Þjóðviljinn - 24.11.1990, Qupperneq 15
KVIKMYNDIR
I DAG
Laugarásbíó
Vetrardagskráin
Ég gerði þá skyssu um dag-
inn að segja að nýjasta mynd
Philips Kaufmans, Henry &
June, yrði sýnd í Háskólabíói á
árinu. Það er bull og vitleysa,
Henry & June verður frumsýnd í
Laugarásbíói í byijun desember
og ég bið ráðamenn Laugarás-
bíós afsökunar á þessum mis-
skilningi.
* Henry & June er, eins og
áður hefur verið sagt, erótísk
mynd um kynni Anais Nin við
rithöfundinn Henry Miller og
konu hans. Aðalleikaramir eru
Fred Ward, Uma Thurman og
Maria de Medeiros. Það má geta
þess til gamans að Kanamir
bönnuðu þessa mynd innan 17,
en. þegar íslenska siðgæðis-
nefndin sá hana þá kom hún sér
saman um 14 ára aldurstakmark.
* Jólamynd Laugarásbiós
verður að þessu sinni ameríska
ljölskyldugamanmyndin Pro-
blem Child eða Vandræðabam.
Aðalhlutverkin eru í höndum
John Ritters, Amy Yasbeck og
Jack Warden og Dennis Dugan
leikstýrir. í Problem Child taka
bamlaus hjón að sér munaðar-
lausan strák sem er ekki allur þar
sem hann er séður!
* Pump up the volume er ný
unglingamynd sem verður frum-
sýnd um áramótin. Leikstjóri
hennar, Alan Moyle (Times
Square), hefur getið sér gott orð
fyrir að gera öðmvísi myndir
fýrir þennan aldurshóp, sem sagt
annað og meira en kærasta/u
vandamál og kúk og piss brand-
ara. Það er Christian Slater (Tuc-
ker, Name of the Rose) sem leik-
ur aðalhlutverkið, strák sem lifir
tvöföldu lífi. Annarsvegar er
hann Mark, feiminn skólastrák-
ur, og hinsvegar Hard Harry,
vinsæll útvarpsmaður.
* Leikstjórinn Ivan Reitman
og leikarinn Amold Schwartze-
negger leiddu saman hesta sína í
hinni geysivinsælu mynd Twins.
Þeir em nú búnir að gera nýja
mynd, Kindergarten Cop eða
leikskólalöggan, þar sem
Schwartzenegger leikur löggu
Úr kvikmyndinni Henry & June
sem verður að gerast fóstra til að
næla í eiturlyfjasala. Aðrir leik-
arar em Richard Tyson, Pamela
Reed, Penelope Ann Miller og
hellingur af krökkum.
* Darkman er ný mynd ffá
leikstjóranum Sam Raimi (Evil
Dead I og II). Liam Neeson (The
good mother) leikur vísinda-
mann sem er að hefna sín á
bijáluðum krimmum sem
kveiktu í honum. Þetta ku vera
sambland af gaman- og hryll-
ingsmynd.
* Robert Redford sá gamli
sjarmur, hefúr ekki sést á hvíta
tjaldinu síðan hann lék í Out of
Affica undir stjóm Sidney Poll-
acks fyrir fimm ámm. Nú hefur
Pollack dregið hann út úr skápn-
um aftur og dustað af honum
rykið fyrir nýjustu mynd sína
Havana. Það er hin íturvaxna
Lena Olin sem leikur á móti
Redford og myndin gerist sjö
síðustu dagana sem Batista var
einræðisherra á Kúbu.
* Það verður líka erótík eflir
jól í Laugarásbíói. White Palace
skartar aðalleikumnum Susan
Saradon (Bull Durham), sem
leikur afgreiðslukonu á ham-
borgarastað, og James Spader
(Sex, lies & videotapes), sem
leikur auglýsingabransauppa.
Þau dragast hvort að öðm og
eiga i ástríðufúllu sambandi um
stund.
Eins og sjá má ættu allir að
geta fengið nokkuð fyrir snúð
sinn í Laugarásbíói í vetur.
Sif
Hermann í tilvistarkreppu
BIOBORGIN
Óvinir - ástarsaga (Enemi-
es a love story)
Leikstjóri: Paul Mazursky
Handrit: Paul Mazursky &
Roger L. Simon eftir skáldsögu
Isaac Bashevis Singer
Aðalleikarar: Ron Silver,
Anjelica Huston, Lena Olin,
Margaret Sophie Stein, Alan
King
Nýjasta mynd hins athyglis-
verða leikstjóra Mazurskys
(Down and out in Beverly Hills)
Ovinir - ástarsaga er gerð eftir
skáldsögu I.B. Singer. Hann er
pólskur gyðingur sem flutti til
Bandarikj- anna 1935. Hann
skrifaði ájiddísku en varþýddur
á ensku og vann Nóbelinn 1978.
Óvinir - ástarsaga er ekki ein af
frægari bókum hans en greini-
lega alveg kjörin til kvikmynd-
unar.
Aðalpersóna myndarinnar er
pólskur gyðingur, Herman (Ron
Silver), sem lifir seinni heims-
styrjöldina af í felum uppi á
hlöðulofti. Hann giftist pólsku
bóndakonunni Yadwigu (Marg-
aret Sophie Stein) sem faldi
hann og tekur hana með sér til
Ameríku eftir stríð. Hún er ffek-
ar einföld og lítur ákaflega upp
til mannsins síns sem er lærðari
en hún. En Hermanni nægirekki
þetta samband, enda er hann
ekki ástfanginn af konunni sinni
heldur Möshu (Lena Olin, sú
með kúluhatttinn í Óbærilegum
léttleika tilvemnnar), rússnesk-
um gyðingi sem lifði af útrýmin-
garbúðir nasista. Þau elskast
villt, því að aðeins þannig geta
þau gleymt hörmungum fortíð-
arin- nar.
Herman skiptir sér bróður-
lega á milli kvennanna tveggja í
lífi sínu þangað til uppmnaleg
eiginkona hans, Tamara (Anjel-
ica Huston), birtist. Allir héldu
að hún hefði dáið í fjöldaaftöku í
útrýmingarbúðum. Um stund
gengur hann á milli þeirra allra,
en aðeins Tamara er nógu sterk
til að halda sér í einhverri til-
finn- ingalegri fjarlægð frá hon-
um. Hinar tvær geta ekki lifað án
hans og hann ekki án þeirra.
Herman getur ekki gert upp hug
sinn, hann vill ekki særa neinn,
en með ístöðuleysi sínu særir
hann þær allar.
Óvinir - ástarsaga er farsi,
harmleikur, rómantík og erótík.
Og hún skiptir svo snöggt á milli
þessara þátta að á einhvem hátt
tekst henni alltaf að koma áhorf-
anda á óvart. Persónumar hafa
komið svo nálægt dauðanum að
þær geta ekki lifað heilu lífi.
Sjaldan eða aldrei hefúr tek-
ist jafn vel að sýna hversu erfitt
eða jafnvel voníaust það er fyrir
fólk sem hefúr lifað af miklar
hörmungar að aðlaga sig venju-
legu lífi. Það hefur verið reynt
oft áður, t.d. í Sophies Choice,
en það sem gerir gæfúmuninn
hér er fjölbreytni persónanna.
Ólíkar aðferðir þeirra til að
kljást við óhugnanlega fortíð
gerir myndina óvenju áhrifaríka.
Handritið er margþætt og
spennandi og Mazursky fer um
það varfæmum höndum. Hann
fer ekki þunglamalega ofan í til-
vistarkreppu Hermans með
löngum samtölum eða þungri
dramatík. Leikaramir segja ffek-
ar minna en ástæða er til en leika
því meira með Iátbragði og
augnatillitum.
Ef aðalleikarinn hefði. verið
aðeins lélegri hcfði Óvinir - ást
arsaga verið flop. En Ron Silver
fer ótrúlega vel með erfitt hlut-
verk hins ráðvillta fjölkvæni-
smanns. Og konumar þijár em
jafn ólikar og þær em góðar
leikkonur. Huston klæðir sorg-
ina í kaldhæðni, Olin hleypir
henni út í ástríðuna en Stein
bregst við eins og hrætt dýr ef
hún þarf að takast á við erfið-
leika.
Ég held að Singer hljóti að
hafa byggt þessa sögu á raun-
verulegum persónum. Því að
einmitt svona er raunvemleik-
inn; rakalaus, fyndinn og átak-
anlegur.
Sif
ÞJOÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Fer fram sakamálsrannsókn út
af sölu Alþýðubrauðgerðarinn-
ar? Eða sefur réttvlsin svo fast í
faðmi félagsmálaráðherra að
slík stórhneyksli megni ekki að
vekja hana? Það er vel hægt að
lækka kolin niður (rúmar 90
krónur. Og án taps fyrir kola-
kaupmenn. Grfski herinn heldur
áfram sigursælli sókn á norður-
og miðvlgstöðvunum. Hinn evr-
ópski hluti Tyrklands lýstur (
hemaðarástand. Rúmenía
gengur (þríveldabandalagiö.
Sovétstjórnin mótmælir falsfrétt-
um þýzkra blaða.
24. nóvember
laugardagur. 328. dagur ársins.
5. vika vetrar byrjar. Sólarupp-
rás í Reykjavfk kl. 10.24 - sólar-
lag kl. 16.04.
Viðburðir
Uppreisnin I Ungverjalandi bæld
niður af sovéskum hersveitum
árið 1956.
DAGBOK
APOTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 23. til 29. október er I
Árbæjar Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frídögum). Síðarnefnda
apótekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliöa hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavík.................* 1 11 66
Kópavogur.................« 4 12 00
Seltjamames................* 1 84 55
Hafnarfjörður.............* 5 11 66
Garðabær..................« 5 11 66
Akureyri................» 2 32 22
SJökkviið og sjúkiabðar
Reykjavík.................« 1 11 00
Kópavogur.................* 1 11 00
Seltjamames...............« 1 11 00
Hafnarflörður.............« 5 11 00
Garðabær..................* 5 11 00
Akureyri...................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes og Kópavog er f Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 tll 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
sfmaráöleggingar og tímapantanir I
« 21230. Upplýsingar um lækna-og
lyfjaþjónustu eru gefnar I símsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspitallnn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít-
alans er opin allan sólarhringinn,
tt 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
tt 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
tt 656066, upplýsingar um vaktlækni
tr 51100.
Akureyrí: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni, t» 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, tt 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
tt 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
tt 11966. ^
SJUKRAHUS
Heimsóknaríimar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spltalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-
tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimili Reykjavikur v/Eiríksgötu: Al-
mennurtími kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatlmi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspltal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefsspitali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fýrir unglinga, Tjarnargötu 35,
TT 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Simsvari á öðrum
tímum. tt 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráögjöf f sálfræði-
legum efnum,« 91-687075.
Lögfræöiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I sfma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga
frákl. 8 til 17, «91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra í Skóg-
artiílð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra I « 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: ® 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars slmsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aöstoð viö konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðiö
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, slmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
sfmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspeilsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stígamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráögjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
t» 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
ti 652936.
GENGIÐ
12. október 1990 Sala
Bandarlkjadollar...........54,99000
Sterlingspund............108,60500
Kanadadollar..............47,97400
Dönsk króna................9,50560
Norsk króna................9,35050
Sænsk króna................9,78910
Finnskt mark..............15,28990
Franskurfranki.............10,82000
Belglskurfranki........... 1,75970
Svissneskur franki........43,06190
Hollenskt gyllini.........32,13820
Vesturþýskt mark...........36,22530
(tölsk llra................0,04834
Austum'skur sch.............5,15100
Portúgalskur escudo....... 0,41260
Spánskur peseti............0,57590
Japanskt jen...............0,42696
KROSSGATA
œ
7
10
ffl
11
18
Lárétt: 1 samtals 4
súg 5 strit 7 krukka 9
guöir 12 hella 14 beisk-
ur 15 hlýju 16 æsir 19
poka 20 áfengi 21
skaut
Lóörétt: 2 fugl 3 leikur
4 ódæði 5 eyði 7 ör-
ugglega 8 hræöslu 10
inna 11 valsaði 13 tré
17 gerast 18 umdæmi
Lausn á sföustu
krossgátu
Lárétt: 1 árás 4 ergi 6
vél 7 örvi 9 dóms 12
eltir 14 ger 15 ein 16
kafli 19 laug 20 áöur
21 ristu
Lóörétt: 2 rýr 3 svil 4
eldi 5 góm 7 öngull 8
verkur 10 óreiðu 11
sindri 13 töf 17 agi 18
lát
Laugardagur 24. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15