Þjóðviljinn - 16.11.1990, Side 19
Lífið er
alltaf
framundan
Sigurður Pálsson:
Ljóð námu vðld
Forlagið, 1990
í íyrsta bindi ljóðnámusaíhs
Sigurðar Pálssonar var því lýst
hvemig ljóðin námu land á Is-
landi, byggðu það með landslög-
um og helguðu það eldljóðinu sí-
kvika. í annarri ljóðnámubók var
ort um ljóðnámumenn - til dæmis
höfunda Njálu og Laxdælu og
aðra ónafngreinda snillinga mið-
alda. í þriðju ljóðnámubók Sig-
urðar Pálssonar nema ljóðin völd.
Þau hafa sigrað tímann (Einu
konungar Islands), dauðann
(Borges, Dylan Thomas) og ofríki
mannanna (Ljóð námu völd),
enda em þau engu ytra hylki háð
og allsendis laus við hlekkina
sem halda aftur af mannfólkinu.
„Það vantar ekki neitt á húsið
mitt“ segir í laundijúgu upphafs-
ljóði bókarinnar, „næstum ekki
neitt“
Það vantar á það skorsteininn
Það venst
Það vantar á það veggina
og myndimar á veggina
Það verður að hafa það
En það er þægilegt húsið mitt
Gjörið svo vel
Fáið ykkur sæti
Verið ekki hrædd...
Við þurfum ekki að binda
okkur við neina siði í þessu ljóð-
húsi, við megum koma inn um
dymar, en við getum líka gengið
inn um gluggana - „ef ekki bara
veggina“.
Ljóðnámuvöld er fyrsti kafli
samnefhdrar bókar; í öðmm
kafla, Mánaðaljóðum, em ljóð
fyrir hvem mánuð ársins. Þau
bestu em ort í kringum minningar
ffá bemsku og æsku, en flokkur-
inn er í heild of veigalítill og
haminn til að ná sér á flug.
Japanskir menningar-
dagar á íslandi
Grafíksýning hjá ASÍ. Arkitektúrsýning
í Asmundarsal
Á morgun kl. 16 munu sendi-
herra Japans á Islandi og Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
opna sýningu á japanskri grafík í
Listasafni ASI við Grensásveg.
Sýningin er liður í Japönskum
menningardögum á íslandi, og
verður sama dag kl. 18 opnuð sýn-
ing á japönskum nútímaarkitektúr
í Ásmundarsal.
Sýningar þessar hljóta að
vekja forvitni áhugamanna, þar
sem Japanir þykja standa mjög
framarlega á báðum sviðum.
Japanir eiga sér langa hefð í
grafiklist allt frá því að japanska
tréristan hófst til vegs á 17. öld.
Edo-tímabilið í japanskri sögu,
sem stóð frá 1615-1868 einkennd-
ist af einangmn frá umheiminum
og áherslu á hefðbundna listsköp-
un. Á þessum tíma blómstraði
hefðbundin trérista með lands-
lagsmyndum, þjóðlífsmyndum og
myndum af grímuklæddum leik-
umm. Eftir 1868 féll hin hefð-
bundna listsköpun i ónáð fyrir
áhrif vestrænnar menningar. En á
fyrstu áratugum 20. aldar varð
endurreisn í japanskri menningu,
þar sem japönsk hefð blandaðist
vestrænum áhrifum með árangurs-
ríkum hætti. Síðari heimsstyijöld-
in markaði aftur þáttaskil í jap-
önsku menningarlífi, þar sem fall
heimsveldisins og kjamorku-
sprengjumar í Hiroshima og Nag-
ashaki kipptu fótunum undan öllu
Yayoi Kusama: Graskerið, silki-
þrykk frá 1986.
hefðbundnu verðmætamati. En
samfara hraðri endurreisn jap-
ansks efnahagslífs hafa orðið
miklar framfarir í japönsku menn-
ingarlífi, einkum á sviði iðnhönn-
unar og byggingarlistar. Sömu-
leiðis hefur hin gamla grafíkhefð
japana blómstrað á ný í frjósömu
samspili við nýjustu strauma vest-
rænnar myndlistar. Sýningin í
Listasafni ASÍ sýnir okkur úrval
verka eftir nokkra þekktustu graf-
íklistamenn Japana í dag. Þátttak-
endur em 20 og verkin 81. Grafik-
sýningunni lýkur 2. desember, en
arkitektúrsýningunni í Ásmundar-
sal lýkur 25. nóvember. -ólg.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
Haraldur Leví Bjarnason
Grettisgötu 84
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
19. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Blindrafélagið.
Jenný Lúðvfksdóttir
Þóra Hallgrímsdóttir Árnl Þór Árnason
Þórunn Haraldsdóttir Faddis Charies F. Faddis
Ingibjörg G. Haraldsdóttir Grétar H. Óskarsson
Hrannar G. Haraldsson Lára Kjartansdóttir
Edda Björnsdóttir Haildór Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Eftir hann em þrír kaflar sem
allir gefa svipaða tilfinningu. Það
er eins og skáldið segi: Eg ætla
ekki að reyna að frelsa heiminn
eða setja þér tíu boðorð lesandi
minn, leyfðu mér bara að ganga
með þér og benda þér á eitt og
annað sem gefiir hvunndeginum
gildi... Til þess að komast nær
okkur notar Sigurður myndmál úr
daglega lifinu sem ofl hittir beint
í mark. Hver man ekki eftir að
hafa andað að sér lykt og rembst
við að muna á hvað hún minnir
mann? Kannski glóðarsteikta
skán fyrir fjórtán jólum, eins og
stungið er upp á i ljóðinu Gull-
verðlaun, eða lag leikið á klarin-
ett. llmvatnsrannsóknir em ekki
keppnisíþrótt á ólympíuleikum -
„Samt fær hjartað / alltaf gull-
verðlaunin“.
„Lífið var ffamundan / óend-
anlegt úrval möguleika / eins og
bæklingur póstverslunar“ segir í
Rödd á spítala. Þar er lifið líka
„Hlaðið sjaldgæfri spennu / og
mýkt / eins og tár fegurðardrottn-
ingar á sigurstund". Jórtrandi úlf-
aldar em hofmóðugir á svip eins
og knattspymudómarar (Jóla-
nótt), og spurt er hvers vegna nú
séu bara ungar stúlkur í öskunni:
„Hvert em þeir famir / öskukall-
amir?“ (I öskunni)
Næstsíðasti kaflinn Sveijla
endar á frábæm samnefhdu djass-
ljóði í lausu máli og drepfyndnum
verklegum æfingum í atburða-
skáldskap. Eins og í beinu fram-
haldi fylla lausamálsljóð allan
síðasta kaflann, Salt. Þau em ekki
eftir forskrift eins og ljóðin í síð-
asta hluta Ljóð námu menn
SIUA
AÐALSTEINSDÓTTIR
heldur geyma þau í sér vott af
djasssveiflu í sögum sínum og
heimspekilegum hugleiðingum,
fyndnum, alvarlegum, óvæntum.
Þama era mörg einkennilega ynd-
isleg ljóð, látlaus og innileg og
koma alveg upp að manni. Ekki
em til mörg fallegri ástarljóð til
bókmennta en Ávextir jarðarinnar
sem segir ffá því þegar sígaunar
rændu Sigurð öllu fémætu en
skildu þó effir það dýrmætasta,
bókina sem hann var nýbúinn að
kaupa. Hámarki nær svo bókin í
síðasta ljóðinu, Morgunstund,
sem slær kynjabirtu yfir höfiið-
borgina og lyftir henni upp í
ódauðleikann.
...á þessari töfrastund lýsist
hægt og rólega miðhlutinn á mós-
aikmynd Gerðar Helgadóttur á
Tollhúsinu við Tryggvagötu.
Lýsist eins og risaljóskastara
sé beint að miðju verksins. í raun
er eins og ljósið komi innan ffá;
eins og kjami verksins verði sjálf-
lýsandi.
Eg segi ekki ffá öðm sem ger-
ist á galdrastund morgunsins,
enda mynduð þið ekki trúa mér,
en þegar svona hefur verið ort um
borg er ástæðulaust að skammast
sín fyrir að búa þar.
Ljóð námu völd er jafnbetri
bók en fyrri bindin í flokknum þó
að kannski risi hún hvergi jafhhátt
og tindar Ljóðanámumanna. Eins
og aðrar ljóðabækur Sigurðar
verður hún ómissandi félagi í
amstri daganna.
SA
r
íslenska
hljómsveitin
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráð
Fyrstu tónleikar starfsársins
hjá Islensku hljómsveitinni verða
í Langholtskirkju sunnudag 18.
nóv. kl. 17 undir heitinu „Söngur
og höipusláttur". Stjómandi er
Öm Oskarsson. Flutt verður
Frönsk svíta fyrir blásara, slag-
verk og harpsikord eftir Francis
Poulenc, byggð á 16. aldar döns-
um eftir Claude Gervaise. Síðan
koma „Sumamætur“, op. 7 fyrir
sópran og hljómsveit eftir Hector
Berlioz, ffa 1840, ljóðin eftir
Theophile Gautier, sem var eitt
höfuðskáld Frakka á sinni tíð.
Einsöngvari verður bandaríska
sópransöngkonan Lynn Helding.
Þá verður fluttur hörpukonsert
eftir Misti Þorkelsdóttur og fer
Elisabet Waage með einleikshlut-
verkið. Verkið var ffumflutt á
tónleikum „Ung Nordisk Musik“
í Finnlandi í haust. Loks er „Di-
vertissement“ eftir Jacques Ibert
frá 1930, samið við gamanleikinn
„ítalskan stráhatt“ eftir Labiche.
Leikrit Bjöms Th.
I anddyri Borgarleikhússins
verður á laugardaginn kl. 15 leik-
lesið leikrit Bjöms Th. Bjöms-
sonar „Konráð í Kreischa“, stutt
kómedía um Konráð Gíslason
Fjölnismann. Þijá næstu laugar-
daga verða leiklesin leikrit þama,
á eftir verki Bjöms Th. koma rit-
smiðar Jóns Hjartarsonar og Jóns
Ámasonar. Leikarar LR flytja.
NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 19
Fundur í Lárusarhúsi mánudagskvöldið 19. nóvember kl. 20.30.
Fundarefni: Dagskrá bæjarstjórnarfundar 20. nóvember.
Áhugafólk um bæjarmálefni hvatt til að mæta.
Stlórnin
Laugardagsfundur A.B.R.
17.október kl. 10f.h.
í Risinu Hverfisgötu 105
Málefni unglinga
Laugardaginn 17. nóvember n.k. kl. 10 f.h. verður haldinn
opinn fundur að Hverfisgötu 105. Á fundinum verður rætt
um hvert stefnir í málefnum unglinga I Reykjavík í dag og
hvaða leiðir séu til úrbóta. Myndi t.d. unglingahús ( mið-
bænum verða til bóta?
Snjólaug Stefánsdóttir uppeldisfræðingur opnar umræð-
una og situr fyrir svörum. Það gera líka nemamir Sóley
Tómasdóttirog Bryndis Ragnarsdóttir.
Félagar! Fjölmennið á fundinn og takið þátt í umræðum.
Alþýðubandalagið f Reykjavfk
Æskulýðsfylkingfn f Reykjavfk
Forfallakennarar
Forfallakennara vantar í Foldaskóla, Langholtsskóla og Öldusels-
skóla í Reykjavík. Meðal kennslugreina eru: íslenska, danska,
saga, stærðfræði, líffræði og eðlisfræði I eldri bekkjum. Upplýs-
ingar veittar í skólunum og á fræðsluskrifstofunni.
Fræðslustjórinn í Reykjavík
Austurstræti 14
Sími621550