Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 13

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 13
Ragnar Arnalds: Sjóndeildarhringur Sjálfstæðismanna nær ekki út fyrir Faxaflóasvæðið. Baráttan stendur á milli okkar og Sjálfstæðisflokksins Ragnar Arnalds al- þingismaður skipar fyrsta sætið á lista Alþýðubandalags- ins á Norðurlandi vestra. Hann var spurður tíðinda úr kosninga- baráttunni Þessi kosningabarátta er um margt sérstæð. Það virðist vera afskaplega erfitt fvrir kjó að gripa það um nvað kc jósendur íosning- amar snúast. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur til dæmis engin skýr stefnumál. Hann fer undan í flæmingi og svarar engu um það hvort hann vilji aðild að Evrópu- bandalaginu eða ekki. Afstaða hans til búvörusamningsins er mjög óljós og hann fæst varla til að ræða það mál. Hann dylgjar um skattahækkanir hinna flokk- anna, en segir nákvæmlega ekk- ert um það hvernig hann vill halda á skattamálunum. Að þessu leyti sker Alþýðu- bandalagið sig úr. Við emm eini flokkurinn sem hefur sagt til um það hvernig hægt er að koma fram stórfelldri lífskjarajöfnun. Annars vegar með sérstökum há- tekjuskatti og fjármagnssköttum og hins vegar með hækkun skatt- frelsismarka í þágu láglauna- fólks. Við höfum skýra afstöðu til Evrópubandalagsins: Aðild ís7 lands kemur ekki til greina. í stefnu okkur em einnig fjölmörg áhersluatriði sem varða lands- byggðina. Ef við lítum á Kvennalistann þá hafa þær að vísu fengið skattastefnu okkar að láni en að er nú eitt af ví fáa sem er skýrt og klárt hjá þeim. Vandinn er að þær em of fínar með sig. Þær ætla ekki að fara í stjóm, þær ætla að halda áfram að tala um málefhin, en við ætlum að koma þeim í fram- kvæmd. Kjaminn í málflutningi Fram- sóknar er ánægja með stjómar- samstarfið. Þeir em reyndar alltaf lukkulegir þegar þeir koma úr stjóm með okkur. Nú er Stein- grímur að berjast við það, með okkur, að ná niður vöxtunum, en Framsóknarmenn eru auðvitað alveg búnir að gleyma þvi að raunvaxtastigið þrefaldaðist með samþykki Fram- sóknar þegar þeir vom í stjóm með Sjálfstæðis- flokknum. Þeir eru líka mjög lukkulegir með það að mat- arskatturinn hafi verið verulega lækkaður og auðvitað alveg búnir að gleyma það voru þeir sem lögðu mat- arskattinn á ásamt Sjálfstæð- ismönnum og krötum og síst af öllu muna þeir eftir því hvernig verðbólgan æddi upp í samstjórn þessara flokka. Yfir krötunum er heldur dauft, ekki sist héma úti á landi. Fólki finnst að Alþýðuflokkurinn sé fyrst og fremst Reykjavíkur- fiokkur. Ekki er nóg með að for- maðurinn og varaformaðurinn séu þingmenn Reykjavíkur, held- ur allir ráðherramir líka. Kratar hafa nánast engar áherslur sem snerta landsbyggðina sérstaklega. Svona flokkur virðist ekki ætlast til þess að fá atkvæði úti á landi. Sjálfstæðisflokkurinn er líkur krötum í því að það er ekki eitt einasta baráttumál sem snertir landsbyggðina í einu eða neinu. Þá tel ég auðvitað ekki með stóra slagorðið á Landsfundi Sjálf- stæðisflokksins um að selja Rás tvö. Það mál hitar mönnum tals- vert í hamsi hér úti um land og sannar fyrst og fremst að sjón- deildarhringur Sjálfstæðismanna nær ekki út fyrir Faxaflóasvæðið. Þeir skilja ekki hvílíku þjónustu- hlutverki Rás tvö gegnir fyrir landsbyggðina. Þegar gengið er til kosninga mega menn ekki gleyma því að venð er að gera upp við tvær rík- isstjómir. Sú fym var með aðild Sjálfstæðisflokksins og þá var Alþýðgbandalagið í stjómarand- stöðu. I þeirri seinni snerist þetta við. Sagt er að Sjálfstæðisflokk- urinn se að bæta við sig atkvæð- um. Maður spyr sig að því fyrir hvað sé verið að verðlauna flokk- inn. Er verið að verðlauna hann fyrir árangurinn í slagnum viþ verðbólguna? A fyrsta ári kjör- timabilsins, þeg- ar Sjálfstæðis- menn sátu við völd, tvöfaldað- ist verðbólgan. Er verið að verð- launa hann fyrir sérstök afrek í skattamálum? Það gæti auðvit- að verið því það var Sjálfstæðis- flokkurinn sem kom matarskatt- inum á. Kannski verið sé að verðlauna flokkinn fyrir rekstrar- rundvöll atvinnuveganna í eirra stjórnartið, þegar allt stefpdi í þrot? I seinni stjórninni snerist þetta við. Verðbólgan hefur lækkað úr 30% í 5%, matarskatt- urinn var lækk- aður mjög vem- lega, verð á bú- vöru hefur ekki hækkað um nema 1% frá janúar ‘90 til janúar ‘91 og halli ríkissjóðs er helmingur af því sem hann var. Sama gildir um vextina, þeir hafa aldrei verið hærri en þegar Sjálfstæðismenn stjórnuðu með Framsókn og krötum. Nú hafa þeir hins vegar lækkað vemlega. Þetta er auðvit- að mjög mikilvægur árangur, en margt annað mætti nefna, ekki síst í byggðamálunum. Ertu bjartsýnn á gengi flokks- ins?, Eg er bjartsýnn fýrir hönd Al- þýðubandalagsins. En ég get auðvitað ekki neitað því að ég óttast það hvað skoðanakannanir gefa Sjálfstæðisflokknum mikla fylgisaukningu. Ef þær spár anga eftir emm við í ovissu um ingsætið í þessu kjördæmi. All- ar horfur eru á að baráttan um þingsætið sé á milli Sjálfstæðis- fiokksins og Alþýðubandalags- ins. Baráttan hér á Norðurlandi vestra er á milli Alþýðubanda- lagsins og Sjálfstæðisfiokksins í fleiri en einum skilningi. Annars vegar er ljóst að stefnumálin ganga mjög i ólíkar áttir, en það er líka nokkuð ljóst að mjótt get- ur orðið á mununum á milli ann- ars manns Sjálfstæðisfiokksins og okkar. Alþýðubandalagið er eini flokkurinn sem hef- ur sagt til um það hvernig hægt er að koma fram stórfelldri lífskjarajöfnun Framsóknarmenn eru alveg búnir að gleyma því að það voru þeir sem lögðu matarskatt- inn á ásamt Sjálfstæðis- mönnum og krötum Frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins í Norður- landskjördæmi vestra til alþingiskosninga 1991 Fremri röð: Ragnar Amalds, al- þingismaður Varmahlíð, 1. sæti. Anna Kristín Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Sauðárkróki, 3. sæti. Elísabet Bjamadóttir, hrepps- nefndarmaður Hvammstanga, 4. sæti. Sigurður Hlöðvesson, tækni- ffæðingur Siglufirði, 2. sæti. Aftari röð: Þórarinn Magnús- son, bóndi Frostastöðum, 8. sæti. Kristín Mogensen, kennari Blönduósi, 6. sæti. Björgvin Karlsson, vélstjóri Skagaströnd, 5. sæti. Unnur Kristjánsdóttir, iðnráð- gjafi Blönduósi, 10. sæti. Þorvaldur G. Jónsson, böndi Guðrúnarstöðum, 7. sæti. Hafþór Rósmundsson, formað- ur Verkalýðsfélagsins Vöku Siglu- firði, 9. sæti. 13 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.