Þjóðviljinn - 22.12.1990, Page 4
ÞJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Blikur á lofti
Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, sagði óvænt af sér embætti í fyrradag.
Sjónvarpið sýndi stutta mynd af honum í ræðustól á
fulltrúaþingi Sovétríkjanna, þar sem hann las þing-
heimi pistilinn og sagði að einræðis- og afturhald-
söfl væru að ná undirtökunum. Engum gat dulist að
ráðherranum var mjög brugðið. Raunar var fréttin
nokkuð sérkennileg, sagt var að ráðherrann hefði
gagniýnt Gorbatsjov harðlega, en ekki fengum við
að sjá eða heyra hann segja þau orð, heldur þvert
á móti.
Ástandið í Sovétríkjunum hefur farið hríðversn-
andi undanfarna mánuði og er nú svo komið að rík-
ið er farið að þiggja neyðarhjálp erlendis frá, enda
þótt almennt sé talið að í landinu séu nægar birgðir
matvæla. Gorbatsjov og Shevardnadze hafa, fyrir
okkur Vesturlandabúa, verið persónugervingar lýð-
ræðisumbóta heimafyrir og umskiptanna í sam-
skiptum Sovétríkjanna við umheiminn. Þjóðir Aust-
ur-Evrópu og Vesturlönd hafa haft allan ávinninginn
af umbótunum en innan Sovétríkjanna sjálfra stefn-
ir í upplausn, hugsanlegt valdarán og borgarastyrj-
öld.
Fréttir berast af því að hin opinbera matvæla-
dreifing sé í rúst, berist matvælasendingar til borg-
anna komist þær ekki í verslanir og ekki til neyt-
enda nema í gegn um svartan markað, þar sem
skipulögð glæpasamtök ráða lofum og lögum.
Það er skelfilegt til þess að hugsa að þróunin til
lýðræðis í þessu gríðarlega stóra ríki, skuli hafa
kallað fram í svo ríkum mæli það neikvæðasta sem
í manninum býr í stað þess að skapa skilyrði fyrir
risastökk Sovétþjóðanna inn í nýja og skapandi
framtíð, þar sem frelsi til orða og athafna er aflgjafi
framfara.
Við þessi skilyrði, og það er þekkt úr mannkyns-
sögunni, koma fram kröfur um að gripið verði til
ráða sem bindi enda á upplausnina og það er á
slíkum stundum sem herforingjar og afturhaldsöfl
sjá sér leik á borði. Tækifærið til að hrifsa völdin í
skjóli ákalls um lög og reglu freistar.
Afsögn Shevardnadze er til marks um að aftur-
haldið í Sovétríkjunum er í sókn innan valdakerfis-
ins en á hinn bóginn hljótum við að undrast ákvörð-
un ráðherrans og spyrja: er ástandið þá orðið svo
alvarlegt að flótti sé að bresta í nánasta samstarfs-
og stuðningslið Gorbatsjovs? Það er auðvelt að
skilja Gorbatsjov þegar hann lýsir ekki einasta von-
brigðum sínum heldur fordæmir afsögnina með
þeim orðum að það sé ábyrgðarleysi að hverfa af
vettvangi þegar mest á reynir.
Og það er enginn vafi að nú reynir á í Sovétríkj-
unum. Þjóðfélag, þar sem þegnarnir hafa upp til
hópa átt kost á sæmilegri menntun og atvinnu en
hafnar á skömmum tíma í því að þegnarnir ná ekki
að brauðfæða sig, jafnvel þótt þeir eigi peninga fyr-
ir mat, hlýtur að stefna hraðbyri að innri sprengingu.
Og svo varhugaverðar eru þær andstæður sem
geta sprottið fram við þær spennuþrungnu aðstæð-
ur sem nú ríkja í landinu, að aðstoðin að vestan, og
batnandi samskipti við Vesturlönd, eru eitt hat-
rammasta gagnrýnisefnið sem dynur á Gorbatsjov.
Andstæðingar hans leika á strengi þjóðernishyggju
og þjóðrembings, aðstoðin er talin niðurlægjandi.
Öflugir aðilar telja sáttastefnuna gagnvart Vestur-
löndum ábyrgðarlausa og stappi nærri landráðum.
Hvernig fer varðar ekki einasta íbúa Sovétríkj-
anna heldur heimsbyggðina alla. Sovétríkin eru
hvað sem öðru líður slíkur risi í samfélagi þjóðanna
að miklir atburðir austur þar snerta með einhverjum
hætti flestar þjóðir heimsins.
hágé.
Ásta Margrét
Sigurðardóttir,
5 ára
Ájólum
Avarp Samstarfshóps friðarsamtaka
Jólin eru í hugum okkar flestra
hátíð friðar og kyrrðar. Um þessi jói
geta friðarsinnar um allan heim
fagnað mikilvægum áfÖngum í af-
vopnunarmálum. Kjamorkuvopnin
sem stórveldin ákváðu fyrir aðeins
áratug að setja upp í Evrópu og ógn-
uðu fólki í austri og vestri heyra nú
sögunni til. Þeir múrar sem margir
töldu ókleifa eru hmndir, óvina-
ímyndir gufaðar upp og herir stór-
veldanna em nú sem óðast að tygja
sig til heimferðar frá ríkjum Evrópu.
Kalda stríðinu er nú loksins lokið.
En við megum ekki gleyma því
að þrátt fyrir að friðvænlegar horfí
nú í okkar heimshluta em enn háð
strið víðs vegar i heiminum. Hættan
á styijöld í Mið- Austurlöndum hef-
ur sennilega aldrei verið meiri. Við
Persaflóa em nú mörg hundmð þús-
und hermenn í viðbragðsstöðu. Víg-
búnaður er gífurlegur og allt bendir
til að stríð geti hafist þar innan nokk-
urra vikna. Ef til styrjaldar kemur
verða afleiðingamar skelfllegar.
Iraski herinn hefur þegar hótað að
beita efnavopnum og hætta er á að
kjamorkuvopn verði notuð í fyrsta
Sunneva Mist, 3 ára
skipti síðan sprengjumar féllu á Hí-
rósíma og Nagasakí. Vopnuð átök
geta ekki Ieyst þann vanda sem
skapast hefur vegna innrásar Iraks-
hers í Kúvæt en munu hafa í for með
sér enn meiri þjáningar fólksins sem
býr á þessu svæði. Það verður því að
leita allra leiða til sátta. Deiluaðilar
verða að kalla heri sína heim og
hefja þegar samningaviðræður.
Takmarki friðarhreyfinga um
kjamorkuvopnalausan og ffiðsaman
heim hefur enn ekki verið náð.
Fyrstu skrefin em að baki og í dag
göngum við ffiðargöngu og tendmm
ffiðarljós í þeirri von að sá dagur
megi koma að þjóðir heims læri að
leysa ágreiningsmál sín án vopnaðr-
ar íhlutunar.
Gleðileg
jól
Friðarhópur fóstra, Friðarhópur
listamanna, Friðarhreyfing íslenskra
kvenna, Friðarömmur, Friðar- og
mannréttindahópur BSRB, Menn-
ingar- og ffiðarsamtök íslenskra
kvenna, Samtök herstöðvaandstæð-
inga, Samtök Iækna gegn kjamorku-
vá, Samtök íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjamorkuvá, _ Samtök um
kjamorkuvopnalaust ísland.
Samstarfshópur ffiðarsamtaka
gengst fyrir blysfor niður Laugaveg
í dag. Gangan hefst á Hlemmi kl. 18
og endar á Lækjartorgi.
Bergrún Eggertsdóttir, 8 ára
ÞJÓÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdis Ellertsdóttir, Dagur
Þorleifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthiasson,
Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.L Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ólafur
Gíslason, Sævar Guðbjörsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigriður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir:
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgeröur Sigurðardóttir, Þórunn Aradóttir.
Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar:
Síðumúla 37, Rvík.
Sími: 681333.
Simfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóöviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verö í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Áskriftarverö á mánuði: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJiNN Laugardagur 22. desember 1990