Þjóðviljinn - 22.12.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 22.12.1990, Blaðsíða 1
Laugardagur 22. desember 1990 — 243. tölublað 55. árgangur Hátíðarnar Hin hliðin á Vöruskiptajöfnuður Hagstæður um 3,6 miljarða Verðmœti vöruútflutnings 5% meira en á sama tíma ifyrra. Útflutn- ingur kísiljárns þriðjungi minni Fyrstu ellefu mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyr- ir 84,1 miljarð króna en inn fyr- ir 80,5 miljarða króna fob. Vöruskiptajöfnuðurinn á þess- um tíma var því hagstæður um 3,6 miljarða króna, en á sama tíma í fyrra var hann hagstæð- ur um 7,4 miljarða króna á sama gengi. Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog og á þann mæli- kvarða er verð erlends gjaldeyris talið vera 12,3% hærra janúar- nóvember 1990 en á sama tíma í fyrra. í síðasta mánuði var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 800 miljónir króna en þá voru fluttar út vörur fyrir nær 7 mil- jarða og inn fyrir tæpa 7,8 mil- jarða fob. í nóvember í fyrra var hann hagstæður um röskar 200 miljónir króna. Fyrstu ellefu mánuðina á ár- inu var verðmæti vöruútflutnings- ins 5% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafúrðir voru um 76% alls útflutningsins og voru um 12% meiri en á sama tíma í fyrra. Utflutningur á áli var 16% minni og útflutningur á kísil- jámi var 33% minni en í fyrra. Verðmæti vöruinnflutnings fob. fyrstu ellefú mánuðina var 10% meira en á sama tíma í fyrra. Verðmæti innfluttra flugvéla var nær tvöfalt meira en í fyrra og skipakaup vora fjórðungi minni nú en þá. Þá var verðmæti inn- flutnings til stóriðju 27% meira en í fyrra og verðmæti olíuinn- flutnings um 5% minna en á sama tíma í fyrra. -grh dagar til jóla Harpa Stefáns- dóttir, 7 ára, teiknaði þennan reffilega jólasvein. Klukkan 11 í dag kemur Gáttaþefúr í heimsókn á Þjóðminjasafnið. Á morg- un, Þorláksmessu, verður Ketkrókur þar á ferð á sama tíma og á mánudags- morgun, aðfangadag, kem- ur Kertasníkir. Gleðileg jól! L jólahaldinu Sigurveig Sigurðardóttir hjá heimsóknarþjónustu Rauða krossins: Margir sem finna til einstœðingsskapar. Einsemd þeirra sem eru einir verður aldrei tilfinnanlegri en yfir hátíðarnar, segir Jón Bjarman. Útigangsmenn í borginni komnir á hús fyrir hátíðarnar að er viðbúið að ærið marg- ir séu einstæðingar og ein- mana. Einsemd þessa fólks verður aldrei meiri en yfir jóla- hátíðina þegar aðrir dvelja í nánu samneyti við ættingja og vini, segir Sigurveig Sigurðar- dóttir, formaður heimsóknar- þjónustu Kvennadeildar Rauða krossins í Reykjavík, en á henn- ar vegum eru 20 sjálfboðaliðar sem heimsækja reglulega jafn marga einstæðinga í því skyni að rjúfa einsemd þeirra. Jón Bjarman sjúkrahúsprestur tekur undir það að einsemd þeirra sem era einmana verði aldrei til- finnanlegri en á stórhátíðum. -Á aðfangadagskvöld tekur kyrrðin og friðurinn við eftir allar þær miklu annir sem á undan hafa gengið. Menn era á þönum við að ljúka öllu af áður en hátíðin geng- ur í garð, koma gjöfúm til vina og kunningja og vitja leiða á .lvina. KSÍ ísraelsferð aflýst Utanríkisráðuneytið ráðlagði þeim að hœtta við ferðina Knattspyrnusamband Is- lands hefur ákveðið að hætta við að senda drengjalandsliðið í keppnisferð til Israels vegna ástandsins þar. Gústaf Bjömsson hjá KSI sagði að utanríkisráðuneytið hefði ráð- lagt þeim að hætta við ferðina vegna aukinnar spennu í landinu, en síðustu þtjú ár hefur knatt- spymulandsliðið skipað leikmönn- um 18 ára og eldri keppt þar ytra á þessum árstima. Þá vó það einnig þungt í þessari ákvörðun KSI að Svisslendingar, Þjóðverjar og Kýpurbúar ákváðu einnig að hætta við þátttöku. Hins- vegar munu Svíar senda lið þang- að. Gústaf sagði að þetta væri trú- lega í fyrsta skipti í sögu KSÍ sem það hætti við þátttöku í knatt- spymumóti vegna ótryggs innan- landsástands hjá mótshöldurum. -grh Það er næsta víst að kyrrðin verð- ur þrúgandi fyrir það fólk sem stendur utanveltu við jólaannim- ar, segir Jón. Sigurveig segir að skjólstæð- ingar heimsóknarþjónustunnar séu fyrst og fremst aldrað fólk sem býr eitt og hefúr lítið sem ekkert samneyti við ættingja. -Þetta fólk hefirr ýmist snúið sér sjálft til okkar eða okkur hefúr verið bent á það af heimilislækn- um þess og starfsfólki heilsu- gæslustöðvanna. -Einnig er til í dæminu að ættingjar eða böm hafi samband við okkur og við er- um beðin um að vera þessu fólki til stuðnings og huggunar. Þörfin er mikil fyrir slíka þjónustu og öragglega miklu meiri en við höfúm pata af og þá jafnvel ekkert síður fyrir margt yngra fólk. Við höfum ekki þorað að auglýsa þessa þjónustu af ótta við að geta ekki annað öllum þeim beiðnum sem til okkar kynnu að berast þar eð okkur vantar tilfinnanlega fleiri sjálf- boðaliða, segir Sigurveig. Hún segir að til tals hafi kom- ið innan Rauða krossins og fleiri mannúðarfélaga að þörf sé á að halda sameiginlega jólamáltíð fyrir það fólk sem er eitt á báti og þá sem eiga hvergi höfði sínu að halla, líkt og fangahjálpin Vemd hefur gert undanfarin ár fyrir sína skjólstæðinga. -Ég held mér sé óhætt að segja að það sé búið að finna flestum ef ekki öllum skjól yfir hátíðamar sem alla jafna eiga ekki í önnur hús að venda en fangageymslur lögreglunnar og Gistiheimilið í Þingholtsstræti, segir Ámi Kvaran, áfengismála- fúlltrái lögreglunnar í Reykjavík. Ámi segir að fyöldi þeirra ein- staklinga sem era á götunni sé breytilegur frá einum tíma til ann- ars. -Þetta era kannski á bilinu frá tíu til 20 manns sem þannig er ástatt fyrir. -Sem betur fer era fleiri úr- ræði fyrir hendi í dag heldur en var hér áður fyrr. Flestum þessum mönnum hefur verið komið fyrir í Hlaðgerðarkoti, Víðinesi, Gunn- arsholti og á Gistiheimilinu í Þingholtsstræti þar sem þeir munu dvelja í eins góðu yfirlæti og framast er unnt að bjóða þeim yfir hátíðamar, segir Ámi. -rk

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.