttum, heldur þegar nemandi kemur til kennarans og þakkar honum fyrir tímann, svo ekki sé talað um að sjá krakkana koma og fara með ánægjubros. „Það er þetta sem gerir það að verkum að maður Þórhallur Runólfsson (þróttakennari. kemur aftur og aftur á hveiju hausti,“ segir Þórhallur. Þar sem Þórhallur hefur starf- að sem íþróttakennari í næstum aldarfjórðung var hann inntur eft- ir því hvort einhver munur væri á nútímakrakkanum og þeim sem hann byrjaði að kenna? Þórhallur segir að áður fyrr hafi krakkamir verið mun meira en nú í hinum ýmsum leikjum utanhúss. Nú séu þau meira innivið en áður, sem kemur ffam í því að samhæfni lík- amans er bágbomari en áður var, þegar þau koma í skólann, en engu að síður sé þau líkamlega sterk. Hinsvegar sé sjoppufæðið hið versta mál og það er skoðun Þórhalls að nær væri að nemend- ur fengju máltíð í skólanum.-grh ( upphafi hvers t(ma hita nemendumir upp fyrir komandi átök með teygjuæfingum, auk annarra æfinga. 14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.