Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 12
SIEMENSgæð/
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
.... i
---■■ ■■■ 'fi I r -
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptiö með nýrri þvottavél, sem slegiö hefur í
gegn og mun vafalaust veröa öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluö
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
f gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hriþum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg f notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
SMITH&
NORLAND
1,8 miljarðar fyrir utan LL- og Þjóðleikhús
Svavar Gestsson menntamálaráðherra skrifar
Tilefni þessarar athugasemdar er
grein sem birtist í Þjóðviljanum í gær,
12. apríl, og fjallar um menningu (list
og peninga). Fyrst er fjallað um út-
flutningsmiðstöð menningarverka. Þar
kemur fram verulegur misskilningur;
hinn alvarlegasti er þó sá að frumvarp-
ið hafi orðið til án samráðs við lista-
menn. Næstalvarlegast er það þegar
reynt er í greininni að gera frumvarpið
tortryggilegt með því að það þýði
aukna miðstýringu. Nú er alger mið-
stýring á því litla fjármagni sem fer til
að styðja listamannafélögin - það ger-
ist á vegum ráðherra einvörðungu sem
auðvitað leitar ráða og samráðs en
valdið er formlega í höndum hans frá
upphafi til enda. Að vísu fara menn
misjafhlega vel/illa með það vald. í
firumvarpinu er hins vegar gert ráð fyr-
ir að þessir fjármunir verði teknir af
ráðherra og að þeim verði öllum út-
hlutað á vegum stjómar skrifstofunnar
og þar ráða listamenn úrslitum. Með
öðrum orðum: valddreifmg.
Mér sýnist greinarhöfundur sam-
mála mér í grundvallaratriðum en vilji
helst ekki vera það. Fmmvarpið varð
því miður ekki að lögum. Ég skora á
greinarhöfund að senda mér ábending-
ar strax um það sem betur mætti fara
þvi það verður örugglega unnið að
þessu máli áfram ef undirritaður gegn-
ir áffatn störfum hér í ráðuneytinu -
sem ég er vissulega reiðubúinn til að
gera.
I öðm lagi - og það er alvarlegasti
misskilningur greinarinnar - er fullyrt
að kostnaður við Þjóðleikhús og LL-
hús nemi 1,1 miljarði og þar með sé
öll aukningin farin á framlögum til
lista- og menningarstarfsemi.
Þetta verður að leiðrétta og það
strax.
Heildarffamlög til menningarmála
á þessu ári em 1.964.915.000 kr. - eða
rétt tæpir tveir miljarðar. Af þeirri upp-
hæð em ffamlög til Þjóðleikhússins -
ffamkvæmda - 140 milj. kr. LL-húsið
var keypt með þeim hætti sem gerð
hefur verið grein fyrir; það er með því
að láta önnur hús á móti. Það er ekki
ein króna í þeim viðskiptum reiknuð
inn í ffamlögin til menningarmála.
Tekið skal ffam að talan sem hér er
nefnd nákvæmlega um ffamlög til lista
og menningarstarfsemi - rétt tæpir
tveir miljarðar - er ekki nákvæm, því
utan hennar er til dæmis sú staðreynd
að skerðingin á kvikmyndasjóði var
felld niður á Jressu ári og verður hann
því hærri en fjárlög gera ráð fyrir svo
munar nokkrum upphæðum. Þannig að
það er vel unnt að tala um tvo miljarða
í þessu sambandi. Þegar ffamlögin til
endurbóta Þjóðleikhússins í ár og kaup
LL- hússins hafa verið tekin út fyrir
myndina standa samt eftir um 1,850
miljarðar króna. Því fer víðs fjarri að
ffamlög til annarra verkefha en Þjóð-
leikhúss og LL- húss séu um 700 milj.
kr. eins og greinarhöfundur heldur
ffam. Að vísu voiu öll ffamlög til
menningarstarfsemi á sama verðlagi
litlu hærri 1984 þegar íhaldið var við
völd. Þá voru heildarffamlög til menn-
ingarmála 813 milj. kr. - eða heilum
miljarði lægri en þau eru nú!
Þá nefitir greinarhöfundur List-
skreytingasjóð. Hann hefur hækkað úr
7 milj. lor. 1989 í 12 milj. kr. Hann hef-
ur semsé hækkað verulega en er enn
allt of knappur. Þess vegna verður
haldið áffam á sömu braut.
Og að lokum: Það er mikil gæfa
að fá tækifæri til að vera menntamála-
ráðherra í nokkur ár og að fá tækifæri
til að treysta undirstöður sjálfstæðis
þjóðarinnar. í því verki er aðalatriðið
það að hafa haff það á tilfmningunni
allan tímann að það sé verið að gera
gagn. Þess vegna skipta einstök verk
ekki öllu heldur heildin þegar upp er
staðið og sú staðreynd að það er gott
bú sem skilað er á þeim tímamótum
sem verða 20. apríl næstkomandi, þeg-
ar við eigum kost á því að halda á
sömu braut - eða því að sökkva aftur
ofan í far ofstjómar og niðurskurðar
sem einkenndi valdatíma Sjálfstæðis-
flokksins í menningarmálaráðuneyt-
inu.
Leiðrétting
Nafh og mynd af höfundi
greinarinnar „Um menningu
(list og peninga)“ í Nýju
Helgarblaði í gær féll niður.
Höfundur greinarinnar er
Kristinn E. Hrafhsson mynd-
höggvari. Er hann beðinn
velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Kristinn E. Hrafnsson
AFMÆLISSÝNING
I tilefni af 30 ára afmæli Seðlabanka íslands hefur verið
efnt til sérstakrar mynt- og seðlasýningar í Seðlabankahúsinu
við Amarhól.
Á sýningunni er ýmislegt áhugavert efni um gerð íslensks
gjaldmiðils fyrr og síðar, þar á meðal tillöguteikningar af seðl-
um og mynt, sem ekki hafa verið sýndar áður.
Þá eru einnig á sýningunni gömul íslandskort í eigu bank-
ans, auk þess sem þar fer fram stutt kynning á starfsemi hans.
Sýningin er opin daglega á afgreiðslutíma bankans,
kl. 9.15 -16.00, svo og laugardag og sunnudag 13. og 14. apríl
kl. 13.00 - 18.00.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
KALKOFNSVEGI1
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991
12