Þjóðviljinn - 15.12.1990, Síða 2
<5 1 • »-vvm
virr.n
FRETTIR
Þorskafli
Gatslitið kvótakerfi
Fiskifélagið: Þorskafli flotans stefnir í að vera 60-65 þúsund tonn umfram það sem ákveðið var
að hann yrði í upphafi ársins, eða 320-325 þúsund tonn
Það er alveg Ijóst að þorsk-
aflinn verður mun meiri í
ár en leyfilegt var að veiða sam-
kvæmt þvi sem ákveðið var í
reglugerð sjávarútvegsins í
byrjun þessa fiskveiðiárs. Það
stafar m. a. af ýmsum tilfærsl-
um og reglum sem giltu varð-
andi sóknarmarksskipin og
óvissu með afla smábáta,“ segir
Ingólfur Arnarson hjá Fiskifé-
lagi íslands.
Samkvæmt reglugerð sjávar-
útvegsráðuneytisins um heildar-
afla þorsks á þessu ári var leyfi-
legt að veiða 260 þúsund tonn
miðað við óslægðan fisk með
haus. Að mati Fiskifélagsins virð-
ist allt stefna í að ársaflinn af
þorski verði 320-325 þúsund
tonn, miðað við óslægðan þorsk
með haus sem er því 60-65 þús-
und tonnum meiri en upphaflega
var gert ráð fyrir í upphafi ársins.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélagsins um þorskaflann
fyrstu ellefú mánuði ársins höfðu
togarar aflað rúmlega 140 þúsund
tonn, bátaflotinn rúm 113 þúsund
tonn og smábátar 42 þúsund tonn
sem gera samtals rúm 295 þúsund
tonn. Enn sem komið er liggur
ekki fyrir ffekari sundurliðun á
afla einstakra skipagerða og því
er ekki nákvæmlega vitað hvað
t.d. frystitogarar hafa veitt af
þorski á árinu, en í fyrra var
þorskafli þeirra 35.285 þúsund
tonn.
Hinsvegar hafa ffystitogarar
þá sérstöðu í flotanum að þeirra
afli er miðaður við slægðan þorsk
sem síðan er umreiknaður yfir í
óslægðan hjá Fiskifélaginu sam-
kvæmt ákveðnum umreiknistöl-
um og ákveðnum nýtingartölum
sem notaðar eru fyrir hveija fisk-
tegund. Þá er ekki tekið tillit til
meintrar yfirvigtar hjá þeim sem
dæmi eru um að getur verið um-
talsverð framhjá kvóta, þó svo að
sjávarútvegsráðuneytið vilji ekki
kannast við það og ber fyrir sig
niðurstöðum úr sýnum sem tekin
voru af þorskflakapakkningum í
desember 1988 til mars 1989 frá
sex frystitogurum af tuttugu og
þremur. Yfirlýsing ráðuneytisins
eru sérstaklega athyglisverð fyrir
þá sök að hún reynir að ómerkja
þau dæmi um yfirvigt sem er að
finna í skjölum Veiðieftirlitsins
og hvað sýnatakan er gerð á stuttu
tímabili, eða aðeins fjóra mánuði
og hvergi getið um að það hafi
verið gert fyrr eða síðar, að und-
anskildum nokkrum könnunum
sem Veiðieftirlitið gerði á vigtun
afla þeirra í vor. En eins og kunn-
ugt er hefur sjófrysting vaxið
hröðum skrefúm frá árinu 1982
og til þessa dags.
Þá vekur það ekki síður at-
hygli að svo til engar víðtækar
kannanir hafa verið gerðar á vigt-
un á heilfiystum fiski. Það er því
ekki að undra þó seint sé, að ráðu-
neytið ætli sér að reyna að skrúfa
fyrir þennan kvótaleka með nýj-
um vigtunarreglum eftir áramót-
in.
Að hinu leytinu er það einnig
aðfinnsluvért að það skuli ekki
vera fyrir hendi hlutlaus stofnun
sem fjallar um kvótann og þá sem
reyna að svindla á honum, nema
þær sem er stjómað af pólitísku
fTamkvæmdavaldi. -grh
Ólafsförður
Jarðgöngin f
notkun
Á morgun, sunnudag, klukkan
14 verða jarðgöngin í gegnum Ól-
afsfjarðarmúla opnuð fyrir al-
mennri umferð en formleg vígsla
þeirra mun þó bíða til vorsins.
Byijað var á gerð jarðganganna
haustið 1988 en þau eru rúmlega þrir
kílómetrar að lengd. Þó svo að grænt
ljós sé gefið á umferð um göngin á
eftir að leggja efra lagið af malbiki á
veginn og eins á eftir að setja upp
hurðir beggja vegna við þau.
-grh
Fimm ára afmæli Rauðakrosshússins var I gær, og var velunnurum og samstarfsaðilum RKÍ boðið til afmælisfagnaðar f húsið við Tjamargötu. Guð-
jón Magnússon, formaður RK(, hélt erindi við það tækifæri. Rauðakrosshúsið var opnað 14. desember 1985, og er megintilgangur starfsemi þess
að koma til móts við þarfir barna og unglinga i neyð. Aðstoð stendur þeim til boða allan sólarhringinn. Húsið veitir þrenns konar þjónustu; athvarf
fyrir ungmenni undir 18 ára aldri, símaþjónustu sem er öllum opin, og ráðgjöf. Mynd: Kristinn.
Fjárlög
Fimm til liðs við Kvennalista
Breytingatillögur stjórnarliða samþykktar, aðrar felldar eða dregnar til baka
Allar breytingatillögur fjár-
veitinganefndar við 2. um-
ræðu fjárlaga í Sameinuðu
þingi í gær voru samþykktar.
Það þýðir 890 miljón kr. hækk-
un á fjárlögum, þá er fjárlaga-
hallinn kominn í 4,59 miljónir.
Allar tillögur stjómarand-
stöðu vom felldar ellegar dregnar
til baka og verða kynntar aftur við
3. umræðu sem fer væntanlega
fram á fimmtudaginn.
Kvennalistakonur bám fram
sex tillögur, meðal annarra tillögu
um að Byggðastofnun fái sérstakt
50 miljón kr. framlag til atvinnu-
þróunar fyrir konur á landsbyggð-
inni. Venjulega greiða stjómarlið-
ar atkvæði sem ein heild, en við
þessa atkvæðagreiðslu sem fór
fram með nafnakalli greiddi Lára
Bókmenntir
Eyðilandið nemur land
Apríl er grimmastur mánaða, græðir
grös upp úr dauðri moldinni, hrœrir
girndum saman við minningar, glœðir
vorregni visnaðar rætur.
Þannig hefst þýðing Sverris
Hólmarssonar á Ijóðabálk-
inum Eyðilandinu eftir T. S.
Eliot. Ljóðabálkurinn heitir á
frummálinu „The Waste Land“
og hefur jafnan verið talinn
hafa haft mikil áhrif á ísiensku
atómskáldin.
„Ljóðið hefúr vafalaust haff
áhrif á íslenskan skáldskap og þá
á atómskáldin. Þau áhrif hafa þó
verið mjög óbein. Ljóðið er þess
eðlis, að um leið og það opnar ný
svið setur það punkt við þau. Það
er ekki hægt að halda áfram á
sömu braut,“ sagði Sverrir í sam-
tali við Þjóðviljann í gær, en hann
er búsettur í Danmörku.
Sverrir sagði að það væri
langt um liðið síðan áhugi hans á
að þýða ljóðabálkinn hefði vakn-
að, en undanfarin þijú ár hefði
hann fengist við þetta af alvöru.
„Það var gasalegt puð að
glíma við þessa þýðingu, en við
svona verk situr maður ekki
stanslaust," sagði Sverrir.
Sverrir er ekki fyrsti Islend-
ingurinn sem glímir við að þýða
Eyðilandið. Steinn Steinarr lét
Hannes Sigfússon fá ljóðabálkinn
um 1950 og sagði honum að þýða
hann. Hannes reyndi við ljóðið en
gafst upp. í endunninningum
hans birtast stuttir kaflar af þýð-
ingunni.
Þá þýddi Magnús Ásgeirsson
15 til 20 Iínur af upphafsljóðinu
og birtust þær í síðustu ljóðaþýð-
ingum hans. Egill Helgason þýddi
svo allan bálkinn þegar hann var í
Menntaskóla og birtist sú þýðing í
skólablaði MR.
„Eg hef forðast þessar fyrri
þýðingar einsog heitan eldinn,“
sagði Sverrir þegar hann var
spurður hvort hann hefði stuðst
við þær.
-Sáf
V. Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri
ASÍ sem er varamaður Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, atkvæði
með tillögu Kvennalistans. Vegna
þessa fór Skúli Alexandersson,
Abl., í pontu og gerði þannig
grein fyrir atkvæði sínu að fyrst
Lára sem varamaður formanns
Alþýðuflokksins bryti hefðir við
atkvæðagreiðsluna sæi hann sér
fært að gera slíkt hið sama. Hann
greiddi því atkvæði með tillög-
unni. Hið sama gerðu Eyjólfúr
Konráð Jónsson, Sjfl., Halldór
Blöndal, Sjfl. og Stefán Valgeirs-
son, SJF. Tillagan var annars felld
með 34 atkvæðum gegn 11, sex
sátu hjá.
Einnig vakti athygli að Guð-
mundur Ágústsson formaður
þingflokks Borgaraflokksins
flutti breytingartillögu þess efnis
að Umferðarráð fengi 3,5 miljón-
ir kr. á fjárlögum, en ekki eina
miljón einsog gert er ráð fyrir. En
sem kunnugt er er Guðmundur
hættur stuðningi við ríkisstjómina
nema í góðum málum. Hann dró
tillögu sína til baka og mun leggja
hana fram við 3. umræðu.
-gpm
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. desember 1990