Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 8

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 8
Fréthr Engin þörf fyrir lánsfjár- heimildir vegna álvers í ár Allt útlit er fyrir að engin þörf verði fyrir lánsfjárheim- ildir vegna álversins á Keilisnesi í ár en nokkur átök urðu um þessar heimildir á Aiþingi á síðustu dögum þingsins. Arni Grétar Finnson sem situr í samninga- nefnd stjórnar Landsvirkjunar um raforkuverðið sagði í samtali við Þjóðviljann að þegar fjármögnun Atlantsáls-hópsins iýkur þurfi einn til tvo mánuði til að ljúka samn- ingum um raforkuverð. Landsvirkjun mun ekki ráðast í fram- kvæmdir fyrr en raforkusamningurinn er frágenginn og missir því Iíklega af sumrinu* „Raforkusamningurinn hefur verið settur upp í öllum atriðum. Það er ólokið ýmsum mikilvægum þáttum málsins, einkum fjárhagsleg- um ábyrgðum og skuldbindingum aðila og endurskoðunarákvæðum, þótt í þeim þáttum málsins hafi líka miðað vel,“ sagði Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra. „En að sjálfsögðu er orkusamningar af þessu tagi þannig að þar er ekkert búið fyrr en allt er búið,“ bætti ráðherra við. Hann telur að það taki stuttan tíma að ganga frá raforkusamningi eftir að fjármögnunarþættinum lýkur en þegar hann var spurður hvað stuttur tími væri langur tími vildi hann ekki tiltaka það nánar. Árni Grétar er ekki sammála Jóni í því hve langt samningar um raforkuverð eru komnir en hann tel- ur mikið óunnið i álsamningunum. „Eftir er að vinna undirstöðuatriði einsog raforkusamninginn. Þetta er ekkert vandamál fyrir ríkið sem ætl- ar bara að hirða sína skatta. En í raf- orkusamningnum eru enn veiga- miklir þættir sem eru ófrágegnir þó mikið hafi verið unnið í vetur,“ sagði Árni Grétar. Hann sagði að stærstu málin sem eftir væri að semja um væru tryggingar af hálfú Atlantsáls um að þeir byggi verk- smiðjuna og hvernig kaupin á raf- orkurmi verði tryggð. „Þetta er aðalmálið og meðan þetta er ekki klárt þá er málið ekki í höfn og langt því frá,“ sagði Ámi Grétar og bætti við að samningar um raforkuverðið hafi verið látnir bíða þar til tryggingarnar yrðu klárar. Hann sagði að þannig hefði ekkert verið farið í raforkuverðið í vetur. Hann sagði að það væri ekki hægt að meta málið fyrr en vitað væri hver áhættan yrði. Það skiptir máli hvemig tryggingar verða settar og það skiptir bankana máli hvort tryggingar komi frá eignarhaldsfé- lagi um verksmiðjuna eða frá móð- urfyrirtækjunum þremur, sagði Ami Grétar. Hann vildi ekkert fullyrða um það hvort krafist yrði lægra raforku- verðs ef tryggingamar kæmu ekki frá móðurfyrirtækjunum en það er ljóst að fjármögnunin verður óhag- kvæmari ef verksmiðjan sjálf og hlutafé hennar verður eina trygging- in. Ámi Grétar sagði að ef samn- ingsvilji af beggja hálfu væri fyrir hendi ætti að vera hægt að ná sam- komulagi um raforkuverðið á einum til tveimur mánuðum. Hann benti á að slæmt væri ef það væri rétt að ekki ætti að bera málið undir stjómir fyrirtækjanna þriggja fyrr en á næsta ári. „Landsvirkjun getur ekki farið af stað þó búið sé að skrifa undir samninga með fyrirvörum um sam- þykki stjórna eignaraðila þvi að komi einhver þeirra, og segi nei þá fellur rnálið," sagði Ámi Grétar. Þannig er ljóst að þótt Atlantsál tækist að ganga frá fjármögnun mjög fljótlega tæki einn til tvo mán- uði að semja um raforkuverðið, það tæki síðan einhvem tíma að bera þetta undir stjómir fyrirtækjanna þriggja sem standa að Atlants- áls-hópnum og þá yrði að minnsta kosti langt liðið á sumarið og fram- kvæmdatími á Islandi liðinn. Það virðist því sem engin þörf verði á þeim 800 miljónum sem Lands- virkjun var heimilað að taka að láni vegna virkjunarframkvæmda vegna álvers né heimilda til að kaupa land í Vatnsleysustrandar- hreppi. Ljóst er að ekkert verður af framkvæmdum ef málið verður ekki tekið fyrir af stjómum fyrir- tækjanna þriggja fyrr en á næsta ári en það fékkst ekki staðfest í gær þar sem ekki náðist í Thomas Hagley upplýsingafulltrúa Atlants- áls-hópsins. -gpm Talið í Bolungarvík Sú ákvörðun yfirkjörstjórnar í Vestfjarðakjördæmi að talning atkvæða í alþingiskosningunum verði í ráðhúsinu í Bolungarvík, hefur mælst misvel fyrir, Einkum og sér í lagi meðal innfæddra ísfirðinga sem telja það vera vanvirðingu við höfuðstað Vestfjarða, auk þess sem veður og færð geta seinkað talningunni í Bolungarvík. í fyrslunni fór yfirkjörstjórnin þess á leit við hússtjórn Stjórn- sýsluhússins á Isafirði að fá þar inni með atkvæðatalninguna en því var hafnað. Að mati hússtjórnar mundi því fylgja of mikið ónæði og eins hefði umgengni þeirra sem áður hafa fengið þar inni, verið slæm. Þvi var það mat yfirkjör- stjómar að sýnu best væri að telja i ráðhúsinu í Bolungarvík því að- staða í grunnskólanum á Isafirði væri ekki nógu góð og þar væri til að mynda ekki símfax. Þeir sem gagniýnt hafa þessa ákvörðun yfirkjörstjómar hafa bent á þá staðreynd að veður og færð geta torveldað flutning kjörkassa frá Isafirði til Bolungarvíkur og seinkað talningu. Þessu vísar for- maður yfirkjörstjómar, sem sjálfur er Bolvíkingur, á bug og bendir á að ef eitthvað verði ,að færð þá sé ekkert mál að ryðja Óshlíðina. -grh Snj ómoksturs- dögum fjölgar Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra hefur breytt reglum um snjómokstur á ýms- um mikilvægum þjóðvegum þannig að þeim er fjölgaö úr tveim í þrjá á viku á eftirtöldum leiðum: Á þjóðvegi 1, á milli Víkur í Mýrdal og Heydaia í Breiðdal, veginum frá Selfossi að Laugar- vatni, Aratungu og Flúðum, Barðastrandarvegi á milli Brjáns- lækjar og Patreksfjarðar og á milli Akureyrar og Húsavíkur. Á nokkrum vegum sem mok- aðir voru vikulega með heimild til opnunar tvisvar í viku þegar snjó- létt var, á nú að moka tvisvar í viku og heimilt að moka þrisvar í viku þegar snjólétt er. Helstu vegir sem þetta gildir um eru: Ólafsvíkurvegur á milli vega- móta Heysdalsvegar og Ólafsvíkur, Kerlingarskarðsvegur, Vestfjarða- og Reykhólasveitarvegir á milli Búðardals og Reykhóla, á milli Þingeyrar og Flateyrar, Hólmavík- urvegur og Norðausturvegur á milli Húsavíkur og Vopnafjarðar. -grh Frambjóðendur og geðsjúkir Fjallað verður um neyðar- ástand í málefnum geðsjúkra og afstöðu frambjóðenda allra stjórnmálaflokka til þess á opn- um fundi sem Geðhjálp, félag fólks með geðræn vandamál, að- standenda þeirra, áhugafólk um geðheilbrigðismál og Átak, að- standendafélag boðar til. Fundurinn verður á morgun, sunnudag, á Hótel Borg og hefst kl. 12.30. Fundinn silja frambjóðendur allra sljórnmálaflokka í komandi alþingiskosningum. Þeir munu flytja ávörp og svara fyrirspumum. -Sáf Salurinn, sem er samsettur úr tveimur skólastofum, var troðfullur í tilefni af undirskrift samningsins. Mynd Jim Smart. Fjölbrautaskóli Suðumesja mun stækka um helming Við hátíðlega athöfn undirrituðu fulltrú- ar Alþingis, Svavar Gestson og Ólafur Ragnar Grímsson, samning við sveita- stjórnir á Suðurnesjum um stækkun á Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Þegar skólameistarinn Hjálmar Ámason bauð gesti velkomna, not- aði hann tækifærið og benti gestum á hve þrengslin væru mikil. Ábendingin var óþörf, þvi þrátt fyrir að stór hluti nemenda væri ekki viðstaddur, komust gestimir varla fyrir í salnum. Svavar Gestsson menntamála- ráðherra þakkaði sveitastjómum á Suðumesjum hvemig staðið hefði verið að málum núna og áður varð- andi skóiann. Ég vil ítreka að þessi áfangi hér á Suðumesjum er ekki aðeins uppbygging þessa skóla, heldur bytjun ákveðinnar þróunar í skólamálum um allt land, sagði Svavar. Ólafur Ragnar Grímsson Qár- málaráðherra sagði að skuldbind- ing ríkisins vegna þessa samnings næmi 179 miljónum, sem væri um 60 prósent af kostnaði við bygg- inguna.“Samstaða sveitarfélaganna hér á Suðumesjum gagnvart þess- ari uppbyggingu er lýsandi dæmi um það, hvemig heimamenn geta fengið stærri feng í höfn, ef þeir standa saman“, sagði Ólafur. Greinilegt er að Suðurnesja- menn eru fullir tilhlökkunar að taka nýju viðbygginguna í notkun. Þegar skólameistarinn bauð gest- um uppá veitingar, notaði hann tækifærið og bauð um leið öllum að vera viðstaddir vígslu bygging- arinnar, 1. september 1992. -sþ ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991 itsci inijD ui uynu,t>^utj_i ki/nu-i v Síða 8 « boic;

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.