Þjóðviljinn - 13.04.1991, Síða 7

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Síða 7
Flugskýlið skapar hundruð nýrra starfa Ólafur Ragnar afhendir Flugleiöum bréf um niðurfellingu aðflutningsgjalda. Mynd: Jim Smart. Störf fyrir 137 aðila munu skapast þegar nýja flugskýlið verð- ur tekið í notkun á Keflavíkurflugvelli. Og við hvert nýtt starf þar má búast við að tvö til þrjú önnur störf muni skapast í þjónustu vegna þess. Með margfeldisáhrifunum má því ætla að á milli 300 og 500 ný störf verði til á Suðurnesjum frá og með næsta ári. „Þetta þýðir að það verður grundvallarbreyting á atvinnu- ástandinu hér á Suðurnesjum,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í Keflavík í gær. Tilefnið var af- hending bréfs frá fjármálaráð- neytinu til Flugleiða, um niður- fellingu aðflutningsgjalda vegna byggingu nýja flugskýlisins á Keflavíkurflugvelli. Steinþór Guðmundsson verk- fræðingur kynnti byggingu þá sem um er að ræða. Flugskýlið verður það stórt að það getur rúmað 6 Boeing-737 flugvélar á sama tíma, án þess að þröngt verði í húsinu. Til marks um stærðina þá verður flugskýlið um 60 prósent stærra en flugstöðin á Keflavíkurflugvelli. Stærðin á flugstöðinni er 128 þúsund rúm- metrar, en flugskýlið verður 203 þúsund rúmmetrar. Þeir sem eiga erfitt að sjá fyrir sér stærðina í ljósi þessara talna, þá má minnast á að hurðirnar sem eru tvær, verða um 23 metrar á hæð og 70 metrar á lengd, hvor fyrir sig, sagði Steinþór. Samkvæmt þessu virðist bygging flugskýlisins verða viðamesta byggingarfram- kvæmd á landinu þetta árið, bæði hjá einkaaðilum og hjá því opin- bera. Guðmundur Pálsson fram- kvæmdarstjóri tæknisviðs Flug- leiða, upplýsti viðstadda um þýð- ingu þess að aðflutningsgjöldin voru felld niður. Nýjum störfúm mun fjölga hér á Suðurnesjum um 137 stöðugildi um leið og nýja flugskýlið verður tekið í notkun. Ef vel gengur þá má bú- ast við að þeim fjölgi, sagði Guð- mundur. Þetta þýðir enn fremur sagði hann; að öll starfsemi tæknisviðs flyst á aðeins einn stað. Að íslenskt fyrirtæki verður samkeppnisfært í fluginu, hvað viðkemur alþjóðlegum viðgerða- og viðhaldsmarkaði. Einnig verð- ur aðskilnaður farþegaflugs og hemaðarumsvifa á Keflavíkur- flugvelli endanlegur, sagði Guð- mundur. Til gamans má geta að sam- skipti stjómmálamanna geta verið góð, þrátt fyrir að kosningaslag- urinn sé á hæsta stigi. Ellert Ei- ríksson bæjarfulltrúi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og bæjarstjóri í Keflavík, þakkaði Ólafi Ragnari fjármálaráðherra og starfsfólki hans mikil og góð störf fyrir Suð- umesin. Sagði hann að ekki væri hægt að kvarta yfir framgangi fjármálaráðherra til eflingar at- vinnulífs á Suðumesjum. -sþ „Hreirp: haf hagur íslandsu Hlutskarpastur í verðlaunasam- keppni Norræns umhverfisárs og Landvemdar um hönnun á skilti sem verði sæfarendum og öðmm til áminningar um gildi hreins hafs fyrir land og þjóð, er Garðar Pét- ursson, auglýsingateiknari. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands á hins vegar heiðurinn af áminning- arorðunum: „Hreint haf hagur Is- lands.“ Verðlaunaféð sem Garðar hlaut að launum vom 400 þúsund krónur og stóð Landssamband útvegs- manna straum að þeim kostnaði. Fastlega er búist við skiltið með verðlaunahugmyndinni verði sett upp við allar hafnir landsins á næstu misserum. Tæplega 40 tillögur bárust í samkeppnina og eru þær nú til sýnis í Norræna húsinu .-rk Mynd Kristinn. Ibúar á Bráðræðisholti vilja Lýsi hf. burt Að undanförnu hefur staðið yfir undirskriftasöfnun meðal íbúa Bráðræðisholtsins þar sem skorað er á borgaryfirvöld að þau hlutist til um að verksmiðju Lýsis hf„ sem er í jaðri hverfisins, verði fundinn annar samastaður. Telja íbúarnir sig hafa nokkurn ama af verksmiðjurekstrinum og leggi af og til mikinn óþef frá verksmiðj- unni yflr byggðina. Að sögn Agústs Einarssonar, forstjóra Lýsis hf. og eins af eigend- um fyrirtækisins, hafa forráðamenn þess ígrundað að flytja reksturinn um set í náinni ffamtíð. - Eg get vel skilið og tekið undir það sjónarmið íbúanna að þessi rekstur eigi ekki heima inni í miðju íbúðahverfi. Bæði er að umferð er talsverð í tengslum við hann og reyk og lykt leggur stundum yfir hverfið. Hitt er annað mál að við vorum komnir þama löngu áður en ibúða- byggðin reis allt í kringum okkur, sagði Agúst. Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn fékk hjá Borgarskipulagi, er samkvæmt nýju hverfaskipulagi fyrir svæðið, sem gefið verður út fljótlega, gert ráð fyrir að það verði íbúða og atvinnusvæði. - Eg kannast hins vegar ekki við að Lýsi hf. hafi verið settir einhverjir úrslitakostir um að taka sig upp, sagði Ragnhild- ur Ingólfsdóttir hjá Borgarskipulagi. Agúst Einarsson sagði að for- svarsmenn fyrirtækisins hefðu ekki fengið neina beiðni frá borgaryfir- völdum um að starfsemi fyrirtækis- ins yrði flutt annað. - Eg hef bara heyrt ávæning af þessari undir- skriftasöfhun. - Starfsemi fyrirtækisins fer núna fram á tveimur stöðum i borg- inni, annars vegar við Grandaveg og hins vegar inni á Köllunarklettsvegi. Það hefur talsverðan kostnað og erf- iðleika í for með sér og við viljum gjaman að reksturinn verði allur á sama stað. Við höfum því átt i við- ræðum við borgaryfirvöld um lóða- úthlutun inni við Sundahöfn, sagði Agúst Einarsson. -sþ Styðja einhverfa þrátt fyrir hjásetuna ið skarð aleyfi SIF að er skrítin stjórn- málaspeki, sagði Sig- urgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Sel- tjarnarnesi um leið- ara Alþýðublaðsins þar sem sagt er að bókun fimm manna meirihluta Sjálfstæðis- manna um að sambýli ein- hverfra á Sæbraut hverfi burt lýsi raunveruleikanum á bak við slagorð flokksins um frelsi og mannúð. Sigurgeir sagði að það væri fáránlegt og lákúru- legt að segja að málið væri pól- itískt. Hann sagði ennffemur að íbú- amir hefðu í tvö ár reynt að sætta sig við sambýlið og hefðu gengið að því með opnum huga en að það hefði ekki blessast. Hann benti á að minnihlutinn hefði set- ið hjá við bókunina og væri það nokkur viðurkenning á rétti íbú- anna. Siv Friðleifsdóttir sem sæti á í bæjarstjóm fyrir Nýtt afl sagði að bókunin hefði komið flatt upp á minnihlutann. „Einhverjir fúll- trúar meirihlutans höfðu hitt íbú- ana við Sæbraut og þannig varð þessi bókun til og við vorum ekkert höfð með í ráðum," sagði Siv og benti á að þetta væru venjuleg vinnubrögð meirihlut- ans en hún taldi íbúana hafa þvingað bæjarstjórann í þessu máli. Siv sagði að minnihlutinn hefði setið hjá þar sem þetta væri mjög viðkvæmt mál og íbúamir væm í ójafhvægi vegna þess, en nágrannar heimilisins fjölmenntu á fúnd bæjarstjómarinnar. „En ég að sjálfsögðu stend með þessu meðferðarheimili og fötluðum og mér finnst ekki rétt að skora á fé- lagsmálaráðherra að flytja starf- semina,“ sagði Siv. I fyrrasumar samþykkti bæj- arstjórnin að gera tilraun með meðferðarheimilið á Sæbraut fram að síðustu áramótum. Gengi tilraunin ekki átti að fella rekstr- arleyfi heimilisins úr gildi. Bæj- arstjórnin hefur ekkert með rekstrarleyfið að gera, það er í hendi félagsmálaráðherra. Siv sagði að íbúamir hefðu margoft sent bæjarstjórninni bréf og minnt á þessa bókun og þannig hefði meirihlutinn átt í vandræð- um með þetta mál. Varðandi framhaldið sagði Sigurgeir að það yrði ekki hlaup- ið til i þessu máli. Hann sagði að svar ráðherra væri ekki nema munnlegt ennþá og að þegar ákveðið svar bærist yrði farið vandlega yfir málið. -gpm Jon Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra hefur kynnt nýj- ar reglur um útflutning á saltfiski sem heimila öðrum en Sölusam- tökum islenskra fiskframleiðenda útflutning á saltfiski til Ameríku- landa. Einkaleyfi SÍF til annarra saltfiskmarkaða, svo sem til Evr- ópulanda verður óbreytt um sinn. Þessi ákvörðun utanríkisráð- herra hefur valdið ýmsum saltfisk- framleiðendum miklum vonbrigðum og þá sérstaklega þeim sem hafa bundið miklar vonir við margítrek- aðar yfirlýsingar ráðherrans um þá nauðsyn að afnema þyrfti einkaleyfi SÍF á útflutningi saltfisks til Evr- ópulanda. Arthúr Bogason saltfisk- verkandi í Eyjum segir að Jón Bald- vin hafi alveg eins getað gefið út- flutningsleyfi frjálst til tunglsins. Hann segir að með þessu sé staðan í saltfiskútflutningnum nánast óbreytt. „Ég hélt að Jón Baldvin hefði til að bera meira hugrekki en hann sýnir í þessu máli“, sagði Art- húr Bogason. Samkvæmt hinum nýju reglum eru sett ströng skilyrði fyrir salt- fisksútflutningi til Ameríkulanda. Meðal annars verður útflytjandi að leggja fram skriflegan samstarfs- samning við verkendur jafnframt því sem þeir verða að vera skuldlausir við aðra útflytjendur. Þá þarf eigin- fjárhlutfall viðkomandi útflytjenda að vera minnst 25%, söluverð og skilmálar eru háðir samþykki utan- ríkisráðuneytisins. En síðast en ekki síst þarf fiskurinn að uppfylla gæða- kröfur og vera í sérstaklega merkt- um umbúðum. A undanfömum ámm hefur lítið verið flutt út af saltfiski héðan til Ameríkulanda, en talið er að mark- aður sé þar fyrir 40-50 þúsund tonn á ári og þar af 20 þúsund tonn til Brasilíu. Að mati utanríkisráðherra þykir rétt að_bíða með að afnema einka- leyfi SÍF á saltfiski til Evrópu þar til samningar takast milli Evrópu- bandalagsins og EFTA um Evrópska efnahagssvæðið. Arthúr Bogason segist vera vantrúaður á að einka- leyfi SÍF verði eins mikið tromp á hendi ráðherra þegar þar að kemur, miðað við árangur þeirra samninga- viðræðna til þessa. -grh Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.