Þjóðviljinn - 20.12.1990, Blaðsíða 12
þiömnuiNN
Fimmtudagur 20. desember 1990 241. tölublað 55. árgangur
... alla daga
ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - sími 29577
■ SPURNINGIN ■
Litlu iólin
Hvað ætlarðu að hafa í jóla-
matinn?
Margrét Gunnarsdóttir
húsmóðir m.m.:
Ég ætla að hafa hamborgar-
hrygg með rauðkáli og öllu sem
tilheyrir svo sem salati og brún-
uðum kartöflum. Það er bæði
Ijúffengt og gott.
Elsa Aðalsteinsdóttir
verslunarstjóri:
Hjá mér verður Bayonneskinka.
I forrétt verður lax og heimatil-
búinn ís í eftirmat.
Gústav Sófusson
kaupmaður:
Ég ætla að hafa hamborgar-
hrygg og þetta venjulega með.
Þannig er það yfirleitt um jólin
hjá mér.
„Göngum viö f kringum"
Kíkt inn á
jólatrésskemmtun í
Laugarnesskóla
Amiðju gólfi stendur hátt og fagurlega
skreytt jólatré. Hringinn í kringum tréð
standa prúðbúnir nemendur Laugarnesskóla
sem í gær tóku forskot á sælu jólanna og héldu
jólatrésskemmtun.
Þegar blaðamann og myndasmið bar að garði
var skólastjórinn, Jón Freyr Þórarinsson, að kalla
bekkina einn af öðrum að trénu. Næst trénu voru
fyrstu bekkimir en eldri krakkamir stóðu yst.
Þegar allir vom loks komnir upphófst söngurinn.
Fyrst i stað vom krakkamir dálítið óömggir,
textamir vöfðust fyrir sumum enda heilt ár síðan
þau sunga jólalögin. Smám saman hækkuðu þau
raddimir, textamir rifjuðust upp og þegar skóla-
stjórinn tilkynnti að tekið skyldi lagið; Nú skal
segja, tóku allir hressilega undir.
Eftir að krakkamir höfðu sungið Bjart er yfir
Betlehem, Skreytum hús með greinum grænum,
Bráðum koma blessuð jólin og öll hin hófust
skemmtiatriði. Meðal þeirra var leikritið um
kóngsdótturina sem enginn gat gert orðlausa. Var
okkur tjáð að það væri sett upp í Laugamesskóla
um hver einustu jól.
Áður en sýningin hófst fengum við tækifæri
til að hitta leikarana og Þómnni Pálsdóttur leik-
stjóra.
Leikaramir biðu sminkaðir í búningum uppi i
tónfræðistofunni eftir að söngnum lyki niðri í sal
og hersingin kæmi upp til að sjá leikritið um
kóngsdótturina þóttafúllu.
Þegar við yfirgáfum skólann var enn verið að
dansa kringum jólatréð og syngja jólalög og
sálma. .
BE
i 'v> '
1
|v\ |«V !
fv* mr- ■' >',.1
p <.r»x l-yiV' J
ii á? n J4
E
b P'í’ il
1
ýrí. JT ýM
l ' \y
6 ‘-J. Áj
„Göngum við I kringum einiberjamnn"
sungu nemendur Laugarnesskóla á litlu
jólunum f skólanum I gær. Allur skólinn
var skreyttur myndum af jólasveinum,
englum, kertum og fleiru sem við tengj-
um jólahátíðinni. Mynd: Jim Smart.
Leikararnir: Þær Rúna og Stefanía standa
aftast. Hólmfriður leikur kóngsdótturina og
Ebba föður hennar konunginn. Biðlarnir
em þeir Biggi, Sigurjón og Kolli. ( miðj-
unni, höfuðfatslaus, situr Helgi sviðs- og
Ijósamaður. Á myndina vantar leikkonuna
Sunnu, en hún var að dansa kringum tréð
nokkmm hæðum neðar.
■■■■■■■■■■■Bl
Björn Jóhannsson
verkstjóri:
Það verður aligæs hjá mér í
jólamatinn, með brúnuðum
kartöflum og gljáðum gulrótum.
Þetta er alltaf í matinn um jólin.
RAFRÚN H.F.
Smiöjuvegi 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Sími641012