Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 11
/,'?>7ENNING
Dönsk steinþrykk í Nýhöfn
Menn eru búnir að gera sér grein fyrir því að það er
ekkert sem getur komið í staðinn fyrir ekta stein-
þrykk, sagði Lars Köhier, forstöðumaður UM stein-
þrykksverkstæðisins í Kaupmannahöfn við biaða-
mann Þjóðviljans í vikunni. Hann var að hengja upp
úrval verkstæðisins af steinþrykksmyndum eftir
danska listamenn í Gallerí Nýhöfn, en sýningin verður opnuð í dag
kl. 14 sem liður í dönskum vordögum.
Steinþrykksaðferðin er um 200
ára gömul, upprunnin í Þýskalandi
og breiddist hratt út í upphafi 19.
aldar. Upphaílega var aðferðin not-
uð til kortagerðar og hagnýtrar
myndgerðar og til þess að gera eft-
irlíkingar af ffummyndum. Lista-
menn uppgötvuðu svo að hægt var
að nota steinþrykkið sem sjálf-
stæðan listmiðil og var það m.a.
notað af Toulouse Lautrec, Goya
og Daumier með miklum árangri.
Steinninn sem unnið er á er
náttúrulegur kalksteinn með kísil-
leir, sem mestmegnis er unninn úr
námu i Solenhofen í S-Þýskalandi,
og er hver steinn allt að 10 sm á
þykkt. Hægt er að nota sama stein-
inn fyrir margar myndir og getur
hann enst áratugum saman.
Þegar offsett-tæknin kom til
sögunnar hættu menn að nota
steinþrykk í hagnýtum tilgangi, og
margir listamenn tóku að vinna í
zinkplötur í staðinn fyrir stein.
Lars Köhler sagði okkur að nú
væru ekki eftir nema 18 vinnustof-
ur í Evrópu, sem ynnu steinþrykk,
og því væri mikið af þeirri graflk
sem seld væri sem steinþrykk eða
lithografla ekki raunverulegt stein-
þrykk. Hins vegar hefðu menn
komist að því að í steininum búa
eiginleikar sem gera það að verk-
um að liturinn verður dýpri og
innilegri af steininum en með öðr-
um aðferðum.
Lithograflusteinar eru ekki
lengur unnir í námunni í Solenhof-
en, og sagði Köhler að erfitt væri
orðið að fá nýja steina. Sagði hann
að UM-verkstæðið státaði af því
að eiga stærsta lithograflusteininn í
Evrópu, sem er 80x120 sm og veg-
ur 350 kg. Þeir fundu hann í gömlu
verkstæði sem búið var að loka á
eyjunni Hawaii í Kyrrahafi!
UM-verkstæðið velur sér sjálft
listamenn og býður þeim að vinna
á steininn á verkstæðinu. Síðan eru
þar fagmenn sem sjá um sjálfa
prentunina, og sagði hann að verk-
stæðið gæfi að meðaltali út 40
myndir á ári í mismunandi upplög-
um. Verkstæðið gerir samning við
listamennina sem útgefandi og sel-
ur sjálft myndimar, en upplagið
getur verið frá 50 upp í 200 eintök.
A sýningunni í Gallerí Nýhöfh
em verk eftir 11 danska listamenn,
og gefst íslendingum þama kostur
á að eignast ekta steinþrykks-
myndir eftir viðurkennda danska
listamenn fyrir viðráðanlegt verð
(16-20 þús. kr.). Sýningunni í
Gallerí Nýhöfh lýkur 23. apríl.
-ólg.
Dönsk
myndlist
á 9. ára-
tugnum
Á sunnudaginn kl 17.00 heldur
Öystein Hjort fyrirlestur um
danska myndlist á 9. áratugnum í
Norræna húsinu.
Öystein Hjort er listffæðingur
og listgagnrýnandi Politiken, auk
þess sem hann er lektor í listasögu
við Kaupmannahafnarháskóla.
Hann hefur m.a. skipulagt sýning-
ar og kynningu á danskri myndlist
erlendis.
Fyrirlesturinn á sunnudag er sá
fyrsti í röð fýrirlestra um myndlist
á Norðurlöndum, en sunnudaginn
21. apríl mun Gertrad Sandquist
flytja fyrirlestra um sænska og
finnska nútímalist. Sunnudaginn
5. maí mun Harald Flor myndlist-
argagnrýnandi Dagblaðsins í Oslo
tala um norska nútímalist.
(Frá Norræna húsinu)
Þjóðleikhúsið
opið almenningi
Þjóðleikhúsið verður opið al-
menningi í dag frá kl. 14 til 17.
Þar gefst mönnum kostur á að
skoða breytingamar sem gerðar
hafa verið á húsinu. Starfsmenn
leikhússins munu taka á móti gest-
um og skýra breytingar og lagfær-
ingar. Einnig gefur að líta sýningu
á teikningum húsameistara ríkisins
vegna seinni áfanga framkvæmda
við Þjóðleikhúsið.
Hrollvekjandi gott úrval!
| Það er ísköld staðreynd að
I allir viíja eiga traust og
| örugg kæli- og frystitæki.
\ En þau þurfa líka að vera
1 falleg, hljóðlát og spar-
neytin. Þess vegna eiga
Electrolux og Ignis erindi til
allra sem gera kröfur.
Úrvalið í kælideildunum
okkar er nánast hrollvekj-
andi og verðið eins og það
hafi legið í frysti í eitt ár.
Veldu Electrolux eða Ignis.
Við ábyrgjumst að þau
endast og endast.
Heímasmiðjan iS húsasmiðian
™ N B cl,c:—. co n ir
Kringlunni ■ Sími 68 54 40
Skútuvogi 16 Simi 68 77 10
F 4966 ELM
Sambyggður ofn/
örbylgjuofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill.
Full sjálfhreinsun,
kjöthitamælir, spegilútlit,
örbylgjuofn, tölvuklukka
og tímastillir.
o
Cf>
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill, full
sjálfhreinsun, stálútlit,'
tölvuklukka og tímastillir.
F3805ELM
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill,
fituhreinsun, svart eða
hvítt spegilútlit,
tölvuklukka með tímastilli.
O
(/>
F 4805 ELX
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur og
grill, fituhreinsun, svart
eða hvítt glerútlit,
tölvuklukka með tímastilli.
Funahöfða 19
sími 685680
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991