Þjóðviljinn - 22.12.1990, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.12.1990, Blaðsíða 9
oftar og stóð og horfði á mig, bara stóð og horfði á mig. Ég lék áfram og raulaði undir. Svo hætti ég að leika og syngja þetta orðlausa lag mitt. Hann leit opnum augum beint í opin augu mín og allt í einu sagði hann og orð hans voru vægðarlaus spuming: „Hvers vegna ertu alltaf að syngja um hana Kaðlínu? Sérðu svona mikið eftir henni?“ Ég leit stíft í augun á honum og reyndi að sjá inn á bak við augun. „Já“, sagði ég. Við horfðumst í augu um stund. Síðan fór ég að leika að nýju og sönglaði lágt undir, án orða. Eftir dijúga stund snérist drengurinn á hæli og gekk hratt eftir troðningn- um heim til sín. Þaðan af sögðum við fátt hvor við annan, en hann kom nokkrum sinnum til að horfa á mig leika. Brátt langaði mig ekki lengur til að sitja þama og leika á gítarinn minn og ég tók gítarinn og teppið mitt og ég fór. Ég réði mig í vinnu hjá olíu- félaginu á dælutumana norður í fló- anum mikla. Ég hef unnið þar siðan. Núna er ég í sumarfríi, en þegar ég er búinn að aka ykkur þessar leiðir, fer ég aftur norður til að ljúka ráðn- ingartíma mínum. Ég vil ekki ráða mig þar aftur. Ég get ekki unnið fyr- ir olíurisann meir, eftir að þeir strönduðu olíuskipinu í flóanum og milljónir lítra af eitraðri olíunni eyðilögðu strendumar og drápu þúsundir og aftur þúsundir fugla og annarra lifenda í þessum flóa. Ég get ekki unnið við það á háu kaupi að eyðileggja náttúruna og drepa lifið. Ég ætla að segja þeim það og svo hætti ég, og i haust fer ég i skóla. Og les bækur. Góðar bækur og vondar bækur. Allar bækur. En fyrst ætla ég að heimsækja föður minn og vera hjá honum, því hann er að deyja, hægt og bitandi er hann að deyja. Og ég ætla að vera hjá honum og tala við hann þangað til hann deyr. Ég á eftir að tala svo mikið við hann. Ég á eftir að segja svo mikið við hann, og ég á eftir að hlusta svo mikið á hann. Þegar drengurinn nágrannans á þessu sumri stóð þama fyrir neðan pallinn og horföi á mig og sagði þessi orð, þá skildi ég. Eg fann að hann horföi beint inn í kviku sálar minnar. Og hann las sál mína eins og hann læsi fyrirsagnir í blaði. í fyrsta sinn á ævinni skildi ég, að ég stóð opinn, og sérhver gat séð inn í sál mína og Iesið hug minn. Og létt- ir minn var mikill. Líf mitt fylltist friði. Það er þess vegna, sem ég er ekki hræddur við að mæta úlfinum í skóginum, og ekki heldur hræddur við að mæta loðbiminum í fjallinu, þó hann sé hættulegastur af öllu hættulegu. Ég liti í augu honum og hann sæi inn í sál mína og hann sæi ekkert til að óttast í sál minni. - Vinur minn Brjánn hló, leit snöggt á mig og aftur á langan bugðuveginn gegnum sólgleraugun, og hann haföi lokið sögu sinni. Hann ók áfram og ég sat kyrr í sæt- inu og ég gat ekki sagt neitt og ég sagði ekki neitt. Það var ekkert frek- ar að segja. Það sem þegar var sagt haföi fyllt þennan dag til kvölds. Og við ókum án orða fram daginn eftir vegunum um þessi háu fjöll lands- ins við Miklafljót. Bijánn stansaði oft til að halda sér vakandi og um kvöldið þegar við höfðum ekið fram með öllu Teslínvatni og komumst loks til Votsonbæjar, vom öldungar byggðarinnar búnir að bíða okkar stundum saman og famir heim. En feitlagna konan með svarta hárið og kringluleitt andlitið haföi haldið reykta laxinum köldum og elgskjöt- inu volgu og við borðuðum og gengum til svefns til að vakna að morgni og hitta öldungana á nýjum degi og snæða með þeim og segja sögur okkar og þiggja kveðjur þeirra. Þetta var sagan af Bijáni vini mínum, sem var manneskja, og af vinum mínum í gula vagninum, og af vegunum löngu sem liðast yfir fjöllin og fram dalina og eftir enda- lausum bökkum gliturvatnsins. Bamabækur Sagan af Haraldi jólasveini Brian Pilkington gefur út bamabók í ellefu löndum samtímis Afi gamli jólasveinn heitir ný bamabók eflir Brian Pilkington. Bókin kemur út í ellefú löndum samtímis að Islandi meðtöldu. Brian er best þekktur fyrir teikningar sínar sem prýtt hafa margar bamabækur undanfarin ár. Hver er afi gamli jólasveinn? - Hann heitir Haraldur og vinnur við það að leika jólasvein og draga að viðskiptavini fyrir stórverslun nokkra þegar líða fer að jólum. Hann er með sítt og fagurt, hvítt skegg og því tilvalinn í hlutverk- ið. Haraldur er í essinu sínu í jóla- sveinagervinu, og hann veit ekk- ert skemmtilegra en að draga að sér athygli fólks. En þvi miður er jólavertíðin stutt og sagan fjallar um það hvað Haraldur hefúr fýrir stafni þegar hann er ekki að leika jólasvein. Ekki er hlaupið að því fyrir Harald að finna vinnu og hann er óttalegur klaufi við allt annað en að leika jólasvein. Hætta böm ekki að trúa á jóla- sveina þegar þau kynnast Haraldi og komast að því að hann er bara platjóla- sveinn? - Nei, því að í sögunni er oft vitnað í alvörujóla- sveininn. Ég er með hug- myndir að fleiri sögum um Harald, og ein þeirra er sú Brian Pilkington skrifaði og mynd- skreytti bamabókina Afi gamli jólasveinn sem kemur út I ellefu löndum samtímis fyrir þessi jól. Mynd: Kristinn. Ein þeirra mörgu skemmtilegu mynda Bri- ans af hrakfallabálkinum Haraldi sem finna má I Sögunni af afa gamla jólasveini. að afi gamli hittir jólasveininn, eða Father Christmas eins og hann heitir í Bretlandi og Sánkta Kláus í Bandaríkjunum. Jóla- sveinninn sem ég tala um í sög- unni er óskyldur íslensku jóla- sveinunum. Ég held að illa gengi að selja þá utan íslands. Ég skrif- aði söguna á ensku og sendi hana til útgáfúfyrirtækis í Svíþjóð sem sér um þýðingu og samninga við útgáfúfyrirtæki um allan heim. Bækumar eru allar prentaðar í Danmörku nema ameríska útgáf- an. Hún er dálítið frábrugðin hin- um. Iðunn gefúr bókina út á Is- landi BE Með reglulegum sparnaði, hæstu vöxtum, skattafslætti og lánsrétti leggurðu Grunn O sem er sniðinn að þínum þörfum. Grunnur er húsnædisreikningur Landsbankans. Hann er bundinn i 3 til 10 ár og nýtur ávallt bestu ávöxtunarkjara sem bankinn býður á almennum innlánsreikningum sínum. Leggja þarí inn á Grunn eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Hámarksinnlegg á ári er nú rúm 360.000,- eða 90.000, - ársfjórðungslega. Þannig gefur til dæmis 360.000 króna innlegg 90.000 krónur í skattafslátt. Grunni fylgir sjalfkrafa lánsréttur að sparnaðar- tímanum loknum, en skilyrði er að lánið sé notað til húsnæðiskaupa eða endurbóta og viðhalds. Hámarkslán er nú 1,8 milljónir króna. Grunnur er þannig bæði góð sparnaðarieið fyrir þá sem hyggja á húsnæðiskaup eða byggingu og kjörinn Itfeyrissjóður fyrir sparifjáreigendur. Landsbanki Islands Banki allra landsmanna \

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.