Þjóðviljinn - 13.04.1991, Qupperneq 9
Fméthm
Sameining atvinnusvæða
í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Aundanförnum ár-
um hafa umræður
um sameiningu at-
vinnusvæða Mýra-
og Borgarfjarðar-
sýslu oft verið á
dagskrá. Nú hillir
undir það að í náinni framtíð
verði þessari sameiningu komið á.
Það sem helst hefur staðið í vegi
fyrir sameiningu atvinnusvæða í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, er
andstaða Verkalýðsfélagsins Harðar
sem starfar í Skilmannahreppi í
Hvalfirðinum.
Á fundi bæjarstjórnar Borgar-
ness var nýlega lögð fram sameigin-
leg tillaga hennar og Akranesbæjar
um að skora á stéttarfélög á þessu
atvinnusvæði að afnema þá skipt-
ingu sem rikt hefur á svæðinu. Áf-
greiðslu tillögunnar var aftur á móti
frestað að beiðni Verkalýðsfélags
Borgamess.
Jón A. Eggertsson, formaður fé-
lagsins, sagði að félagið hefði rök-
stutt þessa beiðni sína með því að
viðræður hefðu farið fram milli
verkalýðsfélaganna þriggja í Borg-
amesi, á Akranesi og í Skilmanna-
hreppi um sameiginlegt atvinnu-
svæþi.
I bréfi því sem bæjarstjóm Borg-
amess fékk frá verkalýðsfélaginu
segir meðal annars: „verður um
frekari iðnaðaruppbyggingu á Hval-
Ijarðarsvæðinu að ræða, hefur þegar
verið gert samkomulag um sameig-
inlegt vinnusvæði milli Verkalýðsfé-
lags Akraness, Verkalýðsfélags
Borgamess og Verkalýðsfélagsins
Harðar á Hvalftarðarströnd.“
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, sagði að ákveðnir gallar
væm fylgjandi því að vera með af-
markað atvinnusvæði eftir stéttarfé-
lögum og sveitarfélögum. Það sem
fyrir bæjarfélögunum vekti með
þessum tillögum væri að tenging at-
vinnusvæðisins milli þessara bæja
og sveitanna i kring gæti ekki verið
nema þeim öllum til hagsbóta. Sam-
eiginleg kynning sveitarfélaganna á
kostum þeirra og framtíðaráætlanir
um uppbyggingu stór- og smáiðnað-
arhlyti að koma þeim öllum til
góða, sagði Gísli.
-sþ
Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga kemur til með að tilheyra sameiginlegu atvinnusvæði Mýrar- og Borgarfjarðarsýslu.
„Engi
hornkerling
vil ek vera“
Verður fyrirhugað framhald
Laugarnesvegar yfir Sæbraut til
að gera ummæli Hallgerðar lang-
brókar að veruleika? Samkvæmt
nýjum tillögum að deiliskipulagi
fyrir Laugnarnesið, mun friðlýst-
ur kirkjugarður verða svo að-
krepptur að það brýtur í bága við
þjóðminjalög.
Umdeild tillaga að nýju deili-
skipulagi fyrir Laugarnesið liggur
fýnr hjá skipulagsstjóra. Fomleifa-
nefnd sendi skipulagsstjóra bréf þar
sem m.a. kemur fram „Nefndar-
menn urðu sammála um að óska eft-
ir því að nýr vegur austan ffiðlýstra
minja í Laugamesi yrði ekki lagður
eða færður austar en tillögur gera
ráð fyrir“.
Margrét Hallgrímsdóttir borgar-
minjavörður hefur og sent umhverf-
ismálaráði Reykjavíkur ítarlega um-
sögn vegna skipulagstillögu Laugar-
nessins. í því kemur fram að líkur
bendi til að lepustaður Hallgerðar
Langbrókar se í hinum friðlýsta
Laugameskirkjugafði. I bréfinu seg-
ir meðal annars „Ut frá sjónarhomi
minjavemdar er sérstaklega gerð at-
hugasemd við veg ffamhjá friðlýst-
um bæjarhól og kirkjugarði í skipu-
lagstillögu Laugamess. Samkvæmt
17. gr. nýsamþykktra þjóðminjalaga,
skal þeim minjum sem friðlýstar em
fylgja 20 m friðhelgað svæði út frá
ystu sýnilegum mörkum fomleifa og
umhverfis nema kveðið sé á um
annað“. Einnig kemur fram í bréfi
Margrétar til umhverfísmálaráðs að
leita verði leiða til að breyta fyrir-
hugaðfi aðkomu að Listasafni Sigur-
jóns Olafssonar. Því í skipulaginu
muni hún skilja i sundur gamla túnið
ffá Laugamesfjörunni.
Þorvaldur S. Þorvaldsson skipu-
lagsstjóri sagði við Þjóðviljann að
öllum umræðum um nýtt deiliskipu-
lag við Laugames hafi verið frestað
á sínum tíma vegna þess að um það
væm skiptar skoðamr. Ráðgert væri
að umhverfismálaráð og skipulags-
nefnd fæm um svæðið nú með vor-
inu og skoðuðu Jþá möguleika sem
fyrir hendi væm í framtíðarskipulagi
svæðisins.
-sþ
Hin umtöluðu gatnamót og forn-
minjarnar eru hér innan hringsins
sem dreginn hefur verið á kortið.
Fiskverðsdeilan
enn óleyst
Uppsagnir sjómanna á
þremur ísfísktogurum Síldar-
vinnslunnar hf. á Norðfirði
koma til framkvæmda siðasta
vetrardag, miðvikudaginn 24.
aprfl hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma. Þá er enn
ósamið við togarasjómenn á
Eskifirði, en samningar hafa
tekist á Fáskrúðsfirði.
Togarasjómenn á Norðfirði
fara fram á að fá Akureyrarsam-
komulagið og jafnframt að fá hlut-
deild í Tsfisksútflutninenum, eins
og þeir hafa haft. Sildarvinnslan
hefur boðið togarasjómönnunum
Akureyrarsamkomulagið en þó
með því skilyrði að fyrirtækið hafi
fullt forræði yfir ráðstöfun aflans.
Á þetta hafa sjómenn ekki viljað
fallast og er næsti samningafundur
boðaður næstkomandi mánudag.
Jóhann Sigurðsson útgerðar-
stjóri Síldarvinnslunnar segir að
fyTirtækið hafi aðeins átt einn fund
með sjómönnum áður en þeir
ákváðu að segja upp. Jóhann segir
að það verði að koma á einhveij-
um vitrænum vinnureglum á milli
aðila þannig að menn virði að
minnsta kosti hver aðra. Hann
segir að það gangi ekki upp að
menn stilli öðrum aðilum strax
upp við vegg ef hann felst ekki á
sjónarmið hins svo til samstundis.
Jóharrn sagðist skilja vel sjón-
armið fiskvinnslufóíks að það
fengi sinn hluta af kökunni eins og
sjómenn, því hlutur þess i vinnslu
sjávarafurða væri jam mikilvægur
og þeirra við veiðamar.
-grh
Kröfur Norðmanna
torvelda EES-samning
Kröfur Norðmanna
um að sömu reglur
skuli gilda fyrir
norskan og íslenskan
sjávarútveg í EES-
samningunum tor-
velda möguleika á aðild Islands
að Evrópsku efnahagssvæði, hef-
ur norska dagblaðið Aftenposten
eftir Jóni Baldvin Hannibalssyni
utanríkisráðherra í gær.
Jón Baldvin segir jafnframt að
staða sjávarútvegs í þessum lönd-
um sé ekki sambænleg, þar sem
hún falli undir byggðastefnu í Nor-
egi en sé undjrstaða þjóðarfram-
leiðslunnar á Islandi. Jón Baldvin
sagði enn ffernur að Noregur hefði
margvislegan ávinning af
EES-samningnum s?m iðnríki, á
meðan ávinningur Islands væri
fyrst og ffemst á sjávarútvegssvið-
inu. Fiskur væri aðeins 7% af út-
flutningi þlorðmanna en 80% af út-
flutningi Islendinga.
Þótt blaðið hafi þetta eftir utan-
ríkisráðherra, þá segir það jafn-
framt, að enginn islenskur ráðherra
vilji gagnrýna samningskröfur
Norðmanna opinberlega í Brussel.
Hins vegar hafi bæði sjávarútvegs-
ráðherra og utanríkisráðherra látið
í ljós gremju vegna málsins.
Blaðið hefur það líka efjir
Steingrími Hermannssyni, að Is-
landi sé vel borgið utan EB, og Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra segir
að ekki verði um neina samninga
að ræða um EES án viðunandi sér-
ákvæða fyrir íslenskan sjávarút-
veg.
Blaðið hefur það jafnframt eftir
Ólafl G. Einarssyni, að Sjálfstæð-
isflokkurinn útiloki ekki aðild að
EB, en hún sé hins vegar ekki á
dagskrá í komandi alþingiskosn-
ingum.
Kjörfundur í Reykjavík
vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 20. apríl 1991 hefst kl.
09:00 og lýkur kl. 22,:00 þann dag.
Sérstök athygli kjósenda er vakin á eftirfarandi ákvœöi laqa nr.
10/1991:
"Er kjósandi kemur inn í kjörfundarstofuna gerir hann kjörstjórn
grein fyrir sér með því að framvísa nafnskírteini eða á annan
fullnœgjandi hátt. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvœði
samkvœmt kjörskránni afhendir oddviti honum einn kjörseðil."
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt
von á því að fá ekki að greiða atkvœði.
Yfirkjörstjórnin mun á kjördegi hafa aðseturí Austurbœjarskólanum
og þar hefst talning atkvœða þegar að loknumkjörfundi.
Reykjavík, 9. apríl 1991.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur
Síða 9
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991