Þjóðviljinn - 09.11.1990, Qupperneq 21

Þjóðviljinn - 09.11.1990, Qupperneq 21
MYNDLIST Árbæjarsafn, lokaö okt.-maí, nema m/samkomulagi. Ásmundarsalur við Freyjugötu 41, Guörún Marinósdóttir opnar sýningu á lau kl. 14. Opið daglega kl. 14- 20 til 11.11. Ath. síðasta sýningarhelgi! Sjá tónleika. Björninn við Njálsgötu 49, Kristján Fr. Guömundsson sýnir málverk og vatnslitamyndir. Bókasafn Kópavogs, Halldór Jóns- son sýnir olíumálverk, Ijósmyndir, vatnslitamyndir, skúlptúra o.fl. Opið á sama tlma og safnið: má-fö 10-21, og lau 11-14. Til 15.11. Ath. síðasta sýningarhelgi! Djúpið, kjallara Hornsins, Birgir Snæbjörn Birgisson sýnir tréristur, steinþrykk og teikningar. Stendur til 17.11. Opiö á sama tfma og veit- ingastaðurinn. Epal, Faxafeni 7. PéturTryggvi sýn- ir skartgripi. Opin kl. 9-18 i dag. Síð- asti sýningardagur! FfM-salurinn viö Garðastræti 6, Kristinn G. Jóhannsson sýnir Mál- verk um gamburmosa og stein. Opið daglega kl. 14-18, til 18.11. Gallerf 1 1, Skólavöröustlg 4a, Guð- rún Einarsdóttir sýnir málverk. Opið alla daga frá kl. 14-18. Til 15.11. Gallerí 8, Austurstræti 8. Seld verk e/um 60 listamenn, ollu-, vatnslita- og grafíkmyndir, teikningar, keramlk, glerverk, vefnaður, silfurskartgripir og bækur um fslenska myndlist. Op- ið virka daga og lau kl. 10-18 og su 14-18. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, Lýö- ur Sigurðsson sýnir ollumyndir. Opið um helgina kl. 14-18, en virka daga kl. 10-18. Til 20.11. Gallerf Borg, Austurstræti 3 og Siðumúla 32, grafík, vatnslita-, past- el- og olíumyndir, keramikverk og módelskartgripir, opiö lau 10-14. Gallerf Llst, Skipholti 50 B. Ólöf Erfa Bjarnadóttir sýnir keramik. Vatnslita- og graflkmyndir, keramik og postulín auk handgerðra (sl. skartgripa. Opið kl. 10:30- 18, lau 10:30-14. Gallerf Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Asa Olafsdóttir opnar sýningu á ofn- um myndverkum á lau. Opin virka daga nema má ki. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Gallerf Sævars Karls við Banka- stræti, Snorri F. Hilmarsson sýnir málverk. Opið á sama tima og versl- unin. Til 16.11. Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, Jónína Guðnadóttir sýnir lágmyndir og skúlptúra úr leir og steinsteypu. Sverrissalur, verk úr eigu safnsins. Opið alla daga nema þri kl. 14-19, til 18.11. Sjá tónleika. Hlaövarpinn við Vesturgötu 3b, Lu Hong: sýning sem kallast Island I klnversku bleki. Opið lau kl. 10- 16, su 13-17 og þri-fö 12-18, til 28.11. Kjarvalsstaðir, vestursalur: Bryn- hildur Þorgeirsdóttir sýnir skúlptúra. Austursalur: Sýning á list inúíta á vegum Menningarstofnunar Banda- rikjanna og Menningarmálanefndar Reykjavlkurborgar. Opið daglega frá kl. 11-18. Tii 2.12. Listasafn Einars Jónssonar opið lau og su 13.30-16, höggmynda- garðurinn alla daga 11-16. Listasafn fslands, yfirlitssýning á verkum Svavars Guönasonar, sem var framlengd um viku. Opið alla daga nema má kl. 12-18. Áth. sið- asta sýningarhelgi! Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, sýn. á andlitsmyndum Sigurjóns. Opið lau og su kl. 14-17, þri kl. 20- 22. Sjá tónleika. Minjasafn Akureyrar, Landnám í Eyjafirði, heiti sýningar á fornminj- um. Opið su kl.14-16. Minjasafn Rafmagnsveitunnar, húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su 14-16. Nýlistasafnið við Vatnsstíg, Björg Örvar og Anna Líndal sýna. Opið daglega kl. 14-18. Ath. síðasta sýn- ingarhelgi! Norræna húsið, kjallari: Pálína Guðmundsdóttir og Ragna Her- mannsdóttir opna sýningu á mál- verkum á lau kl. 16. Til 25.11. Opin kl. 14-19 daglega. Til 4.11. Anddyri: Sýning um norska tónskáldið Johan Svendsen. Safn Ásgrfms Jónssonar, Berg- staðastræti 74, lokað vegna við- gerða um óákveðinn tíma. Safnahúslð, Húsavik, Kári Sigurðs- son sýnir pastelmyndir, teikningar og oliukritarmyndir. Sýning haldin I tilefni af 40 ára afmæli bæjarins. Op- ið 14-18, til 12.11. Ath. síðasta sýn- ingahelgi! Sjóminjasafn fslands, Vesturgötu 8 Hf. Opið lau og su kl. 14-18. Slúnkaríki, (safirði: Jón Sigurpáls- son opnar sýningu á lau kl. 16 á lág- myndum og skúlptúrum. Opið fi-su kl. 16-18, til 2.12. Leikfélag Kópavogs sýnir um þessar mundir glænýjan söngleik eftir Valgeir Skagfjörð. Hljómsveitin fslandsvinir sér um tónlistarflutning á sýningunni. Verkið, sem nefnist Skltt með'a, fjallar um unglinga og vandamál þeirra. Næsta sýning á söngleiknum I Félagsheimili Kópa- vogs er á sunnudaginn kl. 20. Myndin er af nokkrum söngglöðum leik- konum sýningarinnar. Verkstæði V að Ingólfsstræti 8. Sex konur vinna á ve&stæöinu og eru þar unnin textílverk ýmiskonar, sjöl, púðar, slæður, dreglar o. fl. Opið alla virka daga kl. 13-18 og lau 10-16. Þjóðminjasafnið, opiö um helgar, og þri og fi kl. 11-16. Á efri hæð: Islenskar þjóðlífsmyndir Sigríöar Kjaran, sýningin opnar á lau, mun standa I a.m.k. 3 mánuöi. TÓNLIST Llstasafn Sigurjóns Ólafssonar: Styrktartónleikar Listasjóðs Tónlist- arskólans I Reykjavík má kl. 20:30. Jónas Ingimundarson leikurá píanó, og Blásarakvintett Reykjavíkur flytur nokkur verk. Ásmundarsalur, Robyn Koh sem- balleikari og Pétur Kristján Einars- son gítarieikari halda tónleika á su kl. 16. Efnisskrá: Isl. samtlmaverk. Hafnarborg, Trló Reykjavíkur efnir til tónleika á su kl. 20. Frumflutt verk e/Pál P. Pálsson, önnur verk e/Brahms og Ravel. IBM-Sinfónfutónleikar I Háskóla- bíói á lau kl. 15. Stj. er Páll P. Páls- son, einsöngvari Sólrún Bragadóttir. Efnisskrá völdu starfsmenn IBM, en fyrirtækið gerðist nýlega styrktaraðili Sinfónlunnar. Nfunda sinfónfa Dvo- raks, arfa úr Fígaró, o.fl. Tónlistardagar Dómkirkjunnar, org- eltónleikar á lau kl. 17. Marteinn H. Friðriksson leikur verk e/Mendelso- hn, Jón Leifs o.fl. Á su kl. 17 frum- flytur Dómkórinn kórverk e/Sigried Thiele, sem stjórnar einnig tónl. Sig- ný Sæmundsdóttir syngur og Bryn- dfs Halla Gylfadóttir leikur á selló. Tónlistarskóli Garðabæjar, planó- tónleikar snillingsins Valdemars Mal- ickis á lau kl. 17 f Kirkjuhvoli við Kirkjulund f Garðabæ. Verk e/Moz- art, Chopin o.fl. LEIKHÚS Gerðuberg, brúðuleikhúshátíð. Lau og su kl. 15: Dúkkukerran sýnir leik- ritið um Bangsa. Þjóðlelkhúslð, Örfá sæti laus Is- lensku óperunni f kvöld og lau kl. 20. Borgaríeikhúsið, stóra sviö: Fló á skinni, sýnd f kvöld eins og venju- lega og kl. 23:30. lau kl. 20, og fjöls.sýn. su kl. 15. Ég er hættur! Farinn! su kl. 20. Litla svið: Ég er meistarinn lau kl.20. Alþýðuleikhúslð, lönó: Medea e/Evrípídes í kvöld og su kl. 20:30. Nemendaleikhúsið, Lindarbæ, Dauði Dantons e/Buchner. I kvöld og su kl. 20. Leikfélag Akureyrar, Leikritiö um Benna, Gúdda og Manna f kvöld og lau kl. 20:30. Leikfélag Mosfellsbæjar, barna- leikritið Elsku Mfó minn lau kl. 14, su kl. 14 og 16:30. Leikfélag Keflavíkur, frumsvnir söngleikinn Er tilgangur? f kvöld kl. 20:30, næsta sýn. á su. Leikfélag Kópavogs, söngleikurinn Skltt með’a. Su kl. 20. HITT OG ÞETTA Upplestrarhátfð f Norræna Húsinu á lau kl. 15. Ung Ijóðskáld sem stunda eða hafa stundað nám við Háskólann lesa úr verkum slnum. Upplesturinn stendur fram til kvölds. MÍR-bfósalur, Vatnsstfg 10. Kvik- myndasýningar á su kl. 16. Sovéska kvikmyndin Hvíti Bim Eyrnablakkur I leikstjórn Rostotskfs. Enskir skýr- ingatextar, aðgangur ókeypis og öll- um heimill. Hana-nú f Kópavogi, samvera og súrefni á morgun lau, lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.10. Komum sam- an upp úr hálftíu og drekkum mola- kaffi. Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfar hittast á morgun lau kl. 10 að Hverf- isgötu 105. Opið hús Goðheimum á su frá kl. 14, frjálst spil og tafl. Dans- leikur frá kl. 20. Ferð til Lúxemborg- ar 22,- 29.11. og 6.-13.12. uppl. I slma: 28812. Skáldakynning á þri að Hverfisgötu 105 f umsjón Vilborgar Dagbjartsdóttur, kynnt veröa verk Stefáns Jónssonar. Norræna húsið, kvikmyndasýning f. böm su kl. 14. Tvær danskar mynd- ir: Syv et og Buhtan. Aðganaur ókeypis og boðið upp á ávaxtasafa I hléinu. Breiðflrðingafélagið, félagsvist og dans I kvöld ki. 20:30 f Breiöfirðinga- búð, Faxafeni 14. Allir velkomnir. Útivist, sunnudagsferðir: Vötn - Þórðarfell kl. 10:30. Kjalamestangar kl. 13. Brottför I allar ferðir frá BSl benslnsölu. Kvenfélag Kópavogs, basar á su f félagsheimilinu Kópavogi kl. 14. Tekiö á móti kökum og munum á lau milli kl. 13 og 17, og frá kl. 10 á su. Kvöldvökufélagið Ijóð og saga heldur kvöldvöku á lau kl. 20:30 Skeifunni 17. Félagar fjölmenniö og takið með ykkur gesti. Sólnes-áhrifin Undanfama daga hafa staðið mikil fúndarhöld i Genf í Sviss. Þar ræddu fúlltrúar 137 þjóða um veðurfarið hér á jörðu og sérstaklega svokölluð gróðurhús- áhrif. Þetta nútímahugtak byggist í fáum orðum á eftirfarandi: Orkugeislar sólar, sem endur- varpast af jörðu að hluta til, fara ekki beinustu leið út úr lofthjúpi jarðar. Efnatengi nokkurra loft- tegunda, sem finnast í vaxandi magni í lofthjúpnum, gleypa töluvert af þessari orku ogendur- kasta afturtiljarðar. Lofttegundimar mynda því nokkurs konar einangrunarlag. Þama er fyrst og fremst um að ræða koldíoxíð, CO^, metan, CH4, ýmis klórflúorkolefni, t.d. freon og köfhunarefnisoxíð, NjO. Uppspretta þessara lofttegunda er í réttri röð : bmni kolefnis, rotnun, iðnaður, niturgerlar. Eftir því sem styrkur þessara lofttegunda vex verður yfirborð jarðar heitara, ísmassar bráðna og yfirborð sjávar hækkar. Heitari sjór þenst líka út og bindur minna koldíoxíð. Ef þetta gengur eftir má búast við töluverðum veðurfarsbreytingum í kjölfarið og gríðarlegri röskun á högum manna í veröldinni. A fúndinum í Genf var samþykkt að stemma stigu við þessari óheillaþróun. 18 Evrópuriki gáfú út sameiginlega yfirlýsingu um að reyna að halda í horfinu, þannig að árið 2000 skuli losun koltvísýrings ekki vera meiri en hún er f dag. íslendingar tóku þá ábyrgu afstöðu að undirrita þessa yfirlýsingu. Haft er eftir umhverfisráðherra að losun 380.000 tonna af koldíoxíði á ári frá fyrirhuguðu álveri þurfi ekki endilega að rekast á þessa samþykkt, því á öðram sviðum þjóðlífsins eigi að nota hreinni tækni í framtíðinni. Hann ætlar líka að skipa starfshóp strax þegar heim kemur til að leita leiða að ná þessu markmiði. Áður hefúr ráðherra sagt í viðtali að hreinsitæki á bíla muni draga úr losun koldíoxfðs til mótvægis við álverið. í þessu hreinsitækjamáli hefúr verið starfandi annar starfshópur og vonandi fær ráðherra uppörvandi ftéttir þaðan við heimkomuna. Eg hélt reyndar að þau hreinsitæki, sem nú era í notkun, ættu aðallega að stuðla að fúllkomnari brana útblásturs bifreiða. Óbrannin bensínblanda og kolmónoxíð valda víða alvarlegri mengun og þessi tækni miðar fyrst og ftemst að þvi að skila sem mestu af útblæstri fúllbrunnu ftá bilnum, þ.e.a.s. i formi koldíoxíðs og vatns. Niðurstaða mín er því sú, að hreinsitæki á bQa auka magn VANDLIFAÐ í VERÖLDINNI koldíoxíðs í umhverfinu. Ef til vill má spara þjóðfélaginu kostnaðinn af enn einum starfshópnum á vegum ráðherra með eftirfarandi ráðleggingum, sem era ókeypis. Til að ná settu marki era þrjár leiðir: Einar Valur Ingimundarson 1) Hætt við öll áform um byggingu álvers. 2) Almenningssamgöngur stórbættar með aðaláherslu á lagningu rafbrauta. 3) Horfið ftá bruna líftæns eldsneytis og aðrir orkugjafar þróaðir, t.d. vetnisbrennsla hjá íslenska flotanum. Eftir þvi verður tekið á alþjóðavettvangi, hvemig ísland stendur við sinar samþykktir. Við ætlum að byggja upp hreina ímynd af þessu landi fyrir okkar útflutning. Það þýðir ekki að segja að 380.000 tonn af koldioxíði frá álveri sé einhver tímabundinn toppur. Það er tvískinnungur. Föstudagur 9. nóvember — NÝTT HELGARBLAÐ SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.